Dagur - 10.04.1968, Síða 2
2
lómleg starfsemi hjá H. S. Þ.
1 ræðustól er Jóti Stefánsson þingforseti.
Nokkrar ályktanir UMSE
Á ÁRSÞINGI Ungmennasam-
bands Eyjafjarðar, sem haldið
Var í Þelamerkurskóla 23. og 24.
marz og var hið 47. voru marg-
ar ályktanir gerðar og í prent-
aðri skýrslu er að finna þau
verkefni, sem UMSE hefur um
fjallað. Fimmtán félög eru i
UMSE, með yfir eitt þúsund fé-
laga. Framkvæmdastjóri er Þór
oddur Jóhannsson.
Vert er að minna á, að UMSE
vann mjög að undirbúningi
bindindismóts í Vaglaskógi með
öðrum félagasamtökum, 30—40
manns, flestir frá Dalbúanum,
unnu nær 400 klst. í sjálfboða-
vinnu við mótið. í sambandi við
sumarbúðanámskeiðin á Lauga
landi var veitt fræðsla um skað
semi tóbaks og áfengis. Og
UMSE hefur í vaxandi mæli far
ið inn á þá braut að halda vín-
lausar skemmtisamkomur, sem
hafa tekizt vel og er á þeim vax
andi skilningur almennmgs. Þá
hefur UMSE gengist fyrir bind-
indisfræðslu í skplum. UMSE
stendur fyrir árlegum bænda-
degi ásamt bændasamtökunum,
og skemmtilegri keppni, „hrepp
arnir keppa.“ Iþróttir eru aðal-
viðfangsefni félaganna og sam-
bandsins og njóta félögin
kennslu fast- og lausráðinna
íþróttakennara sambandsins.
Ungmennasambandið kom á
'heimsókn danskra fimleika-
flokka i sumar, stóð fyrir
íþróttamótum karla, kvenna og
drengja, hélt héraðsmót 19. og
20. ágúst, sá um harðkeppnis-
mótí í knattspyrnu, kom á
kvennakeppni í handknattleik,
glímunámskeiði, sundmóti, lét
keppa í skák, bridge og á skíð-
um og þannig mætti lengur
telja.
Meðal ályktana 47. ársþings
UMSE voru þessar:
Ársþingið telur æskilegt að
sambandið haldi áfram starf-
semi sumarbúða í svipuðu
formi og undanfarin ár og hvet
ur ungmennafélögin til að
stuðla að meiri þátttöku barna
úr sínu heimafélagi.
Þingið lýsir ánægju sinni yfir
samkomum þeim, er gengið
hafa undir nafninu „Hrepparnir
keppa,“ en þær hafa mælzt
mjög vel fyrir og orðið til þess,
að fólk sem sjaldan fer á
skemmtisamkomur hefur lyft
sér upp og yngst um mörg ár í
anda. Æskilegt er að halda uppi
slíku samkomuhaldi áfram, ef
ÍSiNN OG AFLINN
SUNNANLANDS virðist páska
gangan komin á miðin og hafa
bátar fengið góðan afla — sum-
ir mjög mikinn — síðustu daga.
Hér nyrðra, t. d. í verstöðv-
um við Eyjafjörð, var afli góð-
ur síðustu dagana áður en ís-
inn truflaði veiði.
Hundruð neta týndust i sjó,
undir ísinn, svo sem á miðum
Dalvíkur-, Ólafsfjarðar- og
Húsavíkurbáta, og hafa fæst
fundizt aftur. □
til viíl í eitthvað breyttu formi.
Tillaga nefndarinnar er, að á
þessu. árh verði ágóða skipt
þannig, að UMSE fái 60% af
hagnáði. en Alþýðuskólasjóður
UMSE 40%.
