Dagur - 14.12.1968, Side 8
8
tS$$$$$S$$S$$$$$S$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$S$S$4S$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$S$í»S$$$$$$S$$$$$$$S$$$$$$$$$$$$$$$$$$S!
Nýr barnaleikvöllur í Glerárhverfi. Ljósmyndin tekin 12. des. sl. (Ljósm.: E. D.)
»SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS:SS$SSSSSSSSSSSSSSSSSSÍSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSt
byggð í Eyjólfsstaðaskógi
Orlofsheimili
Egilsstöðum 13. des. Steypu-
vinna er enn ótrufluð og vega-
gerðin heldur áfram, enda mikil
þörf eftir flóðin miklu og vegar-
skemmdimar. Snjólaust er og
allir fjallvegir færir. Búið er að
flytja 70 bílhlöss af byggingar-
efni upp á Gagnheiðarhnjúk,
sem er milli Héraðs og Seyðis-
fjarðar og þangað ekið eftir nýj
um 7 km. ruddum vegi af Fjarð
arheiði. En á Gagnheiði verður
sjónvarpsendurvarpsstöð byggð
að vori. Fer þá að styttast í að
við fáum sjónvarpið.
Alþýðusamband Austurlands
lætur byggja 6 orlofsheimili á
fögrum stað í Eyjólfsstaðaskógi
í landi Skógræktar ríkisins.
V. S.
SMÁTT & STÓRT
SMÁAURAR HVERFA
Verið er að undirbúa útgáfu á
nýjum peningi og er það 50 aura
peningur. Á hann að koma í stað
25 eyringa, sem nú er hætt að
framleiða. Reglugerð var gefin
út um að allar greiðslur skuli
greiddar í heilum tug aura.
5 — 2 og 1 eyringar falla alveg
úr sögunni, enda kostar t. d.
eins-eyringur 20 aura í slætti
eða framleiðslu og er það frem-
ur óhagstætt.
ANNARS NÝJAR
KOSNINGAR
Eggert G. Þorsteinsson, sem í
sinni ráðherratíð hefur horft á
togarana fækka óðfluga, einnig
flota hinna minni fiskibáta og
kaupskipaflotann dragast sam-
an ár frá ári, sagði á aðalfundi
LÍÚ á dögunum, að ríkisstjórnin
myndi rjúfa þing og efna til
nýrra alþingiskosninga ef gengis
fellingin næði ekki tilætluðum
áhrifum!
NONNAHÚSIÐ
og verður það þá enn betur en
áður, fært um að þjóna sínu
fagra hlutverki.
BÖRNIN OG NONNI
Minjasafn Nonna á Akureyri er
ljós vottur þess, hvað atorku-
samar og samhentar konur geta
áorkað í menningarátt, þegar
slík verkefni kalla þær til
starfa. í Nonnahúsið koma á
vetri hverjum barnaskólabörn,
sem sjá bækur, muni og myndir
í safninu, hlusta á erindi um
þennan víðlesnasta íslenzka höf-
und og skila síðan ritgerð um
för sína. Þannig kynnast börniu
Nonna, með aðstoð Zonta-
kvenna.
SANA OG ÁFENGIS-
VERZLUNIN
Upplýst hefur verið, að Áfengis-
og tóbaksverzlun ríkisins taki
að sér dreifingu á framleiðslu-
vörum Sana á Akureyri, meðan
Sana er undir gjaldþrotaskipt-
um. Mun fjármálaráðherra eða
fjármálaráðuneytið eiga þarna
6RUGÐU SER Á BIL TIL FJALLA
FJÓRTÁN BÆKUR
GEFNAR ÚT Á AIÍUR-
EYRI FYRIR JÓIiN
BÓKAFORLAG Odds Björns-
sonar h.f. gefur að þessu sinni
út 10 bækur. Sjö eru eftir inn-
lenda höfunda en þrjár þýddar.
Af innlendu höfundunum má
nefna séra Benjamín Kristjáns-
son, Magneu frá Kleifum og
Jennu og Hreiðar og eru þessir
höfundar allir héðan að norðan.
Skjaldborg s.f. gefur út 4 bæk
ur. Tvær eru eftir Akureyring-
ana Indriða Úlfsson og Jón
Benediktsson en tvær eru þýdd
ar. □
Raufarhöfn 13. des. Sunnanblíð-
an varir enn. Afli hefur verið
mjög lítill. Unnið er að því af
kappi að gera frystihúsið for-
helt — það sem áður 'orann og
nú á að gera starfhæft á ný.
Innréttingar verða allar nýjar í
vinnslusal og vélar einnig nýjar.
