Dagur - 25.09.1968, Blaðsíða 8
8
Barnaskólinn gamli og Gagnfræðaskólinn verða fjölmennustu skólar Akureyrar í vetur, með hálft
áttunda liundrað nemendur hvor. (Ljósm.: E. D.)
eru nú að hefja störf
SMÁTT og stórt
| Skólarnir
TALIÐ ER, að fjórði hver fs-
lendingur sitji á skólabekk á
vetrum. Hér á Akureyri eru
tveir skólar fjölmennastir: Gagn
fræðaskólinn og Barnaskólinn
gamli.
j í Gagnfræðaskólanum á Akur
eyri verða 760 nemendur í vetur
og er sú nemendatala hærri en
nokkru sinni áður. Ekki verða
miklar breytingar á kennaraliði
skólans. Nýir kennarar verða:
Álfhildur Pálsdóttir, Ragnar
Magnússon, Reynir Aðolfsson
og Jenny Sigurðardóttir, sem
mun kenna matreiðslu í stað
Þorbjargar Finnbogadóttur, sem
er í ársfríi. Jón Björnsson og
Patricia Aylett hætta kennslu.
Skólastjóri er Sverrir Pálsson.
í Barnaskóla Akui-eyrar
verða 750 nemendur eða álíka
margir og sl. vetur. Helztu breyt
ingar á starfsliði verða þær, að
Tryggvi Þorsteinsson skóla-
stjóri hefur frí frá störfum í
vetur en Páll Gunnarsson verð-
ur skólastjóri í hans stað. Frá
skólanum hverfa Guðný Helga-
dóttir, Oli Jóhannsson, Andrea
Sigurðardóttir og Valgerður
Elín Valdemarsdóttir. Að skól-
anum koma eftirfarandi kenn-
arar: Einar Rafn Haraldsson,
Guðrún Hlín Þórarinsdóttir,
Hólmfríður Gísladóttir, Nanna
Kolbrún Sigurðardóttir, Nanna
Þórsdóttir og Valdís Þorkels-
dóttir.
Nemendafjöldi Oddeyrarskól-
í DAG, 20. sept., er Rafveita
Húsavíkur 50 ára. Hún var stofn
uð að frumkvæði Fundafélags
Húsavíkur, sem var málfunda-
félag, stofnað fyrir aldamót og
lét sig mjög varða ýmis fram-
faramál byggðarlagsins.
Virkjuð var lítil á, Búðará,
sem rennur gegn um Húsavíkur
kaupstað. Helztu hvatamenn
virkjunarinnar voru þeir bræð-
ur, Aðalsteinn og Páll Kristjáns
synir, Steingrímur Jónsson
sýslumaðúr og Stefán Guðjon-
sen kaupmaður. Mesta driffjöðr
in var þó Páll Kristjánsson, sem
nú býr háaldraður í Reykjavík.
Rafstöðin og dreifingarkerfið
var gert eftir fyrirsögn Jóns Þor
lákssonar þáverandi landsverk-
fræðings. En Guðmundur Hlíð-
dal tók að sér stjórn fram-
kvæmda.
Búðarárveitan var í notkun
til ársins 1948, en siðan hefur
ans mun verða meiri en áður,
eða um 475. Helztu breytingar
á kennaraliði eru: Helga Eiðs-
dóttir, Matthías Gestsson og
Valgerður Elín Valdemarsdóttir
hætta störfum við skólann, en
nýir kennarar eru: Aðalgeir
Aðalsteinsson, Stefán Aðalsteins
son, Valdís Jónsdóttir og Hólm-
fríður Gestsdóttir. Skólastjóri er
Indriði Ulfsson.
í Glerárskólanum verða um
SAMKVÆMT tilgangi félagsins
að miðla upplýsingum til félags
manna, var auglýst í bæjarblöð
unum eftir tilboðum frá þeim
aðilum sem ætluðu að selja sjón
vörp og loftnetsefni til þeirra á
Akureyri. Þar sem félagið ætl-
aði ekki að gerast söluaðili og
hér í bænum voru margir sem
ætluðu að selja og/eða veita
þjónustu, þótti ekki rétt að gert
væri upp á milli seljanda, held-
ur væri Öllum gefinn kostur á
að gera grein fyrir sinni vöru.
Bárust 12 tilboð er gefin voru
á eyðublaði, sem félagið lét
gera, þannig að upplýsingarnar
yrðu sem sambærilegastar. Til-
boðin báru það með sér að hægt
var að fá staðgreiðsluafslátt og
ef nokkur samstaða um kaup
næðust var auk þess völ á magn
afslætti.
Húsavík eingöngu notað raf-
magn frá Laxárvirkjun.
