Dagur - 14.12.1968, Page 1
KL. TÆPLEGA 2 í fyrrinótt
kviknaði í rafmagnstöflu í kjall-
ara Fjórðungssjúkrahússins á
Hvassviðri var í gær
í GÆR var víða hvassviðri og
frétti blaðið af bílum hér í ná-
grenni, sem áttu í nokkrum
erfiðleikum þar sem svellalög
voru svo sem í Ljósavatnsskarði.
Akureyri, við kyndara. Slökkvi
lið var kallað á staðinn. Tjón af
eldi varð lítið, en reykur fór um
kjallarann.
Mikið hálka var í gærmorgun
á götum bæjarins. Smáárekstrar
hafa orðið undanfarna daga,
ölvunartilfelli nokkur, sem lög-
reglan hefur haft afskipti af. —
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar. Q
VESTMANNAEYINGAR eru
sjómanna sárreiðastir yfir því,
að teknir hafa nú verið togbátar
að veiðum og þeir sektaðir í al-
vöru en gamlir sökudólgar náð-
aðir á 50 ára fullveldisafmæl-
inu. Hafa Vestmannaeyingar í
hyggju að fara á 40 bátum til
veiða í landhelgi og ekki í laumi,
og á þetta að vera til að mót-
mæla hinu nýja viðhorfi. Hvort
af þessu verður, skal ósagt látið,
en þótti líklegt í gær, er blaðið
hafði spurnir af og fær Land-
helgisgæzlan þá nóg að starfa.
Hér er viðkvæmt mál en óvið
unandi eins og það var fram að
1. desember. Q
LI. árg. — Akureyri, laugardaginn 14. desember 1968 — 55. tbl.
Eldur í Fjórðungssjúkrahúsinu
DULARFULLUR HLUTUR Á FERÐ
Gunnarsstöðum, Þistilfirði 13.
des. Hér um slóðir sáu margir
Jólahlað Dags
JÓLABLAÐ DAGS er nú að
koma út. Ekki reyndist unnt að
birta í því allt efni, er því barst,
vegna þrengsla.
Efni blaðsins er þetta:
Jólahugvekja eftir séra Þór-
hall Höskuldsson; í landi hinna
mörgu veðra, eftir séra Kára
Valsson — viðtal —; í London
og Moskvu, Dr. Kristinn Guð-
mundsson segir frá — viðtal —;
Skógar í S.-Þingeyjarsýslu, eft-
ir ísleif Sumarliðason; í Reyk-
holti, séra Einar Guðnason —
viðtal —; Undir lífsins merki,
ræða Karls Kristjónssonar;
Meira ljós, kvæði Benedikts
Ingimarssonar; Vetrardvöl á
prestssetri, eftir Jóhannes
Davíðsson, Neðri-Hjarðardal;
Kvöldstund hjá Guðrúnu frá
Torfufelli — viðtal —; Með
Norðmönnum ó stríðsárunum —
viðtal við Svein Ellertsson á
Blönduósi. — Viðtölin tók Er-
lingur Davíðsson. Q
menn dularfullan lilut á lofti
30—40 mínútur á sjötta tíman-
um á miðvikudaginn. Hann var
rauðgyltur á lit og hreyfðist
hægt.
Nokkrir menn voru á ferð á
Brekknaheiði á bíl um þetta
leyti. Bilaði keðja og stigu þcir
út en sáu þá fyrirbærið og
horfðu alllengi á það. Þar sem
þeir voru á Brekknaheiðarbrún,
er hæð yfir sjó 60—70 metrar.
Smyrlafell er 164 m. yfir sjó.
Hinn torkennilegi hlutur var
svo lógt á lofti, að Smyrlafell
bar á milli er hluturinn var
þangað kominn. Samkvæmt því
var fyrirbæri þetta í um 100
metra hæð frá jörðu og hreyfð-
ist hægt, eins og fyrr segir.
Hingað er kominn báturinn
Glaður frá Norðfirði, sem tek-
inn var á leigu og er hann byrj-
aður að róa og hefur aflað. Þá
er og hingað kominn Dagur, nýr
bátur, smíðaður á Akureyri, 26
tonn og gekk hann til jafnaðar
9.5 mílur austur. Hann var í
sínum fyrsta róðri í gær.
Þá er þess að geta, að Árni
Helgason útgerðarmaður á Þórs
liöfn er að láta smíða 50 tonna
stálbát á Seyðisfirði. Ó. H.
Víða í úthverfum og á opnum svæðum safna röskir drengir efni í brennur, í samráði við lög-
regluna. Þessi bálköstur er við Þórunnarstræti. (Ljósm.: E. D.)
Verða tvö skagfirzk kaupfélö
sameinuð á næstunni
SAMEINING kaupfélaga hefur
verið á umræðustigi undanfarið.
En þótt skoðanir séu mismun-
andi í því máli, hefur sameining
þó farið fram á vissum stöðum.