Þingið samþykkir að komið
■ verði 'á 7 sþurhingakeppni milli
skóla i héraðinu á vegum sam-
bandsfélaganna, með aðstoð
framkvæmdastjóra sambands-
ins, þannig hugsað, að þar yrðu
þrír riðlar. í fyrsta riðli yrðu
Svalbarðsströnd, Ongulsstaða-
hreppui’, Saurbæjarhreppur og
Hrafnagilshreppur. í öðrum
riðli Þelamerkui'skóli, Arnar-
neshi-eppur, Árskógshreppur. í
þl-iðja riðli Hrísey, Dalvík og
Húsabakkaskóli. Þau lið, sem
sigra í hvérjum riðli, keppa til
úrslita. Þetta yrði fjórar sam-
komur. Þátttaka miðast við
börn fædd 1955 og síðar, og
keppnin hefjist að hausti.
Framkvæmdastjóri upplýsti
að forstöðumaður fræðsludeild-
ar KEA hefði óskað eftir sam-
starfi í félagsmálafræðslu. Þing
ið telur æskilegt að komið yx'ði
á námskeiði í samstarfi við
fræðsludeild KEA og fx;am-
kvæmdastjói-a sambandsins fal-
ið að koma því í kring.
Þingið hvetur stjómir félag-
anna til að hlutast til um að
danskennsla fari fram í skólum
héraðsins,.
Á þessu ál-i verður komið á
félagsmálanámskeiði á vegum
ÍSÍ að Laugarvatni. Það er ósk
þingsins að menn frá samband-
inu taki þátt í þessu námskeiði.
Þingið skorar á- stjórn sam-
bandsins að ítreka við ÍSÍ að
flýta drætti í happdrætti þess
framvegis, þannig að útdráttar-
dagur yrði ekki síðar en 15. nóv
embei" ár hvert, því eftir þann
tíma er mikið framboð á happ-
drættismiðum annarra félaga.
Að ágóði af happdi-ættinu
i-enni að 9/10 til UMSE en að
1/10 til Menningai-sjóðs UMSE.
MÁNUDAGINN 11. marz sl.
boðaði stjórii HSÞ til fund
ar að Laugum með formönnum
sambandsfélaganna og fleiri
gestum. Mættir vox-u foi-menn
frá öllum félögunum að einu
undanskildu. Foi’maður HSÞ,
Óskar Ágústsson setti fundinn
og talaði meðal annai-s um stai’f
semi sambandsins á síðasta ári,
verkefnin á þessu ári og fleira.
Verður nú rakið það helzta sem
kom fram á fundinum.
Haldin voi-u 5 íþi-óttamót á
sambandssvæðinu, ennfremur
tók HSÞ þátt í 9 íþi’óttamótum
utan héraðs. Sett voru 13 hér-
aðsmet, þar af 1 íslandsmet í
4x100 m. boðhlaupi kvenna,
53.2 sek. Þátttakendur á íþrótta
tóku þátt í III. deildar keppni
mótum voru 225. Knattspyi-na
var mikið stunduð á félagssvæð
inu. Völsungur og Mývetningur
KSÍ. Lið frá HSÞ tók þátt í und
ankeppni landsmóts UMFÍ og
sigraði í sínum í'iðli og keppir
til úrslita á landsmótinu í sum-
ar. Ennfremur voru send lið á
Noi-ðurlandsmót í knattspyrnu.
Handknattleikur var lítið stund
aður nema á Húsavík og kepptu
þeir fyrir HSÞ í undani-ásum
fyrir landsmót UMFÍ. Skíða-
íþróttin er lítið stunduð á sam-
bandssvæðinu nema á Húsavík,
en þar er mjög mikill áhugi fyr
ir henni og voru haldin möx-g
skíðamót mðeal annai-s sáu Völs
ungar um Skíðamót Norður-
lands. Mikill áhugi var á sund-
íþróttinni og haldið var héi’aðs-
mót í sundi, ennfremur var
handknattleikur stundaður á
sambandssvæðinu. Haldið var
bindindismannamót í Vagla-
Konur gerðu sér dagamun
ANNAN DAG aprílmánaðar
átti kvenfélagið Hvöt á Árskógs
sti-önd fimmtugsafmæli og
minntist þess sl. laugardag í
skóla- og samkomuhúsi sveitar
innar með fjölmennu hófi.
