Dagur - 14.08.1968, Síða 2
TRYGGVI HELGASON, FLUGMAÐUR:
BÆRINN ÖKKAR
Skot — og óverjaudi mark.
ÍBA-VÖRNIN BRÁST ÞEGAR MEST REYNDIÁ
- og KR sigraði 3:2
r
Kári Arnason og Þórólfur Beck urðu að yfir-
gefa völlinn í fyrri hálfleik - vegna meiðsla
SAMKV. upplýsingum Hreins
Óskarssonar, forstöðumanns
íþróttavallarins, voru áhorfend
ur hátt á fjórða þúsund sl.
sunnudag að leik ÍBA og KR,
»g er það mesta fjölmenni, sem
horft liefur á knattspyrnukapp-
leik á Akureyri. Vöm ÍBA
brást illa í byrjun Ieiksins, og
kostaði það 3 mörk, en síðari
hlúti fyrri hálfleiks, er bezti leik
kafli sem sézt hefur til ÍBA-
liðsins í sumar og uppskáru þeir
ivö mörk. Fimtn tnörk á 45 mín.
er nokkuð, sem áhorfendur sjá
ekki oft. Síðari hálfleikur ein-
kenndist af hinum kunna vam-
areik KR, með útafspyrnum og
tilheyrandi og tókst þeim að
halda markinu hreinu, og lauk
jjví Ieik þessum með sigri KR
I mörk gegn 2.
Það var margt um manninn
i íþróttavellinum á Akureyri
pegar leikur ÍBA og KR hófst
ikl. 4 sl. sunnudag, enda veður
njög gott, 14 stiga hiti, og svo-
íítil gola af norðri. Sólin skein
og háði keppendum nokkuð.
KR-ingar imnu hlutkestið og
susu að leika undan golunni á
syðra markið. Akureyringar
(byrjuðu með kriöttinn og áttu
ít’yrsta tækifærið, en KR riær
apphlaupi á 4. min. og brást
ÍBA-vörnin illa, Ólafur Lárus-
uon komst í gegnum vörnina og
skoraði fyrsta mark KR, án þess
Samúel fengi nokkuð að gert,
enda var hann meiddur. KR-
ngar ná nú góðum tökum á
.eiknum og þegar 24. mín. voru
af leik stóð 3:0 fyrir KR, og
NORÐURLANDSMOT
í KNATTSPYRNU
STAÐAN í Norðurlandsmótinu
:í knattspymu er nú þannig að
XA og Þór hafa hlotið 5 stig og
eru jöfn. KA vann Völsunga á
íþróttavellinum á Akureyri 4:0,
en Þór vann KS á Siglufjarðar-
velli einnig með 4:0. í kvöld,
miðvikudag, leika Þór og Völs-
ungar á íþróttavellinum á Akur
eyri, en KA mætir KS á siglu-
firði.
vou áhorfendur farnir að búast
við „bursti“.
En á 4 mínútum breyttist stað
an úr 3:0 í 3:2, Valsteinn gaf vel
fyrir markið á 30. mín. og Guðni
skoraði viðstöðulaust 3:1. Á 34.
mín. endurtekur þetta sig, Val-
steinn gefur vel fyrir, en Þor-
móður skorar 3:2. Á' 40. mín. er
svo hornspyrna á KR. Þormóð-
ur spyrnir vel fyrir markið og
Skúli nær að skalla, en knött-
urinri fóf framhjá fast við stöng,
þar skall hurð nærri hælum.
Frá því Akureyringar skoruðu
1. mark sitt og til loka hálfleiks
ins náði ÍBA-liðið öllum tökum
á leiknum og réði gangi hans,
en nokkurrar hörku gætti síð-
ustu mínúturar, sem dómaran-
um, Einari Hjartarsyni, tókst að
halda að mestu niðri. Kári var
ekki nema svipur hjá sjón, enda
meiddist hann snemma í fyrri
hálfleik, og sá ég ekki betur, en
á honum væri brotið innan víta
teigs, og upp reis hann haltur.
