Dagur - 30.08.1968, Qupperneq 8
8
Djúp sund, eyjar og sker auðvelda liaínargerð í Vopnafirði. (Ljósni.: E. D.)
SMÁTT OG STÓRT
MÖRG VORU TÆKIN
Á landbúnaðarsýningunni voru
tæki og vélar, allt frá klippum
á stærð við skæri saumakvenna
upp í stórar jarðýtur. Vélvæð-
ing landbúnaðarins er stórkost-
leg og hefur gert bændum kleift
að breyta búskap sínum úr frum
stæðum atvinnuvegi til nýtízku
búskapar, er byggist á mikilli
ræktun og margfaldri fram-
leiðslu á hvern vinnandi land-
búnaðarmann, miðað við það
sem áður var.
VILDI HELDUR HUND
EN GÆÐING
Mönnum varð tíðrætt um gæð-
nú, þótt þeir hafi e. t. v. aldrei
skilið það fyrr, hvers virði góð-
ir fjárhundar eru sauðfjár-
bændum.
AÐ REYKJA EKKI
Hjón ein á Akureyri ákváðu
fyrir þremur árum og nokkrum
mánuðum betur, að leggja mán-
aðarlega til hliðar 1000 krónur,
eða sem svarar andvirði eins
sígarettupakka á dag. En hvor-
ugt þeirra eyðir teljandi fjár-
mimum í tókbak. Nú eru hjónin
nýlega komin heim úr skemmti
ferð til Mallorca, sem þau
greiddu með þessum „tóbaks-
peningum.“ En sjóðurinn var
Skýfall í Selárdal í Yopnafirði
Vopnafirði 28. ágúst. f Vopna-
fjarðarkauptúni var mikið at-
vinuleysi í vor og fram á sum-
ar. En þar hefur verið mikið
athafnalíf, enda margt aðkomu-
fólk undanfarin sumur. Þar er
nýleg síldarbræðsla og söltunar
stöðvar. Nú í sumar hefur lítil
síld borizt eða aðeins eitt skip
komið með bræðslusíld og nokk
ur hundruð tunnur af saltsíld.
Frystihúsið hefur ekki tekið
á móti fiski í sumar, og enginn
aðili keypt fisk af sjómönnum,
nema eitthvað til saltfiskverk-
unnar í Bakkafirði. Nú ætlar
nýstofnað hlutafélag að hefja
fiskmóttöku í hraðfrystihúsi
staðarins, sem það mun taka á
leigu og ætlunin er að verka
saltfisk í húsakynnum síldar-
verksmiðjunnar. Ákveðið mun
vera, að Brettingur leggi í vet-
ur upp afla sínum á Vopnafirði.
Fer nú væntanlega að aukast
sjósókn á staðnum, ef fiskurinn
bíður þess enn í sjónum, að
verða veiddur. Unnið er að hafn
arframkvæmdum. Verður mik-
ill sjóvarnargarður gerður í
sumar, úr nærtæku stórgrýti,
sem Norðurverk er byrjað
vinnu við. En aðstaða til að gera
trygga og góða höfn í Vopna-
firði, er frá uáttúrunnar hendi
óvenjuleg og góð. Þar eru djúp
sund milli eyja og hólma.
Heyskap er að ljúka. Verk-
unin er ágæt, heymagnið mis-
jafnt. Á nokkrum bæjmn voru
tún stórkostlega kalin. Enn hafa
þó aðeins þrír bílfarmar heys
verið keyptir í sveitina. Tíminn
fram að réttum verður af mörg-
um notaður til að heyja á engj-
um, þar sem tök eru á og unnt
er að koma vélum við.
í gær kom skýfall í Selárdal,
þar sem fólk vann að heyskap á
eyðijörð, en hitar höfðu áður
gengið, jafnvel yfir 20 stig.
Laxveiði er treg þetta sumar
í veiðiánum þremur, sem um
byggðina falla. Laxastigi var
byggður við Selárfoss og mun
laxfiskum hafa þótt vænkast
sinn hagur, enda varð áin lax-
geng 29 km. í stað 8 km. áður,
Geymsluvandræðin okkar
síöðuui höfuðverkur
segir Björn Ólafsson frystiliússtjóri á Húsavík
BLAÐIÐ hafði símasamband
við Björn Olafsson framkv.stj.
Fiskiðjusamlags Húsavíkur í
fyrradag (vegna fjarveru frétta
ritara) og spurði hann frétta af
fiskvinnslumálum kaupstaðar-
ins. Hann sagði, að minni hand-
færafiskur væri nú en áður, enn
fremur minni línufiskur. Fisk-
iðjusamlagið gæti alls ekki tek-
ið á móti neinum kola að
STALU TUTTUGU OG
FÍMM ÞÚS, SKOTUM
UM SÍÐUSTU HELGI var stol-
ið 25 þús. riffilskotum úr
geymslu KEA á Oddeyri. Voru
skotin í fimm pökkum eða köss
um, fimm þús. skot í hverjum,
22ja cal. og minni.
Rúða hafði verið brotin og
kassarnir teknir þar út.
Töluvert hefur verið um ölv-
un og nokkrir bifreiðaárekstrar
orðið. Löggerlan er nú flutt í
hin nýju og miklu húsakynni
við Þórunnarstræti og hefur þar
hina beztu starfsaðstöðu. Gamla
lögreglustöðin er nú notuð sem
skýli verkamanna hjá bænum
og kaffistofa vissra starfshópa.
og hafa þegar veiðzt 9 laxar,
sem gengu á hinar nýju laxa-
slóðir. Laxastiginn er mikið
mannvirki og sýnist þjóna sínu
hlutverki.
