Dagur - 09.08.1967, Síða 8
B
Uin 3 þúsund manns hoifðu á leik ÍBA og Vals, sem fram fór á íþróttavellinum sl. miðviku-
dagskvöld. (Ljósm.: E. D.)
DAUÐASLYS Á LAGARFLJÓTI
SMÁTT OG STÓRT
Egilsstöðum 8. ágúst. Það slys
varð hér í síðustu viku, að mað
ur drukknaði í Lagarfljóti.
Slysið bar að með þeim hætti,
að plastbát með utanborðs-
mótor hvolfdi undir þrem mönn
um, sem voru að veiða á Víga-
staðaflóa. Veður var allhvasst
og kröpp bára. Mennirnir voru
Halldór Ágústsson á Vígastöð-
um, Sigfús Árnason bæjarverk-
Þórshöfn 8. ágúst. Bændur byrj
uðu heyskapinn í síðustu viku
og er það mánuði seinna en
venjulega. Sprettan var mjög
léleg og er það enn, og stórkost
legt kal dregur úr heyfengnum.
Um þessar mundir liggja skuld
ir bænda, vegna fóðuibætis-
kaupanna á síðastliðnum vetri
JARÐSKJÁLFTAR
Á SUÐURLANDI
SIÐUSTU DAGA júlímánaðar
urðu margir jarðskjálftakippir
á Suðurlandi, einkum í Árnes-
sýslu. Aðfaranótt laugardagsins
29. júlí fundust þar t.’d. 9 kipp-
ir, en flestir mjög vægir.
Síðan skalf jörð svo lijá Ágústi
alþingismanni á Brúnastöðum,
sextugum, að hús sprungu.
Jarðfræðingar telja jarð-
skjálftana ekki stafa af eldsum-
brotum og að þeir tákni ekki
eða þeir séu undanfari eldgosa.
En jarðhræringa verður oft vai't
á hinu mikla sprungusvæði, er
liggur langt sunnan úr Atlants-
hafi og allt norður í Dumbshaf.
Á þessu svæði er ísland. □
Mannaskipfi
EINAR SIGURÐSSON hefur
látið af störfum hjá Kjötiðnað-
arstöð KEA á Akureyri en við
stjórn stöðvarinnar tekið af hon
um Haraldur Oli Valdimarsson.
Þá hefur Rögnvaldui' Bergs-
son, áður starfsmaður í Kjöt-
búð KEA, tekið að sér verk-
smiðjustjórn í Flóru. □
stjóri á Seyðisfirði og Hjalti
Nílsen útibússtjóri Áfengis-
verzlunarinnar á Seyðisfirði.
Sigfús synti til lands, Hjalti
synti áleiðis en komst ekki alla
leið og drukknaði. Lík hans
fannst nokkru síðar. Halldór
hélt sér uppi á bátnum þar til
hjálp barst. Mennirnir, sem af
komust hafa ekki náð sér enn-
þá, enda báðir hætt komnir.
og vori, mjög þungt á og bú-
skaparhorfur eru slæmar.
Við sjóinn gengur mun betur
og hafa bátarnir oftast fiskað
sæmilega og jafnvel ágætlega,
bæði er aflað á færi og í þorska
net.
Brúarvinnuflokkur vinnur nú
að því að lækka handrið á
nokkrum brúm, sem er mjög
nauðsynlegt.
Laxveiði hefur verið heldur
lítil fram að þessu í Þistilfjarð-
aránum. Ó. H.
í SÍÐUSTU VIKU kom til bæj
arins ný kennsluflugvél og á
Norðurflug h.f. hana. Félagið
átti aðra fyrir og hyggst nú
auka flugkennslu við Flugskól-
ann. Vélin er af gerðinni Piper
Cub, tveggja sæta, einföld að
allri gerð og mjög þægileg
kennsluvél, enda er þessi gerð
mjög algeng og hentug til slíks.
Framkvæmdastjóri Norður-
flugs h.f., Tryggvi Helgason,
sagði við komu vélarinnar, að
góð skilyrði væru á Akureyri
til flugkennslu og fyrirhugað
væri nú að auka bóklega
kennslu fyrir einkaflug. Tíu
MÁLYERK
f HÓTEL VARÐBORG á Akur
eyri eru nú til sýnis 15 málverk
eftir Benedikt Gunnarsson list-
málara, og auk þess ein gler-
mynd. Málverkin verða til sýn-
is þessa viku og þá næstu. □
Atvinnuástand á Austfjörð-
um er hið alvarlegasta. Jaðrar
þar við atvinnuleysi, einkum
hjá unglingum og mi'klir fjár-
hagsörðugleikar eru hjá síldar-
fyrirtækjunum, svo að fastráð-
ið fólk fær ekki kaup sitt greitt.
Engin síld hefur enn verið
söltuð og síld í bræðslu ekki
helmingur að magni, miðað við
sl. ár. Sumar litlar síldai-verk-
smiðjur hafa ekki enn fengið
neina bræðslusíld. En allar
söltunarstöð.var eru tilbúnar
með tunnur, salt, og fólk að
nokkru leyti.
Heyskapur er skammt á veg
kominn og ekki allir bændur
farnir að slá. Sprettan er ákaf-
lega misjöfn, en yfirleitt byrjaði
heyskapur mánuði síðar en
venja er. Betur er sprottið í
uppsveitum og minna kalið.
Sjáanlega verður engin háar-
spretta í ár, og e. t. v. er enn
seinna slegið vegna þess. Stöð-
ugir kuldanæðingar hafa verið
en úrkomulítið. Nú hefur þó
brugðið til betri veðráttu síð-
ustu daga. V. S.
piltar eru nú í flugnámi en bú-
ist við að nemendum fjölgi nú.
