Dagur - 23.10.1968, Qupperneq 2
Frá fundi áfengisvarnanefndanna við Eyjaf jörð
FÉLAG áfengisvarnanefnda við
Eyjafjörð hélt aðalfund sinn að
Hótel Varðborg á Akureyri
laugardaginn 5. þ. m.
Auk fulltrúa áfengisvama-
tnefndanna og stjórnar félagsins
mættu á fundinum nokkrir gest
;ir, þar á meðal erindreki Áfeng-
isvarnaráðs, Björn Stefánsson,
sem flutti erindi á fundinum.
Fjallaði erindið um heildarstarf
semina varðandi áfengisvarnir,
skýrslugerðir nefndanna og við-
íhorf almennings til áfengismála.
Fulltrúar skýrðu frá störfum
nefndanna hver á sínu svæði og
ræddu áfengismálin almennt.
Gestir fundarins tóku þátt í
'umræðum fulltrúa um bindind-
is- og áfengismál.
Þóroddur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri UMSE, ræddi um
störf sambandsins sérstaklega
að bindindismálum. Hafði hann
ásamt Magnúsi Sigurðssyni
skólastjóra, sem sambandið fékk
hingað, flutt erindi í skólum á
sambandssvæðinu.
Eiríkur Sigurðsson æskulýðs-
iculltrúi sagði frá ferð sinni til
Norðurlanda. Tók hann þátt í
itundum, þar sem vandamálin
voru rædd. Voru honum kynnt
hispurslaust verri og betri hlið-
ar samkvæmislífsins og því,
hverjum tökum þar væri beitt
til vandaðra uppeldis.
Eftirfarandi tillögur voru ein-
:óma samþykktar á fundinum:
1. „Fundurinn lýsir eindreg-
inni andstöðu sinni við ölfrum-
/arp það, er legið hefur fyrir
A.lþingi og treystir því, að það
aái ekki fram að ganga“.
2. „Fundurinn þakkar félaga-
isamtökum þeim, sem gengist
hafa fyrir áfengislausum
skemmtisamkomum um verzl-
jnarmannahelgina. Telur fund-
rrinn, að félagasamtök æsku-
iólksins í landinu geti miklu
áorkað til vaxandi siðmenning-
ar í skemmtanalífi þjóðarinnar
og leggur áherzlu á, að fram-
hald verði á því, að áfengi sé úti
tokað frá samkomum um verzl-
jnarmannahelgina".
3. „Fundurinn beinir þeim til
nælum til áfengisvarnanefnd-
anna, að þær vinni að því, að
jkólamctum verði komið á sem
víðast á félagssvæðinu. Sú
r.-eynsla, sem fengizt hefur af
iskólamótum í sveitunum innan
yið Akureyri, gefur tilefni til
pess að hvetja aðra til þess að
iíoma upp hjá sér skólamótum
neð svipuðu sniði“.
4. „Fundurinn beinir þeim ein
dregnu tilmælum til Landssam-
oandsins gegn áfengisbölinu að
vinna að því við blöð og útvarp,
að þau leggist á eitt í herferð
gegn ofneyzlu áfengis.
Þær svokölluðu herferðir,
uem gerðar hafa verið gegn upp
iolæstri og gróðureyðingu, gegn
vanrækslu á umhirðu, snyrti-
mennsku og ýmsu fleiru, hafa
- f ÁFANGASTAÐ
(Framhald af blaðsíðu 8).
semd og skilning, keypt af þeim
blöð og merki ár eftir ár og
þannig látið verða árangur af
erfiði þeirra og lagt stein í þá
merku uppbyggingu, sem sam-
tökin hafa staðið að frá upphafi.
Hlutur allra þessara liðsmanna
er mikill og góður og má ekki
gleymast.
Það hlýtur að veita ánægju
og verða vísir auðnu að eiga
þátt í því að „stvðja sjúka til
siálfsbjargar“. Heill ykkur öll-
um sem það hafið gert.
Sjálfsvörn, Kristnesi.
almennt mælzt vel fyrir og bor-
ið töluverðan árangur. Almenn
ingsálitið þarf einnig að sveigja
til andúðar gegn óreglu og óhófi
í hvaða mynd sem er. Hvort
tveggja eru fylginautar of-
drykkjunnar.
