Dagur - 10.04.1968, Qupperneq 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Börnin voru alltaf að kenna mér
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Lýðræðið
EYSTEINN JÓNSSON flutti ný-
lega í-æðu á Alþingi, sem m. a. fjall-
aði um stjómmálaflokkana og lýð-
ræðið. Nokkur atriði hennar fara
hér á eftir.
Án stjórnmálaflokkanna verður
lýðræði áreiðanlega ekki fram-
kvæmt. Þingflokkamir eru hluti Al-
þingis. Ýmsar hættur steðja nú að
lýðræði og þingræði en þær liættur
stafa ekki af því að stjómmálaflokk-
arnir séu of sterkar stofnanir á ís-
landi. Miklu fremur af hinu, að þing
flokkarnir eru of veikar stofnanir og
Alþingi þar af leiðandi of veik stofn-
un til að vega á móti öðrum öflum í
þjóðfélaginu, sem séfellt og vélrænt
laða til sín það vald, sem að réttu
lagi á að vera hjá Alþingi. Sú hætta
er yfirvofandi í æ ríkari mæli að það
vald, sem með réttu á að vera hjá Al-
þingi dragist yfir í embættismanna-
kerfið þar með talið peningakerfið,
sem er hluti af embættiskerfinu. Því
skal ekki haldið fram, að embættis-
mannakerfið sé hættulegt ef vel er
fyrir öðru séð. Þar er margt afbragðs-
manna. En þeir em embættismenn
í því flókna samfélagi, sem við lifum
í, og verður æ flóknara. Þeir eru
ekki kosnir til starfa sinna og þeir
þurfa ekki að standa frammi fyrir
þjóðinni með vissu millibili og bera
ábyrgð á gerðum sínum, og þetta set
ur auðvitað svipmót á viðhorf þeirra
og starf, og mótar kerfið. Þar sem lýð
ræði og þingræði á að ríkja, á ekki of
mikið af valdinu að dragast yfir í
þetta kerfi, heldur.á það að vera hjá
þeim, sem eru kosnir af þjóðinni til
að fara með málefni hennar á lög-
gjafarsamkomunni og þurfa að
standa reikningsskap á gerðum sín-
um. Ef valdið dregst um of úr liönd-
um hinna kjörnu fulltrúa yfir til
annarra, er sjálfur grundvöllurinn í
okkar þjóðfélagi í hættu og enginn
vafi er á því, að það er vaxandi háski
yfirvofandi í þessu efni, því að þjóð-
félagið verður sífellt flóknara og
embættiskerfið sífellt öflugra og sér-
fræðin meiri í öllum greinum. Gagn
vart þessu standa þingflokkamir,
sem sumum finnst vera óskaplega
voldugir og jafnvel hættulega vold-
ugir, eins og risar á leirfótum.
Eysteinn sagðist síðan geta fullyrt
það af eigin reynslu, og með því að
fylgjast með öðmm, að mikil hætta
væri á því, að ráðherrar yrðu meira
og minna fangar embættiskerfisins.
Þessi hætta vex stöðugt sökum þess
að þjóðfélagið er alltaf að verða
flóknara og meira háð sérþekkingu
á ýmsum sviðum. Framkvæmda- og
embættisvaldið, þar með peninga-
kerfið, er þannig að verða allt of
(Framhald á blaðsíðu 6).
segir Hallgrímur Sigfússon frá Grjótárgerði
HALLGRÍMUR SIGFUSSON
kennari frá Grjótárgerði í
Fnjóskadal er nú kominn yfir
sjötugt. Hann var barnakennari
í Súður-Þingeyjarsýslu og Eyja
fjarðarsýslu í nær hálfa öld, en
hefur átt heima á Akureyri síð-
an 1949. Hann býr í Bjarmastíg
13, íólegum og fögrum stað,
ásámi Jóhanni bróður sínum,
lifir kyrrlátu lífi eftir annasam-
an dag, vemdur minningum
manndómsáranna og umvafinn
hlýju yngri og eldri nemenda
sinna og annarra samferða-
manna.
