Dagur - 27.11.1968, Page 2
2
SMATT
(Framhald af blaðsíöu 8).
ÞURFUM AÐ SPARA
En lítum í eigin barm og hug-
leiðum gjöld og tekjur. Á tíni-
um ört minnkandi kaupgetu
þarf fólk að takmarka margvís-
lega eyðslu, sem í allmörgum
atriðum er orðin vanaeyðsla.
Skemmtanir, bílakostnaður, vín,
tóbak eru útgjaldaliðir, sein
víða er auðvelt að lækka. Jafn-
vel raforku og olíu til upphitun-
ar, er hægt að nota skynsam-
legar en gert er o. s. frv. Og það
er líka hægt að spara jólagjaf-
irnar, þ. e. velja þær hóflegri en
verið hefur algengast um árabil.
Smágjafir eru skemmtilegastar
Dg liafa alltaf verið það, þar sem
hugkvæmni er í öndvegi en
verð í hófi, vclast gjafir við
hæfi.
GLÆPAFARALDUR
I höfuðborginni gengur glæpa-
iaraldur eins og umgangspest,
það staðfesta daglegar fregnir
útvarps og blaða. Rán á götum
úti um hábjartan daginn, inn-
brot, oft á mörgum stöðum
sömu nóttina, livarf fólks og
niorð og auk þess eiturlyfja-
neyzla. Allt eru þetta ógnvekj-
andi fréttir ur höfuðborg lands-
ins og bendir á siðferðilega upp-
lausn eða ónóga löggæzlu,neina
hvorttveggja sé.
MÓTMÆLAALDA
Gengisfellingarákvörðun stjórn-
arinnar mætir hvarvetna harðri
gagnrýni, enda er hún harkaleg
árás á lífskjör launþega, Al-
þýðusamband íslands með sína
15 þús. félaga hefur sagt upp
samningum. Er auðsætt, að liin
harkalega stefna stjórnvalda
mætir ekki aðeins gagnrýni,
beldur mun hún mæta þeirri
andstöðu í verki, sem launþega-
samtökin nú hafa gefið til
- Bændáklúbburinn
(Framhald af blaðsíðu 8).
■annsóknarstofu og hefði nýlega
verið ráðinn maður til þess að
nafa á hendi framkvæmd þeirra
rannsókna. Lagði Guðbrandur
mikla áherzlu á, að allar þessar
rannsóknarstöðvar yrðu elfdar,
5vo sem kostur væri á og taldi
oær hafa svo mikið þjóðhags-
legt gildi, að full ástæða væri
iil, að ríkið bæri verulegan hluta
iostnaðar við rannsóknarstarf-
.semina.
Miklar umræður urðu um
nálið, að erindinu loknu og
oáru margir fram fyrirspurnir,
sem frummælandi svaraði mjög
ítarlega.
Þessir tóku til máls, auk fram
sögumanns: Árni Jónsson, Ólaf-
ur Jónsson, Jónas Kristjánsson,
Sigurjón Steinsson, Jón Bjarna
;5on, Vernharður Sveinsson og
Árni Jóhannesson.
Ræðumenn rómuðu mjög
erindi dýralæknisins og tóku í
sama streng um þýðingu skipu-
lagsbundinna rannsókna á þessu
sviði.
Ármann Dalmannsson stjórn-
aði fundinum og gat þess í fund
arlok, að þetta yrði síðasti fund-
ur Bændaklúbbsins á þessu ári.
Bar hann fram í nafni Búnaðar-
sambandsins þakkir til þeirra,
er fundina hafa sótt og lagt þess
ari starfsemi lið. Gerði hann ráð
fyrir framhaldsstarfsemi á
næsta ári. □
&STORT
kynna, að koma muni. En ef til
átaka kemur í kaupgjaldsmál-
um nú, sprettur upp fyrsti vísir
fimmtu gengisfellingarinnar.
FORELDRAFUNDIR
Margir, bæði foreldrar og kenn-
arar hafa fundið sárt til þess,
hve barnaskólar og heimili hafa
litla samvinnu. Bamaskólinn á
Akureyri hefur alls haldið 12
foreldrafundi og er sú leið mjög
til fyrirmyndar.' Síðasti for-
eldrafundurinn þar var 21. nóv.
s.I. Þann dag áttu börnin frí en
foreldrarnir komu í skólann í
staðinn og ræddu við kennara
og skólastjóra um börn sín og
nám þeirra í skólanum. Svo vill
til, að í Barnaskóla Akureyrar
eru um 750 börn. Og viðtöl þau,
er þennan dag fóru fram, milli
kennara og foreldra voru álíka
mörg. Slíkt samstarf er mjög
nauðsynlegt og á að geta borið
hinn.mesta árangur. Foreldra-
fundir hafa líka verið haldnir í
hinum barnaskólunum.
