Dagur - 27.11.1968, Side 1
FIL.MU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SéRVERZLUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Sjónverpið
væntanlegl á
sunnudag
EF allt gengur að óskurn liefst
sjónvarpið á Akureyri og í
nágrenni á sunnudaginn kem-
ur, sagði Pétur Guðfinnsson
skrifstofustjóri útvarps blaðinu
í gær.
Stöðin á Hóli við Dalvík er
svolítið seinna á ferðinni. Sveit-
irnar, sem eru í sjónarlínu frá
endurvarpsstöðvunum á Skipa-
lóni og Vaðlaheiði, ennfremur
Akureyri, ná sjónvarpinu fyrst
á tæki sín. Ólafsfjörður kemur
síðar.
(Framhald á blaðsíðu 2)
Um 60 böm og unglingar Húsabakkaskóla í Svarfaðardal komu til Akureyrar á mánudaginn og skoðuðu Gefjun, Minjasafnið og Náttúru
gripasafnið. Með þeim voru auk skólastjórans, Óttars Einarssonar, Björn Daníelsson kennari og Hjörtur E. Þórarinsson forfallakennari. —
Svarfdælingar vel undir veturinn búnir
SEXTÍU manna hópur skóla-
fólks frá Húsabakka í Svarfaðar
dal heimsótti Akureyri á mánu-
daginn, prúð börn og unglingar
eins og vera ber úr sveit forset-
ans, skjóllega búin og hraustleg.
Kannski eru þar þó einhverjir
óróabelgir, sem sátu þó a. m. k.
á sti-ák sínum er ég kom til
þeirra á Hótel KEA, þar sem
þau fengu sér hressingu.
Fréttaritarar blaðsins í Svarf
aðardal og Dalvík sögðu svo frá,
að bændur hefðu mikil og góð
hey að þessu sinni og væru því
vel undir veturinn búnir og lítt
hefur fé verið gefið til þessa þar
í sveit. Það bar til tíðinda þar í
sveit, að kvöld eitt voru saman
komnar 80 konur, heimakonur
og boðsgestir þeirra, konur af
Árskógsströnd. Er sagt, að kon-
urnar hafi skemmt sér mjög vel,
án karlmanna og e. t. v. vegna
þess. Þar kvað frumsamdar rím
ur og aðrar frú Birna Friðriks-
dóttir og þótti nýlunda og takast
vel. Hóf þetta fór fram á Melum.
Búnaðarfélag sveitarinnar
gekkst fyrir bændaför til Suður
lands í sumar og var landbún-
aðarsýningin skoðuð um leið.
Þátttakendur voru um 60, kon-
ur og karlar. Það bar við í þeirri
för, að forseti íslands dr. Kristj-
án Eldjárn, bauð þessu fólki
heim til sín að Bessastöðum og
var það fyrsta heimboð nýs for-
seta. Var þar vinafundur enda
forsetinn Svarfdælingur. Sveit-
ungar hans færðu honum að
gjöf skeifu eina allslitna, undan
gömlum og ágætum reiðhesti
hans, Hring. Var skeifan fest á
skjöld, ásamt áletruðum silfur-
skildi.
Úr Svarfaðardal hugsar nú
(Framhald á blaðsíðu 2)
STJORNUNARFELAG NORÐURLANDS EFNIR
TIL FUNDAR Á AKUREYRI-Á LAUGARDAG
Bókhald fyrirtækja
sem st j órnunar tæki
STJÓRNUNARFÉLAG Norður
lnds hyggst efna til fundar um
bókhald fyrirtækja sem tækis
til stjórnunar. Ætlun félagsins
með fundi þessum er m. a. sá
að ræða sérstaklega með hvaða
hætti félagið gæti orðið að sem
Niðursuðuverksmiðj an er nú komin í gang
HRAEFNIÐ ER FLITT AÐ SUNNAN A BILUM
NIÐURSUÐU VERKSMIÐ J A
K. Jónssonar & Co. á Akureyri
hefur ekki verið starfrækt und-
anfarnar vikur vegna hráefnis-
■skorts, en er nú tekin til starfa
á ný og vinna þar um 50 manns.
Hráefnið, sem unnið er úr, er
ca. 20 cm. síld, veidd syðra, fryst
og flutt á bílum hingað norður.
Veiði síldar af þessari stærð er
óleyfileg, en undanþága var
veitt til þessarar starfsemi og
bíður nú nokkurt magn þessar-
ar síldar, frystrar, á Akranesi.
Verksmiðjan hér vinnur úr
fimm tonnum á dag þessa dag-
ana og framleiðir svonefnda
smjörsíld, sem er herramanns-
matur. En Sovétríkin hafa verið
aðal kaupendur hinnar niður-
lögðu síldar frá Akureyri. Er
væntanleg samninganefnd frá
þeim innan skamms, og verður
þá fjallað um sölu næstu árs-
framleiðslu.
