Dagur - 20.11.1968, Page 5

Dagur - 20.11.1968, Page 5
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-1166 og 1-1167 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.L Störf og sfefnur OFT er um það rætt hvemig menn eigi að fara að því, að kynna sér stefnu stjórnmálaflokkanna og hvem ig hún komi gleggst frain. Að því er Framsóknarflokkinn varðar, er þess fyrst og fremst að geta, að í einstökum kjördæmum gera kjördæmaþingin sínar ályktanir um heimamál og landsmál. En á flokks- þingi Framsóknarmanna, sem haldið er eigi sjaldnar en f jórða hvert ár, og nú síðast snemma á árinu 1967, er stefna hinna pólitísku landssamtaka, sem bera nafnið Framsóknarflokkur- inn, ákveðin. Á aðalfundi miðstjóm- ar Framsóknarflokksins, þar sem sæti eiga um 90 fulltrúar, kjömir af kjördæmasamböndum og á flokks- þingi, eru einnig ár hvert gefnar út yfirlýsingar um flokksstefnuna og þó eigi sízt um mál, sem efst eru á baugi hvert ár og eru yfirlýsingar þessar jafnan birtar þjóðinni. Segja má þó, að í reynd komi stefna flokksins einna gleggst fram í tillögum þeim, sem þingflokkurinn eða þingmenn flokksins gera á Al- þingi í einstökum þjóðmálum og eru þessar tillögur fluttar sem frumvörp til nýrra laga eða til þingsálvktunar. Þessi málflutningur flokksins á Al- þingi er öllum aðgengilegur, því að tillögurnar eru jafnan birtar í flokks- blöðum en koma einnig glögglega fram í þingfréttum Ríkisútvarpsins, sem fluttar eru hvern virkan dag ár- degis nú í vetur. Það þarf því ekki að dyljast neinum, hverju flokkur- inn hefur beitt sér fyrir og vill að fram gangi á Alþingi. Til dæmis um þau mál, sem nú eru á dagskrá, eða hafa verið undan- farið, skal hér nefnt, að það er yfir- lýst stefna flokksins, að höfð sé skipu- leg stjórn fjárfestingarmála undir forystu ríkisvaldsins í samstarfi við stéttarsamtökin og að allar meirihátt- ar framkvæmdir fari eftir fyrirfram- gerðri áætlun, þar sem verkefnum sé raðað og þau látin ganga fyrir, sem þýðingarmest eru, en sett bann á til- teknar tegundir fjárfestingar, þegar þess þarf með, eins og t. d. Danir og Svíar gera. Það er ennfremur yfirlýst stefna flokksins, að haldið sé uppi heildar- stjórn gjaldeyrismála með hliðsjón af gjaldeyrisöflun og þörfum fram- leiðsluatvinnuveganna og gerðar ráð- stafanir til að minnka vöruinnflutn- ing og gjaldeyrisnotkun yfirleitt, með þeim aðferðum, sem bezt sam- rýmast almannahagsmunum. En þetta þýðir m. a. að stundum getur reynzt nauðsynlegt að koma í veg (Framhald á blaðsíðu 2). Fjölmargf hendir Islending á langri !ei8 Rætt við gamlan Akureyring - Jón Júlíus Sig- urðsson frá Winnipeg - sem hér er í heimsókn ÖÐRU HVERJU koma Vestur- íslendingar í lengri eða skemmri heimsókn til íslands, til að hitta frændur og vini og til þess að líta æskuslóðir sínar eða jafnvel bernskuslóðir foreldranna. Á miðvikudaginn, 13. nóvem- !ber, leit slíkur ferðamaður inn á skrifstofur Dags. Hann heitir Jón J. Sigurðsson, Jónssonar frá Dvergasteini, Akureyringur að uppruna, fæddur í Syðsta-Hús- inu, en svo lítillar ættar, segir hann, að honum gekk illa að fá vinnu í bænum í gamla daga