Hallgrímur Sigfússon er enn
Iéttur á fæti og ber sig vel, hand
leikur skjalatösku sína, sem
fyrrum þyngdu stílar en nú úr-
valsbækur, frjálsmannlega á
göngunni og bognar fyrr aftur
en fram ef annaðhvort verður,
er manna skjótastur til svara,
er viðræðuglaður, grípur gaman
semi á lofti og getur látið fjúka
ef svo ber undir. Undir niðri er
hann viðkvæmur og sómakær
alvörumaður, sem enn býr
meira að fyrstu gerð, og mótun
í foreldragarði en flestir aðrir.
Hallgrímur gekk aldrei í kenn-
araskóla og naut nær engrar
skólamenntunar. Hann var því
alla starfsævi „réttindalaus“
kennari. En nemendur hans á
hverju vori í nærri hálfa öld
vitnuðu um hæfni hans í starfi
og gáfu honum þá einkunn, sem
allgott er við að una.
Hallgrímur Sigfússon fæddist
á Sörlastöðum í Fnjóskadal 23.
apriíl 1895 en fluttist þriggja ára
gamall með foreldrum sínum í
Fífilgerði við Eyjafjörð, en eftir
fimm ár lá leiðin aftur í Fnjóska
dal, nú í Grjótárgerði og þar
varð dvölin lengri, eða til vors-
ins 1937. Hallgrímur og Jóhann
bróðir hans bjuggu með móður
sinni í Grjótárgerði, eftir andlát
föður þeirra, og tók svo Hall-
grímur þar við búi eftir að hann
festi ráð sitt, bjó síðar eitt ár á
Hálsi og ellefu ár á Illugastöð-
um, þar til hann fluttist að Eyja
firði öðru sinni, eins og fyrr get
ur. Kona Hallgríms var Rósa
Stefánsdóttir frá Þórðarstöðum.
Hennar sonur og stjúpsonur
Hallgríms er Guðsteinn Þengils
son læknir á Suðureyri, en
hann og vopnfirsk kona hans
eiga lítinn Hallgrím meðal sinna
bama, augastein afa síns.
Dagur hitti Hallgrím Sigfús-
son að máli fyrir nokkrum dög-
um og fer samtal okkar hér á
eftir.
Þú festir seint ráð þitt?
Já, ég hef alltaf verið heldur
seinn að taka ákvarðanir, eink-
um í mikilsverðum málum. Ég
gifti mig árið 1932, þá 37 ára,
minni elskulegu og ágætu konu,
Rósu Stefánsdóttur, en hún lézt
fyrir rúmu ári. Já, sumir eru
orðnir afar á þeim aldri, nú á
síðustu og ágætustu tímum
hraðans og lítillar biðlundar.
Hvernig var háttað þinni
skólagöngu, Hallgrímur?
Það er fljótsögð saga, að hún
var fjórir mánuðir og knappir
þó. Árið 1917 var ég þrjá mán-
uði í unglingaskóla. hjá Guð-
mundi Ólafssyni frá Sörlastöð-
um. Kennslan fór fram í Skóg-
- um. En hann hafði áður ungl-
ingaskóla einn mánuð heima
hjá sér á Sörlastöðum, ég man
ekki hvaða vetur. En ég varð
að hóetta þar eftir þrjár vikur
því faðir minn veiktist. Með
Þessu er skólaganga mín öll
sögð. En hún var mér ómetan-
lega mikils virði og varð mér
mikil hvatning til lestrar og
sjálfsnáms, sem ég lagði raunar
stund á alla ævi, þótt ég sé nú
farinn að gleyma fleiru af því
sem ég les nú, en ég gerði áður.
En ennþá er það svo, að ég lifi
hálfgert í öðrum heimi þegar ég
les góða bók, og bækurnar hafa
alltaf verið mín veika hlið.
Hver fermdi þig?
Séra Ásmundur Gislason á
Hálsi fermdi mig og gifti. Þegar
ég kom fyrst til spurninga hjá
prestinum, var ég tæpra tólf
Hallgrimur Sigfússon.
ára. Þetta var á Illugastöðum.
Þar var fín, lítil stofa, sem prest
urinn var í. Og hann kom fram
í dyrnar en við krakkarnir stóð
um í ganginum. Hann heilsaði
mér ósköp vingjamlega, tók
blíðlega um höfuð mér og sagði:
Þú ert nú heldur lágur í loftinu,
karlinn, ert þú að koma til
spurninga? Ég játti því, þótti
heldur verra að vera minntur
á smæð mína, en reyndi auð-
vitað að vera ekki minnstur í
öðru því, sem mér var meira í
sjálfsvald sett. Þetta var upp-
hafið að kunningsskap okkai'
séra Ásmundar, er varð langur
og góður öll þau ár, sem við átt
um skipti saman.
