Dagur - 14.12.1968, Blaðsíða 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akurcyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERUNGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
HÁSKALEG STEFNA
NÝLEGA var hálfrar aldar fullveldis
minnzt á verðugan hátt í útvarpi,
sjónvarpi og blöðum og við það tæki-
faeri rakin mörg þau atriði í fram-
farasókn þjóðarinnar, er veigamikil
eru, svo veigamikil, að á síðari árum
hafa t. d. þjóðartekjur á mann verið
taldar með þeim hæstu í heiminum.
Langt góðviðristímabil, dugnaður
fólksins og þjóðholl forysta lyftu
þjóðinni á þessum áratugum að hlið
þeirra þjóða, sem áður voru komnar
langt á undan á flestum sviðum,
bæði í verkmenningu, almennri
menntun og lífskjörum. En á síðasta
áratug, sem í senn hafa verið met-
aflaár og markaðs-góðæri, hefur þjóð
in orðið meiri eyðsluþjóð en nokkur
önnur og fjármálastefna þjóðarfor-
ystunnar við það miðuð, að eyða
jafnóðum og aflað var undir kjör-
orðinu „frelsi“ og „viðreisn“. Jafnvel
ráðherrar hafa hælt sér af þessari
stefnu og talið hana hina einu réttu.
Gylfi hélt á sínum tíma eina af sín-
um snjöllu ræðum, þar sem hann
kvaddi dyra hjá húsmæðrum og
leiddi þær að verzlunargluggunum
og sagði: Allt þetta getið þið nú
keypt, engar hömlur, engin höft,
frelsi í verzlun og viðskiptum. Og
Bjami forsætisráðherra taldi málum
bezt borgið á þann veg, að ríkis-
stjómin væri ekki með nefið niðri í
hvers manns koppi til að skipta sér
af eyðslu og fjárfestingu.
En nú er komið annað hljóð í
strokkinn. Viðskiptakjör þjóðarinn-
ar vom í fyrra svipuð og þau vom
1964 en lakari en á meðan allt var á
toppi. Á yfirstandandi ári hafa við-
skiptakjör versnað og þá kemur í
Ijós, að ráðamenn þjóðarinnar, hafa
ekki kimnað að fara með fjöregg
þjóðarinnar — hinn erlenda gjald-
eyri —. Þess vegna er þjóðin nú þeg-
ar sokkin í skuldir. Greiðslubyrði
vegna erlendra skulda, sem fyrir 10
ámm var talin 5%, og þá komin
að hættumerkinu, samkvæmt er-
lendri þjóðhagfræði, er nú komin í
15%. Vextir og afborganir þessara
erlendu skulda em á þriðja þúsund
milljónir króna á ári.
Hin ábyrgðarlausa og yfirlætislega
efnahagsstefna núverandi stjómar
hefur fært þjóðina niður í skuldafen.
Með sama áframhaldi hefur þjóðin
misst efnahagslegt sjálfstæði úr hönd
um sér eftir fá ár. Hinn mikli gjald-
eyrisvarasjóður var blekking. Hin
trausta undirstaða atvinnuveganna
var blekking. Varðstaða um verðgildi
krónunnar var blekking, svo sem
fjórar gengisfellingar sýna. Stöðvun
verðbólgunnar var blekking. Hömlu-
laust frelsi til eyðslu hins dýrmæta
(Framhald á blaðsíðu 7)
FRÁ BÆJARSTJÚRN Kveðjatil Akureyrar ÞRJÁR
Frá störfum atvinnimiálanefndar bæjarins
ATVINNUMÁLANEFND,
25. nóvember 1968.
Ár 1968, mánudaginn 25. nóv-
ember kom atvinnumálanefnd
saman til fundar á skrifstofu
bæjarstjóra kl. 16.00.
Mættir voru undirritaðir
nefndarmenn ásamt bæjarstjóra
Bjarna Einarssyni.
Fyrir var tekið:
1. Atvinnuhorfur í byggingaiðn-
aðinum og tillaga um úrbætur.
Samkvæmt upplýsingum bygg
ingafulltrúa, er áætlað, að um
næstu áramót verði um 100
íbúðir fokheldar.
Atvinnumálanefnd telur fyrir
sjáanlegt að verulegt atvinnu-
leysi verði í vetur í bygginga-
iðnaðinum, þar sem ætla má að
lánsmöguleikar séu nú mjög
litlir, nema ef Húsnæðismála-
stjórn gæti veitt lánsloforð
1969.
