Dagur - 27.11.1968, Síða 8
8
C^/V'/VV'/'/VWV^VWVn^//v/^/s/WV^V'A/W^AAA/>/^/«A/s/«A/^AA/>/«^AAA^/^/'A/^v//s/ /V'/'/W'/'/S^/W'/'^/-/>/s^/-A/V«/VnA/-/«A/W\//'/'/«/'/«/S/«/<
SMÁTT & STÖRT
Hrímið skreytir trén í bænum. (Ljósm.: E. D.)
MINNA DRUKKIÐ
Samkvæmt umsögn lögreglunn-
ar er nú minni drykkjuskapur í
bænum en áður. Mun þar að
nokkru ráða minnkandi kaup-
geta og má segja, að fátt er svo
með öllu illt, að ekki boði nokk-
uð gott. Fyrir helgina urðu
margir árekstrar enda hálka á
vegum, og þá lenti bifreið fram
af Spítalavegi Ökukona meidd-
ist vonum minna en bíllinn eftir
ástæðum.
FJÁRFESTING BANKANNA
Undir „viðreisn“ hafa aðalbank
ar landsins fjárfest 350 milljónir
og er þó yfirstandandi ár ótalið.
Virðist minni fjárþröng hjá
þeim en almenningi. Hjá bönk-
Júgurbolgan
i á síðastð bændaklúb
Frummælandi Guðbrandur Hlíðar dýralæknir
Á BÆNDAKLÚBBSFUNDIN-
UM að Hótel KEA í fyrrakvöld
mættu yfir 40 manns, þrátt fyrir
mjög ískyggilegt veðurútlit.
Guðbrandur Hlíðar dýralækn
ir flutti framsöguerindi á fund-
inum um rannsóknir á júgur-
bólgu í kúm, varnir gegn henni
Alþýðusðm-
ALÞYÐUSAMBANDSÞING,
hið 31. í röðinni, var sett í Súlna
salnum í Bændahöllinni á mánu
daginn. Fulltrúar voru 357 tals-
ins, en félagatala innan Alþýðu
sambandsins eru 35 þúsundir.
Forseti ASÍ, Hannibal Valdi-
marsson, setti þingið með ræðu,
sem birt hefur verið í blöðum.
Lagði hann áherzlu á, að við-
ræður verkalýðssamtaka og
ríkisvaldsins myndu markast af
stefnu þessa þings, en ekki værij
unnt að ganga til samninga, sem
bandingi lögþvingana. Hann
lýsti því yfir, að hann tæki ekki
endurkjöri, sem forseti samtak-
anna.
í gær hófst fundur að nýju.
Fór þá fram kosning þingfor-
seta. Tvær uppástungur komu
fram, um Björn Jónsson, Akur-
eyri og Guðjón Jónsson, Reykja
vík. Hlaut Björn 151 atkv. en
Guðjón 118, en 72 seðlar voru
auðir. Kosningin var endurtekin
og fór hún þannig, að Björn
hlaut 150 atkvæði en Guðjón
118, en 73 seðlar voru auðir,
(Alþýðuflokksmenn?). Annar
forseti var kjörin Herdís Ólafs-
dóttir, Akranesi og annar vara-
forseti Óskar Jónsson, Selfossi.
Hannibal Valdimarsson flutti í
gær skýrslu stjórnarinnar og
urðu ekki umræður um hana.
Og Eðvarð Sigurðsson flutti
frumvarp um lagabreytingar og
hafði hann ekki lokið máli sínu,
er blaðið hafði síðast spurnir afJ
og nötkun lyfja til lækninga,
sýndi hann einnig kvikmynd og
línurit til skýringar máli sínu.
Það kom fram í erindi dýra-
læknisins, að Mjólkursamsalan
í Reykjayík he.fði frá ársbyrjun
1967 rekið rannsóknarstöð, sem
hann.:veitir forstöðu. Gaf hann
mjög athyglisverðar upplýsing-
af um Hvað þær rannsóknir,
sem gerðar hafa verið, hafa leitt
í ljós. Einnig skýrði hann frá
rannsóknum,- er gerðar hafa ver
ið erlendis, þar sem slík starf-
semi er miklu lengra komin.
Danir standa mjög framarlega
á þessu sviði sem öðrum varð-
andi landbúnaðinn og hafa hald
ið uppi skipulagsbundinni rann-
sóknarstarfsemi síðustu áratugi.