Þú hófst auðvitað búskap þeg
ar þú giftir þig?
Já, og taldist bóndi bæði í
Grjótárgerði, Hálsi og Illuga-
stöðum. En ég var jafnframt
barnakennari alla mína búskap
artíð og miklu lengur. En bú-
skapur minn byggðist á því, að
við Jóhann bróðir minn skild-
um aldrei og það var hann, sem
sá um búið á vetrum. En strax
og ég lauk kennslu á vorin tóku
bústörfin við. Ég hlakkaði til
starfaskiptanna bæði haust og
vor og bar ekki annan skugga
á en þann, að þurfa oft að vera
að heiman, en heimili mitt var
mér mjög kært. Bóndi var ég í
17 ár.
Og þið búið enn sanian,
bræður?
Já, en nú er hlutverkum
skipt. Ég, sem áður var oft að
heiman, bæði við kennslu og
allskonar störf, sem ég vann
utan heimilis — sit nú heima og
sé um húshaldið, en Jóhann
vinnur úti. Hann vandist heima
á okkar ungdómsárum allskon-
ar innanhúsverkum hjá
mömmu. Nú kennir hann mér
þau og segir mér til um hvemig
haga skuli. Ég á honum margt
að þakka.
Áttir þú ekki góða hesta?
Jú, nokkra hesta áttum við,
allgóða. Ég vil nefna Fák, sem
Jóhann átti og var ættaður að
vestan, Lýsing og Skjóna. Ég
keypti Skjóna af Sigurði á
Syðrahóli í Kaupangssveit.
Hann átti að vera til dráttar en
var ágætur reiðhestur.
Nokkrar svaðilfarir á Skjóna?
Það er nú svo merkilegt, að
ég hefi aldrei lent í neinum
svaðilförum um dagana. Auð-
vitað fór ég kaupstaðarferðir og
í göngur og póstferðir í mis-
jöfnu veðri og færi. En það
leiddi aldrei til merkilegra við-
burða. Ég var einu sinni að
koma úr póstferð á Skjóna, hitti
Guðna í Lundi og sýndist hon-
um áin vera orðin á takmörkum
þess að vera reið. Mér sýndist
fært, treysti Skjóna og lagði út
í. Skjóni óð beljandi straum-
inn sterklega, en allt í einu kast
aði hann sér á hrokasund. Mér
varð bilt við, hélt í faxið og
okkur skilaði farsællega yfir.
Ég hafði reynslu af því, að hann
stóð þótt flyti yfir framan við
hnakkinn. En þama hefur lík-
lega verið svolítill áll, eða okk-
ur hrakið aðeins af leið.
Nokkur draugagangur í
Fnjóskadal?
Það held ég geti vel verið. En
það vill nú svo til, að hvorki er
ég skyggn eða dulspakur, tæp-
lega einu sinni myrkfælinn. Þó
neita ég ekki nærveru þeirra,
SQm sumum er gefið að sjá en
öðrum ekki, fremur en ég játa,
að menn hafi öðlazt allan sann-
leika í dulrænum efnum.
Fnjóskadalur hefur auðvitað átt
sína drauga, ef við eigum að
nefna það svo, eins og aðrar
sveitir eiga sína. Sjálfur hefi ég
ekki orðið þeirra var, en ég hefi
reynt að hugsa hlýlega til
þeirra, sem sumir kalla drauga.
Ef þeir eru til, eða ógæfusamar
sálir, eins og ég vil fremur kalla
það, og þurfa einhvers með —
þá er það vinarhugur okkar
mannanna, jafnvel fyrirbæn-
ir —. Út í þá sálma skal ekki
farið að sinni. En til gamans get
ég sagt frá sýn einni, sem fyrir
mig bar í Illugastaðakirkju-
garði. Ég var á heimleið frá
kennslu og tók á mig ofurlítinn
krók til að ganga að leiðum ætt
ingja minna. Kvöldsett var og
glaða tunglskm. Þegar ég gekk
fyrir kirkjuna dró ský fyrir
tunglið, en nær samstundis
varð bjart á ný. Sá ég þá þrjár
verur fyrir' framan mig. Mér
varð mjög hvert við og stirðn-
aði upp. Ég var vanur því að
reyna að finna skýringu á hlut-
unum, ef eitthvað kom fyrir. Ég
stóð nú þax-na og var farinn að
sjá sýnir! Rétt strax skildi ég
hvei-nig í öllu lá. Það voru þrír
allháir minnisvai'ðar í kirkju-
garðinum. Verumar voru skugg
ar þeii'i'a. Mér vai'ð rórra. En
síðan minnist ég oft þessa at-
viks, þegar einhver sér eða vei'ð
ur var við eitthvað dularfullt.
