Dagur - 30.08.1968, Qupperneq 1
EFNAVERKSMIÐJAN SJOFN
Dagur
LI. árg. — Akureyri, föstudaginn 30. ágúst 1968 — 36. tölublað
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SERVERZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKOLLUN r KOPIERING
Lík ungu mannanna
rekin við Siglunes
Siglufirði 28. ágúst. Á laugar-
daginn var jarðsettur hér í Siglu
firði elzti borgari kaupstaðarins,
nær 90 ára, Kristrún Hallgríms-
dóttir. Hún var kona Boga Jó-
hannessonar fyn-um bóndp á
Minni-Þverá í Fljótum. Þau
hjón eignuðust 10 börn og eru
þau öll á lífi. Afkomendur
þeirra hér á staðnum skipta
mörgum tugum. Kristrún heitin
KJORDÆMISÞINGÍÐ
KJÖRDÆMISÞING Framsókn-
armanna hér í kjördæminu
hefst kl. 10 árdegis á Laugum í
dag, 30. ágúst, og lýkur annað
kvöld. Að þingi loknu liefst
sumarhátíð Framsóknarmanna
á sama stað. Þar flytja ræður:
Gísli Guðmundsson og Björn
Teitsson og margt annað verður
til skemmtunar en að lokum
stíginn dans. □
var blind rúmlega sex síðustu
æviár sín.
Hinn 28. ágúst fór fram jarðar
för Helga Valdimars Jónssonar
og Sigurðar Helgasonar, en þeir
fórust á litlum trillubáti, Njáli,
í fiskiróðri 12. júní í sumar.
Mikil og víðtæk leit var þá gerð
en án árangurs. Lík þeirra rak
fyrir nokkrum dögum á Siglu-
nesfjörum. Þykir af því ljóst, að
bátur þeirra hafi farizt út af
Siglufirði. Helgi var nýfluttur
til Siglufjarðar frá Keflavík, 22
ára, en Sigurður var fæddur og
uppalinn hér, 21 árs. Báðir voru
þeir kvæntir og áttu tvö börn
hvor.
Heldur hefur tregðazt afli tog
veiðiskipanna en handfæraafli
er ennþá góður þegar gefur.
Hafliði landaði fyrir nokkrum
dögum 100 tonnum af fiski. Sigl
firðingur og Vonin koma hingað
á 2—3 daga fresti með afla. Næg
(Framhald á blaðsíðu 2).
Hlaðnir heyflutningahílar á leið til Bakkafjarðar frá Héraði.
(Ljósm.: E. D.)
Nokkrar jarðabylfingar í Kinn í sumar
LÍTIÐ AF UNGSILUNGIILAXÁ
Kasthvammi 22. ágúst. Heyskap
ur byrjaði ekki fyrr en um og
rétt fyrir síðustu júlíhelgina, en
þá var spretta orðin sæmileg og
er nú allsstaðar oi'ðin ágæt, þar
sem á annað borð getur sprottið.
Tún og ábornar engjar við Laxá
sem verst voru farin af kali og
grjótáburði, hafa þó ekki náð
sér eins og ég vonanði í júní.
Vikan frá 29. júlí til 3. ágúst
var skúrasöm, það rigndi alla
dagana til skemmda og eyði-
lagði suma en það var hlýtt, og
spratt með ótrúlegum hraða.
Frá 4. ágúst til 14. voru þurrkar
nema 8. og 9. og rigndi mikið
þann 8. Nú síðastliðna 8 daga
hefur verið úrkoma á hverjum
degi, en vonahdi koma nú þurrk
ar aftur, og ef sæmileg hey-
skapartíð verður hér eftir, ætti
heyfengur að verða viðunandi.
Veiði í Laxá hefur verið frek-
ar lítil í sumar, og er áberandi
hvað lítið er af ungum silungi,
sem menn hér kenna aðgerðum
við Mývatnsósa, ásamt miklu
álagi á ána á efstu veiðijörðum,
og er stofnun veiðifélags á þessu
veiðisvæði mjög nauðsynleg fyr
ir alla aðila.
Það sem ég hefi séð af lömb-
um spáir ekki góðu með væn-
leikann í haust. G. Tr. G.
Ófeigsstöðum 28. ágúst. Hey-
skapur varð stórum meiri í
mínu nágrenni en vonir stóðu
til fyrr í sumar. Sermilega verða
hey ekki minni en í fyrra þótt
víða kunni heyskapur að verða
neðan við meðallag. Man ég
aldrei eftir öðru eins krafta-
verki í náttúrunni og í sumar.
Forsjónin deildi okkur ríkuleg-
um hluta af góðviðri og gróðri,
þegar loks hlýnaði. Fyrst var
jörðin vökvuð og síðan yljuð af
sól og hlýju regni og svo komu
einmuna þurrkar. Heyskapur
var að mestu tekinn á einum
mánuði.
Á þriðjudaginn kom til okkar
Gísli Guðmundsson alþingis-
maður og flutti yfirgripsmikið
erindi um atvinnumál á fundi
með áhugamönnum hér í sveit.
Fundurinn var haldinn í ný-
reistu félagsheimili, sem enn
hefur ekki hlotið nafn. Á eftir
urðu fjörugar umrseður um
Fjöruþjófar á ferð á Langanesi
Gunnarsstöðum, Þistilfirði, 29.
ágúst. Á sunnudaginn, 25. ágúst,
var Björn Kristjánsson vitavörð
ur í Skoruvík á Langanesi að
fylgja skemmtiferðafólki út að
vita. Þegar komið var tvo km.
