Dagur - 24.01.1968, Page 2
2
KA minnisf 40 ára afmælis sins
OBs
Skemmtanir fyrir yngri félaga og gesti verða
þriðjudaginn 30. og miðviluidaginn 31. janúar
| NK. LAUGARDAG, 27. janúar,
minnist Knattspyrnufélag Akur
eyrar 40 ára afmælis síns, er
var 8. jan. sl., með hófi í Sjálf-
stæðishúsinu og hefst það kl.
7 e. h. með borðhaldi. — Dag-
skráin verður í stórum drátt-
um þannig:
: Rakin verður í stuttu máli
1. DEILDARLIÐ ÞÓRS í körfu
knattleik lék við íslandsmeist-
ara KR sl. sunnudag í Laugar-
dalshöllinni í Reykjavík. Eftir
mjög slæma byrjun, þar sem
KR skoraði 15 stig gegn 2 stig-
um Þórs á fyrstu 5 mínútum
leiksins, tókst Þórsurum að
halda nokkuð jöfnu það sem
eftir var leiksins. í leikhléi var
staðan 33 stig gegn 22 KR í vil,
11 stiga munur. Lið Þórs lék
mun betur í síðari hálfleik og
ÞVÍ MIÐUR get ég ekki rakið
sjötugan feril Magnúsar, enda
er það ekki aðalatriði, þvi að ég
kynntist honum ekki að ráði
fyrr en eftir 1950, en þá ‘kynnt-
ist ég þeim góða dreng þeim
mun betur.
Fyrir 9 árum — þá báðir rúm
lega sextugir — byrjuðum við
að reka verzlun saman hér í
bæ. Það kom í minn hlut að
stjórna henni, því að Magnús
þurfti að vinna á sínu verk-
stæði og stjórna því.
Eins og að líkum lætur, þui’fti
ég oft að ráðfæra mig við hann
og minnist ég þess ekki. að
hann hafi nokkru sinni mót-
mælt því, sem ég vildi og aldrei
hefur orðið ágreiningur á milli
okkar. Kann ég honum beztu
þakkir fyrir þá ágætu sam-
vinnu.
Magnús er þekktur sem ágæt
ur bólstrari og hefur verzlun
okkar notið verka hans. Hann
hefur tekið virkan þátt'í söng-
málum á Akureyri og verið
með í öllum kórum bæjarins —
líklega þó ekki kvennakórnum,
— en frægastur er hann fyrir
bassasöng sinn í Smárakvartett
inum og er ekki ofmælt að
Magnús Sigurjónsson sé með
beztu bassasöngvurum lands-
ins.
Giftur er Magnús Guðrúnu
Jónsdóttur Tómassonar frá
Grund í Eyjafirði, hinni mestu
ágætiskonu, og eiga þau eina
dóttur barna. Við hjónin send-
um þeim okkar beztu kveðjur
og hamingjuóskir á þessum
tímamótum og þökkum margar
liðnar ánægjustundir.
saga félagsins. Tveir KA-félag-
ar sýna fimleika. Þá verða
nokkrir eldri félagar heiðraðir.
Einnig skemmta leikararnir
Arnar JónsSon og Eyvindur
Erlendsson. — Aðgöngumiðar
verða afhentir í Bókabúð Jón-
asar Jóhannssonar frá kl. 2—-6
e. h. í dag og næstu daga og eru
tókst KR að vinna þann hátf-
leik með aðeins 2 stiga mun.
Úrslit urðu því þau að íslends-
meistarnir sigruðu nýliðana í
1. deild með 13 stiga mun, og
eru það ekki slæm úrslit fyrir
Þór.
Á laugardaginn kl. 4 e. h.
leika svo í íþróttaskemm'unni
Þór og KR síðari leik sinn í
1. deild og verður þar eflaust
um skemmtilega viðureign að
ræða.
Að endingu þetta Magnús:
Það er þessi Elli kerling, sem
farin er að sækja á okkur báða.
Við slkulum reyna að halda
henni í mátulegri fjarlægð við
okkur, því að 'hún kvað stund-
um vera dálítið brellin. Þó skul
um við koma okkur vel við
hana. Ef til vill lætur hún okk-
ur afskiptalítla enn um sinn.
Hafðu enn einu sinni beztu
þökk fyrir okkar góða og gagn-
lega félagsskap.
Akureyri, 21. janúar 1968.