Ég hefði haft sögu til næsta
bæjai', ef ég hefði þegar í stað
tekið til fótanna, sem á þeim
árum voru ófúnir, stokkið yfir
kix-kjugarðsvegginn og átt sýn-
ina síðan óskýrða. En í Illuga-
staðakh'kjugarði hvílir Guðný
Jónsdóttir ömmusystir mín og
ljósa, sem ætíð hafði reynzt mér
vel.
Hvar varstu kennari, Hall-
grímur?
í Fnjóskadal, Höfðahverfi,
Bárðardal, Öxnadal og á Akur-
eyri. Mér samdi vel við flesta
nemendur mína. Þeir hafa von-
andi eitthvað lært hjá mér, en
ég er viss um, að ég lærði margt
af þeim. Nú, á gamals aldri eru
að heilsa mér menn og konur,
sem ég fyrrum kenndi, og
þakka mér gamlar samveru-
stundir. Mér hlýnar um hjartað
við slíkar kveðjur og það eru
nú beztu launin mín.
Byggð hefur gisnað í Illuga-
staðasókn?
Ég get naumast sagt frá því
með jafnaðai'geði hve fámenn
er nú oi'ðin Illugastaðasókn. En
ennþá bý ég að þeim töfrum, að
sjá dýrð skógai'ins að austan-
vei'ðu í dalnum þegar ég kom
út á morgnana, og sól var risin,
bæði á meðan ég var í Grjótár-
gerði og á Illugastöðum. Þórðar
staðaskógur vann töluvert á og
teygði sig upp eftir hlíðinni.
Stórahrísla, langstærsta tréð í
skóginum var á bala sunnan við
Stóruskriðu. Jónatan Þorláks-
son á Þói'ðarstöðum hefur ef-
laust oft kropið á kné við þá
hi'íslu, því hann hafði á hermi
mikið dálæti og trúði á hana.
Hann var afi konu minnai', mik
ill bókasafnax-i og fræðimaður.
Hefurðu orkt um dalinn
þinn?
Því miður er ég sneiddur
skáldskapai'gáfunni. En ári síð-
ar en ég flutti úr dalnum fór ég
austur. Á Vaðlaheiði blasti sól-
bakaður dalurinn við mér,
skrúðgrænar hlíðai'nar og fjalla
sýnin var undrafögur. Þá kom
mér þessi vísa í hug, á hrifn-
ingai-stund og beint frá hjart-
anu:
Sannan innri fögnuð finn
fjöll er lít ég þessi.
Daga alla dalinn minn
di'ottinn hæða blessi.
Hvaða bæir eru í Illugastaða-
sókn?
Þeir voru þessir þegar ég var
strákur: Þói'ðarstaðir, Belgsá,
Bakkasel, Bakki, Sörlastaðir,
Hj ciltadalur, Snæbj ai'narstaðir,
Tunga, Reykii', Selland, Illuga-
staðir, Kotungsstaðii', Grjótár-
gei'ði, Fjósatunga, Brúnagerði
og Steinkii-kja. Alls sextán bæ-
ir. Nú eru í byggð: Steinkii'kja,
Brúnagerði, Fjósatunga, Heyk-
ir og Þóx-ðai'staðir. Segi og
skrifa fimm bæir. Þetta er
hörmulegt og það var mér held
ur ekki sái-saukalaust að yfir-
gefa dalinn. En hann getur átt
eftir að byggjast á ný, jafnvel
mun meira en nokkru sinni áð-
ur, segir Hallgrímur Sigfússon
að lokum, og þakka ég svör
hans, óska honum margra
ánægjustunda með bókum sin-
um og minningum. E. D.