Sjónvarpið fyrir jól
til Skagafjarðar
TILKYNNT hefur verið, að
Skagfirðingar fái sjónvarp fyrir
jólin, eða nokkru fyrr en áður
var búist við og frá sagt hér í
‘blaðinu. Sjónvarpað verður til
'Skagafjarðar frá Skálafelli um
tvær endurvai-psstöðvar, á Eggj
um um rás 11 og Hegranesi um
rás 8.
Á sama tíma er búist við að
sjónvarp nái til hluta Vestfjarða,
en þangað verður endurvarpað
frá Stykkishólmi, Bæjum á Snæ
fjallaströnd, á Arnarnesi og
Patreksfirði. □
KALDBAKUR landaði 147 tonn
um 9. des., er væntanlegur 19.
desember.
SVALBAKUR kom með 150
tonn til heimahafnar í gær, fer
á veiðar í dag.
Blönduósi 13. des. í góðu tíðinni
sem búin er að vera í sex vikur,
hefur verið unnt að vinna við
byggingar, sem um hásumar.
Unnið er við byggingu nýs lækn
isbústaðar hér, og stækkun á
ketilhúsi mjólkursamlagsins. —
Bændur gefa fénu ekki strá, en
þurfa nú að taka það í hús. Og
hrossin hafa sjaldan átt betri
daga á þessum árstíma.
Héðan fóru nokkrir úr flug-
björgunarsveit fram á Hvera-
velli og hittu þá þau hjónin á
veðurathugunarstöðinni, Kristj-
án Hjálmarsson og Huldu konu
hans og fengu hjá þeim hinar
beztu viðtökur.
En það er nýtt hlutafélag, sem
að þessu stendur. Nú er að fara
síðasta síldin frá sumrinu, en
allt mjöl er selt innanlands og
þyrfti að vera meira. Samgöng-
BLAÐIÐ hringdi í bókaverzl-
anir bæjarins í gær og spurði
um sölu bóka síðustu dagana.
í Bóka'búð Jónasar Jóhanns-
sonar voru þessi svör gefin. Sala
bóka er töluvert mikil, senni-
lega eins mikil eða meiri en í
fyrra á þessum árstíma. Laxness
er á toppinum og hófst mikil
sala á bók hans, Kristnihald
undir Jökli, um leið og hún kom
út. Svo eru nokkrir aðrir inn-
lendir höfundar nokkuð jafnir
og er þá fyrst að nafna nýja bók
Guðrúnar frá Lundi, Gulnuð
blöð, Landið þitt eftir Steindór
Steindórsson, Reynistaðabræð-
ur eftir Guðlaug Guðmundsson,
HARÐBAKUR landar hér 16.
des., og hafði góðan afla er síð-
ast fréttist.
SLÉTTBAKUR landaði 11.
des. 75 tonnum, fór í slipp 12.
des. og fer á veiðar á morgun.
Héðan frá Blönduósi er búið
að senda allar gærur út, nema
gráar og einnig dilkakjöt, sem
út átti að flytja héðan og einnig
nokkuð frá Skagaströnd.
Hingað eru nýkomin 460 tonn
af fóðurbæti og aðra sendingu
fáum við um áramótin. En við
þurfum að eiga a. m. k. 1000
tonn þá, ef sigling teppist. Árið
1967 keyptu bændur rúmlega
1800 tonn og var félagssvæðið
þó minna en nú. Búfróður mað-
ur lét í té þær upplýsingar, að
bændur græddu dag hvern 1.5
millj. kr. í góðu tíðinni vegna
sparnaðar í kjarnfóðurkaupum!
Á. J.
ur eru góðar í lofti og á landi.
Enn eru menn að fara til rjúpna
en fá mjög lítið og verða ekki
einu sinni þeirrar ánægju að-
njótandi, að sjá fljúgandi diska.
Vér íslands börn eftir Jón Helga
son og Næturvaka eftir Hafstein
Björnsson miðil. Af barnabók-
um selst Leyniskjal Indriða Úlfs
sonar bezt eins og er.
Næst er hrings í Bókval og
eru þessar upplýsingar gefnar
þar:
Bóksala er mun meiri en í
fyrra. Af innlendum bókum er
Ktistnihald undir Jökli eftir
Laxness og Landið þitt eftir
Steindór Steindórsson hæstar,
þá ævisaga Júlíusar Júlíus-
sonar eftir Ásgeir Jakobsson og
Reynistaðabræður eftir Guðlaug
Guðmundsson. í þessum flokki
er einnig Ferðin frá Brekku eft-
Hann landar væntanlega þriðja
jóladag.