Þótt niðursuðuverksmiðjan
vinni ekki með fullum afköst-
um, er því fagnað, að hún skuli
nú starfa, þar sem mjög hefur
aukizt atvinnuþörfin í bænum
og útlit fyrir að þessi atvinna
haldist næstu vikur, ef flutninga
tafir hamla ekki, en flytja verð-
ur síldina eftir hendinni því
frystigeymslur vantar hér.
í desember og janúar sl. veidd
ist smásíld hér og var þá lögð
MenningarlíY en lítil er atvinnan
Gunnarsstöðum 26. nóv. Þótt
veður væru góð þar til nú, hefur
afli verið tregur og heldur dauft
f
I
I
i
1
I
f Verkamaðurinn er
J
| orðinn fimmtugur
| BLAÐIÐ VERKAMAÐURINN á Akureyri minnist
um þessar mundir hálfrar aldar afmælis síns með út- <-s
gáfu 64 síðu almælisblaðs. Efni blaðsins er fjölbreytt
& og myndskreytt.. Ritstjóri Verkamannsins er Þorsteinn ®
|- Jónatansson. — Dagur sendir Verkamanninum sínar f
© beztu óskir og árnar honum allra heilla á þessum tíma- f
f mótum. t
yfir athafnalífinu á Þórshöfn. En
menningarlífið er töluvert blóm
legt hér um slóðir, síðan atvinn-
an dapraðist, því eitthvað verða
menn að hafa fyrir stafni er
tómstundir gefast.
Á laugardaginn kom söng-
flokkur úr Vopnafirði og söng
hann undir stjórn Árna Ingi-
mundarsonar, bæði karlakór og
blandaður kór. Undirleikari var
Ögmundur Pálsson og einsöngv
ari Kristbjörg Gunnarsdóttir.
Þá flutti Stefán Ásbjarnarson,
Guðmundarstöður í Vopnafirði,
frásagnarþátt. Leikfélag Þistil-
fjarðar æfir Skugga-Svein um
þessar mundir.
Flestir náðu heyjum sínum í
góðu tíðinni en léleg munu þau
hafa verið orðin. f gær var föl,
nú er rigning. Ó. H.
niður. Vart hefur orðið smá-
síldar nú í firðinum, þótt ekki
hafi hún veiðzt til gagns, en
þetta gefur þó vonir um, að sú
veiði geti glæðst á næstu mán-
uðum eins og í fyrravetur og
verður þá nóg að starfa í niður-
suðuverksmiðjunni.
Merk nýjung.
Telja verður það merka nýj-
ung hér, og mun mega þakka
hana samstarfi Atvinnumála-
nefndar bæjarins og atvinnu-
rekenda, að hráefni er flutt að
sunnan til atvinnuaukningar í
bænum. En knýjandi nauðsyn
er að auka frystirými hér í bæ
vegna fiskiðnaðarins og atvinn-
unnar. □
mestu liði þeim aðilum, sem
óska upplýsinga þess og aðstoð-
ar, til þess að betrumbæta bók-
hald sitt í því skyni að það komi
að meiri notum við stjórnun við
komandi fyrirtækja.
Á fundinum mun Finnbogi
Jónasson, yfirbókari KEA,
halda erindi um bókhald og efnt
verður til hópumræðna um nið-
urstöður bókhalds fyrirtækis og
umræðna um þær niðurstöður
sem hóparnir komast að. Fund-
armönnum mun einnig gefast
kostur á að skoða vélabókhald
KEA.
Fundurinn hefst kl. 10 f. h. á
(Framhald á blaðsíðu 7)
Happdrætti Fram-
sóknarflokksins
ÞEUt, sem hafa fengið senda
miða, en hafa ekki gert skil, eru
vinsamlegast beðnir að gera það
hið allra fyrsta, þar sem dregiíí
verður n. k. mánudag. Skrif-
stofa flokksins — Hafnarstræti
95 — er opin kl. 4—7 alla daga.
Einnig má gera skil á afgreiðslu
Dags. □
Dökkl útlitið á Raularhöln
Raufarhöfn 26. nóv. Hér er kom
inn hríðarhraglandi en jörð snjó
laus ennþá. Útlitið í atvinnu-
málum er mjög dökkt. 55 voru
skráðir atvinnulausir um síð-
ustu mánaðamót og hefur fjölg-
að síðan.
Hlutafélag hefur verið stofnað
af sveitarfélaginu og einstakl-
ingum til að byggja' upp á ný,
frystihús kaupfélagsins, sem
brann í fyrra. Eru bundnar
nokkrar vonir við vinnu við þá
byggingu og ekki síður bætta
aðstöðu ef tekst að gera frysti-
húsið starfhæft á ný.
Síldin frá í sumar er að mestu
farin. Einn dekkbátur og nokkr
ir minni hafa róið dálítið í haust
en lítið aflað. Erfitt er líka,
vegna vöntunar á frystihúsi, að
koma aflanum í verð.
Hér hafa samgöngur verið
góðar — tvær flugferðir í viku
og vegir góðir undanfarnar vik-
ur. H. H.