því hvorki átti hann ættarnafn eða burgeisa til hjálpar. Þetta er þreklegur maður, léttur í máli og 'hinn vasklegasti — ef- laust drengur góður. Við tökum tal saman. Viltu segja frá sérstæðum ís- lendinga vestra? Ég 'hef lengst af átt heima í Winnipeg í Kanada og þótt þar séu margir íslenzkættaðir menn hef ég nær eingöngu verið með- al enskumælandi manna. En ég þekkti gamla dr. Hjaltason, sem var íslenzkur að ætt og frábær læknir. En hann virtist stund- um viðutan og svaraði útúr ef illa lá á honum og hann móðg- aði marga. Hann hirti ekki um klæðaburð sinn og var jafnvel sóði. Þeir dr. Brandson, kunnur skurðlæknir vestra, voru skóla- bræður, og hefi ég heyrt að Brandson hafi látið þau orð falla, að ef dr. Hjaltason gengi frá, væri það ekki á færi ann- arra að lækna, að hjálpa, nema ef skera þurfti upp. En dr. Hjaltason var meðalalæknir og hann var svo næmur, að hann virtist vart þurfa að skoða sjúkl inga til að sjá hvað að þeim gengi. Til eru ýmsar sögur um, að hann læknaði sjúklinga, sem aðrir voru gengnir frá og sjúkl- ingarnir komnir að dauða. Þessi ágæti læknir og mann- vinur flutti úr borginni og fór út í sveit. Sagt var, að stundum væri mykja á skónum hans. En það var ekki talað um það, þeg- ar hann gerði það, sem menn kölluðu hálfgerð kraftaverk. Einu sinni kom ungur og ákaf- lega veikindahræddur maður til hans og bað hann að lækna sig. Hjaltason gekk um gólf og horfði svo stutta stund á sjúkl- inginn. Að lokum sagði hann: „Farðu heim og snýttu þér.“ Meira fékk hann ekki, en ekki veit ég hvort hann læknaðist af hræðslu sinni. Einu sinni komu mæðgur á fund læknisins. Móðirin þuldi upp veikindi dótturinnar en hann þagði og ansaði engu lengi vel. Síðan sagði hann á tilgerðar lausu máli, að þetta mundi allt vaxa og það en lítið því stúlkan væri kona ekki einsömul. Sú gamla reiddist ofsalega og stik- aði út. Dóttirin taldi sjúkdóms- greininguna ekki eins fráleita, enda reyndist hún rétt. Þá kynntist ég ágætum Ey- firðingi, Grími Eyford. Hann var framkvæmdastjóri járn- brautanna á stóru svæði í Mani toba, glæsilegur og skemmtileg- ur maður, sem hjálpaði mörgum fslendingi um vinnu er þeir komu peningalausir og mállaus ir. Grímur var ágætur veiði- maður og hraustmenni. Átti hann stundum í brösum við Indíána. Hann var frábær stjórn andi og áttum við skemmtilegar stundir saman og sagði hann mér þá stundum frá svaðilför- um sínum, bæði sem eftirlits- maður járnbrauta, sem hann var lengi fyrst og frá veiðiferðum. Hann skaut bæði buffla og skóg arbirni, en taldi þá ekki eins hættulega og Indíánana, sem voru 'hálfvilltir og þurfti að þekkja vel, til að geta átt við þá viðskipti. Dóttir Gríms giftist prófessor Tryggva Ólasyni. Einhver taug tengdi íslend- ingana alltaf saman vestra? Já, það má segja og oft hefur það komið fyrir mig, að ég lað- aðist eins og ósjálfrátt að mönn- um, sem reyndust þá vera ís- lendingar. Ég man að mér fannst ég hafa þekkt Marinó Hannesson lögmann í Winnipeg lengi, er ég fyrst hitti hann. Nokkru eftir lát hans vissi ég fyrst, að hann var af eyfirzku bergi brotinn. Hvenær komstu til Winnipeg? Haustið 