Dagur - 21.06.1967, Qupperneq 8
B
SMÁTT OG STÓRT
Góð gjöf Vestur-íslenclinga
BLAÐIÐ Lögberg-Heimskringla
1 Vesturheimi segir nýlega frá
því, að í Manitoba-fylki sitji
fimm þingmenn af íslenzkum
ættum á fylkisþinginu. En Vest
ur-íslendingar hafa jafnan látið
sig stjórnmál miklu skipta, allt
frá upphafi dvalar sinnar þar í
landi.
Nú hefur fólk af íslenzkum
aettum í Kanada vakið á sér
athygli með gjöf sinni til kana-
dísku þjóðarinnar í tilefni af
100 ára afmæli Fylkjasambands
Kanada.
Þegar um það var rætt, á
hvern hátt íslendingar vildu
minnast aldarafmælisins þótti
flestum tilhlýðilegt að minnzt
yrði þess manns, sem fyrstur
hvítra manna sté fæti á það
land, — Leifs Eiríkssonar og
þeirra, er með honum voru og
komu til landsins fyrir um það
bií 1000 árum.
Prófessor Haraldur Bessason
kom fram með þá hugmynd að
kafli úr Grænlendingasögu, er
skýrir frá siglingum íslendinga
til Kanada um aldamótin 1000
skyldi grafinn á málmtöflur og
þeim komið fyrir á þeim stöð-
um er hæfa þætti. En aðaltafl-
an er úr eyr og var hún afhent
Pearson forsætisráðherra og
verður henni komið fyrir á
Góðaksfurskeppni á Húsavík
Húsavík 20. júní. Bindindisfélag
ökumanna og Slysavarnadeild
kvenna á Húsavík efndu til
fræðslu um umferðarmál á
Húsavík dagana 13.—18. júní.
Sigurður Ágústsson formaður
samtakanna Varúð á vegum
stjórnaði fræðslustarfinu. Sýnd
ar voru kvikmyndir og skugga-
myndir um umferðarmál og
flutt erindi um þau. Efnt var til
hjólreiðakeppni fyrir drengi og
var sú keppni felld inn í hátíða-
höldin 17. júní. Síðasti dagur
fræðslunnar var sunnudagurinn
18. júní og þá fór fram keppni í
góðakstri. Þátttakendur voru
14, þeirra á meðal ein kona.
Sigurvegari var Hilmar Þor-
valdsson, annar Grímur Leifs-
son og þriðji Oli Kristinsson.
Forstöðumenn umferðarfræðsl-
unnar efndu til kaffisamsætis á
Hótel Húsavík að kvöldi sunnu
dagsins, fyrir starfsmenn og
keppendur í góðakstri og fleiri
ÞRJÚ ÞÚSUND
GÖNGUSEIÐI
FÉLAG landeigenda við Hörgá
sleþpti í gær þrjú þúsund laxa-
seiðum af göngustærð í ána. En
seiðin munu halda til sjávar
eftir viku til hálfan mánuð og
væntanlega koma þau þangað
aftur í fyllingu tímans, sem
eftirsóttir nytjafiskar. Nokkru
af 'laxaseiðum hefur áður verið
sleþpt í Hörgá og er þess beðið
méð nokkurri óþreyju að árang
urinn komi í ljós. Skilyrði
Höi’gár til laxagöngu og lax-
veiða eru lítt rannsökuð, en sjó
silungur gengur í ána ár hvert.
gésti. Þar vörú' vérðlaun afhent
tíg flutt ávörp. Formaður Slysa
varhadeildár kvenna á Húsavík,
Sigrún Pálsdóttir, afhenti Sig-
urði Ágústsyni: borðfána deild-
arinnar í þakklætisskyni fyrir
komuna til Húsavíkur og starf
hans þai'. Þorváldur Árnason
formaður Bindindisfélags öku-
manna á Húsavík stjórnaði sam
sætinu og afhenti sigurvegur-
mn í góðaksturskeppninni verð
lauhin, sem voru fagrir bikarar.
Þ. J.
tilvöldum stað í Ottawa.
Þetta var samþykkt.
Eyrtaflan var gerð- undir
stjórn listamannsins Jacks Ken-
dalls. — Fjársöfnun meðal ís-
lendinga gekk mjög vel.
Á töflunni er kaflinn úr
Grænlendingasögu um landa-
fund íslendinga greyptur í
miðju en ensku og frönsku
þýðingarnar til beggja handa.
Sjálf er taflan 7 fet á breidd,
4,5.fet á hæð og 754 pund að
þyngd.