Sókn til varnar ofdrykkju
virðist færast nókkuð í aukana
síðustu árin á vegum félagasam
taka æskulýðsins og þurfa fjöl-
miðlunartæki og almenningur
að fylgja þeirri sókn vel eftir“.
5. „Aðalfundur Félags áfengis
varnanefnda við Eyjafjörð 1968
beinir þeirri áskorun til Áfengis
varnaráðs, að það hlutist til um
í samvinnu við Fræðslumynda-
safn ríkisins að gerður verði
flokkur skuggamynda, sem hent
aði til notkunar við bindindis-
fræðslu í skólum. Ennfremur að
barnaskólum landsins verði séð
fyrir nokkrum vinnubókarblöð-
um til notkunar við fræðslu um
skaðsemi áfengis- og tóbaks-
neyzlu. Yrðu blöðin í líkingu
við vinnublöð þau, er Bindindis
félag kennax-a lét gera, en nú
eru ekki fáanleg lengur“.
(Framhald á blaðsíðu 5)
-HAGLAUST
(Framhald af blaðsíðu 1).
Heyskapur varð í fullu meðal
lagi þótt sumarið byrjaði seint.
Væntanlega setja bændur gæti-
lega á þó allt slyppi vel fram í
vor, með ærnum tilkosnaði þó,
eins og víðast annarsstaðar. Dilk
ar voru yfirleitt vænni til frá-
lags í haust en í fyrra og munaði
víða um eitt kiló.
Einn snjósleði er í sveitinni og
verða e. t. v. fleiri. Þessi farar-
tæki geta gjöxbreytt aðstöðu
manna til vetrarferðalaga. En
vitanlega má slík þróun ekki
verða á kostnað vegagerðar og
vegaviðhalds.
Mikið var grafið af landi til
þurrkunar í sumar í nreppnum.
Framkvæmdir þar að lútandi
annaðist Valmundur Hermóðs-
son. Hafa vinnubrögð hans og
hans manna reynzt mjög vel.
Mikið hefur einnig verið brot-
ið af landi til ræktunar og ætl-
uðu sumir bændur að sá í flögin
í haust. En snjórinn kom of
fljótt, en þó verður einhverju
sáð ef aftur hlýnar og veður
verða sæmileg síðar í haust, því
jörð er lítið frosin ennþá.
Vegabætur voru nær engar í
sumar og horfir til vandræða
eins og fyrr í því efni. Gott færi
er nú til fremstu bæja, en hag-
laust eins og er. Þ. J.
Barnaverndarfélag Akureyrar leitað liðsinnis
GÓÐIR Akureyringar.
N. k. miðvikudag munu börn
knýja dyra hjá ykkur og bjóða
bókina Sólhvörf á kr. 50. Bók
þessi hefir jafnan flutt gott lestr
arefni fyrir hina yngstu lésend-
ur og því ávaillt verið kærkom-
in. Reyndin hefir orðið sú, að
færj'i hafa eignazt hana en
vildu. Þá munu börnin heim-
sækja ykkur öðru sinni næsta
laugardag, fyrsta vetrardag, og
bjóða þá merki félagsins á kr.
25.
Ágóðinn af sölu bókanna og
merkjanna rennur til viðhalds
og í-eksturs Leikskólans Iðavall
ar og til undirbúnings nýrra
verkefna. Leikskólinn hefir á
undanförnum árum gegnt mikil
vægu hlutverki. Hann hefir m.
a. gert einstæðum mæðrum
kleift að vinna úti hluta úr degi,
til þess að sjá farborða fjöl-
skyldu sinni. Margt bendir til
þess að á næstu mánuðum kunni
að verða enn brýnni þörf fyrir
slí'ka stofnun, þar sem vinna
margra heimilisfeðra er að drag
ast saman. Gæti orðið óhjá-
kvæmilegt að eiginkonur þeirra
leituðu sér vinnu utan heimilis
til þess að forða neyðarástandi.
Það er því von félagsins að
bæjax-búar taki vel á móti böm-
unum og leggi góðu máli mikil-
vægt lið, eins og ávallt endra-
nær.
Birgir Snæbjörnsson.