Happdrætti til styrkt-
ar hælisbyggingu
HÉR á Akureyri er hafin hælis
bygging fyrir vangefna. Styrkt-
arfélag vangefinna stendur fyr-
ir þeirri framkvæmd, en sveitar
félög og hið opinbera styðja
þessa framkvæmd. Nú hefur
. einnig Samband norðlenzkra
kvenna boðið fram aðstoð sína
til framggngs þessu menningar-
og mannúðarmáli. Því er sér-
staklega fagnað vegna þeirrar
reynslu, að þau málefni, sem
konur styðja, komast öðrum
fyrr í höfn. Samband norð-
lenzkra kvenna hefur farið á
stað með happdrætti í þessu
skyni. Kvenfélögin í samband-
inu, sem nær yfir allt svæðið
frá N.-Þing. til Strandasýslu, að
báðum meðtöldum hafa tekið að
sér miðasöluna. Sömuleiðis hafa
norðlenzku átthagafélögin í
Reykjavík tekið að sér að hafa
happdrættismiðana til sölu.
Þess er að vænta, að fólk hér
norðanlands bregðist við af ör-
læti og velvilja þegar því verða
boðnir happdrættismiðamir til
kaups. Foreldrar mega gjarnan
hugleiða það hvílík náðargjöf
og þakkai'efni það er, að eiga
eðlileg og efnileg börn og sýna
þakklæti sitt í verki með því
t. d. að kaupa einn miða fyrir
hvert bam. □
5
!ór Sigurgeirsson
frá Arnstapa
MINNING ARORÐ
það hefur dunið nú í vetrar-
ríkinu, mun sumarið koma að
nýju, þegar böi'nin vaxa upp og
hjálpa móður sinni að sigrast á
ei'fiðleikunum. Öll muna þau
góðan föður, sem þau áttu,
grandvaran mann, sem allir
höfðu gott eitt um að segja. Er
það einnig raunabót öldruðum
foreldrum að eiga svo skugg-
lausa mynd af di'engnum sín-
um, þótt þau yrðu að sjá honum
á bak.
Við, sem nutum Halldórs og
vissum hver di'engur hann vai’,
eigum skyldur að rækja við
áhugamál hans og skuld að
gjalda heimi'li hans, sem þai’f
sannai’lega á að halda samúð
okkar og raunhæfri hjálp.
Jarðarför Halldórs var fjöl-
menn og fór fi'am frá Ljósa-
vatnskirkju. Þar flutti séi'a
Friðrik A. Friðriksson fyrrum
prófastur eina af sínum áhrifa-
miklu kveðjui'æðum. Þarna
voru öll systkini Halldórs við-
stödd, sum komin um langan
veg og söngsystkini Halldórs
við Ljósavatnskirkju sungu hon
um hinztu kveðju undir söng-
stjóm hins aldna söngstjóra,
Sigurðar Sigurðssonar.
Fi'amtiðin er ói'áðm, en vænt
anlega mun unga konan á Ai'n-
stapa halda stefnunni fram, eins
og þau hjónin höfðu markað
hana og þá mun Arnstapi halda
áfram að bera fágætri snyrti-
mennsku vitni, sem Halldór
hafði tamið sér í allri umgengni
og í öllum verkum sínum. Megi
samúð og góðvilji létta þeim á
Arnstapa gönguna til þess
ókomna.
Jón Jónsson.
Æskan
BARNABLAÐIÐ ÆSKAN, 3.
tbl., er komið út, fjölbreytt
mjög að vanda og girnilegt
ungum lesendum. Ritstjóri er
Grímur Engilbei'ts. Heftið er 50
blaðsíður í stóru broti, og enn
veldur hið gamla og góða blað
bamanna hlutverki sínu. □
Sviðsmynd úr Fjalla-Eyvindi.
UM ÞESSAR MUNDIR er
Fjalla-Eyvindur sýndur á Dal-
vík, á vegum Leikfélags Dalvík
ur og Ungmennafélags Svarf-
dæla. En leikstjóri er Stein-
grímur Þorsteinsson.
Höfundurinn, Jóhann Sigur-
jónsson frá Laxamýi'i, samdi
Fjalla-Eyvind á dönsku og var
ur. En Jóhann varð skámmlifur,
andaðist árið 1919, aðeins 39
ára.
Eínið í Fjalla-Ejrvindi er ekki
langt sótt, því Evvindur Jóhs-
son, sunnlenzkur maður, og
Halla Jónsdóttir, aðal söguhetj-
ur í Fjalla-Eyvindi, voru raun-
verulega til og lifðu á 18. öld.