1929 héðan frá Akur- eyri. Fyrst fór skipið til Noregs og kom þá í Ijós við skoðun, að ég var kviðslitinn. Þetta gerði babb í bátinn. Ég varð að taka mér far með öðru skipafélagi, þar sem ekki var verið að skoða á manni kviðinn. En þetta varð til þess, að ég var staurblankur þegar ég kom vestur til Halifax. Ég átti þá eftir að fara til Winni peg. Þá fyrst fékk ég að reyna hvað það er að vera svangur. En það fór eins fyrir mér í Hali- fax og áður í Noregi, að við læknisskoðun kom kviðslitið í Ijós og mér var tilkynnt, að ég yrði sendur heim með fyrstu ferð. Ég var nær mállaus og þótt þetta súrt í brotið. Bað ég því um viðtal við yfirlækninn. Hann kom og ég sýndi honum meðmælabréf frá Jóni Sveins- syni bæjarstjóra á Akureyri, þar sem hann vottar dugnað minn og annað ágæti. Sjálfur gerði ég honum það skiljanlegt, að ég ’hefði unnið erfiðustu vinnu án þess að verða meint af svo sem skurðgröft. Hann tók þetta gott og gilt og ég var frjáls. Danskur maður gaf mér þau sætustu epli, sem ég hef borðað. En þó ég væri svangur, komst ég til Winnipeg, því ég var svo heppinn að hitta þarna Magnús Markússon skáld, sem bauð mér að borða og síðan Al- ■bert Jónsson konsúl, sem sá víst hungrið utan á mér og lánaði mér 10 dollara, góður maður. Og fyrsta starfið vestra? Ég vann um tíma í kassagerð- inni hjá Svarfdælingnum Zophoníasi Thorkelssyni. Það var vinnuiharður maður og skap mikill. Svo fór ég í byggingar- vinnu til Þorsteins Borgfjörðs en byggingarfélag hans, MC Dermit Co., 'byggði sumar mestu stórbrýr Vancover vestra, auk húsa af öllum stærðum. Borg- fjörð var framkvæmdastjóri. Þá var ég fjósamaður í Riverton einn vetur. Það var einmitt þá um vorið, sem dr. Brandson saumaði á mér kviðslitið og tók ekkert fyrir. Hvenær kvæntist þú svo? Það var árið 1935. Hún heitir María Magdalena Kotella og er pólsk í aðra ættina en austur- rísk eða þýzk í hina. Hún er mjög fjölhæf, býr til skraut- muni, mottur og getur smíðað eitt og annað, og svo leikur hún á fiðlu, gargar á fíolín, eins og ég kalla það stundum. María er bæði falleg kona og boldangs- kvenmaður. Foreldrar hennar áttu átta börn og voru úti í sveit. Bömin lærðu að vinna. Börn okkar eru tvö: Þóra og Eðvarð Vilhjálmur. Nokkuð sögulegt þegar þú kynntist konuefninu þínu? Ef það er ekki sögulegt fyrir ungan mann að kynnast góðri og fallegri konu, þá veit ég bara ekki hvað er sögulegt. Jú, það var svo sannarlega sögulegt fyr- ir mig. Já, það var í Winnipeg 1934. Ég stundaði fisksölu, bauð fisk í hús. Ég mætti þá öðru hverju hvítklæddri konu, sem ég bauð fisk eins og öðrum. Hún vildi aldrei kaupa neinn fisk af mér, en ég gat naumast slitið af henni augun, svo fríð kona var hún. Hún átti heima skammt frá því húsi, sem ég þá bjó í, en ég leigði hjá gamalli konu. Mér Jón Júlíus Sigurðsson. þótti skrýtið, að þessi hvít- klædda kona, sem ég vissi að vann þó við mötuneyti og keypti stundum fyrir það, vildi ekki kaupa af mér fisk. Ég spurði hana einu sinni um ástæðuna. Hún sagði að heimilið keypti ekki fisk af pröngurum, heldur hjá matsöluhúsi, sem hún nafn- greindi. Svo var það dag