FER UPPTAKA ÞAR FRAM?
Eins og fram kom í viðtali Dags
við Þorstein Ö. Stephensen á
dögunum, er nú í undirbúningi
að upptaka talaðs máls og hljóm
listar fyrir ríkisútvarpið fái
bætta aðstöðu hér í bæ. Eftir
gagngerða viðgerð í Barnaskóla
Akureyrar og hins nýja leik-
sviðs, virðist þár vera kjörinn
staður fyrir slíka starfsemi, að
því er kunnáttumenn telja. —
Hafa viðræður farið fram um
málið og ekkert líklegra en
niðurstaðan verði sú, að upp-
taka fyrir ríkisútvarpið fari
eftirleiðis; fram í þessum elzta
barnaskóla bæjarins.
- Svarfdælingar
(Framhald af blaðsíðu 1).
enginn til flutnings þótt eitthvað
kunni. á það að skorta, að állir
bændin- Séu ánægðir með kjör
sín. Börnin í Húsabakkaskóla
hafa í vetur mikið verið á skaut
um á tjörn einni hjá skólanum.
Hegrar tveir voru við tjörnina
um vikuskeið og stríddu hrafn-
ar þeim mjög. Hegrar þessir
voru stórir og miklir fuglar.
Fluglag þeirra er einkennilegt.
Fullt vör af gæsum í haust.
Nokkurt gæsavarp er í tung-
unni við dalamót Svarfaðar- og
Skíðadals. Gæsirnar koma svo
niður eftir ánni með unga sína
lítt þroskaða, þangað sem eru
fergis- og stararlönd neðar í
dalnum. Síðar gera gæsirnar tíð
reist í berjabrekkur austan og
vestan dalsins og eru þær fljótar
að tína bláberin.
Á Dalvík hefur verið nær
óslitin vinna við frystihúsið.
Björgvin landaði 35 tonnum þar
í fyrradag og nokkru áður lagði
hann þar upp 50 tonn. En auk
þess hefur fiskpr verið fluttur
frá Akureyri.
Kvenfélagið hélt dansleik um
síðustu helgi, til ágóða fyrir
væntanlegt elliheimili á Dalvík.
Karlakórinn er byrjaður að æfa.
Söngstjórinn, Gestur Hjörleifs-
son, átti sextugsafmæli á föstu-
dginn og fjölmenntu menn heim
til hans af því tilefni.
Enn er unnið við hafnarfram-
kvæmdir og mun svo gert með-
an tíð leyfir.
Þorgeir Pálsson hélt málverka
sýningu á Dalvík um helgina.
Meiri sérhæfi
UM ÞESSAR MUNDIR standa
fyrir dyrum all-verulegar breyt
ingar á starfsemi Bíladeildar
SÍS, en deildin hefur sem kunn-
ugt er umboð hér á landi fyrir
General Motors bifreiðir.
Tilgangurinn með breytingum
þessum eru þríþættur:
1. Að stuðla að bættri vara-
hlutaþjónustu með því að koma
upp sérhæfðum ÞJÓNUSTU-
MIÐSTÖÐVUM fyrir þær þrjár
megintegundir bifreiða, sem
deildin annast sölu á, en það eru
Chevrolet frá Ameríku, Opel
frá Þýzkalandi og Vauxhall/
Bedford frá Bretlandi.
2. Að bæta aðstöðu til sölu á
nýjum bifreiðum með því að
auka verulega þá sölu- og sýn-
ingaraðstöðu, sem þegar er fyr-
ir hendi í þessu skyni.
3. Að koma upp aðstöðu til
sölu á notuðum bílum, en fram
að þessu hefur Bíladeildin ekki
haft yfir slíkri aðstöðu að ráða.
Þjónustumiðstöðvum fyrir
Opel annars vegar og Vauxhall/
Bedford hins vegar mun Véla-
deildin koma upp í samvinnu
við þau fyrirtæki, sem um ára-
bil hafa annazt viðgerðarþjón-
ustu á þessum tegundum. Er
hér um að ræða Bifreiðaverk-
stæði Péturs Maack Þorsteins-
sonar fyrir Opel og Vélverk h.f.
fyrir Vauxhall/Bedford.
Mun Véladeild SÍS annast inn
flutning varahlutanna, telex-
þjónustu, verðlagningu o. s. frv.,
en hins vegar mun smásalan og
höndum Vélverks og Péturs.