Frá vinstri: Arnes, Kári, Halla og Tóta. — (Ljósniyndastofa Páls).
hann sýndur í Dagmarleikhús-
inu i Kaupmannahöfn árið 1912
og hlaut hina beztu dóma í
dönskum blöðum. Hér á landi
hefur þetta leikhúsverk verið
talið framar öðrum leikritum
höfundar, en þau urðu fimm
talsins, sem hann lauk við:
Rung læknii-, Bóndinn á
Hrauni, Fjalla-Eyvindur,
Galdra-Loftur og Lyga-Mörð-
Hann var sekur fundinn, dæmd
ur fyrir þjófnað og lagðist út
ásamt Höllu, sem var ekkja,
ættuð úr Jökulfjörðum. Um þau
spunnust miklar sögur. Síðustu
æviár sín lifðu þau þó óáreitt í
byggð. Mörg örnefni bera nafn
hins ógæfusama útlaga og
minna á hann, en leikrit Jó-
hanns Sigurjónssoar heldur
minningu hans á lofti jafn lengi
Andleg hreysti - Allra heill
SÍÐASTLIÐIN ÞRJÚ ÁR hef-
ur Geðvemdai'félag íslands unn
ið að fi'ímerkjasöfnun og síðan
hafa sjúklingar í aftui'bata unn.
ið við að setja merkin á þau
spjöld, sem seld hafá verið til
ágóða fyrir starfsemina.
Þetta starf hefur þegar gefið
góða raun, — sjúklingar hafa
yfirleitt haft ánægju af ‘þessu
verkefni, og félaginu hafa
áskotnazt nokkrar krónur til
bi'ýnna framkvæmda.
En betur má, ef duga skal, og
fer því frímerkjanefnd félagsins
þess vinsamlega á leit, að sem
flestir sendi Geðvarndarfélag-
inu notuð frímerki, innlend sem
erlend. Frímei'kin má senda á
skrifstofu félagsins að Veltu-
sundi 3, eða í pósth. 1308, Rvík.
(Ljósmyndastofa Páls).
r á Dalvík
og listaverkið höfundinum. —
Margt hefur verið skráð og rætt
um höfundinn og þetta vinsæla
skáldvei'k hans og verður engu
við það bætt. En hai'mleikurinn
Fjalla-Eyvindur lýsir bæði
xnikilli skáldgáfu, tilfinninga-
hita og alvöru á einhvei-ju for-
vitnilegasta efni fyrri tíma: Úti
legumönnum á íslandi. Og enn.
í dag virðist fólki þetta efni hug
stætt.
Ég sá Fjalla-Eyvind á Dal-
vík á laugai'daginn og mun það
hafa verið þriðja sýning. For-
leikur Karls O. Runólfssonar
var leikinn á undan, af segul-
bandi, aðra tónlist önnuðust
Ingimar og Finnur Eydal.
Þegar setið er í leikhúsi og
þess notið, sem fram fer undir
sviðsljósunum, er oftast vandi
að greina, hvaða hlut leikstjór-
inn á í meðferð einstakra leik-
enda í hinum ýmsu hlutverk-
um, þótt heildarmyndin sé hans.
Steingi-ímur Þorsteinsson hefur
nú sett 31 sjónleik á svið á Dal-
vík. Munu Dalvíkingar með
réttu vera honum þakklátir fyr
ir þann skerf til leikmála stað-
arins. Mér er þó í huga, eftir
sýninguna, að hann hafi ekki
lagt sig nægilega vel fi-am, t. d.
við að leiðbeina vinnufólki
Höllu og öðrum „minniháttar“
pei'sónum. Þess vegna vei’ður
ívafið ekki eins litríkt og efni
virðast standa til, og nauðsyn-
legt er.
Svanhildur Björgvinsdóttir
leikur Höllu og ber leikinn uppi
með mikilli reisn, tilfinninga-
hita og ótvíræðum hæfileikum,
sem njóta sín vel í þessu áhrifa-
mikla hlutverki.
Bragi Jónsson leikur Fjalla-
Eyvind eða Kára og gerir hon-
um á köflum hin ágætustu skil.
Verður naumast annað sagt, en
að Halla og Eyvindur séu þai-na
í góðum höndum.
