Dagur - 23.10.1968, Qupperneq 8
8
GÆSIR SPÁ GÓÐRITÍÐ í VETUR
Gunnarsstöðnm 21. okt. Svo
óhemjumikið af gæsum er hér
um slóðir, að með ólíkindum er.
Segja veðurspámenn hér, að
gæsirnar spái góðri tíð, annars
myndu þær farnar. En til marks
ium gæsamergðina er það, að á
30—40 ha. túni voru 250 lömb á
beit, ásamt villigæsum. Reynt
var að gizka á fjölda fuglanna
og munu þær hafa verið um
eitt þúsund talsins. í Hvammi
var vel gróin 17 ha. sáðslétta,
sem sáð var í í vor, ætluð lömb-
um til haustbeitar. En þegar til
átti að taka voru gæsirnar bún-
ar með gróðurinn, svo varla sást
strá eftir á hinni stóru og grónu
nýrækt.
Vegir eru færir en illfærir
vegna bleytu, nema yfir Axar-
fjarðarheiði, sem ennþá er ófær
með öllu vegna snjóa.
Gróður er álíka mikið söln-
aður og venja er um miðjan
september og valllendi fagur-
grænt. Mikið grænfóður er enn
úti á Langanesi en í Þistilfirði
náðu bændur því að mestu.
Enn hafa hinar útigengnu
geitur, sem sáust í sumar, ekki
náðzt. Væntanlega verður gerð
gangskör að því að handsama
þær fyrir veturinn. Ó. H.
Kennaraþingið á Akureyri
KENNARAÞING var haldið í
Oddeyrarskólanum á Akureyri
dagana 27.—28. sept. sl. Að þing
inu stóðu Kennarafélag Eyja-
fjarðar og Kennarasamband
Norðurlands eystra. Þar flutti
dr. Matthías Jónasson prófessor
erindi, er hann nefndi: „Þáttur
ímyndunarafls og innsæis í
námi.“ Dr. Matthías hefur nú
í haust starfað hér á Akureyri
við rannsókn á nokkrum skóla-
börnum.
Egilsstöðum 21. okt. Fjallvegir
eru allir færir, tíð góð en úr-
komusöm. Annríki er hér mikið.
Slátrun stendur yfir og menn
eru að flýta sér að koma áfram
byggingum.
Barnaskólinn hér, er tekinn
til starfa og eru nemendur um
130 talsins í barna- og unglinga
deildum, og hefur fjölgað mikið
frá fyrra ári. Húsnæði er orðið
allt of lítið og er í atliugun með
hvaða móti er unnt að bæta úr
hinni aðkallandi húsnæðisþörf.
Húsmæðraskólinn er byrjað-
ur. Forstöðukona er Guðrún Ás
geirsdóttir því Ingveldur Páls-
dóttir lét af því starfi. Og nýi
barnaskólinn í Hallormsstaða-
skógi hefur tekið til starfa.
1. bekkur iagður niður.
Eiðaskóli var settur fyrir hálf
um mánuði. Skólastjóri er Þor-
kell Steinar Ellertsson. Nem-
endur eru 120 og komust færri
að en vildu. Sérstaklega er fjöl-
menni í 4. bekk, en fyrsti bekk-
ur var lagður niður vegna lítill-
ar aðsóknar og fátt í öðrum
bekk.
Fjórar kennslustofur í nýrri
Aðrir fyrirlestrar á þinginu
voru: Jóhann Sigvaldason kenn
ari, Hörður Ólafsson kennari og
Valgarður Haraldsson náms-
stjóri. Þá fór fram kynning á
skólavörum frá fyrirtækinu
Múlalundur.
í sambandi við þingið voru
haldnir aðalfundir félaganna.
Þar var mikið' rætt um sálfræði
þjónustu í skólum og þörf á
lærðum talkennurum til starfa
(Framhald á blaðsíðu 7)
Árni Jónsson.