Fyrstu gæzlumenn rafstöðvar
á Húsavík voru Jón Aðalgeir
Jónsson og Steingrímur Jóns-
son. En frá 1920—1948 sá Jón
Baldvinsson um rekstur stöðv-
arinnar ásamt sonum sínum.
Lengsta satrfsskeið við raf-
veituna á Benedikt Jónsson.
Hann lét af störfum í júlílok sl.
og hafði þá verið starfsmaður
Rafveitu Húsavíkur frá 1920.
Núverandi rafveitustjóri er
Kristján Arnljótsson.
Rafveitan efndi í dag til hófs
í félagsheimili Húsavíkur og
bauð til nokkrum gestum. Þar
rakti Björn Friðfinnsson bæjar-
stjóri sögu Rafveitunnar í stór-
um dráttum. Stjóm Rafveitu
Húsavíkur hefur samþykkt að
rafveitan gefi sjúkrahúsi stað-
arins 50 þús. kr. í tilefni afmælis
ins og félagsheimilinu jafn háa
upphæð. Þ. J.
100 nemendur, eða svipuð nem-
endatala og í fyrra. Nýr kennari
við skólann er Ágústa Þórdís
Olafsdóttir. Skólastjóri er Vil-
bergur Alexandersson.
Við alla skólana eru meiri og
minni breytingar á ráðningu
stundakennara.
í Menntaskólanum verða á
sjötta hundrað nemendur, en
fréttir þaðan hefur blaðið enn
ekki íengið. □
Opnuð var skrifstofa að
Geislagötu 5 þann 12. ágúst og
höfð opin frá klukkan 17—19
virka daga nema laugardaga.
Þar gátu félagsmenn kynnt sér
þessi tilboð og skoðað eina gerð
af flestum tegundum sem boðn-
ar voru, einnig lágu frammi
STAFNSRÉTT
STAFNSRÉTT í Svartárdal
verður í dag og stóðrétt á morg-
un, fimmtudaginn 26. sept. Leið
réttist með því frétt í síðasta
blaði.
Búið var fyrir helgi að lóga
11200 fjár á Blönduósi og var
meðalvigtin 14.94 kg., sem er
mun meira en í fyrra. Og það
fyrsta af kjötinu er þegar farið
á Bretlandsmarkað.
Alls verður lógað rúmlega 55
þús. fjár á Blönduósi og Skaga-
strönd. En Kaupfélag Húnvetn-
inga á Blönduósi hefur tekið við
rekstri Kaupfélgs Skagstrend-
inga við sameiningu félaganna,
sem formlega er verið að ganga
frá.
(Frétt frá Á. J., Blönduósi).
VÍÐA ÚTI HEY í
VOPNAFIRÐI
Ytri-Nípum Vopnafirði 24. sept.
Víða eru hey úti ennþá, en
'hvergi mikil. Þurrkar hafa ekki
komið síðan 9. september. Hey-
skapur er viðunandi.
Slátrun hófst 19. sept. Líklegt
er, að fé sé sæmilega vænt. Lóg
að verður 15500 fjár, sem er
færra en verið hefur. Þ. Þ.
Dagur
kemur næst út miðvikudaginn
2. október. Eins og sjá má á
blaðinu nú, komst lítið af les-
efni og bíður það næstu hlaða.
MARGT ER LÍKT MEÐ
SKYLDUM
Atferlisfræði er ný vísindagrein,
er sinnir rannsóknum á með-
fædclu, eðlislægu atferli manna
og dýra. í enskri bók, „Nakinn
api“ er maður og api bornir
saman á sviði atferlis. Þar segir
m. a. að innantómt málæði fólks
í kokkteilboðum sé samkynja
átferli apanna, er þeir þvaðra og
leiti hver öðrum lúsa. Annar
enskur höfundur leiðir rök að
því, að ríkasta eðlishneigð
manna og dýra sé að eiga land,
ofurlítinn blett og verja hann.
Mannlegir þjóðfélagshættir séu
verulega í samræmi við þessa
svæðiskennd og eignareðli
manna.
HÁTÍÐ ALJ ÓÐIN
Utgefandi hátíðaljóðanna marg-
umtöluðu, sem dónmefnd taldi
ekki verðlauna verð, lét hina
almennu kaupendur ljóðanna
greiða atkvæði um þau. At-
kvæði greiddu 120 og féllu þau
á 17 höfunda, en 32 töldu ekkert
ljóðanna til verðlauna fallið.
Útgefandi hátíðaljóðanna gefur
nú 10 þús. kr. í hjálparsjóð
heymardaufra barna, í stað
þess að veita þau til einhvers
höfundar nefndra ljóða. En eng
myndalistar.
Jafnframt þessu voru inn-
heimt félagsgjöld og dreift
spumingalista.