Eru báðir þessir aðilar að koma
sér upp mjög ákjósanlegu verzl-
unarhúsnæði í þessu skyni, Vél
verk að Bíldshöfða 8 og Pétur
að Nýbýlavegi 10, Kópavogi.
Varahlutasalan fyrir amerísku
bifreiðirnar Chevrolet, Buick
o. fl. verður áfram í húsakynn-
um Véladeildar SÍS að Ármúla
3, en að Ármúla 7 er bifreiða-
verkstæði Eyjólfs Jónssonar,
sem um árabil hefur sérhæft
sig í þjónustu þessarra bifreiða-
tegunda.
Með breytingu þessari er
stefnt að meiri sérhæfingu í
varahlutaþjónUstunni en fram
að þessu hefur verið unnt að
koma við, er varahlutir í allar
bifreiðategundir frá General
Motors voru seldir í gegnum
eina smásöluverzlun.
Þetta fyrirkomulag tryggir og,
að í næsta nágrenni við hverja
varahlutaverzlun verða sérfróð
ir menn um viðhald og viðgerð-
- SJÓNVARPIÐ
(Framhald af blaðsíðu 1).
Búist er við, að Skagafjarðar-
svæðið fái sjónvarpið litlu síðar
eða fljótlega upp úr áramótum,
ef ekert óvænt kemur fyrir. —
Stöðin á Eggjum ofan við
Tunguháls tekur fyrst á móti
sjónvarpsgeislanum frá Skála-
felli og endurvarpar síðan yfir
syðri hluta Skagafjarðar, en
jafnframt til endurvarpsstöðvar
hjá Svanavatni á Hegranesi
sunnanverðu. En endurvarps-
stöðin þar er mikið mannvirki
og stendur á Hegrabergi. Sú
stöð nær yfir allt lálendi Skaga
fjarðar, þar með Saurárkrókur
og Hofsós. Norður með Skaga-
firði austanverðum verður stöð
byggð og sennilega verður Siglu
fjörður tengdur í framhaldi af
henni, en ekki frá Eyjafirði.
Til gamans má geta þess, að
fyrsta lugardaginn, sem við njót
um sjónvarps hér á Eyjafjarðar
svæðinu, verður sjónvarpað m.
a. þætti er nefnist Akureyri í
septembersól og Hljómsveit Ingi
mars Eydals mun einnig láta til
sín heyra. □
ng í varálulaþjónustu
ir, sem viðskiptavinir geta leit- gerðar á hlutaðeigandi verk-
að til um álit og ráðleggingar, stæði/eða ekki.
alveg án tillits til þess, hvort (Fréttatlkynning frá Véla-
bifreiðin verður færð til við- deild SÍS).
- FRÁ BÓK AMARKAÐINUM
(Framhald af blaðsíðu 5).
gerð í Litróf en káputeikning
hjá auglýsingastofunni Argus.
Bækur Kvöldvökuút-
gáfunnar 1968
HAFÍS VIÐ ÍSLAND
Efni þessarar bókar er frá-
sagnir af baráttu þjóðarinnar
við hafísinn bæði fyrr og síðar.
Guttormur Sigúrbjarnason,
jarðfræðingur, ritar fróðlega og
skemmtilega grein um myndun
hafíssins, ferðir hans um heims-
höfin og áhrif á veðurfar.
Lýst er erfiðleikum og hætt-
um íslenzkra sjómanna, er sigla
þurftu í gegnum ísinn og halda
uppi samgöngum við sjávarþorp
in á ísasvæðinu.
Bændur í afskekktum byggð-
arlögum segja frá ævilöngum
kynnum af hafísnum og reynslu
sem þeir og forfeður þeirra öfl-
uðu sér í þeirri baráttu. Þá segja
gamlir menn frá því, hvernig
þeir horfðu á fugla, seli og hvali
heyja vonlausa baráttu við haf-
ísinn, og rifja upp gamlar bjarn
dýrasögur.
Bókinni er ætlað að vera
spegilmynd af áhrifum hafíssins
á þjóðlífið og baráttu manna og
dýra við „landsins forna fjanda“.
Tíu menn víðsvegar um land-
ið leggja til efni í bókina. Hún
er 227 blaðsíður og prýdd fjölda
mynda. Verð kr. 430.00 án sölu-
skatts.
AÐ HANDAN
Að handan er bók, sem list-
málarinn Grace Rosher hefur
ritað ósjálfrátt og séra Sveinn
Víkingur snúið á íslenzku. Bók
þessi, sem félagssamtök enskra
presta hafa gengizt fyrir að gef-
in væri út, flytur boðskap um
lífið eftir dauðann og hvað við
tekur bak við sjóndeildarhring-
inn. Bók þessi er einstök í sinni
röð, því þar er skyggnst inn í
veröld, sem hingað til hefur að
mestu verið hulin. Hún er 150
blaðsíður og kostar kr. 320.00 án
söluskatts.