Nýr landnámsstjóri -
Nýr tilraunastjóri
ÁRNI JÓNSSON tilraunastjóri
á Akureyri 'hefur verið skipaður
landnámsstjóri í stað Pálma
Einarssonar, sem lætur af því
starfi fyrir aldurs sakir.
Við tilraunastarfinu tekur
Svarfdælingurinn Jóhannes Sig
valdason. □
SKÓLAR Á IIÉRAÐI ERU AÐ HEFJA STÓRF
viðbyggingu eru nú teknar í
notkun, ennfremur kennara-
stofa, skrifstofa og setustofa
fyrir stúlkur. Ilátíðasalur skól-
ans verður væntanlega fullbú-
inn næsta ár.
Fólksfjölgun er mikil í Egils-
staðakauptúni og verða þar
sennilega 640 héimilisfastir um
næstu áramót. V. S.
Jóhannes Sigvaldason.
EldsvoSi á Laxamfri í
Maður frá Húsvík játar íkveikju þar og víðar
SÍÐASTLIÐNA miðvikudags-
nótt varð eldur laus í hlöðu á
Laxamýri í S.-Þing. Af sérstakri
tilviljun varð eldsins vart nógu
snemma til þess, að hægt væri
að bjarga á fjórða hundrað fjár
úr viðbyggðu fjárhúsi. Með að-
stoð slökkviliðs frá Húsavík og
margra manna úr nágrenninu,
tókst að kæfa eldinn. En þá var
þak og hurðir hlöðunnar ónýtt
orðið og mikið af heyi einnig,
en alls voru þar 700—800 hestar.
I AFANGASTAÐ
Strax lék grunur á, að um
íkveikju af mannavöldum væri
að ræða, því hiti var enginn í
hlöðunni rétt áður.
Bjöm og Vigfús Jónssynir
búa á Laxamýri, ásamt hinum
aldna og kunna föður sínum
Jóni H. Þorbergssyni.
Sýslumannsembættið á Húsa-
vík annaðist rannsókn þessa
máls. Við þá rannsókn játaði
maður einn á Húsavík að hafa
kveikt í lilöðunni á Laxamýri,
ennfremur á fimm stöðum á
Húsavík. Maður þessi er
kvæntur fjölskyldufaðir og hafa
þau hjónin óskað eftir að hann
gangi undir geðrannsókn.
ÞEGAR litið er yfir 30 ára starfs
sögu S. í. B. S. er margs að
minnast og margt að þakka.
Hver deild sambandsins er
hlekkur í þeirri keðju, sem orð-
ið hefur svo virkur þáttur í ís-
lenzku þjóðlífi, og jafnframt svo
sérstæðui' þáttur, að aðrar þjóð-
ir eiga þar enga hliðstæðu.
Deildin Sjálfsvörn, Kristnes-
hæli var stofnuð árið 1938, af
60 manna hópi, sumra helsjúkra.
Þeir tóku höndum saman af
heilum hug og trúin á sigurmátt
samtakaviljans varð þeim vegar
ljós og orkugjafi. Ýmislegt þarft
og gott hefur deildin unnið á
þessum þremur áratugum. Hún
he-fur jafnan reynt að halda full
an trúnað við þær hugsjónir,
sem urðu kveikja hennar á sín-
um tíma — hennar og annarra
samstæðra félaga. Aðalstarf
deildarinnar ár hvert er skipu-
lagning Berklavarnardagsins og
framkvæmdir í sambandi við
sölu merkja og blaðsins „Reykja
lundar“, sem nú í haust kom út
í tuttugasta og annað sinn.
Deildin í Kristnesi vill, í til-
efni þessara tímamóta, minnast
allra þeirra sem hafa stutt hana
í starfi í sambandi við Berkla-
varnardagana með því að leggja
til bíla og liðskost í söluferðir
út um sveitir, oft í misjöfnu
veðri og við þreytandi aðstæð-
ur. Á þessu sviði hafa margir
unnið vel og trúlega svo árum
skiptir — og aðrir nýjir hafa
tekið við af þeim og sýnt skiln-
ing og þegnskap og lagt sig fram
í starfi. Ollum þessum liðsmönn
um flytur Sjálfsvörn Kristnesi
alúðaitþakkir fyrir ánægjulega
samvinnu og örugga leiðveizlu.