Líknarmálin og menningar-
mál af ýmsu tagi hafa löngum
verið í dagskrá félagsins og eru
það enn.
Fyrstu stjórn skipuðu:
Kristín Jóhannsdóttii-, Litla-
Árskógi, Ásta Þorvaldsdóttii-,
Krossum, og Bjöi-g Arngi-íms-
dóttir, Selá. Núverandi stjórn
skipa þær: Sigui-laug Gunn-
laugsdóttii’, Ki-ossum, Þóra
Angantýsdóttir, Hauganesi, og
Anna Baldvinsdóttii-, Stóru-
Hámundai-stöðum.
Max-gt var til skemmtunar á
afmælishófi félagsins og má þar
nefna sýningu á fimm gömlum
þjóðbúningum, söng, dans, sam
eiginlegt boi'ðhald og mai-gt
fleii-a. Félaginu bárust árnaðar-
óskir og gjafir og margar burt-
fluttar félagskonur heimsóttu
gamlar stöðvar.
í tilefni afmælisins gaf kven-
félagið 25 þús. kr. til húsbygg-
ingar Styrktarfélags vangef-
inna, sem í byggingu er á Akur
eyri og jafn háa upphæð ung-
mennafélaginu Rejmi til íþrótta
vallar í sömu sveit. □
ÁðaSsieinn Jónsson áttræSur
ÁTTRÆÐUR vai-ð þann 8. apríl
sl. Aðalsteinn Jónsson, Mógili á
Svalbarðsströnd.
Aðalsteinn er Þingeyingur að
ætt og uppruna, fæddur að Hól-
um í Laxárdal, 8. apríl 1888, son
ur Jóns Fi-iðfinnssonar og Ás-
gex-ðar Gisladóttur. Innan við
fermingu fluttist hann með for-
eldrum sínum og Rögnu systur
sinni að Mógili og hefii' síðan
dvalizt þar alla ævi, að undan-
skildum 9 vinnumennskuái-um
í Tungu. Lengst af hefir hann
unnið hjá Kaupfélagi Svalbarðs
eyrár, eða í áx-aíugi, en einnig
víðar að ýmsum störfum og
hvervetna verið eftirsóttur
vegna frábærs dugnaðar og sam
vizkusemi.
Aðalsteinn er traustur maður
Ilún bar í janúar og á Jieima á Dalvík.
og bráðgreindur, hefir gott
minni og segir frá liðnum at-
burðum á listrænan hátt. Hann
er dæmagei-ður fulltrúi þeirrar
aldamótakynslóðar, sem jafnan
hafði að leiðarljósi hinar fornu
dyggðii’, dugnað, heiðai-leik og
ti’úmennsku. Á. B.
BLESU I LUÐRA
í SÍÐUSTU VIKU fékk Gagn-
fræðaskólinn á Akui-eyi'i góða
heimsókn, Lúði’asveitina, sem
lék fyrir nemendur ókeypis,
undir stjórn Jan Kisa. Meðal
einleikai-a var einn af nemend-
um skólans, Guðmundur Oi-n
Gunnarsson. Leik Lúðrasveitar
innar var frábærlega vel tekið
og gat skólastjórinn, Sven-ir
Pálsson, þess við þetta tæki-
færi, að vonandi væi-i þetta upp
haf að listkynningu menningar
félaga bæjarins í þessum skóla.
Eins og áður hefur vei-ið fi-á
sagt í blaðinu, hefur skólinn nú
fengið til afnota nýjan og mynd
ai-legan samkomusal og fói-u
tónleikai-nir þar fram. □
skógi ásamt fleiri aðilum, og
tókst það mjög vel. Tvö sam-
bandsfélög áttu mei-kisafmæli á
árinu, íþi-óttafélagið Völsungur
varð 40 ára og umf. Eining í
Bárðai-dal átti 75 ái-a afmæli.