FIMMTÍU VÍSNAGÁTUR
eftir séra Svein Víking
Ollum mun ennþá vera í
minni hinar bráðsnjöllu gátur,
sem séra Sveinn Víkingur varp-
aði stundum fram í erindum sín
um um daginn og veginn.
Skákfélag Akureyrar
KEPPNTN í Haustmóti Skák-
félags Akureyrar er nú mjög
jöfn og spennandi og er staðan
þessi eftir 8 umferðir.
Meistaráflokkur:
1.—2. Kristinn Jónsson 6 v.
1.—2. Halldór Jónsson 6 v.
3.—4. Jón Björgvinsson 5 v.
3.—4. Hjörleifur Halldórss. 5 v.
1. flokkur:
1. Rúnar Búason 6 v.
2.—3. Jóhann Sigurðsson ÍV2 v.
2.—3. Þóroddur Hjaltalín 4% v.
Næsta umferð verður tefld í
kvöld (miðvikudag) kl. 8 e. h.
í Alþýðuihúsinu. □
Nú hefur séra Sveinn frum-
samið fimmtíu vísnagátur, sem
hér birtast á prenti. Væntir út-
gáfan þess, að allir þeir, sem
yndi hafa af að ráða hnyttnar
gátur, muni eiga eftir að hafa af
því góða dægradvöl, að finna
hin réttu lausnarorð.
Bókin kostar kr. 90.00 án sölu
skatts.
F.yrsta bindi af „MYNDIR
DAGANNA“ endurprentað
Fyrsta bindi af hinu vinsæla
ritsafni séra Sveins Víkings
„Myndir daganna" hefur nú ver
ið endurprentað. Ritsafn þetta,
sem hlotið hefur óvenjulega góð
ar viðtökur, mun nú fást aftur
í bókabúðum.
Ritsafnið allt, þrjú bindi, kost
ar nú kr. 1000.00 án söluskatts.
- SKILJUM...
ina og nauðsyn hennar heldur
en eigin valdahagsmuni og
flokkshyggju. Nei, þetta krafta-
verkið gerðist ekki, í gær var
okkur tjáð að um ekkert sam-
komulag væri. að ræða, og að
allri samkomulagsviðleitni væri
lokið. Allir flokkar sammála um
það — að spara þegnskapinn. —
Og svo er fólkið beðið að spara!
Fólkið í sveitunum lætur sér
fátt um finnast, það er farið að
kannast við lausnárórðin: Færri
bændur — fleiri banka. Við í
borginni yptum Öxlum.
Reykjavík, 10. nóv. 1968.
Árni G. Eylands.
- ODDVITAR
(Framhald af blaðsíðu 8).
vatnssýsla, hefuriofað að standa
fyrir greiðslu allra sinna hreppa
og er það til fyrirmyndar.
Stjórn Styrktarfélags van-
gefinna hefur af þessu tilefni
beðið blaðið fyrir eftirvarandi;
ORÐSENDING
til bæjarstjórna og sveitar-
stjórna í Norðlendingafjórðungi
frá Styrktarfélagi vangefinna
Akureyri.
Hæli fyrir vangefið fólk á Norð-
urlandi er í uppbyggingu á Ak-
ureyri. Öllum bæjarfélögum og
hreppum norðanlands hefur
(með bréfi okkar 1. des. 1966)
verið gefinn kostur á að eiga
hlut að rekstri stofnunarinnar
með (minnst) 10 kr. gjaldi af
íbúa hverjum, árlega, meðan
starfrækslan er að komast á
legg. Flestir kaupstaðirnir og
allmargir hreppar hafa gefið
jákvæð svör og sumir sent til-
lög sín. Fyrir það þökkum við.
Alltof margir hafa enn ekkert
látið frá sér heyra.
Fyrir hönd stjórnar þessarar
væntanlegu stofnunar ber ég
nú fram þau tilmæli, að lofuð
framlög verði send mér fyrir
næstu áramót. Þá, sem ekki
hafa svarað fyrrnefndu bréfi
okkar, biðjum við að láta það
ekki dragast fram yfir næstu
áramót.
Vinsamlegast,
f. h. stjómar Styrktarfélags
vangefinna, Akureyri.
Jóhannes Óli Sæmundsson,
f r amkvæmdastj óri,
pósthólf 267, Akureyri.