einn í miklum hita, að ég fór fram hjá húsi hennar og hún var að vökva garðinn með úðara. Ég 'heilsaði og bað um, að hún vökvaði líka höfuð þess manns, sem vanari væri frostum á ís- landi en þessum steikjandi hita. Hún gerði það og höfuðbaðið var gott. Við tókum svo smá- vegis tal saman. Ég var ennþá mjög lélegur í enskunni og fann sárt til þess í samræðum við hina fögru konu. Nokkru síðar mættumst við á götu og skipt- umst á orðum. Ég er málgefinn að upplagi og lét það út úr mér, án þess ég hefði nokkra von um árangur, að gaman væri að eyða með heimi einu kvöldi. Hún sagði, að ekki gæti hún það í kvöld, en kannski síðar. Ég var alveg steinhissa. Svo kom nú þetta góða kvöld og ég fékk lán aðan bílskrjóð, sem húsmóðir mín átti. Ég bauð í bílferð, nokkra hringi, var ákaflega hrif inn af stúlkunni og var þó ekki mjög feiminn, kunnáttu á þessu sviði hafði ég litla en minntist þess þá hvernig ástfangnir menn fóru að á leiksviðinu í gamla Gúttó heima. Rek ég ekki þá sögu lengur en þar sannað- ist, sem oftar, að fallegustu kon urnar sitja oft uppi með ljótustu mennina og kann ég ekki aðra skýringu á fyrirbærinu. Hún var kaþólsk og allt hennar fólk, og ég varð það líka — veit ekki hverju ég hefði ekki fórnað í þann tíð, fyrir konuefnið mitt. Og þú lést börnin lieita Þóru og Eðvarð? Já, og eiginlega út í loftið. Það stóð svo á, að ég vann í öðru ríki þegar Þóra litla fæddist. En hún var skírð á fæðingardeild- inni Helena Katrín. Þegar ég svo sá hana, nokkurra mánaða gamla, kallaði ég hana strax Þóru og hún hefur ekki verið nefnd annað síðan. Þú hefur svo byggt þér hús, eins og aðrir fjölskyldumenn? Já, í Winnipeg. Bræður kon- unnar minnar byggðu það. Það brann nær fullbyggt og þeir byggðu upp aftur og þar hefi ég átt heima síðan. Ég tapaði miklu við brunann og það urðu mér erfið ár að standa í skilum. En þetta 'heppnaðist og ég gat greitt skuldir mínar. Seinna stækkaði ég húsið og breytti því. Sjálfur vann ég við húsamálningar um 20 ára skeið og þurfti stundum að fara í aðrar borgir í atvinnu- leit. Þú hefur leitað að atvinnu? Já, hvar sem hana var að fá, til að geta borgað húsaskuldirn- ar. Ég var t. d. 1952 og 1953 norð ur í Fort Churchill við Hodson- flóa í Manitoba. Þar er gífurlega mikil hveiti-útflutningshöfn, kornturnar fyrnastórir og þar voru þá um 12 þús. manns, því þar var líka herbækistöð. Þarna hafði ég 400 dollara á mánuði og líkaði sæmilega. En kuldinn er mikill og allt gróðurlaust og helztu dýr á landi úlfar og refir, en í sjó sérstök laxategund. Sá fiskur er svo feitur, að það drýp ur af honum lýsið. En hann er góður nýr og reyktur. Stöku sinnum komu bjarndýr, einkum lítt vaxin. Veður geta orðið voðaleg á þessum norðlægu slóðum. Þótt ótrúlegt sé, hafa menn bókstaf- lega kafnað í veðurofsanum. En á sumrin er sæmilegt en þá angra hinar stóru moskitóflugur mann. Höfnin er íslaus í aðeins tvo mánuði éða svo. Hvenær byrjaðir þú á nudd- inu? Það var fyrir tæpum áratug. Það var síðari hluta dags í kulda veðri að ég stóð í stiga í Seattle og málaði. Ég var að hugsa um það, hvað innihaldslítið þetta strit væri