Skemmst er að minnast sam-
einingu kaupfélaganna á Blöndu
ósi og Skagaströnd. Nú er í ráði,
Sjúkraþjálfun hjá Sjálfsbjörg á Akureyri
SJÁLFSBJÖRG, félag fatlaðra
á Akureyri, sem á sínum tíma
reisti sér félagsheimilið Bjarg
og nýtur bæði stuðnings og skiln
ings allra góðra manna, telur
um 200 aðalfélaga. Fatlaða fólk-
ið hefur á þennan hátt sjálft
unnið að margskonar starfsemi,
sem nauðsynleg er til mót-
vægis, bæði í andlegum og ver-
aldlegum efnum.
Nýlokið er á Bjargi tveggja
mánaða sjúkraþjálfun, en það
hefur verið eitt af þörfum áhuga
málum landssamtaka hinna fötl
uðu, að koma á sjúkraþjálfun
sem víðast á landinu. Ráðin var
Kolbrún Jóhannsdóttir sjúkra-
þjálfari frá ísafirði og hefur hún
haft hér nóg að starfa og meira
en það, því um 50 manns nutu
æfinga hjá henni. Hinu er svo
ekki að leyna, að aðstaða á
Bjargi er nánast engin til slíkra
hluta, því sjúkraþjálfun krefst
nokkurra tækja til þess að
þjálfun komi að sem mestu
gagni.
Kolbrún sjúkraþjálfi hefur
áður starfað í Bolungarvík og á
ísafirði og var Akureyri þriðji
staðurinn í þessari fyrstu för
slíks þjálfara á vegum lands-
samtakanna.
Hjá Sjálfsbjörg, félagi fatlaðra
á Akureyri, eru nú framleiddar
rafmagnsvörur úr plastefni og
einnig er þar ljósaskiltagerð,
undir stjóm Gunnars Helga-
sonar.
Störf þessa félagsskapar hinna
fötluðu eru mjög athyglisverð
og ætti þeim, sem heilbrigðir
eru, að vera ljúft að veita þá
aðstoð, sem nauðsynleg er. Q
að svipuð sameining kaupfélag-
anna í Skagafirði, milli Kaup-
félags Skagfirðinga á Sauðár-
króki og Kaupfélags Austur-
Skagfirðinga á Hofósi. Hafa for-
ráðamenn kaupfélaganna sam-
þykkt þessa breytingu fyrir sitt
leyti. Og Kaupfélagið á Sauðár-
króki hefur tekið hús Kaupfé-
lagsins á Hofsósi á leigu og opn-
að þar verzlun, þar til endan-
lega verður gengið frá þessu
máli.
Atvinnuleysi hefur verið á
Hofsósi í vetur og hraðfrystihús
félagsins þar ekki fengið hrá-
efni til vinnslu. Er nú að því
unnið, að bæði þar og á Sauðár-
króki verði útgerð og hráefnis-
öflun aukin. í því sambandi er
unnið að stofnun hlutafélags,
sem fái aðstöðu til framkvæmda
á sviði útgerðar og fiskiðnaðar.
EGGJAKAST í BÍÓI
ÞAÐ bar til á hljómleikum í
Háskólabíói í fyrrakvöld, er
bandarísk hljómsveit skemmti
gestum, að nokkrir ungir menn
köstuðu eggjum að hljómsveitar
mönnum. Lögreglan hirti á ann
an tug hinna ósiðuðu ungmenna
og fluttu í Síðumúla. Q
Hljómplata Kirkjáórs Ákureyrar
ÚT ER KOMIN ný hljómplata
með 14 lögum, er Kirkjukór
Akureyrar syngur undir stjórn
Jakobs Tryggvasonar. En undir
leikari er Haukur Guðlaugsson
og einsöng í einu laginu syngur
Sigurður Svanbergsson. Allt eru
þetta kirkjuleg tónverk eftir inn
lenda og erlenda höfunda.
Hljómplata þessi er hin fyrsta,
sem Kirkjukór Akureyrarkirkju
syngur inn á og er hljóðritunin
í stereo, sem jafnframt er nýj-
ung, og fór upptakan fram í
Akureyrarkirkju og þykir hafa
tekizt vel og ágætur söngur
Kirkjukórsins njóta sín. For-
maður kórsins, frú Fríða Sæ-
mundsdóttir, átti hugmyndina
að útgáfu þessarar hljómplötu
en útgáfu annaðist SG-hljóm-
plötur. Plötuumslagið er mjög
smekklegt, gert hér á Akureyri.
Þessi nýja hljómplata er góð
jólagjöf, ef nota má slagorð
verzlunarmanna, og hún fæst í
Sport- og hljóðfærahúsinu. Q
FJÖRUIÍU TOGBÁTARILANDHELGINÁ?
Ileiðrún Steingrímsdóttir félagsformaður og Kolbrún Jóliannsdóttir
sjúkraþjálfari. (Ljósm.: E. D.)