Dagur - 14.12.1968, Blaðsíða 2
2
Bækur frá Leiftri 1968
AÐ HEIMAN OG HEIM. Endurminningar Friðgeirs H.
Berg. Þóroddur Guðmundsson bjó til prentunar. Frið-
geir H. Berg var átthagans barn, en heimsborgari þó,
óskólagenginn en gagnmenntaður í sönnum skilningi
þess orðs. Hann sá fyrir óorðna hluti og gerir m. a.
grein fyrir þeirri reynslu sinni í bókinni í ljósaskiptum.
Friðgeir vann mikið að ritstörfum og liggur mikið eftir
hann, bæði í ljóðum og lausu máli. — Kr. 376.25.
GARÐAR OG NÁTTFARI, eftir Jón Sigurðsson í
Yztafelli. Þessi bók Jóns Sigurðssonar í Yztafelli er
sérstaeð í bókmenntum okkar. Hann segir meðal annars
í skemmtilegum eftirmála: Efni þessarar sögu hefur
verið ríkt í huga mínum frá æskudögum: Hví lagði
Garðar fyrstur manna af ráðnum huga í landaleit á hið
ægilega úthaf, sem að trú þeirra tíma kringdi um
mannheim allan, þar sem Miðgarðsormur bylti sér og
beit í sporð sinn, en utar voru aðeins þursabyggðir og
Náströnd sjálf? Landnáma segir, að hann hafi farið að
ráðum móður sinnar. En hvaðan kom henni framsýnin.
— Kr. 322.50.
GUÐRÚN FRÁ LUNDI: GULNUÐ BLÖÐ. Sterkasti
þátturinn í skáldsögum Guðrúnar frá Lundi eru mann-
lýsingamar. Þar fatast henni sjaldan. Oftast hafa bæk-
ur hennar verið í efsta sæti á vinsældalista lesenda, og
líklega hefur hún á undanförnum árum átt stærsta les-
endahópinn meðal íslenzkumælandi manna, bæði aust-
an hafs og vestan. — Kr. 349.40.
RITSAFN EINARS H. KVARAN I.—II. Með þessum
tveimur bindum er hafin ný útgáfa þessa merka rit-
safns, sem verið hefur ófáanlegt mörg undanfarin ár.
Einar H. Kvaran er tvímælalaust einn af beztu rit-
höfundum íslenzku þjóðarinnar, enda hefur eftirspurn
eftir verkum hans verið látlaus síðan fyrri útgáfan var
uppseld. Bæði bindin kosta í vönduðu bandi kr. 967.50.
FRÍÐA í STJÓRNARRÁÐINU. Ný bók eftir Guðmund
Jónsson. Guðmundur er sérkennilegur höfundur og
bækur hans vekja vaxandi eftirtekt. — Kr. 161.25.
EKKI SVÍKUR BJÖSSI — annað bindi sjálfsævisögu
Sigurbjarnar Þorkelssonar í Vísi, Himneskt er að lifa.
Þetta bindi fjallar um tímabilið frá 1907 til 1923. En á
þeim tímum gerðust miklir atburðir í lífi þjóðarinnar.
Meira en 200 myndir prýða bindið. Bókin er sérstak-
lega skemmtileg og verður merkilegt heimildarrit, þeg_
ar fram líða stundir. — Kr. 451.50.
LJÓÐIÐ UM DALINN, eftir Kristján Jóhannsson.
Kristján er ættaður úr Svarfaðardal, hami er skáld gott
og rithöfundur. Áður eru komnar eftir hann nokkra
bækur, má þar nefna: Börnin í Löngugötu, Steini og
Danni og Steini og Danni á öræfum, og Fimmtán
íþróttastjörnur. Ljóðin um dalinn kostar 64.50.
MINNINGAR UM SÉRA JÓNMUND. Guðrún dóttir
hans skrásetti. Jónmundur Halldórsson var fæddur á
Akranesi hið minnisstæða ár 1874, en faðir hans gerðist
síðar múrari í Reykjavík og þar ólst Jónmundur upp.
Kandídat varð hann aldamótaárið 1900 og tók prests-
vígslu sama ár. Séra Jónmundur gegndi mörgum
prestaköllum á ævinni: Ólafsvík, Barði í Fljótum, Stað
í Grunnavík, Kvíabekkjarprestakalli, Staðarprestakalli
í Aðalvík o. fl. Hann átti því vini um allt land. Jón-
mundur var einn af merkustu prestum þessa lands, sér-
stæður persónuleiki og gleymist ekki þeim, sem kynnt-
ust honum. — Kr. 376.25.