Atvinnumálanefnd leggur því
til, við bæjarstjóm, að skora á
ríkisstjómina að útvega nægi-
legt fjármagn til þess að allir
þeir, sem Húsnæðismálastjórn
hefur talið lánshæfa og hafa
gert hús sín fokheld fyrir 31.
desember 1968, fái lán sín af-
greidd á árinu 1969.
2. Erindi Baldurs Sigurðssonar
um snjóblásara.
Formaður atvinnumálanefnd-
ar, Stefán Reykjalín, lagði fram
bréf ásamt greinargerð, dags. í
dag, um undirbúningsathuganir
á kaupum á stórvirkum norsk-
um snjóblásara.
í greinargerðinni kemur fram
að Olafsfirðingar, Dalvíkingar,
Svarfdælingar, Árskógsstrend-
ingar ásamt Baldri Sigurðssyni
framkvæmdastjóra Brjóts s.f.
hafa undanfarnar vikur verið að
athuga möguleika á að þessir
aðilar, ásamt vegagerð ríkisins,
kaupi í vetur norskan snjóblás-
ara með tilheyrandi búnaði af
P. W. 1400 Super gerð, sem mun
kosta um kr. 6.2 milljónir. Skýrt
er frá því m. a., að norska vega-
gerðin hafi mjög góða reynslu
af þessum blásurum og sé hrað-
brautinni milli Osló — Bergen
— Kristiansand haldið opinni
með blásurum af þeirri gerð,
sem áður er getið.
Gert er ráð fyrir að Baldur
Sigurðsson taki að sér rekstur
þessara tækja.
Bréfritari fer þess á leit við
atvinnumálanefnd að hún láti
álit sitt í ljós um þessar fyrir-
ætlanir.
Atvinnumálanefnd telur að
hér sé um að ræða mjög athygl-
isvert mál þar sem öruggar sam
göngur eru forsenda fyrir eðli-
legu atvinnu- og viðskiptalífi í
héraðinu og leggur nefndin til
við bæjarstjórn að þingmenn
kjördæmisins verði hvattir til
þess að styðja að framgangi
þessa máls. □
AÐ HEILSAST og kveðjast, það
er lífsins saga. Það hefur verið
mér sönn ánægja að heimsækja
fæðingabæ minn, Akureyri, eft-
ir 40 ára fjarveru í fjarlægum
löndum. Ég hafði beðið þess, að
ferðin gengi að óskum, en mér
er þó ómögulegt að skilja hinar
konunglegu og elskulegu mót-
tökur hér, bæði hjá gömlum vin
um og mörgum öðrum, já frænd
um í þriðja og fjórða lið. Og
veðurblíðan var einstök, síðan
ég steig fæti á land 1. nóvember
og var það mikil Guðs gjöf.
Já, fögur er Hlíðin. Og gaman
er að standa uppá Höfðanum og
njóta hins frábæra útsýnis til
austurs, suðurs og norðurs. Poll
urinn fagri og kyrrláti var á sín
um stað, líka Kaldbakur.
Á þessum 40 árum hefur fólki
á Akureyri fjölgað um átta þús-
und, iðnaðurinn og verzlunin
GUMBÁTAR
FLYTJA HEY
ÞAÐ bar við í Loðmundarfirði,
að þar var nýlega heyi skipað
í land á gúmbjörgunarbátum.
En skip Landhelgisgæzlunnar
flutti heyið frá Seyðisfirði og
voru það 60 hestar. Varðskipin
annast oft og víða svipaða fyrir-
greiðslu, þegar þörf kallar. □
Veljið útvarpstœki og sjónvarpstœki frd
HEIIE
- tœkin, sem eru löngu þekkt
fyrir gœði og fegurð
Athugið, mcð einu handtaki cr hægt að kippa
verkinu innan tir öllum Radionette-tækjun-
um e£ bilun kynni að koma fram, því er
aldrei ncitt hnjask með kassann sjálfan, —
þetta tryggir yður hagkvæmara og ódýrara
hafa tekið slíkum stakkaskipt-
um, að ekki er hægt að bera það
saman við það, sem áður var.
Svo eru það allar KEA-búðirn-
ar, nýjar götur og stæði og Akur
eyrarkirkjan og aðrar stórar og
smáar byggingar og fyrirtæki í
bænum. Allt þetta hefur glatt
mig óendanlega og ég er viss
um, að framtíð bæjarins verður
mikil og góð. Fólk má ekki þyrp
ast á einn stað í landinu og þess
vegna ér nauðsynlegt að efla
bæði Akureyri og ýmsa aðra
staði.