Jafnhliða ber og að þakka því
ágæta fólki, sem tekið hefur
þessum erindrekum deildarinn-
ar og þá jafnframt S. í. B. S. —
tveim höndum sýnt þeim vin-
(Framhald á blaðsíðu 4)
Nýr prestur á
Möðruvöllum?
NÆSTKOMANDI sunnudag
verður prestkosning í Möðru-
vallaklaustursprestakalli. En
þar hefur verið prestlaust rúm
tvö ár.
Umsækjandi er aðeins einn,
Þórhallur Höskuldsson cand.
theol. Hann hefur nýlokið prófi
við Guðfræðideild Háskólans.
Þórhallur er Hörgdælingur,
ættaður frá Skriðu.
Eftir að prestlaust varð á
Möðruvöllum hefur enginn sótt
um prestakallið fyrr en nú. Er
þess því að vænta, að umsókn
þessa unga guðfræðings verði
vel fagnað. En til þess að prest-
kosningin verði lögmæt þarf
helmingur atkvæðisbærra
manna að greiða honum at-
kvæði. □
SMÁTT & STÓRT
LIPURT TUNGUTAK
Gylfi ráðherra hélt fræga ræðu
nýlega á fundi Verzlunarráðs.
Auk þess að boða nýja stefnu í
landbúnaðinum (sem Ingólfur
ráðherra síðar mótmælti),
minntist hann á „höftin“. Um
þau sagði hann: „Ég tel að ný
höft megi undir engum kring-
umstæðum vera þáttur í þeim
ráðstöfunum, sem gera á“. Gylfi
heldur svo áfram og segir þá:
„Vel getur komið til mála, að
beita innflutningshöftum og þó
sérstaklega algeru banni á inn-
flutningi einstakra vörutegunda
í stuttan tíma ... einkum meðan
verið er að undirbúa varanlegar
ráðstafanir“.
Engin höft, segir ráðherrann,
í hæsta lagi algert bann á inn-
flutningi einstakra vöruteg-
unda! Og svo talar hann um
varanlegar ráðstafanir, eins og
hann sé að skopast að vandræð-
um og getuleysi eigin stjórnar!
AFLABRESTUR OG
VERÐHRUN!
Árið 1958 dróu íslendingar 580
þús. tonn fiskjar úr sjó. Það
kölluðu Sjálfstæðismenn aflaár.
Árið 1967 varð aflinn 895 þús.
tonn og kalla Sjálfstæðismenn
það aflabrest.
Rétt er að gera sér grein fyrir
því, að aðeins þrisvar í sögunni
hefur sjávaraflinn verið meiri
en hann var 1967. Og aðeins
tvisvar á síðasta áratug hefur
verð á sjávarafla erlendis verið
Snemma á þessu ári og seint
á síðasta ári kom upp eldur á
nokkrum stöðum á Húsavík og
greip þá um sig mikil hræðsla,
þar sem grunur lék á, að ein-
hver af borgurunum gengi með
„brennuæði“. Lágu margir und-
ir grun í þessu efni. Málið er nú
upplýst og var það mikil nauð-
syn, bæði fyrir hinn ógæfusama
mann og aðra.
(Samkvæmt viðtali við Jó-
hann Skaptason sýslumann).
hagstæðara. Þó tala Sjálfstæðis
menn um verðhrun, ásamt afla-
brésti!
HEIMATILBÚNIR ERFIÐ-
LEIKAR
Erfiðleikar atvinnuveganna og í
efnahagsmálum yfirleitt eru því
hvorki af aflabresti eða verð-
hruni því hvorugt var fyrir
hendi, heldur eru þeir öðrum
þræði heimatilbúnir en stafa
einnig að nokkru af því, að afl-
inn og verðmæti hans eru rýrari
en þegar bezt var. Hinir heima-
tilbúnu erfiðleikar eru fyrst og
fremst þeir, að verðbólgan inn-
anlands hefur algerlega raskað
samkeppnisaðstöðu okkar á er-
lendum mörkuðum. Þar við bæt
ist svo lánsfjárskorturinn, okur-
vextir og hin gífurlega óreiða í
peningamálum yfirleitt. Hin
heimatilbúna kreppa nú, heitir
öðru nafni „viðreisn“.
