Dagur - 10.04.1968, Síða 8
8
SMÁTT OG STÓRT
rar og s
arí
FRÉTTAMÖNNUM var á
mánudaginn boðið að skoða nýj
ar eldhúsinnréttingar hjá fyrir-
tækinu Hagá h.f. í nýju verk-
stæðishúsi þess ‘á Gleráreyrum,
nánar tiltekið Oseyri 4, norðan
Glerár. Þær eru ódýrar, snyrti-
legar og smíðaðar í fjöldafram-
leiðslu en henta þó í hvaða eld-
'hús, sem vera skal.
.Komið hafði verið fyrir tveim
eldhúaum, fullbúnum, öðru
stóru en hinu við hæfi fjöldans.
Þær er.u allar hvitar að lit, með
. álínidum,' plastdúk utan og inn-
an nema hurðirnar, sem eru úr
plasthúðuðum spónaplötum.
Eldhús þessi voru hin álitleg-
ustu á að líta. Eldhúsbekkir og
yfirskápar eru úr einingum, þar
Frá vinstri: Haukur Árnason, Sigurður Hannesson og Óli Þór
Baldvinsson. (Ljósmynd: E. D.)
Skólatónleilíar í dag
í DAG (miðvikudag) kl. 14
verða haldnir tónleikar í Borg-
arbíói. Allir skólanemendur eru
velkomnir, en tónleikar þessir
eru þó sérstaklega helgaðir
börnum úr eldri bekkjum barna
skólanna.
Ungur Akureyringur, Hafliði
Hallgrímsson, leikur á cello, en
undirleik annast Philip Jenkins.
Hafliði hefur hlotið mikla við-
Skákmenn í heimsókn
SL. SUNNUDAG kom lið frá
Skákfélagi Húsavíkur í heim-
sókn og keppti við félaga úr 1.
og 2. flokki Skákfélags Akur-
eyrar.
Keppt var á 16 borðum og
urðu úrslit þau að Akureyring-
ar sigruðu naumlega, hlutu 8V2
vinning gegn 7% vinningi Hús-
víkinga. í hraðskák sömu aðila
hlutu Akureyringar 9V2 vinn-
ing en Húsvíkingar 6V2 vinning.
Á Skákþingi Akureyrar eru
nú efstir og jafnir í meistara-
flokki þeir Jóhann Snorrason,
Ólafur Kristjánsson og Kristinn
Jónsson með 3V2 vinning hvor,
næstur er Þorgeir Steingríms-
son með 3 vinninga. Næsta um-
ferð verður tefld í kvöld (mið-
vikudag) í Landsbankasalnum.
urkenningu og lofsamleg um-
mæli fyrir afburða námsgetu
og hæfileika.
Sinfbniuhljómsveit íslands
hefur að undanförnu haldið
skólatónleika í Reykjavík við
góða aðsókn og undirtektir.
sem stærðarmunur er .10 cm.
Geta þær því hentað í hvaða
stærð eldhúsa, sem vera skal.
Frávik geta aðeins numið fáum
sentimetrum, og sérstykki not-
uð til fyllingar með litlum kostn
aði. Eins og áður segir eru allir
skápar og bekkir með hvíta
framhlið en á eldhúsbekkjum
er breytilegur litur. Tilbreytni í
eldhúsum getur, þrátt fyrir
þetta, orðið mikil í veggjum,
gólfi, gluggatjöldum o. fl.
Og svo er það verðið. Eldhús-
innrétting á tveim veggjum í
eldhúsi sem er 2.60 m. að lengd,
kostar kr. 41.065.00 með sölu-
skatti. En það er a. m. k. 20%
lægra verð en á innfluttum eld-
húsinnréttingum í sama gæða-
flokki.
Hagi h.f. mun sýna bæjarfólki
og öðrum, sem áhuga hafa,
þessa framleiðslu í dag, miðviku
dag, eftir kl. 5 og aftur annan
páskadag frá kl. 2 e. h.
Líklegt er, að enn eigi eftir að
nást meiri árangur í þessari
grein, með meiri æfingu og e. t.
v. nýjum vélakosti að einhverju
leyti. Þessi lager- eða fjölda-
framleiðsla er mjög athyglis-
verð og sýnist spor í rétta átt.
Framkvæmdastjóri Haga h.f.,
er Haukur Árnason og skýrði
hann þessa nýju framleiðslu,
stjórnarformaður er Sigurður
Hannesson og verkstæðisfor-
maður Oli Þór Baldvinsson.
Hagi h.f. tekur einnig að sér
alla almenna byggingavinnu í
bæ og nágrenni. □
ELDHÚ SINNRÉTTIN G AR
Þegar farið var að flytja frá
Þýzkalandi eldhúsinnréttingar,
rann það upp fyrir mönnum, að
unnt væri að framleiða slíka
hluti á lager í stað þess að
snúða eftir pöntun og máli
hverju sinni. Fjöldafranileiðslan
byggist á því, að hafa eining-
arnar af svo mörgum stærðum
að henti í livaða stærð af eld-
húsuni, sem vera skal. Og f jölda
franileiðsla er líkleg til að
lækka verulega þann kostnaðar
lið, sem verið hefur „óeðlilega“
liár.