Ræðumaður lagði áherzlu á
hve mikla fjárhagslega þýðingu
þetta hefði fyrir bændastéttina
og taldi, að mikið mætti um
bæta með góðu samstarfi milli
rannsóknarstofu, dýralækna og
mj ólkurf ramleiðenda.
Hjá Mjólkurbúi Flóamanna
hefur nú verið lagður grund-
völlur að slíkri rannsóknarstofu
og er byrjað að taka sýnishorn
til rannsóknar. Vernharður
Sveinsson mjólkurbússtjóri upp
lýsti einnig á fundinum, að
Mjólkursamlag KEA væri nú að
undirbúa vísi að júguíbólgu-
(Framhald á blaðsíðu 7)
Oddvifarnir seinir fil svars
STYRKTARFÉLAG vangefinna
á Akureyri hefur gefið sveitar-
og bæjarstjórnum kost á að
taka þátt í rekstri hælis á Akur
eyri fyrir vangefið fólk.
Nokkrar hafa svarað þessu og
lagt fram fé, en aðrar hafa ekki
svarað.
Eitt sýslufélag, Austur-Húna-
(Framhald á blaðsíðu 2).
Þorskurinii og íshúsið lialcla nú
uppi atvinuulífinu á Siglufirði
EN UM NÍUTÍU MANNS - KARLAR OG KONUR - ERU ATVINNULAUS
Siglufirði 26. nóv. Komin er
norðan krapahríð og fer veður
kólnandi, eftir þriggja vikna
hlýindi og veðurblíðu. íshúsið
hefur meiri framleiðslu fyrstu
10 mánuði þessa árs en allt árið
í fyrra. Það hefur tekið á móti
5200 tonnum fiskjar til fyrsta
nóv. og framleitt 51 þús. kassa.
Siglfirðingur er búinn að
lánda 1650 tö'nnum, og hóf hann
veiðar 10. febrúar. Vonin er bú-
in að landa um 870 tonnum, en
hún hóf ekki veiðar fyrr en um
miðjan júní. Aflinn hjá þessum
skipum hefur því verið mjög
sæmilegur. Bæði komu skipin
inn í nótt með afla. Aflatölur
þessar eru miðaðar við 20. nóv.
Línubátarnir: Hringur er bú-
inn að fara 29 róðra í okt. og til
20 nóv. og afla 131.6 tonn eða
4.5 tonn í róðri. Anna er búin að
fara 20. róðra á sama tíma og
afla 69.3 tonn eða 3.5 tonn í
róðri. Smábátarnir hafa fiskað
sæmilega bæði á línu og hand-
færi á gæftatímanum í nóvem-
ber. Miklar ógæftir voru í októ-
ber.
Togarinn Hafliði seldi fyrir
þrem dögum í Bretlandi, 181
tonn fyrir 10667 pund.
Meiri vinna hefur verið í ís-
húsinu en nokkru sinni áður.
Það eru því þorskurinn og ís-
húsið, sem hér halda uppi at-
vinnulífinu í ár. 1 íshúsinu vinna •
nær 200 manns. En stúlkurnar,
sem unnið hafa við niðurlagn-
ingu síldar og menn þeir, sem
unnið hafa í Tunnuverksmiðj-
unni, vantar vinnu, samtals um
90 manns. Þannig standa málin
í dag. En þessi fyrirtæki munu
ekki starfrækt fyrir áramót.
Síldin frá sumrinu er að
mestu farin. J. Þ.
um og sparisjóðum er talið að
vinni nú um eða yfir 2000
manns. Tíu arkitektar vinna nú
við teikningar að nýju húsi
Seðlabankans. Hér á Akureyri
undrast menn lánastarfsemi úti
bús Landsbankans og fjárfest-
ingu hans. Þetta útibú mun vera
að unga út öðru útibúi í Glerár-
hverfi og væri, samkvæmt því,
eðlilegt að ein tvö bankaútibú
væru uppi á brekkum. En hið
sanna er, að hér vantar ekki
bankastofnanir, heldur betri
bankastarfsemi.
KONUNGSGRÖF
Hér á Iandi hvílir aðeins einn
konungur — Hrærekur —. Kon
ungsgröf þessi er í friðlýstum
en ógirtum hól á Kálfsskinrii á
Árskógsströnd. Hól þennan þarf
að girða og merkja á varanlegan
hátt. Stórvirk tæki gætu á ein-
um degi —'af vangá — eyðilagt
hina gömlu konungsgröf. Hver
vill beita sér fyrir því, þar í
sveit, að gera hvorttveggja í
senn, varðveita staðinn og vekja
á honum verðuga athygli?