Forsætisráðherrann, Pearson,
flutti ræðu er hann tók form-
lega við gjöf Vestur-íslend-
inga. Minntist hann þess, að
það væri sögulega og fornfræði-
lega sannað, að íslendingar
hefðu fundið þetta land löngu
á undan Cólumbusi. En hann
bætti því svo við til skemmtun-
ar, að ekki mætti gleyma því,
að írskir munkar hefðu fundið
ísland og því ættu írar nokkra
viðurkenningu skilið. Hann dáð
ist að töflunni og sagði að hún
leiddi í ljós, að 'hægt væri að
segja mikið í stuttu máli á ís-
lenzku, og kvaðst því óska, að
íslenzka væri þriðja tungumál-
ið sem notað væri í þinginu og
myndi það stytta ræðuhöldin.
Minni töflur, sem áður er
getið, verða geymdar á ýmsum
stöðum í Kanada og víðar. Ein
taflan var afhent Pétri Thor-
ÍFramhald á blaðsíðu 2.)
VE0AÞJÖNUSTA F, L B. HAFIN
VEGAÞJÓNUSTA Félags ís-
lenzkra bifreiðaeigenda, sem
vinsælda hefur notið undanfar-
in ár, er hafin. Á vegum félags-
ins verða nú 3 'kranabifreiðir,
ásamt öðrum bílum og verða
hjálparbifreiðar FÍB samtals 9
á öllum fjölförnustu leiðum
landsins einkum á suðvestur-
landi en einnig.í öðrum lands-
hlulum og nær vegaþjónustan
hámai-lu' sínu . upi Véfzlunar-
mannahelgina.
vegum úti er að stöðva ein-
hverja af hinum mörgu talstöðv
arbifreiðum, sem fara um þjóð-
vegina eða hafa samband við
Gufunesradió í síma 22384. í
samvinnu við Rauðakross ís-
lands verður starfrækt slysa-
hjálp úti á þjóðvegum um um-
ferðarmestu helgarnar, þar sem
-umferðin er'mest. ’ □
ÞEKKING SKAPAR ÁST
OG VIRÐINGU
Hér á Akureyri hefur fugla-
lífið verið óvenjumikið . í vor.
Einkum eru það Leirurnar, sem
hafa aðdráttarafl á meðan gróð-
ur var enginn eða af skomum
skammti. Þar hefðu náttúru-
fræðingar þurft að kenna ung-
mennum um fuglana. Þar eiga
foreldrar að kenna börnum sín-
um að þekkja fugla, en þekk-
ing á þeim og lifnaðarháttum
þeirra skapar ást og virðingu
á hinum fögru sumargestum.
„F J ÖRUFU GL AR“
Hérna um daginn var faðir einn
að kenna börnum sinum fugla-
fræði. Bíll þeirra stóð á Strand-
götunni en hópar fugla voru í
fjörunni rétt hjá. „Hvað heitir
þessi, sem hleypur yfir rörið,
pabbi?“ spurði einn snáðinn. „O,
þetta eru allt saman fjörufugl-
ar, ofurlítið mismunandi á lit-
inn.“ — Jafnvel svo fátækleg
fræðsla var þó virðingarverð.
Úti í náttúrunni opnast hverju
barni nýr og fagur heimur, ef
það gengur undir hönd þess,
sem eitthvert skynbragð ber á
náttúrufræði, — þekkir helztu
blóm, skordýr, skeljar og svo
náttúrulega fuglana.
FRÆNDUR Á SAMA SKERI
Einn daginn voru- um 100 „f jöru
fuglar“ á einu skeri og kom vel
saman. Nánar tilgreint voru
þetta sendlingar, tildrur og
rauðbrystingar. Þeir voru gæf-
ir og undu sér hið bezta, senni-
lega álíka margir af hverri teg-
und og með þeim var einn lóu-
þræll. Þegar þessh- fuglar flugu
upp, voru þeir svo samstilltir á
fluginu, að líkast var sýningar-
flugi, og fataðist hvergi. Þeir
voru sem ein heild, sem hyergi
haggaðist á hinu margbreytta
sveifluflugi sínu.
F AST AGESTIR
Þeir fuglar eru kallaðir far-
gestir, seni koma hér við haust
og vor á hinum löngu leiðum
sínum. Til þeirra teljast ein-
mitt tildran og rauðbrystingur-
inn, sem hér voru í varpskrúða
og voru á leið til Norður-
Grænlands eða á aðrar norð-
lægar slóðir, kenndar við heim-
skautið. Fyrrum var álitið, að
þessir fuglar verptu hér á landi,
en ekki hefur heyrzt staðfest-
ing á því. Ilins. vegar verpir
Félagar í FÍB fá klúkkustund
ar viðgerðarvinnu ókeypis og
einnig flutning á bifreiðum allt
að 30 km. vegalengd. En fýrir
aðstoð kranabifreiða verða aílir
að greiða en félagsmenn íá af-
slátt.