Baldvin Magnússon leikur
hreppstjói-ann. Björn hrepp-
stjóri er maður valdamikill í
sinni sveit, ágjarn ekkjumaður
og biðill Höllu. Hlutvei'kið er
annars mjög rúmt, því hrepp-
stjórar eru og hafa ætíð verið af
ýmsum gerðum. Það gefur því
góð tækifæri, sem að þessu
sinni nýtast ekki nægilega. Jafn
vel bónorðið er flutt eins og
þula. Ég held að þetta verði að
skrifast á reikning leikstjórans.
Jón Halldórsson leikur auðnu
leysingjann Arnes og kemst all
vel frá því, og einnig Guðbjöi'g
Antonsdóttir, sem leikur Guð-
finnu, roskna pipai-mey. Ómar
Ai'nbjörnsson leikur Ai'ngrím
holdsveika, og sýslumanninn
~leikuf Jóhann Antonsson, báöir
þokkalega en án tilþi'ifa. Rafn
Arnbjörnsson leikur Jón bónda,
Dagný Kjartansdóttir leikur 2
hlutverk, og Óskar Pálmason
(Framhald á blaðsíðu 6). j
HALLDÓR SIGURGEIRSSON
bóndi á Arnstapa í Ljósavatns-
hi-eppi andaðist á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akui'eyri 6.
febrúar sl. og fór útförin fram á
Ljósavatni 12. sama mánaðai'.
Þó einhver ókunnugur kynni
að segja sem svo, að ekki yrði
héi'aðsbi’estur við fráfall Hall-
dórs á Arnstapa, snertir það
okkur nági'anna hans, vini og
vandamenn, með nokkrum
hætti þannig. Þó annað kæmi
ekki til, en fámennt byggðarlag
þui'fi á bak að sjá óbieyttum
liðsmanni á góðum aldri, væri
það ærið nóg. En hvað þá um
mann, sem á ýmsan hátt var
fágætlega gerður, stóð í miðju
lífsstarfi með óleyst verkefni
allt í kring..
Halldór Sigurgeirsson var
fæddur á Amstapa 28. apríl
1924, sonur sæmdarhjónanna
Önnu Guðmundsdóttur og Sig-
urgeii's Jóhannssonar, sem lengi
hafa búið á Arnstapa, en þau
áttu fimmtíu ára hjúskapar-
afmæli 6. febrúar í vetur — dag
inn, sem Halldór lézt. Börn
þeirra Önnu og Sigurgeirs voru
sjö, fjórar systur og þrír bræð-
ur, sem öll hlutu- gott uppeldi í
foreldi’ahúsum og nutu þar ást-
ríkis, nema ein systirin, sem
ólst upp á Stórutjöi-num og er
gift húsmóðir þai'.
Ekki átti Halldór kost á ann-
arri skólagöngu en á Laugum.
Heimilið þuríti hans með og
einnig var hann heilsuveill öðru
hvex'ju.
Fyrir nálega 15 árum gekk
hann að eiga Herdísi Þorgríms-
dóttur frá Stafnshóli í Skaga-
firði og urðu þau síðan hús-
bændur á Arnstapa og hafa í
miklar umbætur á jörðinni og
hefur þurft að taka til höndum
við þær umbætur. í góðu sam-
býli við umbótaönn og búskap-
inn bjó alltaf listhneigð í barmi
Halldórs. Hann hafði alla tíð
yndi að hljómlist og lék oft fyrir
dansi á harmoniku og lengi var
hann organisti í Hálskirkju, en
Amstapi á þangað kirkjusókn.
Fórst honum það vel úr hendi.
Menn, sem bæta almennum
þegnskaparkvöðum við dagleg
stöi-f, auka lífsgildi sitt og sinna
samverkamanna. Ekki sízt þeg-
ar hver vinnustund er dýi'mæt
og börnin orðin fimm, það elzta
aðeins 12 ára. Halldór veiktist
mjög alvarlega fyrir tveim ár-
um, dvaldi þá á sjúkrahúsi um
skeið og var tvísýnt um líf hans.
Komst þó á ný til nokkurrar
heilsu en síðan varð því ekki
bægt frá, sem nú er orðið.
En þrátt fyrir það, að Arn-
stapaheimilið sé nú hnípið eftir
það miskuimarleysi, sem yfir