Allir Akureyrartogararnir
verða á veiðum er jólahátíðin
gengur í garð, eftir því sem nú
verður bezt séð. □
Hinn 4. desember niinntust kon
ur í Zontaklúbbi Akureyrar 20
ára starfs. Þessar konur Iiafa
komið upp minjasafni um
Noitrsa í Nonnahúsi af þeirri
prýði, að til fyrirmyndar er. Og
þangað hafa 25 þúsundir gesta
komið í heimsókn. En húsið var
opnað á afmælisdegi hins kunna
rithöfundar, Nonna eða séra
Jóns Sveinssonar, 16. nóvr. 1957.
Nú er verið að „gera húsið upp“
ÓDÝR FERÐALÖG?
Á SEINNI ÁRUM hafa íslend-
ingar kynnzt nokkuð fólki því,
erlendu, sem ferðast á „þumal-
fingrunum", þ. e. reynir að kom
ast leiðar sinnar án þess að
borga fargjöld. Erlendis hefur
það oft komið í Ijós, að þar er
misjafn sauður í mörgu fé og
ekki allir meinlausir. En stund-
um lendir þetta ferðafólk í
óæskilegum ævintýrum. Frakki
einn varð t. d. uppvís að því að
hafa nauðgað þrettán stúlkum
er ætluðu að ferðast ódýrt. □
ir Snorra Sigfússon, sem selst
mikið síðan hún kom í búðina.
Af barnabókum er Leyniskjal
Indriða Úlfssonar langhæst í
sölu.
Bókabúðin Huld hefur þetta
að segja:
Það er óvenju mikil sala í ís-
lenzkum, góðum og nokkuð dýr
um bókum, svo sem Gróandi
þjóðlíf, íslenzkir afreksmenn,
Landið þitt, og svo eru auðvitað
bækur Kiljans og Guðrúnar frá
Lundi. Af barnabókum seljast
seríubækurnar bezt. Svo eru
það ástarsögumar, þýddu.
Bókaverzlunin Edda:
íslenzkar skáldsögur og ferða
bækur seljast vel, einnig ævi-
minningar. Einstakar bækur
skera sig ekki úr í sölu ennþá,
en aðal bókasalan er eftir og þá
skýrast málin, því auðséð er, að
mikið verður keypt af bókum,
sem fyrr.
Allar þessar bókaverzlanir
segja, að þýddar sögur nokk-
urra höfunda séu mest seldar
allra bóka. □
þátt að og er e. t. v. eðlilegt, þar
sem sami ráðherra hefur áður
haft nokkur afskipti af fyrir-
tækinu. En þau afskipti er þátt-
ur útaf fyrir sig, sem þörf væri
á að upplýsa.
ÚTILEGUMENN 1968
Allfræg er orðin saga ungra
manna í Reykjavík, sem játuðu
á sig mörg innbrot, rán og þjófn
aði og komust yfir mikla fjár-
muni, áður ep lögreglunni tóks
að upplýsa mál þeirra og setja
þá bak við lás og slá. En þeir
brutust úr langahúsinu, stálu
bíl, óku í annað hérað og hugðu
á útilegu að fornum sið. Sjón-
varpið sýndi mennina fjóra, er
þeir á ný voru fluttir, járnaðir,
í hegningarhúsið.
FLATEY
Þjóðfélagið vantar margskonar
heimili eða stofnanir fyrir fólk,
sem þarf að hjálpa á einn eða
annan hátt, t. d. vegna drykkju-
skapar, eiturlyfjaneyzlu og ýmisl
konar erfiðra hneigða, sem ekki
samrýmast venjum þjóðfélags-
ins. Nýlega var bent á það af
dönskum lækni, að slík heimili
væru heppileg á rólegum eyj-
um, undir stjórn sérmenn.taðs
fólks og við þá aðstöðu, er bezt
lientaði til afturbata. Flatey á
Skjálfanda er nú ekki lengur í
byggð, en þar standa mörg góð
hús mannlaus. Myndi sá staður
henta á einhvem hátt?
GÆFTIR GÓÐAR OG
REITINGSAFLI
Ólafsfirði 13. des. Hér hefur ver
ið reitingsafli og ágætar gæftir.
Er því unnið í báðum frystihús-
unum, þótt vinna sé ekki nóg,
er hún veruleg og veit ég ekki
hvernig farið hefði, ef veðráttan
hefði ekki leikið við okkur svo
hægt er að stunda sjóinn nærri
stöðugt. Eftirvinna er engin og
stundum unnið hálfa daga. En
þessi vinna við sjó og fisk-
vinnslu er ákaflega þýðingar-
mikil því nú endast peningar
verr en nokkru sinni áður. B. S.
Frystihúsið verður endurbyggt
Allir Akureyrarfogarar verða á veiðum um jólin
Laxness og Guðrún frá Lundi á foppinum