Ég þakka Akureyri og bæjar-
búum fyrir næturgreiðann. Hér
naut ég hinnar íslenzku gest-
risni, sem enn lifir. Þetta voru
dýrlegir dagar og alveg sér-
stæðir. Þegar vestur kemur,
mun ég senda ykkur kveðju
mína í Lögberg-Heimskringla.
Ég velti því fyrir mér, hvort
þið eigið ekki að taka upp meiri
skipti við Kanada og Banda-
ríkin. Fleiri ættu að hugsa um
það í alvöru.
Ég óska ykkur allra heilla á
komandi árum.
Heimili mitt er að Sydney,
AVE Winnipeg, ef einhver ykk-
ar verður á ferðinni.
Jón J. Sigurðsson.
TIL SÖLU:
RAMBLER BIFREIÐ,
árg. 1963. Skipti á minni
bifreið koma til greina.
Steingrímur Stefánsson,
Jám- og glervörudeild
KEA.
BÆKUR FRÁ
SETBERGI
SETBERG í Reykjavík hefur
sent blaðinu þrjár bækur til
umsagnar.
Maðurinn frá Suður-Ameríku
eftir Viktor Bridges í þýðingu
Árna Óla er rúmar 270 blaðsíð-
ur og kom fyrir löngu út, sem
framhaldssaga í einu dagblað-
anna og þótti þá spennandi
skáldsaga. Segir þar frá ótelj—
andi ævintýrum, tvífara og svo
auðvitað ástum. Mun fáum leið-
ast, sem lesa.
Eins og þú sáir, Misgerðir
feðranna II, er skáldsaga eftir
Gísla Jónsson fyrrv. alþingis-
mann, sem áður skrifaði bókina
„Misgjörðir feðranna“. í þess-
ari nýju bók segir frá marg-
slungnum örlagaþræði ungrar
stúlku og læknis þess, er einn
bjargaðist af frönsku skipi, er
strandaði við ísland. Skiptist
bókin í 17 kafla og er 225 blað-
síður. Þetta er allviðburðarík
saga og mun falla mörgum vel
í geð, er vilja gleyma sér á hvíld
arstundum við lestur nýrrar,
íslenzkrar skáldsögu.
Álög og bannhelgi, heitir
þriðja Setbergsbókin og er eftir
Árna Óla. Fjallar hún um marga
álagabletti hér á landi og hvem-
ig mönnum hefnist fyrir, ef þeir
ganga í berhögg við álögin. Hér
er ein grein þjóðtrúar, sem enn
lifir, enda þykjast menn enn
verða þess varir, að álögin séu
allsterk og því áhættuminna að
virða þau en brjóta, og færir
bókin margar sönnur á það. □
VÖRUR FRÁ
MARK’S & SPENCER
Herranáttföt
Tækin eru gerð fyrir hin erfiðu móttökuskilyrði,
eru í afdölum Noregs — því henta þau svo vel hór
á landi.
viðhald.
PESTIVAL
SEKSJON 23"
FESTIVAL
SJALUSI 23"
FESTIVAL
EUROVISJON 23"OG 25" GRAND FESTIVAL 23"
festival
planar seksjon
Við getum ekki boðið yður lægsta verðið. — En við bjóðum yður sjónvarpstæki, sem fengu beztu dóma sænsku neyt-
endasamtakanna (Statens provningsanstalt, Stockhokn) af þeim 11 algcngu tegundum sjónvarpstækja sem rannsök-
uð voru. — Og við bjóðum yður tæki, sem fengu langbeztu dómana hvað viðkom hljómburði, tóngæðum og lang-
drægni í ofangreindum rannsóknum, enda cr valinn viður (ekki plast eða krossviður) f öllum Radionette kössunum
og þau gcrð fyrir hin erfiðuslu skilyrði. — Og við bjóðum yður ennfremtir tæki, scm hafa löngu sannað ágæti sín
hér á landi við hinar erfiðustu aðsta-ður. — Fleiri þúsundir Radionette eiganda geta borið yður ágætu reynslu sína.