FÍB vekur athygli á því enn
einu sinni, að ökumenn þurfa
ávallt að bafa með sér helztu
varahluti, svo sem viftureim,
kveikjulok, platínur, kveikju-
hamar og þétti.
Bezta leiðin til að ná sam-
bandi við vegaþjónustu FÍB á
gar
koma ti! Akureyrar
Á FIMMTUD AGSK V ÖLDIÐ
22. júní kemur nokkur hópur
Vestur-íslendinga til Akureyr-
ar og gistir í Fleimavist M. A.
Á föstudaginn heimsækja þeir
Mývatnssveit, en á laugardag og
sunnudag munu þeir dvelja í
bænum, en ferðast um Eyja-
fjörð. Á sunnudaginn kl. 2 hlýða
þeir messu í Grundarkirkju, en
síðar um daginn kl. 3.30 verður
boðið til kaffidrykkju í félags-
heimilinu í Laugarborg.
Þeir, sem vilja vita nánar um
ferðir Vestur-íslendinganna,
eða komast í samband við þá,
geta snúið sér til einhvers eftir-
talinna manna:
Árna Bjarnasonar, Gísla Ólafs
sonar, Jónasar Thordarsonar,
Jóns Rögnvaldssonar eða
Bjarna Jónsso.nar. □
sendlingurinn uppi á heiðum og
er algengur fugl. Hin síðustu ár
hefur óvenjulega mikið verið
hér af tildrum, jafnvel í hóp-
um, sem telja hundruð fugla.
Jaðrakan verpir nú árlega í
nágrenni Akureyrar.
ÁBENDING
Allir bæjarbúar urðu vitni að
því á skátahátíðinni við Glerá á
dögunum hve vel þeim tekst að
undirbúa slík mót án mikils
kostnaðar, og hve skipulag
þeirra er traust og samhent.
Væri nú ekki rétt að fela skát-
um 17. júní-hátíðahöld þér í bæ
næsta sumar? Eða a. m. k. á 25
ára afmæli lýðyeldisins? Hér
með er hugmyndinni komið á
framfæri fyrir þá, sem þeirn
málefnum ráða.
SEKTAÐIR FYRIR ÞAÐ AÐ
FLEYGJA BRÉFI
í hugsunarleysi og af virðingar-
leysi fyrir náttúrunni og öðru
fólki, hendir það margan mann-
inn að fleygja bréfum og öðru
rusli úr bifreiðum, einnig þar
sem staðar er numið, bæði úti á
víðavangi og við greiðasölu-
staði. Og fræg eru tjaldstæðin
að endemum vegna sóðaskapar.
En hin vítaverða umgengni er
þó undantekning, en ennþá of
algeng. f sumum löndum liggja
við því fjársektir að kasta tóm-
um sigarettupakka eða öðru
slíku út um bílgluggann á al-
faraleiðum og þfier sektir eru
svo háar, að þær eru mjög alvar
leg áminning. Um leið og það er
með gleði viðurkennt, að um-
gengni fer mjög batnandi, er
hér enn einu sinni minnt á, að
áðurnefndar undantekningar
eru of margar og vitna um
ómenningu.
DRENGURINN OG NAUTH)
Það bar til 17. júní, um það leyti
sem Akureyringar voru að
hefja dansinn á Ráðhústorgi, að
unglingspiltur ætlaði með naut
milli bæja í Reykjadal. En hann
hafði skammt farið er boli tók
að gera sér dælt við hann og
átti boli auðveldan leik þar
sem hann var aðeins mýldur en
ekki með hring í nefi og lét
kenna aflsmunar. Stór grjót-
hrúga var við veginn og komst
pilturinn þangað en boli fýsti
ekki að hafa grjóthnullunga
undir . fótum. Eftir litla stund
gat pilturinn bundið nautið við
hliðstólpa þar rétt við veginn,
og fór síðan og sótti hjálp. Naut
þetta var ungt og hafði ekki
sýnt óþægð eða illsku áður.
LAMBIÐ FÉLL f ÁNA
Veiðimenn í Laxárdal tóku- eftir
því á laugardaginn hvar þrjú
lömb voru að leik austan ár. En
allt í einu skrikaði einu þeirra
fótur og féll það niður fyrir
bakkann og í ána. Virtist það
fóta sig þar á steini og var ekkl
mjög djúpt á steininum. En upp
koinst það ekki og veiðimenn-
irnir gátu ekkert að gert, þar
sem óvæð áin var á milli og þeir
(Framhald á blaðsíðu 4)