og heldur dapurlegt, að guð gæti ekki notað mann til annars en þessa endalausa brauðstrits og maður gæti ekki látið neitt verulega gott af sér leiða. Upp úr þessum hugleið- ingum fór ég í gufubað og lét nudda mig á eftir. Ég talaði við nuddarann. Hann sagði mér, að ég hefði læknishendur og yrði mjög góður nuddlæknir ef ég lærði. Ég tók þessu sem hverri annarri gamansemi. Hann vís- aði mér á nuddskóla. Svo kom þetta stig af stigi og ég stundaði þetta nám í tvö ár. Skólastjór- inn var írskur og kominn til ára sinna. Síðan hef ég svo stundað nuddlækningar í Kanada og Bandaríkjunum og geri ennþá. Ég trúi því, að ég hafi einhvern vott af lækningagáfu og það hjálpi til við lækningarnar. Mér finnst miklu auðveldara að lækna trúað fólk en aðra og þar verður allt léttara. Ég legg mig fram og geri mitt bezta í starf- inu og hef þá jafnan bæn á vör. Ertu mjög trúaður maður eða dulrænn? Ekki held ég að ég hafi neina svokallaða dulræna hæfileika en ég var talinn trúaður á árum áður. En ég kynntist á óvæntan hátt kirkju mormóna, fór þang- að eitt sinn af rængli og leið þar svo vel, að ég tók að sækja þá kirkju eftirleiðis. Mormónar eru í mörgu bæði strangir og siðavandir. Ég komst að þeirri niðurstöðu, eftir sálarstríð og andvökur, að ég vildi helzt geta notið leiðbeiningar þessarar kirkju. Að vísu var ég á margan hátt óverðugur þess, sem kirkj- an bauð og ekki heldur undir það búinn að halda boð og bönn. En ég var skírður. Ég vann í Alberta um þessar mundir. O, já, margt getur fyrir mann kom ið. Ekki var konan ánægð með þetta hjá mér þó því fylgi ekki fjölkvæmi, sem löngu er bann- að með lögum. En við deildum um fleira. Hún elskar slétturnar og vill hvergi annarsstaðar vera (Framhald á blaðsíðu 7) Vart samræðiiliæfir EKKI mun það ofmælt, að ólíkt fleiri útvarpshlustendur opni en loki tæki sín þegar þar er rætt um bókmenntir, auk hinna mörgu, er beinlínis sækjast eftir, að hlusta þegar þau efni ber á góma, en því miður er æði oft undir hælinn lagt, hver fengur er að. Sl. sunnudag ræddu þeir Ól. J. og Sv. Kr. um sögu Hall- dórs Laxness, Kristnihald undir Jökli. Sennilega hafa ýmsir að- dáenda höfundar beðið útgáf- unnar með nokkurri tilhlökkun, a. m. k. forvitni. Aðrir láta sig litlu skipta, aldrei verið hrifnir af skáldsagnagerð þess fræga manns eða búnir að fá nægju sína, orðið vonbi'igði að síðari ritsmíðum hans, en hvað um það. Saga frá hendi Nóbelsverð launahöfundar vekur þó meiri athygli en frumsmíði óþekkts manns, og mennirnir, sem völd- ust til samræðunnar báðir kunn ir, en það ætla ég að hróður beggja hafi heldur þorrið en aukist að samtalinu loknu. Ekki vegna þess, að þeir væru svo þvöglumæltir að það skildist ekki, sem þeir vildu sagt hafa, heldur hins, að þeir höfðu ekk- ert að segja, helzt þetta: Þeir skildu ekki hvað höfundur væri að fara, til þess þurfti að lesa tvisvar, þrisvar, helzt oftar, það höfðu þeir ekki gert. í henni var þó heimspeki, taoismi og eitt- hvert sambland flestra ef ekki allra eldri sagna Halldórs og ýmsar snjallar og fallegar setn- ingar hér og þar. Og af því sagan var nú eftir þennan mann, hlaut