Dagur - 30.08.1968, Blaðsíða 2
2
Akureyrarmófi í borðlennis nýlega lokið
FYRSTA Akureyrarmótið í
iborðtennis og jafnframt fyrsta
opinbera mótið í þessari íþrótta
grein hér á landi, fór fram á
þriðjudagskvöldið í íþrótta-
skemmunni á Gleráreyrum.
Keppendur voru 14 frá íþrótta-
félögum bæjarins, en úrslit
urðu þau, að Akureyrarmeístari
1968 varð Níels Jónsson úr KA
en næstir honum urðu Birgir
Svavarsson og Örn Gíslason úr
sama félagi og fjórði varð Sig-
urður Pálmason úr Þór. í úrslita
leik sigraði Níels Birgir með
2—0 (21—16, 21—19) og Öm
Sigurð í úrslitaleik um þriðja
sæti með 2—1 (21—7, 21—23,
23—21).
Á Norðurlandsmeistaramótinu
1968 í frjálsíþróttum sem fram
fór um síðustu helgi á Laugum,
•setti sveit KA nýtt Akureyrar-
met í 4x100 m. boðhlaupi
ikvenna. Hljóp sveitin á 57.3 sek.
í sveitinni voru: Ingunn Einars-
dóttir, Barbara Geirsdóttir,
Soffía Sævarsdóttir og Ingibjörg
Sigtryggsdóttir. Á sama móti
Níels Jónsson hlaut fagran
bikar fyrir sigurinn, sem útibú
Landsbanka íslands á Akureyri
hafði gefið til mótsins.
Akureyrarmótið fór fram á
vegum íþróttabandalags Akur-
eyrar, en mótsstjóri var Hreiðar
Jónsson.
Þetta fyrsta Akureyrarmót í
borðtennis fór í alla staði vel
fram og vakti hrifningu meðal
keppenda og áhorfenda og á
vafalaust eftir að auka vinsæld-
ir þessarar íþróttagreinar á
Akureyri og víðar á Iandinu.
Hafa akureyrzkir borðtennis-
leikarar í hyggju að efna til
annars móts síðar á þessu ári og
þá athuga möguleika á þátttöku
stökk Ingibjörg Sigtryggsdóttir
4.92 m. í langstökki sem er 21
cm. betra en gildandi Akureyr-
armen. Þetta afrek Ingibjargar
getur hins vegar ekki hlotið
viðurkenningu þar sem of mik-
ill meðvindur var þegar lang-
stökkskeppnin fór fram.
(Aðsent)
borðtennisleikara annarsstaðar
af landinu.
(Aðsent)
FIRMAKEPPNIN í
KNATTSPYRNIJ
ÚRSLIT í fyrstu umferð:
1. RIÐILL:
Starfsmenn bæjarfógeta —
Starfsmenn POB 5:0.
Verksmiðjur SÍS — Starfs-
menn Tryggva Sæmundss. 2:0.
2. RIÐILL:
Valbjörk — KEA 0:2.
Vatnsveita Ak. — Slippstöð-
in 0:3.
3. RIÐILL:
Verktakar MA — Bankastarfs
menn 6:0.
Póstur og sími — Útgerðar-
félag Ak. 1:7.
4. RIÐILL:
Oddi og Marz — Starfsmenn
Ak.bæjar 1:4.
Rafveita Ak. — Old boys
(gestir) 1:1.
(Aðsent)
AKUREYRARMET í B0ÐHL4UPI KVENNA
GUNNÁR SÓLNES GOLFMEISIÁRI AKUREYRAR
Akureyrarmeistaramót í golfi
er ný afstaðið. Leiknar voru 72
íhohrr án forgjafar. Leikið var
í fjórum flokkum.
Akureyrarmeistari varð Gunn
ar Sólnes, og Sigraði hann með
nokkrum yfirburðum, lék 72
holur á 308 höggum.
Úrslít urðu annars sem hér
segir. högg
Gunnar Sólnes 308
Sævar Gunnarsson 314
Gunnar Konráðsson 326
Jóhann Þorkelsson 326
Gunnar og Jóhann urðu að
leika til úrslita um 3. sætið og
hafði Gunnar þá betur.
f fyrsta flokki urðu úrslit
þessi: högg
Hörður Steinbergsson 348
Frímann Gunnlaugsson 362
í 2. flokki urðu úrsilt þessi.
Reynir Adólfsson 367
Rafn Gíslason 368
Júlíus Fossberg 374
í unglingaflokki urðu úrslit
þessi. högg
Gunar Þórðarson 335
Björgvin Þorsteinsson 344
Þengill Valdimarsson 350
Keppnin var jafn tvísýn frá
upphafi og skiptust menn um
að taka forustu dag frá degi.