BJARNDÝR
Skipverjar á Esju sáu nýlega
bjarndýr eitt gulleitt á hafís-
jaka út af Sandvík nálægt
Gerpi, 4—500 metra frá landi.
Gæddi það sér á sel, en lirafnar
voru nálægir þessari krás. f
Sandvík er lirossaganga góð og
þar eru jafnan útigönguhross,
sem landslag veitir aðliald á
þrjá vegu og sjór á hinn fjórða
veg. Óttast er, að bangsi kunni
að ganga á land í Sandvík og
gæða sér á hrossakjöti.
VEIKUR ER VORÍSINN
Pollurinn hefur legið undir
traustum ís út fyrir Oddeyri og
stöðugt þykknað, enda er mikill
sjókuldi og oft hörku frost. f
gær brá til sunnanáttar. Veikur
er vorísinn, segir gamalt mál-
tæki og ættu menn að minnast
þeirra orða nú og viðhafa fulla
aðgát í sambandi við umferð
á ís.
VILJA HELZT SELAKJÖT
Vilhjálmur Stefánsson, heim-
skautafarinn frægi, segir, að
livítabjörninn sé sterkasta land
dýrið og geti hann orðið þrisvar
sinnum stærri en stærstu
Afríkuljón. Hann er flestum
dýrum vitrari og lifir ekki á
fiski, eins og stendur í sumum
kennslubókum, heldur á sela-
kjöti. Hins vegar eta grábirnir
og svartir skógarbirnir fisk með
góðri lyst og veiða bæði lax og
silung í ám.
HÆTTULEGAR SKEPNUR
Hvítabirnir eða ísbirnir eru nú
á ísnum hér við land og geta
hvenær sem er gengið' á land.
Þeir eru hættulegir og hafa
banað fólki hér á landi mörgum
sinnum. Oftast leggja þeir á
flótta ef þeir verða manna var-
ir, nema þeir séu soltnir eða eru
áreittir.
Flugfélag íslands og SAS endur-
nýja samninga um Færeyjaflug
f GÆR lauk í Stokkhólmi samn
ingafundi Flugfélags íslands og
Scandinavian Airlines System
um áframhald á samvinnu fé-
laganna um flugferðir milli Fær
eyja, Bergen og Kaupmanna-
hafnar.
Samkomulag þetta gildir frá
1. apríl sl., í þrjú ár, eða til 31.
marz 1971.
í samkomulagi félaganna felst
meðal annars, að SAS er nú
virkur þátttakandi í kaupum á
flugvél til ferða á þessum flug-
lauðum í sambandi við nýja
Fokker Friendship flugvél sem
Flugfélag íslands átti í pöntun.
Flugfélag íslands mun sjá um
rekstur og viðhald flugvélarinn
ar. Samkomulag Flugfélagsins
og SAS er gert með það fyrir
augum að hægt sé að bjóða aðil
um í Færeyjum þátttöku í flug-
rekstrinum. Þá er ákveðið að
milli Færeyja og Skandinavíu
verði fimm ferðir í viku á sumr
in, en að auki flognar aukaferð-
ir eftir því sem þurfa þykir.
Að vetri til eru áætlaðar
þrjár ferðir.
Reykjavík, 5. apríl 1968.
Daguk
kemur næst út fimmtudagirm
.18. apríl og þarf efni og auglýs-
ingar að berast tímanlega vegna
mikilla þrengsla. □
Slyrkfarfélag vangefinna ræður forstöðukonu
HatnOi xiaiigriinsson.
Skólanemendur á Akureyri
æfíu áð fjölinénna í Borgarbíó
í dag bg sýna með því, að þeir
kunna að meta góða list, ekki
síður en félagar þeirra í Reykja
vík.
Miðar verða seldir við inn-
ganginn og er verði þeirra mjög
stillt í hóf.
(Aðsent)
í FYRRADAG kom stjórn
Styrktarfélags vangefinna á
Akureyri saman á fund og var
endanlega gengið frá ráðningu
forstöðukonu vistheimilisins Sól
borg á þeim fundi. Hin nýja for
stöðukona er frú Kolbrún
Thorlacius, gæzlusystir frá
Kópavogshæli, ættuð úr Skaga-
firði. Hún mun nú dvelja í
dönskum skóla um eins árs bil,
til að búa sig undir hið nýja
starf hér í bæ. Aðstoðarforstöðu
kona hefur einnig verið ráðin
og heitir hún Valgerður Jóns-
dóttir og er Reykvíkingur. Enn
fremur hefur Bjarni Kristjáns-
son frá Sigtúnum verið ráðinn
kennari við hina nýju stofnun,
er hún tekur til starfa.
Framkvæmdir við hið nýja
heimili fyrir vangefið fólk, hafa
að miklu leyti legið niðri um
skeið en standast þó áætlun og
verður væntanlega hraðað þeg-
ar tíð batnar. í sumar er áætlað henni eru á myndinni Jóhann
að byrja á byggingu þriggja Þorkelsson stjórnarformaður,
íbúðanhúsa fyrir starfsfólk. Styrktarfélags vangefinna og
Myndina tók E. D. þegar for- Jóhannes Oli Sæmundsson fram
stöðukonan var ráðin. Með kvæmdastjóri. □