út fyrir bæinn, sást skip skammt
frá landi og menn frá því á litl-
um báti í landi. Voru sjómenn-
irnir að hirða úr rekanum belgi
og kúlur og stóra trollbauju úr
plasti. Björn vildi hafa tal af
mönnum þessum, en þeir réru
þá frá landi, svöruðu skætingi
og höfðu baujuna í togi. Þeirra
orðaskiptum lauk þó svo, að
þeir réru uppundir land og
slepptu baujunni, sem vegna
HVEHÆR KEMUR SJÓNVARPSÐ?
UNDANFARNAR vikur hafa
menn verið að kaupa sjónvarps-
tæki á Akureyri, en þau eru
Karl á Fljótsbakka opnar sýningu
Einar Karl Sigvaldason.
EINAR Karl Sigvaldason, rosk-
inn bóndi á Fljótsbakka í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu, opnar mál-
verkasýningu í Landsbankasaln
um á Akureyri á morgun, laug-
ardaginn 31. ágúst, kl. 2 e. h. og
stendur hún í 9 daga. Á sýn-
ingunni verða um 40 málverk,
auk vatnslitamynda og teikn-
inga, eftir 'því sem húsnæði í
sýningarsal leyfir. Þetta er
fyrsta málverkasýning Karls á
Fljótsbakka. En hann hefur mál
að og teiknað í frístundum frá
bernsku. Og á fullorðinsárum
bjó hann sér málarastofu heima
hjá sér, þar sem hann helgar
sig málaralistinni þegar hlé er
á önnum. Eflaust koma margir
á málverkasýningu Einars
Karls Sigvaldssonar. □
seld í 11—12 verzlunum og mun
fleiri tegundir á boðstólum. Á
skrifstofu félags áhuga-sjón-
varpsmanna hefur verið mikið
að gera að undanförnu. Áhugi
fólks á sjónvarpsmálum hér um
slóðir og á þessum tíma stafar
af því, að samkvæmt áætlunum
eiga sjónvarpssendingar að hefj
ast seint í nóvembermánuði í
þessum landshluta.
Blaðið leitaði frétta af fram-
kvæmdum sjónvarpsins og var
tjáð, að þær gengju samkvæmt
áætlun og jafnvel betur. Endur-
varpsstöðvar fyrir sjónvarp
verða á Skipalóni, Hálsi í Saur-
bæjarhreppi og hjá Hóli við Dal
vík. Ennfremur í Hegranesi í
Skagafirði og e. t. v. víðar.
Ráðgert var að fara nú að
senda út stillimyndir en einhver
dráttur verður á því.
Allar líkur benda til þess, að
Norðlendingar verði búnir að fá
sjónvarp fyrir jól í vetur, þótt
eitthvað kynni að bregða út af
því, sem ráðgert hefur verið og
engu verður um spáð hér. □
vindstöðunnar rak frá landi.
Sögðust sjómenn þá vera búnir
að „skila af sér,“ þökkuðu við-
skiptin og fóru. Ferðafólkið sá
hvaða skip hér var á ferð. Það
var frá Siglufirði. Björn vita-
vörður kvartar um, að allt fé-
mætt sé hreinsað úr fjörum og
séu þar sjómenn að verki. En
þjófnað þann, sem hér um ræð-
ir ætlar hann að kæra eða héfur
þegar kært.
Einnig bar það til í Skoruvík
fyrir skömmu, að börn, sem
voru að leik niðri í bakkanum
við sjóinn, komu heim með sér-
kennilegt bein. Læknir í hópi
áðurnefnds skemmtiferðafólks
sagði, að hér væri hægri lær-
leggur úr manni. Bein þetta stóð
út úr jarðvegssári og plokkuðu
börnin það út.
Um síðustu helgi fóru geita-
eigendur, Lúðvík bóndi og
Björn lögreglustjóri í leit að
geitum þeim, sem áður hefur
(Framhald á blaðsíðu 2).
stjórnmál og héraðsmál, en eng
ar ályktanir gerðar.
f vor urðu jarðabyltingar í
Kinn, eins og fyrrum var kallað.
í Fellsenda bjó Haraldur Sig-
urðsson en hann brá búi og
flutti að Selfossi. En jörðina tók
til ábúðar Gunnar Þórólfsson
frá Stórutungu. í vor flutti á
hluta úr Landamóti Hermann
Sigurðsson frá Ingjaldsstöðum,
ásamt konu sinni. Ófluttur er
frá Hnjúki Bjöm Sigurðsson en
hefur ákveðið að flytja burt í
haust. Þangað mun ungur bóndi
flytja en ekki hefur enn verið
gengið frá samningum.
Á sumum stöðum er berja-
spretta að verða nokkur. Lax er
með minna móti í Skjálfanda-
fljóti en að sögn hefur veiðzt
(Framhald á blaðsíðu 2).
Guðmundur Frímann.
Guðmundur Frímann heiðraður
Á 100 ÁRA afmæli Akureyrar-
kaupstaðar 1962 var stofnaður
Menningarsjóður Akureyrar.
Auk listaverka, sem bærinn hef
ur eignazt með hjálp sjóðs
þessa, var Helgi Valtýsson rit-
höfundur heiðraður 1964 með
50 þús. kr. gjöf eða launum úr
sjóðnum vegna- ritstarfa og fram
lags til menningarmála á langri
ævi.
í gærkveldi, á sama tíma og
blaðið fer að venju í prentun,
ætlaði sjóðstjórnin, en formað-
ur hennar er Bragi Sigurjóns-
son forseti bæjarstjórnar, að
■heiðra Guðmund Frímann rit-
höfund fyrir skáldskap í
bundnu og óbundnu máli. Hann
el' vel að þeim heiðri kominn.
En afmælisdagur kaupstaðarins
er 29. ágúst. □