að vera vit í henni. Það lá aðeins ekki á lausu, ekki í augum uppi, hvað hann var að fara. Þetta má allt satt og rétt vera, getur líka verið endemis rugl. En gat útvarpsráð ekki fengið tvo oi'ðfæra menn, annan úr aðdáendahópi H. L., sem hældi þá upp í hástert, og svo mann, sem þorði að segja það, sem þess ir náungar sögðu, að þeir skildu þetta ekki og bæta því svo við, stutt einstaka dæmi, að hann teldi þetta rugl og þvætting. Ég held að höfundurinn hefði gott af því. Það er engum hollt að komast á þann tignartrón, að allt hljóti að vera ágætt, sem frá honum kemur, fyrir þeirri snöru varð H. L. fótaskortur í Para- dísarheimt, svo eitt dæmi sé nefnt, og skildi ekki þarna vera eitthvað áþekkt smíði? Af þeim umræðum, sem þarna fóru fram, get ég mér þess fullkomlega til. Ógetið er eins óskemmtilegs í sambandi við þetta tal Ólafs og Sverris: Genial konkrets paradíu- máls þeirra svo örfátt eitt sé nefnt, sem þeir krydduðu ræður sínar með. Það tala svo margir útvarps- menn sæmilega íslenzku, að það ætti að vera 'hægt að komast hjá því, að særa eyru almenn- ings á þann hátt sem hér var gert. Sv. Kr. hefur talað sæmi- legt mál, hafi hann mælst einn við. Má vera að Ól. J. geti það einnig. Samræðuhæfir eru þeir ekki. Fjalli 19. nóvember 1968. Ketill Indriðason. Þreffán nýjar bækur frá Æskunni BARNABLAÐIÐ Æskan sendir frá sér á þessu hausti 13 nýjar bækur, þar af 10 bækur fyrir börn og unglinga. — Bækurnar eru: Gaukur keppir að marki. Þetta er drengjasaga, eftir Hannes J. Magnússon, fyrrver- andi skólastjóra á Akureyri. Hannes hefur sent frá sér rnarg- ar barnabækur, sem allar hafa komið út hjá Æskunni. — Þessi bók er framhald af sögunni Gaukur verður hetja og segir frá Gauki og félögum hans í gagnfræðaskóla. Þeir stofna bindindisfélag innan skólans, sem verður fjölmennt og áhrifa mikið. Ævi Gauks verður við- burðarik þennan vetur. Hann á andstæðinga innan skólans, en sigrar þá með góðvild og dreng skap. í lok sögunnar gerist ein- stæður atburður, sem gjörbreyt ir öllu lífi Gauks og móður hans. Eygló og ókunni maðurinn. Höfundur þessarar bóka, hjón in Rúna Gísladóttir og Þórir S. Guðbergsson, eru án efa mörg- um kunn af fyrri bókum þeirra og starfi í sumarbúðum í Vatna skógi og Vindáshlíð. Eygló og ókunni maðurinn er fyrsta sam- eiginlega bók þeirra. Eygló og vinkona hennar, Ingibjörg, eru grunaðar um þjófnað á dansleik. Gátan verður torráðnari og margt gerist. Eygló og ókunni maðurinn er skáldsaga fyrir ungar stúlkur. Hrólfur hinn hrausti. Hér kemur nýr, ungur höf- undur fram með sína fyrstu bók, sem er bæði ævintýraleg og skemmtileg víkingasaga. Höf- undurinn, Einar Björgvins, er fæddur þann 31. ágúst 1949 í Krossgerði í Berufjarðarströnd, Suður-Múlasýslu, sonur Björg- vins Gíslasonar, fyrrverandi oddvita og Rósu Gísladóttur, konu 'hans. Einar byrjaði snemma að skrifa. Hafa birzt eftir hann tvær framhaldssögur í tímaritinu „Heima er bezt“ og smásögur í Æskunni. Fimm ævintýri. Hér birtast fimm ævintýri í einni bók eftir Jóhönnu Brynj- ólfsdóttur. Höfundurinn hefur áður skrifað mörg fögur ævin- týri fyrir börn og