BINDINDISMENN
SKEMMTA SÉR
Á öðrum stað hér í blaðinu eru
auglýst spilakvöld og dans á
vegum stúknanna á Akureyri.
Sérstök ástæða er íil að vekja
athygli á því, að hér er um
skemmtanir fyrir almenning að
ræða, sem öllum eru heimilar,
bindmdismönnum og öðrum,
þótt ölvun sé að sjálfsögðu
bönnuð.
FLJÚGANDI FISKUR
Nokkrir áhugamenn á Húsavík
og nágrenni hafa undanfarið at-
hugað möguleiká á að flytja út
fisk með flugvélum, einkum
smáan þorsk, flatfisk og rauð-
maga. Hefur frumstofnun félags,
er að frekari athugunum vinni,
þegar farið fram. Ráðgert er, að
einhverjir þessara áhugamanna
fari utan snemma í næsta mán-
uði til að kynna sér söluhorfur
og kaup á farkosti til flutning-
anna.
Skjálfandaflói er fiskisæll.
Fiskflutningar í lofti frá Aðal-
dalsflugvelli eru sannarlega
verðir fullrar athugúnar.
SÉRSTAKT BLAÐ UM BÆJARMÁL
NÚ GEFIÐ ÚT Á SAUÐÁRKRÓKI
Frostastöðum 17. okt. Fyrir
nokkru kom út á Sauðárkróki
fjölritað blað, gefið út af Fram-
sóknarmönnum þar á staðnum,
og nefnist Bæjarfréttir. Tilgang
urinn með blaðinu er einkum
sá, eins og segir í formálsorðum,
að ræða og skýra þær fram-
kvæmdir, sem bæjarfélagið hef-
ur með höndurn hverju sinni og
leiðrétta missagnir og rang-
færslur því að „. .. alltaf eru
það einhverjir, sem telja sig
hafa af því hag, eða þá gaman,
að koma af stað röngum og
stundum skaðlegum fréttaflutn-
ingi, jafnvel í landspressuna" —
og — „Hugmyndir Framsóknar-
félags Sauðárkróks, ... er að
koma á framfæri fréttum af
framkvæmdum bæjarfélagsins
og málefnum þess í þeirri vissu,
að hverjum þeim, sem les, þyki
að þessum upplýsingum nokkur
fengur og auðveldi þeim um leið
að meta rétt og á hlutlægan hátt
umrædd málefni“.
Sem kunnugt er höfðu Sjálf-
stæðismenn haft hreinan meiri-
hluta í stjórn Sauðárkróksbæjar
um árabil. Hér skal ekki um það
rætt hvernig þeim fórst úr hendi
bæjarmálaleiðsögnin. En dómur
kjósenda um það var sá, að við
síðustu bæjarstjórnarkosningar
misstu þeir 2 bæjarfulltrúa af 4.
Að þessum sárum hefur ekki að
fullu setzt enn, svo sem sjá hef-
ur mátt í Noi'ðanfara. Enn koma
svo til aðfinnslur manna, sem
vegna einkennilegrar innri gerð
ar fremur en af pólitískum
ástæðum, telja sig jafnan þurfa
að vera í andófi við þá, sem för-
inni ráða. En hvernig sem menn
annars telja sér henta að túlka
málin þá verður ekki um það
deilt, að framkvæmdir á vegum
Sauðárkróksbæjar hafa verið
venju fremur miklar í sumar:
Stofnun Útgerðarfélags Skag-
firðinga og í framhaldi af því
kaup og rekstur m/s Drangeyj-
ar, lagfæring á höfninni, gatna-
gerð, endurbætur á hitaveitu-
(Framhald á blaðsíðu 2)