Þá voru rædd framtíðarverk-
efni. Rætt var um að halda leið
beininganámskeið að Laugum í
vor og sagði formaður að komið
hafði fram beiðni fi’á héraðssam
böndum á Noi’ðurlandi að fá að
taka þátt í námskeiði þessu. Þá
var i-ætt um undii-búning fyrir
landsmótið að Eiðum og kom
fi-am að mikið hefur verið unn-
ið að undirbúningi fyrir lands-
mótið og verður þeim undirbún
ingi haldið áfi-am. Ennfremur
kom fram mjög mikil óánægja
með það hvað landsmótið er
haldið seint og töldu margir að
það mundi sennilega draga úr
þátttöku. Þá var rætt um að
koma á námskeiði fyrir börn og
unglinga á sambandssvæðinu
með sama sniði og í fyrra, en
það námskeið heppnaðist mjög
vel. Gjaldkeri sambandsins,
Arngrímur Geirsson, gaf yfirlit
yfir fjáx-hag HSÞ og kom fram
að hann er betri en í fyrra.
Margt fleii-a var rætt á fundin-
um, m. a. um útgáfu ársrits
HSÞ og fl. Dvöldu menn í góðu
yfirlæti við rausnarlegar veit-
ingar á heimili formanns til kl.
1.30 er fundi var slitið.
Fréttaritari HSÞ.
Veglegir kirkjugripir
Á SÍÐASTLIÐNU ári var
Munkaþvei-árkii-kju afhent af
px-ófasti, sr. Benjamín Kristjáns
syni vönduð og fögur gjöf.
Var það rómverskur messu-
hökull með stólu gerður af gulu
rósasilki með rauðum flauels-
krossi, gullbaldýruðum. Hök-
ullinn var keyptur frá London,
þar sem hann hafði verið urm-
irm af kaþólskri nunnu. Gripir
þessir eru fagui-lega gerðir og
vel unnir og hið mesta lista-
verk að öllum fi-ágangi.
Þeir eru gefnir kii-kjunni til
minningar um hjónin Farmeyju
Friðriksdóttur og Kristján
Helga Benjamínsson fyrrum
bónda á Ytri-Tjörnum, á 100
ára afmæli hans 24. okt. 1966.
Gefendurnir eru 12 börn
þeii-ra hjóna. Hafa þau á mynd-
arlegan hátt og eftirminnilegan
heiði’að minningu foreldra sinna
með þessari fögru og dýru
gjöf.
Sóknamefndin vill færa þeim
öllum þakkir fyrir gjöfina og
árnar þeim heilla í framtíðinni.
Jafnfi'amt viljum við þakika
þær gjafir aðrar, sem kii-kjunni
hafa borizt á síðastliðnu ári.
Sóknarnefndin.
Sjötug merldshjón
HINN 8. apríl átti Baldur Bald-
vinsson bóndi á Ófeigsstöðum í
Kinn sjötugsafmæli. En kona
hans, Sigurbjöx-g Jónsdóttir
hafði náð þessum aldursáfanga
nokkrum dögum áður. Hin sjö-
tugu hjón á Ófeigsstöðum eru
héi-aðskunn og húsbóndinn
landskunnur hagyrðingur. Sig-
ux-björgu kynntist ég á fyrri ár-
um, vel gerðri og glæsilegri
konu. Baldi-i kynntist ég síðar
og vil ég þakka honum og þeim
hjónum fyrir ágæt kynni bæði
fyrr og síðar, kunna rausn og
höfðingsskap. Baldur hefur ver
ið fréttaritax-i Dags í Kinn og
sendir blaðið honum þakklátar
og hlýjar kveðjur og þeim hjón
um báðum ái-naðaróskir við
þessi merkilegu tímamót á giftu
ríkri æfi. E. D.