unglinga, sem hafa á undanförnum árum birzt í blöðum og mörg þeirra verið flutt í barnatíma Ríkisútvarps- ins. — Hin fimm ævintýri, heita: Svanurinn, Hamingjublómið, Snæljósið, Vinirnir og Blóma- ríkið. Bláklædda stúlkan. Höfundur þessarar sögu er Lisa Euréen-Berner, sem er þekktur kvenrithöfundur í Sví- þjóð. Guðjón Guðjónsson, fyrr- verandi skólastjóri þýddi. Aðal persónur sögunnar eru Stína, fátæk skrifstofustúlka, og ungur verkfræðingur, Anderson. Sag- an gerist á fámennu gistihúsi úti á landi í Svíþjóð. Þangað hefur Stína leitað til að hvílast í sumarleyfi sínu, vegna veik- inda, og þar gerast mörg ævin- týri, sem endar með giftingu. A leið yfir úthafið. Þessi bók er sú fyrsta í nýjum bókaflokki er nefnast Frum- byggjabækurnar, en í þessum bókaflokki eru alls átta bindi. Þessi fyrsta bók segir frá mörg- um æsandi atburðum, sem Knút ur og vinir hans lenda í á leið- inni yfir Atlandshafið. Knútur lagði sig í lífshættu við að bjarga dreng, sem féll útbyrðis. í stórborginni kynnast þeir Knútur og Eyfi góðum götu- strákum, sem hjálpa þeim. Nærri lá, að Indíánar rændu pabba drengjanna, en með snaræði slapp hann þó úr hönd- um þeirra. Næsta bindi, sem kemur á næsta ári heitir: Á leið yfir sléttuna. Höfundur er Elmer Horn, en Eiríkur Sigurðs son, fyrrverandi skólastjóri þýddi. Tamar og Tóta. Höfundur bókarinnar, Berit Brænne, er norsk skáldkona, sem hlotið hefur miklar vin- sældir m. a. fyrir barna'bækur sínar, og þá ekki sízt fyrir þriggja bóka samstæðuna um Tamar og Tótu. Þær bækur hafa komið út í mörgum útgáfum og á ýmsum þjóðtungum. Tamar er umkomulaus Ara'ba drengur, en Tóta er norsk telpa, sem fær alltaf öðru hverju að sigla um öll heimsins höf með foreldrum sínum, því að pabbi hennar er skipstjóri á flutninga skipi. — Sigurður Gunnarsson, skólastjóri þýddi bókina. Sögur fyrir börn. í þessari bók birtast 13 smá- sögur fýrir börn, eftir hið heims fræga rússneska skáld Lev Tolstoj, í þýðingu Halldórs Jóns sonar, ritstjóra. Sögurnar heita: Litla stúlkan og sveppirnir, Kettlingurinn, Plómusteininn, Fuglinn, Ósannsögli drengurinn, Hákarlinn og Ljónið og hvolpur inn. Bókin er prýdd mörgum- fögrum myndum. Krummahöllin. Krummi hefur verið mikið á dagskrá hjá börnum að undan- förnu í sambandi við barnatíma sjónvarpsins. Hér birtist ævin- týri um krumma, eftir Björn Daníelsson, skólastjóra. Myndir í bókina gerði Garðar Loftsson. 15 ævintýri Litla og Stóra. Hér hefst útgáfa á nýjum myndasöguflokki. í þessu fyrsta BUNDIÐ SVO nefnist nýútkomin ljóða- bók eftir Jón Benediktsson (frá Breiðabóli) fyrrv. yfirlögreglu- þjón á Akureyri, og er útgef- andi Skjaldborg s.f., nýtt út- gáfufyrirtæki í bænum. Fyrir 16 árum kom fyrri ljóðabók höf undar út, og nefndist hún SÓL- BROS. Heiti bókarinnar er réttnefni, Jón Benediktsson. hefti birtast 15 skemmtileg ævin týri þeirra félaga Litla og Stóra. en fyrir nokkrum árum voru þeir félagarnir fastir gestir á síðum Æskunnar. Næstu bækur í þessum nýja flokki eru vænt- anlegar á næsta ári. Ölduföll áranna. Þetta eru endurminningar Hannesar J. Magnússonar, fyrr- verandi skólastjóra á Akureyri. Bókin