Hann varð að yfirgefa völlinn
rétt fyrir leikhlé, einnig varð
Þórólfur Beck að yfirgefa völl-
inn.
Síðari hálfleikur var jafn leið
inlegur og sá fyrri var skemmti-
legur. KR-ingar lögðust í vörn
og tókst að halda markinu
hreinu, þótt tvívegis munaði
litlu að Akureyringar tækist að
skora. Valsteinn og Skúli voru
í góðu færi á 37. mín., en tókst
ekki að skora, þá skall hurð
nærri hælum við mark KR á
40. mín. KR-ingar áttu líka tæki
færi í síðari hálfleik og á 30.
mín. bjargaði Gunnar Austfjörð
á línu.
Dómarinn, Einar Hjartarson,
dæmdi vel og er hann tvímæla-
laust sá bezti, sem dæmt hefur
íhér á vellinum.í sumar.
VALUR — ÍBK 0:0
Sl. mánudagskvöld lék.u á
LaugardalsvelHnum í Reykja-
vík Valur og IBK og lauk þeim
leik með jafntefli, og var ekkert
mark skorað, þrátt fyrir góð
tækifæri beggja liða.
Staðan í 1. deild er nú þannig,
að KR er með 12 stig (8 leikir),
ÍBA 10 stig (8), Fram 9 stig (7),
Valur 8 stig..(8), ÍBV 4 stig (7)
og ÍBK 3 stig (8).
(Ljósm.: M. Ó. G.)
Firmakeppni í
knatfspyrnu
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að fram
fari firmakeppni í knattspyrnu
hér á Akureyri. Þátttökutilkynn
ingar þurfa að berast fyrir
næsta mánudagskvöld í síma
21588 (íþróttavallarhús) eða til
Karls Steingrímssonar, símar
11494 og 21144. Þátttakendum
verður gefinn kostur á æfinga-
svæðum og leiðbeint um þau.
Knattspyrnuráð Akureyrar.
AKUREYRI hefir oft verið tal-
inn fallegur bær, og er þá venju
lega átt við skrúðgarða og trjá-
rækt í kringum hús bæjarbúa.
Margir garðar eru sérstaklega
vel hirtir, og ræktaðir af mikilli
smekkvísi.
En með hinni ört vaxndi bíla-
umferð hafa götur bæjarins
breytzt í moldarflag. í þurrki
leggst þykkt moldarlag yfir alla
hluti, en í bleytu eru bílar, girð-
ingar, húshliðar og annað sem
snýr að götunum, atað aurleðju.
Bæjarstjórnin með nýja bæj-
arstjóra í broddi fylkingar, hefir
ekki haft manndóm í sér að mal
bika götur bæjarins. Og með því
er átt við ALLAR götur bæjar-
ins, en ekki bara spottana í
kringum gömlu og nýju lög-
reglustöðina.
Heyrzt hefir að ferðamenn
hafi ymprað á því, að ryk og
skítur væri að verða nokkurs-
konar aðalsmerki Akureyrar-
bæjar. Það er sannarlega
ánægjulegt fyrir Akureyringa
að skarta slíku merki!
í rauninni styttist hinn mal-
bikaði hlutur gatnanna í bænum
ár frá ári, þar sem malargötur
lengjast með meiri hraða. Hvem
ig væri að bjóða út alla nýbygg
ingu gatna í bænum? Þá væri
ef til vill von til þess að vel yrði
unnið, og að framkvæmdum
miðaði eitthvað áfram.
Verkefni á vegum bæjarins
eru iðulega unnin þannig, að
fólk gæti haldið, að menn með
einhverju verksviti kæmu þar
aldrei nærri. Á þessu verður að
koma breyting. Það nær engri
átt að bæjarbúar ausi fé í ein-
hver vitleysisvinnubrögð, —
hálfgerð kleppsvinnubrögð.