Jón Níelsson.
n,k. laiprdag
félagar og gestir þeirra beðnir
að taka miða sína sem fyrst. —
Þá biður stjórn KA fólk vin-
Samlegast að mæta stundvís-
lega.
Þriðjudaginn 30. janúar kl.
8.30 e. h. verður svo fagnaður
fyrir yngri KA-félaga og gesti
þeirra í Sjálfstæðishúsinu og
sjá Hljómar frá Keflavík um
fjörið.
Miðvikudaginn 31. janúar kl.
3 e. h. verður svo skemmtun
fyrir yngstu KA-félaga, 13 ára
og yngri, og á þeirri skemmtun
leika Hljómar einnig fyrir
dansi.
Ekki er að efa að KA-félagar
og aðrir velunnar félagsins fjöl
menna á þessar afmælissam-
komur.
SKÍÐALYFTAN í
SELJALANDSDAL
NÝLEGA var vígð og tekin í
notkun 1200 m. skíðalyfta í
Seljalandsdal — skíðalandi ís-
firðinga. Við uppsetningu lyft-
unnar voru unnar 2 þús. klst.
í sjálfboðavinnu. En alls kostar
lyftan 1.5 millj. kr.
ísfirðingar fagna mjög þessu
framtaki, enda breytist nú að-
staða til skíðaiðkana til stórra
muna með þessu framtaki. ís-
firðingar hafa lengi verið góðir
skíðamenn. □
- Nokkur orð um f jár-
hagsáætlun Akur-
eyrar 1968
(Framhald af blaðsíðu 5).
frá húsinu að utan, grófpússa
það að innan og fullbúa eina
hæð eða sem því svarar. Þá
verður hægt að flytja hluta Iðn
skólans þar inn á hausti kom-
anda. En því miður vantar enn
hátt á þriðju millj. kr. til þess
að þessi áfangi náist. Framlag
bæjarins nú er 1.75 millj. kr.,
auk 0.8 millj. kr. frá sl. ári. En
framlag ríkisins á þessu ári er
aðeins 1.1 millj. kr. en hefði
þurft að vera 2.5—3 millj. kr.
Bæjarstjóri mun þegar hafa
leitað eftir lánsfé til þessa
áfanga byggingarinnár. Auk
þess verður svo haldið áfram
við nýbygginguna við Fjórð-
ungssjúkrahúsið, auk ýmsra
minni bygginga, segir Sigurður
Oli Brynjólfsson að lokum, og
þakka ég svörin. E. D.
TIL SÖLU:
Efri hæð hússins Möðruvallastræti 1.
JÓN GEIR ÁGÚSTSSON, sími 1-19-80.
Þór tapaði fyrir KR fyrir sunnan
Tekst þeim að sigra KR á laugardaginn?
SJÖTUGUR:
Magnús Sigurjónsson
húsgagnabólstrari
r
Handknattleiksmót Islands, 2. deild:
Fyrstu leikir ÍBÁ við Þróft og ÍBK
Fyrstu leikir í fþróttaskemmunni 3. og 4. febr:
HANDKNATTLEIKSLIÐ ÍBA
leikur fyrstu leiki sína í íslands
mótinu, 2. deild, n. k. laugar-
dag og sunnudag í Laugardals-
höllinni í Reykjavík. Á laugar-
dag leika þeir við Þrótt, en á
sunnudag við Keflvíkinga.
Erfitt er að spá um úrslit
fyrirfram, en það er von hand-
knattleikunnenda að .ÍBA-liðið
standi sig vel í þessurn fyrstu
leikjum sínum. Liðið hefur
sýnt góða framför undanfarið
og með Matthías Ásgeirsson
sem burðarás og góðan keppnis
vilja leikmanna, má vænta þess
að liðið nái all-langt í 2. deild.
Lokið er aðeins 2 leikjum í
deildinni. ÍR sigraði Þrótt með
24:19, og Ármann og Keflvík-
ingar gerðu jafntefli 25:25, og
voru það óvænt úrslit.
Fyrstu leikir Akureyringa á
heimavelli verða 3. og 4. febrú-
ar við Vestmannaeyinga, en
þeir eru alveg óþekktir í hand-
knattleik.