fjallar um starfsár höf- undar og er þar að finna mikinn fróðleik um menn og ýmis fé- lagsmál og alveg sérstaklega um skólamál því það var vettvangur höfundar á löngum starfsferli. Skaðaveður 1897—1901. Þetta er fjórða 'bókin í þess- um bókaflokki. Fyrsta bók flokksins, Knútsbylur, kom út árið 1965. Til allra- bókanna í flokknum hefur Halldór Pálsson safnað, en um útgáfuna hefur annast Grímur M. Helgásön cand. mag. •- Úrvalsljóð Sigurðar Júl. Jóhannessonar. Þetta er fjórða bókin í Af- mælisbókaflokki Æskunnar. Þann 9. janúar 1968 voru liðin 100 ár síðan Sigurður fæddist, en hann var fyrsti ritstjóri Æsk unnar, sem var fyrsta barna- blaðið á íslandi. Formála og val ljóðanna hefur annazt Richard Beck, prófessor. í þessum Af- mælisbókaflokki Æskunnar hafa áður komið út: Móðir og barn, Hjálpaðu þér sjálíur og Dæmisögur Espós. Allar eru bækurnar prentað- ar í Odda h.f. □ Stúlka með ljósa lokka BÓKAFORLAG Odds Björns- sonar hefur sent frá.sér enn eina foók Jennu og Hreiðars Stefáns- sonar, Stúlkuna með ljósa lokka. Saga þessi er framhald af sög- unni, Stelpur í stuttum pilsum. Báðar eru bækur þessar um unglinga, skólaæskuna og vanda mál hennar og fyrir fólk á því aldursskeiði. Bækur Jennu og Hreiðars eru orðnar margar og af góðu kunnar. □ MÁL þar sem hún stendur fyllilega undir því, og er það út aí fyrir sig ánægjuefni að eiga völ á því' að lesa Ijóð í bundnu máli, svo mikla áherzlu sem menningar- leg útgáfufyrirtæki leggja nú á útgáfu og áróður fyrir órímuðu stagli, sem í auglýsingum eru nefnd „ljóð“, þó að gamlir Ijóða- unnendur skilji ekki þá skýr- ingu. Höfundur hefur aldrei farið dult með það, að hann telji gaml ar rímreglur og stuðlun máls ekki með öllu úreltar, þó að nú sé .svo komið í ljóðabókmennt- um okkar, að rímlausi tjaslarinn hálendið hræðist og höktir um lágan völl. Yrkisefni eru margvísleg, kon ur og ástir, samvistir kynjanna á flestum aldursstigum, sljórn- mál, eilífðarmál, skop og alvara í hæfilegri blöndun. Ástakvæði í fyrsta hluta bókarinnar er nokkuð á annan veg en maður hefur vanizt, þar sem hann bið- (Framhald á blaðsíðu 7). STEFÁN VALGEIRS- SON FIMMTUGUR STEFÁN VALGEIRSSON al- þingismaður er fimmtugur í dag, 20. nóvember. Hann er áhuga- samur ungmennafélagi, bindind ismaður, var um árabil trúnað- armaður verkamanna á Kefla- víkurflugvelli, en er nú einn helzti talsmaður bændastéttar- innar á Alþingi. Hann er sjálfur bóndi á föðurleifð sinni, Auð- brekku í Hörgárdal og varð þingmaður í Norðurlandskjör- dæmi eystra í síðustu alþmgis- kosningum. Stefán Valgeirsson nýtur vax andi trausts og virðingar, heima í héraði og á löggjafarsamkomu þjóðarinnar. Á þessum tímamót um árnar Dagur honum heilla og sjálfur þakka ég honum góð persónuleg margra ára kynni. E. D. Dáinn 10. marz 1968 Brotið er blað, birta dvín, reikar árroði, rís ekki sól. Verður svo veröld í vina augum, þá harmþrungnir horfa að hinzta beði. Minningar mætar milda þó sorgir. Bæn er beðin af bljúgum huga. Góði Guð, gef ástvinum styrk, lát þitt ljós lýsa þeim fram. Jenna Jensdóttir.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.