FRA KENNARAMNGINU A AKUREYRI
(Framhald af blaðsíðu 8).
við norðlenzka skóla. í því sam-
bandi voru eftii'farandi tillögur
samþykktar:
„Aðalfundur Kennarafélags
Eyjafjarðar haldinn á Akureyri
27.—28. september 1968, skorar
á fræðslumálastjóra og Sam-
band norðlenzkra sveitarfélaga,
að nú þegar vei-ði unnið að því
að koma á fastri sálfi'æðiþjón-
ustu í skólum landsins. Bendir
fundurinn á, að umferðasál-
fræðiþjónusta væri hugsanleg
sem byrjunax-framkvæmd er
gæti orðið skólastarfinu að
nokkru liði.“
„Aðalfundur Kennarafélags
Eyjafjarðar haldinn á Akui-eyri
29.—28. september 1968, skorar
á fræðslumálastjórn og Sam-
band norðlenzkra sveitarfélaga,
að nú þegar verði unnið að því
að senda nokkra kennara utan
til náms í talkennslu. Fundur-
inn telur brýna nauðsyn bera til
þess, að mirmst einn talkennari
sé starfandi í hverjum lands-
fjórðungi."
Þá vár samþykkt eftirfarandi
tillaga:
„Aðalfundur Kennarafélags
Eyjafjarðar haldinn á Akureyri
27.—28. september 1968, heitir á
kennara og foreldra skólabarna,
barnaverndanefndir og lögreglu
yfirvöld, að reka ái'óður fyrir
og fýlgja fast eftir reglugerð um
útivist barna á kvöldin. Á starfs
tíma skólanna vitandi það að
nægilegur svefn er höfuðskil-
yrði þess að eðlilegur og nauð-
synlegur árangur náist í skóla-
starfinu.11
„Aðalfundur KFE 1968, fagn-
ar þeirri aukningu, sem orðið
hefur á námskeiðum, sem hald-
in eru á vegum fræðslumála-
stjórnar. Skorar fundurinn á
fræðslumálastjóra og fræðslu-
yfirvöld, að sem allra fyrst kom
ist skipulag á námskeið þau,
sem fræðslumálastjórn gengst
fyrir, þannig að þeir kennarar,
sem sækja vissan fjölda nám-
skeiða, eigi rétt á launahækk-
unum um einn flokk eða fái
fullt kaup meðan þeir sækja
námskeiðin."
Kennarafélag Eyjafjarðar hef
ur um 27 ára skeið gefið út tíma
ritið Heimili og skóla. Það rit
fjallar um uppeldismál og er rit
stjóri þess hinn kunni rithöf-
undur og skólamaður Hannes J.
Magnússon.
Að loknum fundahöldum
bauð Kennarafélag Eyjafjarðar
fundargestum til kaffidrykkju.
Þingið sóttu um fimmtíu kenn-
arar af Norðurlandskjördæmi
eystra. Stjórn Kennarafélags
Eyjafjarðar skipa: Formaður
Indriði Úlfsson skólastjóri og
meðstjórnendur Edda Eiríks-
dóttir skólastjóri og Jónas Jóns-
son kennari.
(Fréttatilkynning)
IBUÐ TIL LEIGU.
Uppl. í síma 1-27-75.
VERZLUNARHÚS-
NÆÐI TIL LEIGU
í Hafnarstræti 86.
Uppl. í síma 2-16-26.
TIL LEIGU
er á Ytri-Brekkunni
HERBERGI OG ELD-
UNARPLÁSS
fyrir konu. — Húshjálp
æskileg.
Uppl. í síma 1-21-63.
KÆLISKÁPAR OG
FRYSTIKISTUR -
KÆLIKLEFAR!
Tek að mér að sjá um
viðgerðir og breytingar
á ofangreindum tækjum.
Uppl. í síma 1-29-17.
Hámundur Björnsson.
Geymið auglýsinguna!
KERTI
japönsk, þýzk, dönsk
lienta við öll tæki-
íæri.
GERVIBLOM
í íjölbreyttu úrvali.
NYJAR EFTIR-
PRENTANIR
í úrvali.
Munið okkar vinsæla
BLÓMA- OG LISTA-
VERKAKJALLARA.
BLÓMAGRIND-
UR - BLÓMAKER
BLÓMABORÐ
Tökum fram í dag
nýja sendingu af
hinum vinsælu
LAVA-KERAMIK
frá Glit.
BLÓMABÚDiN LAUFÁS
Frá mánudeginum 28. október gefum við
20-50% afsláít
af eldri vörum.
Komið og gerið góð kaup meðan úrvalið er mest.
VERZLUNiN DRÍFA
Bifreiðaeigeiidiir