í minningargreinum um látna
menn, þykir fínt að geta talið
upp hvað viðkomandi hafi setið
marga áratugi í ýmsum opin-
berum störfum, til dæmis í
hreppsnefnd. Er helzt ekki veru
legt bragð af, nema hægt sé að
nefna meira en hálfa öld. En er
þetta ekki vafasamt hól? Fæstir
eru slík ofurmenni, að geta
þjónað slíkum störfum um ára-
tugi, að nokkru gagni. Og varla
er það mikill vegsauki að verða
mosavaxinn í einhverri hrepps-
nefnd eða bæjarstjórn, af ára-
tuga þrásetu og aðgerðaleysi.
En þá er spurningin, — hvers
vegna eru ek-ki kosnir nýjir,
yngri menn? Ef til vill gefa síð-
ustu forsetakosningar bendingu
um ný viðhorf. Tími aldamót-
anna og þeirra manna sem með
þeim komu, er liðinn. Við þurf-
um einungis að sætta okkur við
það, og viðurkenna það sem stað
reynd.
Við forsetakosningarnar var
stefna gömlu stjórnmálamann-
anna hafnað. Þurfum við Akur-
eyringar ekki að gera slíkt hið
sama, við næstu bæjarstjórnar-
kosningar, og taka forystu í mál
um allra Norðlendinga? □
- ÖLSTRÍÐIÐ
(Framhald af blaðsíðu 8).
skyldi hætt frá og með 15. júlí
1988.
Saga þessa ölmáls í Svíþjóð er
lærdómsrík, því að reynslan er
ólýgnust.
Áfengisvarnaráð.
- „TÍU ÁRA HEILSULEYSI GERÐI MIG AÐ NÝJUM MANNI“
(Framhald af blaðsíðu 5).
þennan mikla hita og hafði lagt
hart að mér við byggingarnai'.
Þessi veikindi voru upphaf að
tíu ára vanheilsu. Þessi tíu ár
töpuðust mér hvað atvinnu
snerti. En þetta varð mér þó
happatími hinn mesti í lífi minu.
Hvernig niátti það verða?
Jú, ég lá tvö ár í sjúkrahúsi
og þangað kom góð stúlka til
mín á hverjum degi og færði
mér blöð og góðar bækur og
fréttir úr umheimnum. Og hún
gaf mér það sem var þó enn dýr
mætara, löngunina til að sigra
sjúkdóminn og lifa nýju og
fegurra lífi en áður. Það er
stúlkan, sem er nú héma hjá
mér, segir Davíð og bendir á
konu sína.
Á þessum árum lærði ég að
þekkja sjálfan mig og ég las
margar ágætar bækur, sem ég
hefði aldrei gefið mér tíma til
að lesa, ef ég hefði verið vinn-
andi maður og hugsaði margt.
Ég er nú ekki að halda því fram,
að ég sé hvítþveginn af allri
synd síðan ég gekk í gegnum
hreinsunareld veikindanna. En
síðan hefi ég jafnan reynt að
láta minn innri mann ráða orð-
um mínum og gerðum, eða sam-
vizkúna, ef menn vilja orða það
svo. Tíu ára veikindin var minn
bezti skóli, sem ég hef notið á
ævinni, skóli, sem gjörbreytti
lífsviðhorfum mínum og þrosk-
aði mig andlega.
Seinna varstu við verzlun?
Já, eftir að ég kom af spítal-
anuni fór ég að stunda verzlun,
bókaverzlun, af því ég var ekki
maður til að vinna erfiðisvinnu
eins og áður. Ég verzlaði eink-
um með íslenzkar bækur og
blöð og var bóksali í tuttug.u ár,
Þetta var sú'bókaverzlun, sem
Ólafur Thorgeirsson átti áður
og er hann féll frá, keypti ég
allt bókasafnið hans. Ég hafði
alltaf góð sambönd við ísland.