Magnús Stefánsson læknir
flutti héðan í vor en við starfi
hans tók Guðmundur Jón-
mundsson og verður fram á
haustið. í Vopnafirði er mjög
myndarlegur læknisbústaður.
Ibúar eru á níunda hundrað,
karlar 54 fleiri en konur.
Bílfært er orðið yfir Hellis-
heiði og eru þar 18 km. milli
byggða, frá Eyvindarstöðum í
Vopnafirði til Ketilsstaða í
Jökulsárhlíð. En vegur þessi er
allbrattur, Vopnafjarðarmegin,
og ekki fullgerður. Þ. Þ.
inga þá, sem sýndir voru á land
búnaðarsýningunni, bæði kyn-
bótaliesta og geldinga, er hesta-
menn létu ganga fagurlega rnn
völlinn. Góðir reiðhestar eru
dýrar skepnum, 20—30 þúsund
króna virði. Bændur ræddu sín
í milli um tiltekinn gæðing, sem
báðir lofuðu og nefndu 30 þús.
kr. verð. Eigandinn var þó ekki
viðstaddur og ekki vitað hvort
gæðingurinn væri til sölu. Sagði
þá annar bóndinn: Og þó vildi
ég heldur eiga hund frá Kleif-
um. Mun það ekki í fyrsta sinn,
sem það heyrist, að hundur sé
metinn til jafns við gæðing og
meira þó? En þeir, sem sáu
skozku fjárhundana á sýning-
unni vinna, ættu að skilja það
óbreyttu, því allar geymslur
samlagsiris væru sneisafullar af
fiski. Þess utan hefði Kaupfélag
Þingeyinga lánað frystirúm
bæði í gamla kjötfrystihúsinu
og þ.ví nýja. Þar væri m. aiTieil-
frysttir koli og beitusíld. Nú
hæfist slátrun um miðjan sept-
ember og þá yrði að vera búið
að rýma þetta húsnæði K. Þ.
Hins vegar væri þess lítil eða
engin von, að afskipun fisks og
fiskafurða yrði fyrr en á sama
tíma og slátrun ætti að hefjast,
og ætti þá eftir að búa húsin
undir ný vei-kefni og rækist
þetta illa á. Bolfisk, sagði fram-
kv.stj., að samlagið tæki á móti.
í sumar liefði óhemju mikill afli
borizt á land. En hinn mikli afli,
lágt sumarvérð á fiski og von
um hærra verð síðar á árinu
væru hinar samverkandi ástæð
ur fyrir hinum miklu geymslu-
vandræðum Fiskiðjusamlagsins
nú í sumar. En þau væru hinn
stöðugi höfuðverkur á Húsavík
í sumar og sæi ekki enn fyrir
endann á honum.
Náttfari kom nýlega til Húsa-
víkur með 830 tunnur af síld,
saltaðri á miðunum og Ljósfari
með 550 tunnur og reyndist
þessi síld mjög góð vara. □
Myndarlegur laxastigi í Selá í Vopnafirði auðveldar göngufiski 20
km. lengri leið upp ána en áður. (Ljósin.: E. D.)
orðinn 45 þús. krónur. Spöruðu
þau hvergi í ferðinni og eiga þó
afgang. — Gott til athugunar
fyrir þá, sem reykja —.
MIKH) BRÚÐKAUP
í gær héldu Sonja Haraldsen og
Haraldur ríkisarfi Norðmanna
brúðkaup sitt. Forseti íslends,
dr. Kristján Eldjám og frú fóru
utan í opinbera heimsókn til að
vera viðstödd hið norska brúð-
kaup.
FORSETAEFNI VALIÐ
Hubert Humphrey var í fyrri-
nótt valinn forsetaefni demo-
krata á flokksþingi þeirra í
Bandaríkjunum, eftir harða og
tvísýna baráttu í hinum ýmsu
sambandsríkjum og svo nú á
þingi flokksins.
SAMEIGINLEG BÓKHLAÐA
Á 150 ára afmæli Landsbóka-
safns íslands tilkynnti mennta-
málaráðherra, að safninu og
Háskólanum hefði verið valinn
sameiginlegur byggingastaður í
nágrenni Háskólans. Á þar að
rísa mikil bókhlaða er leysi hús
næðismál beggja stofnananna
hvað bókasöfn þeirra snertir.
SJÓÐANDI SJÓR
í nýgerðri borholu nálægt
Reykjanesvita hefur komið upp
mikið magn af sjóðandi og söltu
vatni. Saltmagnið eitt áætlað 30
þús. tonn á ári, auk annarra
verðmætra efna. Unnið er að
því að „kæfa“ borholuna og
bora svo dýpra. Með þessu er
sjóefnavinnsla undirbúin.
Þakkir til Helga á
Hrafnkelsstöðum
Ófeigsstöðum 28. ágúst. Það,
sem mest er um talað nú síðustu
daga í mínu nágrenni er tvískipt
grein Helga Haraldssonar á
Hrafnkelsstöðum, sem birtist í
Tímanum og fjallar um náttúru
nafnakenningu o. fl. Þetta er ein
af stórkostlegustu greinum, sem
ég hef lesið í dagblöðum lands-
ins um árabil. Ég álít þéssa grein
geta heyrt undir íslenzkt Ijóð-
form, eins og það er af sumum
túlkað, að öðru en því, að hún er
rammíslenzkari að málfari. Legg
ég til við úthlutunarnefnd lista-
mannalauna, að Helgi hljóti
sæti í efsta flokki skáld-rithöf-
unda á þessu ári.
Stói'þakkir fyrir greinina,
Helgi á Hrafnkelsstöðum. B. B.