í fyrsta flokki kepptu aðeins
tveir vegna forfalla. Þátttaka
var annars mjög góð.
X 31
KIRKJULEG VAKNING OG
ENDURREISN
Hólahátíðin er f jölmennari með hverju árinu
Frostastöðum 6. ágúst. Sunnu-
iaginn 4. ágúst sl. var hinn ár-
legi Hóladagur haldinn að Hól-
um í Hjaltadal. Samdægurs var
haldinn aðalfundur Hólafélags-
ins og hófst hann kl. 11 f. h.
Fóru þar fram venjuleg aðal-
rundarstörf. Úr stjórn félagsins
gengu að þessu sinni sr. Þórir
Stephensen, Sauðárkróki, Jón
Kjartansson, forstjórí, Reykja-
vík og Magnús H. Gíslason,
Frostastöðum. í stað þeirra
voru kosnir: sr. Jón ísfeld, Ból-
stað og var hann jafnframt kos-
inn formaður félagsins, Pálmi
Jónsson, alþingismaður, Akri og
Björn Egilsson, oddviti, Sveins-
stöðum.
Kl. 2 hófst svo Hólahátíðin
með því, að biskup íslands og
prestar gengu skrúðgöngu heim
an frá skólahúsinu og að kirkju
turni. Fór þar fram vígsla hinna
nýju kirkjuklukkna, er þjóðin
hefur gefið Hóladómkirkju og
komið hefur verið fyrir í tum-
inum og nú hljómuðu í fyrsta
sinn yfir Hólastað. Kirkjumála-
ráðherra, Jóhann Hafstein,..af-
henti klukkurnar' með ræðu en
biskupinn yfir fslandi, hr. Sigur
björn Einarsson, flutti síðan
vígsluræðu. Var þá gengið til
kirkju og þar prédikaði biskup
en fyrir altari þjónuðu prestarn
ir sr. Ingþór Indriðason í Ólafs-
firði og sr; Sigfús J. Árnason,
Miklábæ. Kirkjukór Ólafsfjarð-
arkirkju annaðist kirkjusöng
undir stjórn og við undirleik
Magnúsar Magnússonar organ-
ista. Ólafur Þ. Jónsson, óperu-
söngvari, söng við messugerðina
stólvers, við undirleik Ragnars
Björnssonar, dómkirkjuorgan-
ista.
Að guðsþjónustu lokinni var
gefið kaffihlé en síðan var á ný
gengið til kirkju. Þar flutti sr.
Þórir Steþhensen ávarp en sr.
Kristján Róbertsson á Siglu-
firði flutti erindi um „kitkju-
lega vakningu og kirkjulega
endurreisn."
Að lokum flutti sr. Jón ísfeld,
hinn nýkjörni formaður Hóla-
félagsins, ritningarorð og bæn
en kirkjugestir sungu sálminn
Kirkjan er oss kristnum móðir.
Milli þess sem hi.$_.talaða orð
var flutt, söng Ólafur Þ. Jóns-
son, óperusöngvari, kirkjuleg
lög við undirleik Ragnars Björns
sonar, sem einnig lék einleik á
orgel Hóladómkirkju. Meðal
þeirra laga, sem Ólafur söng,
var nýtt lag eftir Jón Björns-
son, bónda á Hafsteinsstöðum,
sem samið var við ljóð, er frú
Emma Hansen á Hólum orti í
tilefni af vígslu hinrrar nýju
kirkjuklukkna.
Jafnhliða þessari athöfn í
kirkjunni var barnasamkoma í
íþróttahúsi skólans og sá sr.
Pétur Sigurgeirsson á Akureyri
um hana.
Fjölmenni var á þessari Hóla-
hátíð, sem fór hið bezta fram,
enda veður með þeim hætti, að
á betra varð varla kosið. Fer
þeim sífjölgandi, sem telja, að
hinum árlega Hóladegi verði
ekki betur varið á annan hátt
en þann, að sækja Hóla heim
og er raunar engum þeim undr-
unarefni, sem þessar samkomur
'hefur sótt undanfarið. mhg —
- Frá Siglufirði
(Framhald af blaðsíðu 1).
vinna er í íshúsinu.
Heyskapur varð góður. Berja
spretta virðist vera allmikil.
Vætutíð hefur verið um sinn og
svolítið haustlegt. J. 1».
Akureyrartogararnir
KALDBAKUR landaði á Akur-
eyri 21. ágúst 172 tonnum. Fór
á veiðar 22. sama mán. Væntan-
legur 2. sept. og mun síðan tek-
inn í slipp á Akureyri.
SVALBAKUR landaði 19.
ágúst 135 tonnum. Fór síðan í
lestarhreinsun en hélt á veiðar
23. ágúst. Væntanlegur 4.—5.
sept.