Handknattleiksmót íslands
2. deild
LOKS er leikjaröðin ákveðin í Handknattleiksmóti íslands,
2. deild, og hefur gengið á ýmsu áður en endanleg niður-
staða fékkst. Leikir verða sem hér segir:
Laugard. 27. janúar (Laugardalshöll) Þróttur—ÍBA
Sunnud. 28. janúar (Laugardalshöll) ÍBK—ÍBA
Laugard. 3. febrúar (íþróttaskemma) IBA—ÍBV
Sunnud. 4. febrúar (íþróttaskemma) ÍBA—ÍBV
Laugard. 10. febrúar (íþróttaskemma) ÍBA—Þróttur
Sunnud. 11. febrúar (Aukaleikur) ÍBA—Þróttur
Laugard. 17. febrúar (Laugardalshöll) ÍR—ÍBA
Sunnud. 18. febrúar (Laugardalshöll) Ármann—ÍBA
Laugard. 9. marz (íþróttaskemman) ÍBA—ÍBK
Sunnud. 10. marz (Aukaleikur) ÍBA—IBK
Laugard. 16. marz (íþróttaskemman) ÍBA—Ármann
Sunnud. 17. marz (Aukaleikur) ÍBA—Ármann
Slysavarnafélag íslands 40 ára
NK. MÁNUDAG, hinn 29. jan.,
eru 40 ár liðin frá stofnun Slysa
varnafélags íslands. Það er sér-
stakt lán hversu hjálparhönd
þessara samtaka hefir sífellt
orðið máttugri með hverju ári.
Björgunarskip, skipbrotsmanna
skýli, sjúkraflugvélar og slysa-
varnasveitir með margbrotin
tæki hafa á þessum árum bjarg
að miklum fjölda manna úr lífs
háska og bægt frá hörmúm og
sorg. Einnig má minna á skýlin
á fjallvegum, sem mörgum hafa
orðið ómetanlegt athvarf í vond
um veðrum. Er þess skemmst
að minnast, að eitt slíkt,
Sesseljubúð, var vígt sl. sumar
á Oxnadalsheiði.
Á bak við þetta margháttaða
björgunarstarf býr kærleikur
og fórnarlund fjölda fólks. sem
göfugri hugsjón leggur sitt lið.
Með hlýhug og þakklæti verð-
ur hugsað til þessara liðsveita á
merkum tímamótum. Slysa-
varnafélagi íslands verður ósk-
að áframhaldandi heilla og
giftu og störfum þess beðið
blessunar.
Á Akureyri hefir verið starf-
andi Kvennadeild S. F. I. í 33
ár. Á hverjum vetri hafa félags
konur fjölmennt í kirkjuna
þann sunnudag, sem lagt hefir
verið út af eða lesin frásögnin
af því, er Jesús kyrrði vind og
sjó. Þá hafa þær sent bænir í
hæðir um að Guð héldi vernd-
arhendi sinni yfir sjómönnum,
forðaði frá slysum og styddi þá
er vinna að slysavörnum. Þenn
an sama sunnudag hafa þær
gengist fyrir fjársöfnun, til þess
að geta unnið slysavörnum sem
mest gagn. Það hefir löngum
komið í ljós að bæjarbúar eru
fúsir að leggja Kvennadeildinni
lið. Vonandi verður svo einnig
á sunnudaginn' kemur. Þá gang
ast slysavarnakonur fyrir fjár-
öflun í Sjálfstæðishúsinu. Bazar
hefst þar klukkan tvö e. h. og
kaffidrykkja kl. þrjú. Messað
verður í Akureyrarkirkju kl.
fimm e. h.
Slysavamafélagi íslands flyt
ég hamingjuóskir á afmælinu
og félagssystrum á Akureyri
þakka ég giftudrjúgt starf og
eftirminnilegar samverustundir.
Birgir Snæbjömsson.
Fjórða mesta aflaárið
(Framhald af blaðsíðu 1).
mun lægra en næstu tvö ár
á undan, en hins vegar
hærra en meðalverð næstu
finn ára á undan, 1962—1966.
En verðbólgan hefur stór-
aukizt, og þess vegna er nú
komið sem komið er. □
TAPAÐ
Merktur
RONSON gaskveikjari
tapaðist fyrir helgina.
Vinsamlegast skilist á af-
greiðslu Dags.
Fundarlaun.
ELDRI-DANSA
KLÚBBURINN
Dansleikur í Alþýðuhús-
inu laugardaginn 27.
janúar. Hefst kl. 9 e. h.
Húsið opnað fyrir miða-
sölu kl. 8 sama kvöld.
Góð mússik.
Stjórnin.