RADIONETTE TRYGGIR YÐUR GÆÐI FYRIR HVERN EYRI
Hygginn kaupandi hugsar einnig til framtíðarinnar. Útvarpsvirkjarnir Stefán Hallgrímsson og Grímur Sigurðsson,
Akureyri og Hilmar Jóhannesson, Ólafsfirði hafa sótt viðgerðarnámskeið hjá Radionette verksmiðjunum í Oslo. —
I>etta tryggir yður tvímælalaust langa og örugga endingu á Radionette-tækjunum.
Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga um Radionette-tækin hjá ofangreindum útvarpsvirkjum eða beint frá aðal
umboðinu.
EINAR FARESTVEIT & CO. H.F
Bcrgstaðastræti 10 A . Aðalstræti 18 Rvík . Símar 21565, 16995
!v
- gœöi og fegurð
Drengj anáttf öt
nylon
Drengj apeysur
v-hálsmál
Drengjaskyrtur
Herrasokkar
SÉRLEGA FALLECAR OG VANDAÐAR
VÖRUR
HERRADEILD
Síðasta sending
fyrir jól af
TÖSKUM
komin
TeryTene og nylon
ÚLPUJAKKAR
Rauðir og bláir
Nr. 4-14
Drengjasokkar
VERZLUNIN ÁSBYRGI
Til jólagjafa
DÖMUJAKKAR
með lurexþræði
Mjög fallegir
VERZLUNIN DRÍFA
MIKIÐ ÚRVAL
KVENINNISKÓR (heilir) margar gerðir og lit-
ir. — Verð frá kr. 172,00.
KVENTÖFFLUR OG BANDASKÓR, margar
gerðir.
KVENSKÓR (svartir og brúnir), breiðir og þægi-
legir.
UNGBARNASKÓR, einnig með innleggi.
BARNAKULDASKÓR, stærðir 24-30.
ÖKLAHÁIR, VATNSHELDIR NYLONSKÓR
fyrir dömur.
SPENNUBOMSUR, stærðir 40-47.
HERRAKULDASKÓR (gaberdin).
DÖMU-, HERRA- OG DRENGJASTÍGVÉL.
SKÓVERZLUN M. H. LYNGDAL
TIL JÓLAGJAFA
SKARTGRIPIR,
gullhúðaðir, doublé
HÁLSMEN
FESTAR
ARMBÖND
NÆLUR
INDVERSK ARM-
BÖND,
handunnin
NÝ SENDING
KÁPUR
KVÖLD-KJÓLAR,
síðir, stuttir
ULLAR- OG
JERSEY-KJÓLAR
JAKKA-KJÓLAR,
tví- og þrí-skiptir
TÍZKUVERZLUNIN
Sími 1-10-95
ISAFOLD1968
MATUR OG DRYKKUR,
eftir Helgu Sigurðardóttur.
Fallegasta og nytsamasta
bókin á markaðinum,
sjálfsögð jólagjöf handa
frúnni.
GARÐAGRÓÐUR 2. útg.
1968, aukin og endurbætt,
Ingólfur Davíðsson og
Ingimar Óskarsson.
í þessari bók eru hátt á
fjórða hundrað myndir,
þar af fjölmargar litmyndir.
SVIPUR REYKJAVÍKUR,
þættir úr sögu Reykja-
vikur, Ámi Óla. Sjötta
Reykjavíkurbók Árna Óla
— og s.u. síðasta.
TÓPAS, skáldsaga Leon
Uris, Dagur Þorleifsson
þýddi. Geysi spennandi
skáldsaga, eftir heimsfræg-
an höfund byggð á raun-
sönnu njósnahneyksli í
Frakklandi.
NAKTI APINN, Dennis
Morris, Hersteinn Pálsson
þýddi. f þessari skemmti-
legu bók eruð þér lesandi
góður, settur á bekk þar
sem þér eigið heima, við
hlið 192ja tegunda apa.
TILRÆÐI OG PÓLITÍSK
MORÐ, sannir þættir.
Hersteinn Pálsson þýddi.
HEKLUELDAR,
Dr. Sigurður Þórarinsson.
(Sögufélagsbók).
HVÍLDARÞJÁLFUN,
æfingabók í taugaslökun,
eftir prófessor J. H. Seuitz,
Yngvi Jóh. þýddi.
ÍSLENZK FRfMERKI
1969, verðlisti 11. ár.
Sigurður H. Þorsteinsson.
ÚLFHUNDURINN, skáld-
saga, Jack London, Stefán
Jónsson fyrrv. námsstjóri
þýddi. 15. bókin í ritsafni
Jacks London, önnur fræg-
asta bók hans.