BARNA- OG UNGLÍNGABÆKUR
DÝRIN f DALNUM, eftir Lilju Kristjánsdóttur frá
Brautarhóli. Lilja lýsir hér mjög skemmtilega dýrun-
um á æskuheimili sínu. En þessi lýsing getur átt við
flest íslenzk börn, sem alast upp eða dvelja í sveit:
„Fuglarnir sungu, lömbin léku sér og kálfarnir bitu
grasið skammt frá.“ — Kr. 145.00.
MÚS OG KISA, eftir Öm Snorrason. Þetta er lesbók
litlu barnanna. Langt er síðan bók hefur komið út, sem
hentar jafnvel litlu börnunum, enda hefur Örn Snorra-
son næman skilning á eðli barnsins. — Kr. 64.50.
SÖGUR ÚR SVEIT OG BORG, eftir Margréti Jóns-
dóttur. Hin vinsæla skáldkona, Margrét Jónsdóttir, sem
lengi vann hjá barnablaðinu Æskunni, sendir þessa
nýju bók frá sér með hlýjum óskúm til barna og ungl-
inga í sveit og borg. Sögurnar og leikritin í bókinni eru
sumar úr fyrri bókum höfundar, sem nú eru löngu
uppseldar, en annað er úr gömlum árgöngum barna-
blaðsins Æskunnar. Má telja víst, að efni bókarinnar
eigi sem fyrr erindi til barnanna, og verði lesið með
ánægju. — Kr. 193.50.
Margar bækur aðrar frá okkur eru á boðstólum nú
fyrir jólin, bæði frumsamdar og þýddar, fyrir fólk á
öllum aldri.
HJÁ
BÓKSÖLUM
BÓKAÚTGÁFAN
RÖKKUR
Reykjavík
ÓDÝRT! - ÓDÝRT!
TELPU-
NÁTTKJÓLAR
frá kr. 132,00
SOKKAR (FLAUEL)
frá kr. 165,00
KLÆÐAVERZLUN SIG.
GUÐMUNDSSONAR
JÓLAGJAFIR
HANDA DRENGJUM
Fótboltaspil
Bílabrautir
Leikfangamarkaðurinn
Hafnarstræti 96
Afsláítur
10-25%
AFSLÁTTUR FRÁ
GAMLA VERÐ-
INU Á ÖLLUM
GJAFAVÖRUM
BLÓMA- 06
LIST A VER KASALAN
Glerárgötu 32
Til jólagjafa
TELPU-
NÁTTKIÓLAR
úr velur
Rauðir, bláir og
bleikir
BARNA-
NÁTTFÖT
úr flóneli
VERZLUNIN DRÍFA
NÝKOMIÐ FRÁ
MARK’S
Nátttreyjur
Náttkjólar
Undirkjólar
með áföstum brjóstahaldara
Bamanáttföt
Stretch - á eins til tveggja ára
Teygjubuxur
á telpur
:R
VEFNAÐARVÖRUDEILD
ORÐSENDING
FRÁ ALMANNATRYGGINGA-UMBOÐI
AKUREYRAR OG EYJAFJARÐAR
AKUREYRI
Bótagreiðslum Almannatrygginga fyrir árið 1968
lýkur mánudaginn 30. þ. m. og er þess vænzt, að
bótaþegar hafi þá vitjað bóta sinna.
Bótagreiðslur fyrir árið 1969 hefjast ekki fyrr en
miðvikudaginn 15. janúar, og þá með greiðslu
elli- og örorkulífeyris, barnalífeyris og mæðra-
launa.
Mánudaginn 20. janúar hefjast greiðslur fjöl-
skyldubóta með 3 börnum og fleiri, að öðru leyti
verða bótagreiðslur á árinu 1969, sem hér segir.
10. til 15. hvers mánaðar, ellilífeyrir, örorkulíf-
eyrir, örorkustyrkir, ekkjubætur, makabætur,
barnalífeyrir og mæðralaun.
15. til 20. hvers mánaðar fjölskyldubætur með
3 börnum og fleiri. Fjölskyldubætur með 1 og
2 börnum frá 21. til 25. mánuðina marz, júní og
september. Bótagreiðslur fyrir desember 1969
hefjast svo á öllum bótum í byrjun desember og
verður auglýst nánar hvenær þeim lýkur.
Bótaþegar eru vinsamlegast beðnir að virða aug-
lýstan greiðslutíma og auðvelda þannig af-
greiðsluna.
Umboðið þakkar öllum bótaþegum og öðrum
viðskiptavinum sínum fyrir góða samvinnu á
þessu ári og óskar þeim
gleðilegra jóla og
nýárs
UMBOÐSMAÐUR.