Með því að safna á einn stað
tækjum og tilboðum vænti
stjórnin þess að félagsmenn
ættu auðveldara með að gera
sér grein fyrir hvað í boði væri
og gætu á grundvelli tilboðanna
og þeirra almennu upplýsinga
sem í té mætti láta, tekið ákvörð
un um væntanleg kaup og gæfu
þessa ákvörðun sína til kynna
með því að útfylla spurninga-
listann.
Samkvæmt auglýsingu í bæj-
arblöðum var skrifstofan opin
til föstudagsins 13. sept. Aðeins
rúmlega 120 félagsmenn höfðu
séð ástæðu til að skila spurn-
ingalistanum þótt margfalt fleiri
hafi leitað til skrifstofunnar.
(Framhald á blaðsíðu 4)
Islands var sett 19. september.
Forstöðumaður er Björn Krist-
insson og ávarpaði hann við-
stadda við þetta tækifæri.
Áður hefur farið hér fram
fyrsta-stigsnám (undirbúnings-
deild). En nú hefst einnig
kennsla annars stigs, eða fyrsta
bekkjar. Eru deildirnar því
tvær að þessu sinni og vonandi,
að framhald verði á því og fleiri
bætt við.
Kennt á þrem stöðum.
Kennt verður á þrem stöðum.
Smíðakennsla verður í Glerár-
götu 2B, verkleg kennsla í véla-
sal skólans við Laufásgötu og
bókleg kennsla í Gránufélags-
götu 9.
Aðalkennarar, auk forstöðu-
manns eru: Friðfinnur Ámason,
Bárður Halldórsson, Steinberg
Ingólfsson, Bjöm Þorkelsson,
inn höfundanna hlaut tilskilinn
helming atkvæða.
TÍMI KRAFTAVERKA
EKKI LIÐINN
Hinir víðfrægu Benfica-menn
léku knattspyrnu við Val í
Reykjavík sl. miðvikudag. Ekk-
ert mark var skorað. Hinir
18243 áhorfendur skemmtu sér
liið bezta, sáu Sigurð Dagsson
verja 47 markskot Portúgal-
anna, snilldarlega knattmeð-
ferð hinna erlendu manna og
þótti í leikslok, sem tími krafta-
verkanna væri ekki enn liðinn.
LAUNAKOSTNAÐUR
LÆKKAR
Sjaldan heyrist um lækkaðan
launakostnað á síðustu verð-
bólgutímum. f Boðbera, frétta-
blaði K. Þ. á Húsavík, segir
kaupfélagsstjórinn, að í fullri
alvöru hafi verið unnið að lækk
un á tilkostnaðinum, m. a. launa
kostnaði og hafi það tekizt í öll-
um verzlunum félagsins frá ára
mótum, bæði að krónutölu og í
prósentvís af vörusölu. Þessi við
leitni K. Þ. og árangur getur
verið nokkurt umhugsunarefni.
RÖNG STEFNA
Ríkisstjórnin skilur ekki þjóð-
nýt störf almennings í sam-
vinnufélögunum og vinnur gegn
þeim, í stað þess að styrkja þau.
Þrjú kaupfélög hafa gefizt upp,
mörg önnur eiga í vök að
verjast. Að sjálfsögðu eru
samvinnufélög engar heilagar
kýr og þau lifa hvorki eða starfa
að gagni nema saman fari:
örugg framkvæmdastjórn og
vakandi áhugi félagsmanna. Því
er ekki að leyna, að örðugt er
að fá vel hæfa kaupfélagsstjóra
og þótt það takist verða sam-
vinnumenn stöðugt að standa á
verðinum, vera jafn ötulir gagn
rýnendur sem tillögumenn —
vera sér þess meðvitandi, að
samvinnuviðskipti eru í eðli
sínu þrepi ofar í viðskiptalegum
samskiptum en kaupmanna-
verzlun og liafa bætt lífskjörin
meira í okkar landi, en nokkur
önnur fjöldasamtök.
Jakob Ó. Pétursson og Gunn-
laugur Björnsson. □
ALÞINGIHEFST10.
OKTÓBER
NÆSTA reglulegt Alþingi hefst
10. október, að venju.
Umræður standa enn yfir
milli stjórnmáaflokkanna um
efnahagsvandamálin. Sagt er af
hálfu stjórnarinnar, að verið sé
að safna upplýsingum um ýmsa
þætti þjóðarbúskaparins og
muni sú söfnun standa yfir til
miðs næsta mánaðar. Fyrir þann
tíma mun naumast að vænta
stórviðburða í breyttum stjóm-
arháttum, og hjálparbeiðni
stjómarinnar á „neyðartímum“
verður þá fyrst unnt að taka til
alvarlegrar athugunar. □
RAFVEITA HÚSAVÍKUR 50 ÁRA
Skrifslofð sjónvarpsðhugðmanna er opin
Vélskóladeildin á Akureyri