Tryggvi sagði, að samdráttur
væri í flugi í sumar.
Síðasta tölublað Dags fyrir sum
arleyfin kom út 12. júlí og hef-
ur margt við borið síðan í bæj-
um og byggðum. Þessar vikur
hafa hestamenn mikið látið að
sér kveða og haldið mikil kapp-
reiða- og sýningarmót. Er t. d.
sagt frá ÍOOO hesta- og 6000
manna móti á Hellu og að þar
hefði auk reiðmennskunnar
mátt sjá sport-ökumenn í létti-
vögnum, sem hestum var beitt
fyrir. Slík íþrótt er algeng er-
lendis.
SÍLDARAFLINN
Sumarsíldvertíð fyrir norðan
og austan hefur gengið mjög
illa, það sem af er. Um miðjan
júlímánuð var aflinn helmingi
minni en á sama tíma árið áður
og engin síld hefur enn verið
söltuð. Veiðisvæðin hafa aldrei
verið fjær landi en nú, fyrst
tveggja ög síðan þriggja sílar-
hringa ferð til lands af miðun-
um. Um s.l. mánaðamót var
síldin 700 mílur norðaustur í
hafi.
ENGIN STÖÐVUN ÞAÐ
Þrátt fyrir stöðvunarstefnuna
hafa útsvör Reykvíkinga hækk
að í heild um 22.5% og eru
722.2 millj. kr. Stöðvunarloforð
og yfirlýsingar hafa þar orðið
sér til minnkunnar og er mikið
um það rætt.
KYNÞÁTTAÓEIRÐIR
Um miðjan júlímánuð hófust
miklar kynþáttaóeirðir víða í
Bandaríkjum Norður-Ameríku
og er þeim ekki lokið að fullu
ennþá. Þær óeirðir eru liinar
ofboðslegustu, sem sögur fara
af á þeim slóðum. Brennuvarg-
ar, þjófar og hverskonar
skemmdarverkamenn hafa leitt
neyðarástand yfir heilar borgir
og þúsundir hafa misst lífið eða
særzt. Virðist enn Iangt í land,
að jafnréttishugsjónin sé stað-
reynd í verki.
Alls starfa nú fjórir flugmenn
hjá Norðurflugi á Akureyri og
eru vélar Norðurflugs oft á
ferðinni. □
ALVARLEGT ÁSTAND Á
AUSTURLANDI
Vegna síldarleysis er atvinnu-
skortur á Austfjörðum og hið
versta ástand í atvinnu- og efna
liagsmálum. Ástandið í lánamál
um er svo alvarlegt, að talið er,
að leiði til hins mesta ófarnað-
ar. Á svonefndum Egilsstaða-
fundi, sem um þessi mál fjall-
aði, skýrðust málin rækilega.
Alhliða samdráttur auðkennir
nú allt atvinnulíf austur þar.
SLÁTTUR HÓFST SEINT
Heyskapur hófst víða þrem vik
um seinna en venjulega og auk
þess hefur enn orðið kalár í
sumum landshlutum, einkum á
Norður- og Norðausturlandi.
Er kalið víða svo mikið, að fyrir
sjáanleg er mikil bústofnsskerð
ing, því enginn landshluti mun
verulega aflögufær um hey að
þessu sinni og engar heyfym-
ingar eru til í landinu. Virðist
því framhald á minnkandi fram
leiðslu landbúnaðarins.
FORSETAR Á FERÐ
Forseti vor, herra Ásgeir Ás-
geirsson, gerði mikla ferð vest-
ur um haf og samkvæmt fregn-
um var honum hvarvetna vel
fagnað, bæði í Bandaríkjuniun
og Kanada, og honum mikill
sómi sýndur. Frakklandsforseti
var á ferð vestra um sama leyti
og fór heimsóknin út um þúfur
og varð styttri en áætlað liafði
verið, vegna umdeildrar ræðu,
er hann flutti í Kanada.
BÆNDADAGURINN
Hinn 23. júlí héldu Eyfirðingar
Bændadag sinn í Freyvangi.
Þar flutti aðalræðuna Guð-
mundur Sveinsson skólastjóri,
en af hendi bænda Sigurður
Jósefsson bóndi í Torfufelli.
Gunnar Guðbjartsson formaður
Stéttarsambands bænda, sem
þar var staddur, kvaddi sér
einnig hljóðs og fliitti ávarp.
Séra Benjamín Kristjánsson
prófastur flutti guðsþjónustu.
Að sjálfsögðu voru svo ýmiss
skernmtiatriði og að lokum
dans. Ungmennasamband Eyja-
fjarðar og Búnaðarsamband
Eyjafjarðar sáu um dagskrána
og alla framkvæmd, eins og
áður.
NÝTT SLITLAG
Verið er að gera tilraunir með
nýjar gerðir slitlaga á akveg-
um, hjá vegamálastjórninni. En
þær byggjast á mismunandi
efnablöndum til íburðar því
malarslitlagi, sem fyrir er. Verð
ur fróðlegt að fylgjast með
árangri tilrauna þessara.
GRÓÐURKORT
Menningarsjóður hefur nú gef-
ið út 9 gróðurkort af hálendi
landsins, en áður voru út kom-
in 6 slík kort en alls eiga þau að
verða 50 talsins. Kortagerð
þessi er nauðsynleg til grund-
vallar rannsóknuin um gróður
og gróðureyðingu landsins.
(Framhald á blaðsíðu 7).
Tryggvi Helgason og Örn Baldursson við nýju vélina. (Ljósm. ED)
Byrjuðu mánuði seinna að siá
Ný kennsluvél Norðurflugs lii.