Það eru 12 ár síðan ég hætti að
verzla, en hélt þó áfram nokk-
urri sölu heima hjá mér eftir
þetta. Síðan hefi ég fengizt ögn
við ritstörf, einkum ritaði ég í
vestur-íslenzku blöðin, bæði
greinar og kvæði. Þegar ég
hætti að hafa tölu á því, höfðu
um eitt hundrað greinar og
kvæði eftir mig komið á prenti
vestra. Um átta hundruð blað-
síður átti ég í Ijóðmælum og
nokkur þúsund í óbundnu máli,
allt í handritum. Þetta safn gaf
ég Landsbókasafninu, ásamt
bókasafninu mínu, um 1400
eintök.
Kona Davíðs, frú Hallgerður
Róslaug, er fædd vestra. For-
eldrar hennar hétu Þorgerður
Eysteinsdóttir, borgfirzk, og Jón
Magnússon, Skagfuðingur. Þau
kynntust í Ameríku og giftust
þar. Sjálf er Hallgerður vel
menntuð kona og var lengi kenn
ari, fyrst í ýmsum smærri bæj-
um og þorpum en síðan í Winni
peg. Hún hefur ekki áður til ís-
lands komið en heimili foreldra
hennar var talið mjög íslenzkt
og sjálf talar hún góða íslenzku.
I viðtalslok biðja þau hjónin
fyrir beztu kveðjur til þeirra
mörgu, sem greiddu götu þeirra
hér á landi í þessari heimsókn
og báru fram árnaðaróskir landi
og þjóð til handa.
Frú Hallgerður og Davíð
Björnsson eru dæmigerðir Vest
ur-íslendingar. Þau eru að sjálf
sögðu kanadískir ríkisborgarar
í einu yngsta menningarríki nú-
tímans, en búa að arfleifð feðr-
anna og eiga þann metnað, að
vera .þeirri arfleifð trúir og
gamla landinu til sóma. Þetta
hefur Vestur-íslendingum tek-
izt. svo, að það eru talin með-
mæli til hverskonar starfa, að
vera af íslenzkum uppruna. ís-
lendingar hér heima eru 200
þúsundir. Kanadamenn 20
milljónir en Bandaríkjamenn
200 milljónir. Kanada er mjög
auðugt land af málmum og enn
ekki byggt land nema að hluta,
þ. e. á allbreiðu belti norðan við
landamæri Bandaríkjana og
Kanada. Kanadísku þjóðabrot-
in mynda eina sterka heild,
þrátt fyrir ólíkan uppruna sinn,
framfarir eru mjög örar, mennt
un góð og framtíðarverkefni
þjóðarinnar ótæmandi í yíðáttu
miklu og náttúruauðugu landi.
Það var gæfa íslendinga, sem
kusu eða urðu að yfirgefa ætt-
land sitt fyrir þrem aldarfjórð-
ungum, að verða þegnar hinnar
ungu kanadísku þjóðar og okk-
ar gæfa einnig, að þetta litla
þjóðaibrot skuli enn halda slíkri
ti-yggð við „gamla landið“, sem
raun ber vitni.
Dagur þakkar viðtal og árn-
aðaróskir og óskar viðmælend-
um sínum góðrar ferðar. E. D.
Ný sjónvarpsverzlun
NÝLEGA opnaði Radiovinnu-
stofan, Helgamagrastræti 10, úti
bú (afgreiðslu og verzlun) að
Strandgötu 17. Þar verða til sölu
BLAUPUNKT og B & O sjón-
varpstæki, einnig útvarpstæki
hverskonar, bíltæki og segul-
bandstæki margar gerðir. Fyrst
um sinn verður verzlunin opin
frá kl. 1—6 e. h. og laugardaga
9—12 f. h. Eigendur Radiovinnu
stofunnar eru Axel Guðmunds-
son, útvarpsvirkjameistari og
Einar J. Kristjánsson, útvarps-
virki.
(Fréttatilkynning)