UPPI VAR BREKI,
Svipmyndir úr Eyjum,
Sigfús M. Johnson. Skáld-
saga byggð á sönnum þjóð-
lífsmyndum. Breki var hin
mikla vá sjófarenda við
Eyjar.
JÓNS SAGA JÓNSSONAR
frá Vogum í Mývatnssveit,
Haraldur Hannesson þýddi.
Sérstæð ævisaga íslenzks
bónda sem út kom skrifuð
á ensku og útgefin í Eng-
landi árið 1877. „Sjálfsævi-
saga nútima fslendings".
ÚLFUR OG RANNVEIG,
skáldsaga, Anitra,
Stefán Jónsson fyrrv.
námsstjóri þýddi. Anitra er
löngu orðin vinsæll skáld-
■sagnahöfundur, einkum
meðal íslenzkra kvenna,
eins og útvai-pssagan Silf-
urbeltið ber m. a. vitni um.
KATLA KVEÐUR, saga
fyrir unglinga, Rannheiður
Jónsdóttir, síðasta Kötlu-
bókin — sú fimmta — sem
höfundi entist aldur til að
Ijúka við.
HEIMKOMA HEIMALN-
INGSINS, Thomas Hardy,
Snæbjörn Jónsson þýddi.
Eitt af stórverkum brezkra
bókmennta, ástríðuþrungin
skáldsaga.
JÓN LOFTSSON í bóka-
fiokknum „Menn í önd-
vegi“, Egill Stardal. Jón
Loftsson var kallaður
ókrýndur konungur íslands
á tólftu öld.
JÓN BISKUP ARASON
í bókaflokknum „Menn í
öndvegi“, Þórhallur Gutt-
ormsson. Voldugasti maður
íslands á sextándu öld.
ÖLBJÖSSI, SAPURUNI
OG SVEINN í SEMENT-
INU, barnasaga, Halldór
Pétursson. Ein hinna vin-
sælu bamabóka Halldórs
Péturssonar frá Snælandi
með teikningum eftir Hall-
dór Pétursson listmálara.
SANDUR 2. útg., Guð-
mundur Daníelsson, ritsafn.
Nýtt bindi í ritsafn Guð-
mundar Daníelssonar.
SIGGA OG SKESSAN,
barnabækur eftir Herdísi
Egilsdóttur kennara við
ísaksskóla og eru bókin
ætluð bömum á aldrinum
6—9 ára.
r
Utgáfa Máls og menningar 1968:
Þrennskonar árgjald sem félagsmenn
geta valið um:
a) Kr. 650,00: fyrir það fá félagsmenn Tímarit Máls
og menningar og tvær bækur.
b) Kr. 1.000,00: fyrir það fá félagsmenn Tímaritið
og fjórar bækur.
c) Kr. 1.280,00: fyrir það fá félagsmenn Tímaritið
og sex bækur.
Félagsbækur á árinu verða þessar:
1) Jarðfræði, eftir Þorleif Einarsson.
2) Viðreisn í Wadköping, skáldsaga eftir Hjalmar
Bergmann, þýdd af Nirði P. Njarðvík.
3) , Um íslenzkar fomsögur, eftir Sigurð Nordal.
4) Sjödægra, eftir Jóhannes úr Kötlum.
5) —6) „Pappírskiljur" L—2. Bandaríkin og þriðji
heimurinn eftir David Horowitz, Inngangur að
félagsfræði eftir Péter L. Berger.
Félagsmenn sem greiða árgjald a) eða b)
velja sér tvær eða fjórar bækur. Auk þess fá allir
félagsmenn í kaupbæti nýtt hefti af bókaflokknum
Myndlist: Paul Gaugin. Þeir sem kjósa bækurnar
ibundnar þurfa að greiða aukagjald fyrir bandið, en
bækur 5)—6) og myndlistarbókin verða aðeins
heftar.
Með því að reikna tímaritið sem eina bók kostar
íhver bók (óbundin) félagsmenn tæpar 217 krónur
ef þeir greiða árgjald a), 200 krónur ef þeir greiða
árgjald b) og aðeins 183 krónur ef þeir greiða ár-
gjald c), og er þá myndlistarbókin ótalin. Verðið
fer því lækkandi eftir því sem teknar eru fleiri
bækur.
FJÖLBREYTT BÓKÁVAL
HAGSTÆÐUSTU KJÖR Á ÍSLENZKUM
BÓKAMARKAÐI
MÁL OG
MENNÍNG
LAUGAVEGÍ 18