ER ÞETTA EINS OG
VERA BER
„f sumar og haust, er við höf-
um verið staddar á Akureyri, og
þurft að koma við á snyrtingu
kvenna undir kirkjutröppunum,
hafa verið þar fyrir allt upp í
tíu unglingsstelpur, á að gizka
tólf til fimmtán ára, sumar meðt
gosdrykki, sitjandi á gólfinu,
margar reykjandi og dimmt af
reyk inni. Þarna voru m. a.
bamfóstrur með smábörn úr
vögnum, og er ótrúlegt að for-
eldrum þyki dvöl á slíkum stað
æskileg fyrir þau“.
Undir þessa fyrirspurn skrifa
„tvær sveitakonur“.
JÓLAGJAFIRNAR
Ef að líkum lætur mun enginn
sá dagur að kveldi líða til jóla,
að ekki hækki verð á fleiri eða
færri tegundum þeirra vara, sem
fólki er nauðsyn að kaupa. Þetta
eru jólagjafir viðreisnarstjórn-
arinnar, sem gekk til siðustu
kosninga undir kjörorðinu::
„Stöðvunarstefna“. Svona grát-
brosleg eru orð og efndir æðstu
manna á okkar tíma.
(Framhald á blaðsíðu 2).
Aukin heyrnarhjálp á Akureyri
Á LIÐNU SUMRI buðu forráða
menn Heyrnarhjálpar í Reykja-
vík að þjálfa kennara á Akur-
eyri við heyrnarmælingar,
ásamt meðferð og stillingu á
heyrnartækjum. Eftir ósk skóla
stjóra Oddeyrarskólans, fór Sig
urður Flosason kennari suður
og kynnti sér þessi mál. Geta
má þess, að áður höfðu Lions-
menn á Akureyri gefið barna-
skólunum fullkomin heyrnar-
Lions-menn selja Jkerti o
LIONSKLUBBURINN Huginn
á Akureyri ætlar á laugardag-
inn að heimsækja bæjarbúa og
hjóða kerti, spil og fleira hent-
ugt til jólagjafa.
Ágóðanum verður varið til
líknarstarfa, svo sem áður hefur
verið.
Klúbbfélagar vænta þess, að
þeim verði vel tekið eins og
undanfarin ár.
Verð hvers pakka er hið sama
og áður, eða 100 kr.
Minn má á, að þessi klúbbur
hefur gefið tæki til Fjórðungs-
sjúkrahússins og stutt sjúkl-
linga til utanfarar. Meðal þess,
sem Lionsklúbburinn Huginn
hefur á dagskrá nú, er aðstoð
við æskulýðsheimilið við Vest-
mannsvatn. □
prófunartæki.
í byrjun nóvember var hafist
handa við að heyrnarprófa þau
börn við Oddeyrarskólann, sem
grunur lék á að væru heyrnar-
skert. Kom brátt í ljós, að mörg
þessara barna eru verulega
heyrnarskert, sum á báðum eyr
um. Starx og tími vinnst til,
munu öll börn í yngri deildum,
sem eiga í erfiðleikum með lestr
arnám, verða heyrnarprófuð, en
góð heyrn er undirstaða lestrar
námsins.
Þar sem öll skólaíbörn hafa
verið prófuð, hefur komið í ljós,
að allt að 6% barna hafa að ein-
hverju leyti skerta heyrn og
má í mörgum tilfellum rekja
orsakir til áramótasprenginga.
Margar þessar heyrnarskerðing
ar eru varanlegar og því full
ástæða til að benda foreldrum á,
að koma í veg fyrir að börn
þeirra leiki sér með hvellhettur
eða aðra hluti, sem framleiða
mikinn hávaða.
Hér á Norðurlandi, hefur ekki
verið um að ræða neina fasta
heyrnarhjálp. Reynslan hefur
þó sýnt, að fjölmargir þeirra,
sem nota heyrnartæki, eiga í
einhverjum erfiðleikum með að
stilla þau og gera við lítilfjör-
legar bilanir. Margir hafa því
gefizt upp við notkun tækjanna.
Þessu fólki skal bent á að snúa
sér til Sigurðar, sem mun eftir
getu veita því aðstoð og fyrir-
greiðslu. Hann hefur einnig til
sölu rafhlöðúr, hleðslutæki,
margs konar fylgihluti með
heyrnartækjum og útvegar
heyrnartæki. Sími hans er 12986
og er helzt að tala við hann eftir
kl. 6 e. h. á daginn. Með sím-
talinu er hægt að ákveða frek-
ari viðtalstíma. □