HARÐBAKUR landaði 147
tonnum sl. mánudag. Er í lestar
hreinsun. Fer væntanlega á
veiðar 31. ágúst.
SLÉTTBAKUR landaði 157
tonnum 28. ágúst og er kominn
á veiðar. □
Aðalfundur ÆSK
LAUGARDAGINN 7. septem-
ber kl. 4 síðdegis verður aðal-
fundur Æskulýðssambands
kirkjunnar í Hólastifti settur í
Barnaskólanum í Ólafsfirði.
Aðalmál fundarins verður: Þátt
taka æskunnar í starfi kirkj-
unnar.
Þennan aðalfund sækja prest
ar og unglingar í söfnuðum á
Norðurlandi.
- FJÖRUÞJÓFARNIR
(Framhald af blaðsíðu 1).
hér vex-ið sagt frá. Fundust
fjórar og urðu þær ekki hand-
samaðar. Hafur sá hinn horna-
mikli, sem áður hafði sézt,
fannst ekki að þessu sinni. Geit
ur þessar tíndust og lifðu af
kalda vetur.
Heyskapartíð hefur verið afar
stirð síðan 14. ágúst og rignt
alla daga nema tvo. Spretta í
úthaga er langt yfir meðallag.
Með útheysslægjum hefði verið
hægt að di-ýgja heyin, ef tíð
hefði verið hagstæð til heyskap-
ar. Laxár hafa brugðizt hér í
sumar. O. H.
- JARÐBYLTINGAR
(Framhald af blaðsíðu 1).
vel í Laxá, eftir að laxinn gekk
í ána. Menn vona að fé verði
vænt í haust, því allsstaðar var
það vel fram gengið í vor, en
hefur e. t. v. verið sleppt of
snemma.
Stórkostlegir heyflutningar
eiga sér nú stað og fara hey-
bílarnir hér daglega um, allir
með stór heyhlöss á austurleið.
B. B.
ÁHEIT Á DALVÍKUR-
KIRKJU 1968
Þ. A. kr. 500, J. Á. kr. 250, Pál-
rún Antonsdóttir kr. 300, Jón E.
Stefánsson kr. 2.000, N. N. kr.
I. 700, A. A. kr. 500, S. J. kr. 400,
J. J. kr. 1.000, Ó. J. kr. 1.000,
Á. S. kr. 1.000, Hafsteinn Páls-
son kr. 1.500, Guðrún Hallgríms
dóttir kr. 1.000, Aðalbjörg Jó-
hannesdóttir kr. 100, Steinunn
Jóhannesdóttir kr. 200. — Sam-
tals kr. 11.450.00.
Akureyri, 23. ágúst 1968.
Stefán J. T. Kristinsson.
•JjJ hentar í öll eldhús -
gömul og ný
^ er framleitt í stödludum
einingum
er metí plasthúd utan
og innan
ýfi er íslehzkur idnadur
er ódýrf
VOLKSWAGEN 1964
til sölu.
Vel með farinn.
Upplýsingar hjá Tryggva
Jónssyni á Baug.
HERBERGI
TIL LEIGU
í Stekkjargerði 6.
HERBERGI,
sem næst Miðbænnm,
óskast til leigu 1. okt.
Ferðaskrifstofan Saga,
Sími 1-29-50.
HERBERGI
óskast í vetur, sem næst
Menntaskólanum.
Uppl. í síma 1-16-42.
TII. LF.IGU ERU
TVÖ HERBERGI
á Ytri-Brekkunni. — Til
valin fyrir skólafólk.
Uppl í síma 2-15-52.
EIN
STOFA OG ELDHÚS
til leigu.
Uppl. í síma 1-12-86.
TIL SÖLU:
vel með farin
BARNAKERRA.
Uppl. í síma 1-21-62.
TIL SÖLU:
SÆNSK (BRÍÓ)
BARNAKERRA.
Vel með farin.
Uppl. í Norðurgötu 40,
niðri.
BARNAVAGN,
nýlegur, til sölu í
Ægisgötu 4.
RABARBARI!
NÝ UPPSKERA!
Pantið sem fyrst — með
eins dags fyrirvara.
GÍSLI GUÐMANN,
Sími 1-12-91.
TIL SÖLU:
Vel með farinn
BARNAVAGN.
Uppl. í síma 2-15-58,
TIL SÖLU:
NÍU VETRA
REIÐHESTUR.
Uppl. í síma 1-28-05
milli kl. 10 og 12 f. h.
Mjög vandaður
SKÚR TIL SÖLU.
10 ferm. að stærð. Auð-
veldur í flutningi. ,
Upplýsingar í símum
1-22-15 og 2-11-55.