Dagur - 15.01.1969, Qupperneq 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Fjármálin og
atvinnulífið
í ÁLITI minnihluta fjárveitinga-
nefndarnefndar Alþingis, sem lagt
var fram á þingi fyrir jólin, við af-
greiðslu fjárlaga fyrir árið 1969,
segja Framsóknarmennmir, Ágúst
Þorvaldsson, Halldór E. Sigurðsson
og Ingvar Gíslason, og Alþýðubanda-
lagsmaðurinn Geir Gunnarsson, m.
a. það, er hér fer á eftir.
„Venjan hefur verið sú, að ríkis-
stjórnin hefur aflað tekna handa at-
vinnuvegunum, en tekið þann tekju-
stofn til ríkissjóðs við næstu áramót
á eftir og aflað þá nýrra tekna vegna
atvinnuveganna. Og segja má með
réttu, að aukaskattur hafi fylgt flest-
um málum, sem fram hafa gengið í
stjórnartíð núverandi valdhafa, enda
er nú svo komið vegna verðbólgu,
margendurtekinna gengisbreytinga,
ofsköttunar og eyðslu, að fjárlög
hafa hækkað úr 1500 millj. kr., eins
og þau vom eftir gengisbreytinguna
1960 í 7000 millj. kr. á árinu 1969.“
Síðan segja þeir: „Tillögur okkar
miða að því, að hefja endurreisnar-
starfið hjá atvinnuvegunum með
frestun greiðslna og afborgunum og
vöxtum af föstum lánum, með því
að breyta lausaskuldum í föst lán til
langs tíma, með aðstoðarlánum í
einstökum tilfellum og jafnvel með
skuldaskilum með því að létta sér-
sköttun af atvinnuvegunum, með
lækkun vaxta og breyttu stofnlána-
kerfi, með auknum rekstrarlánum.
Við viljum einnig taka tryggingar-
kerfið til endurskoðunar og sömu-
leiðis taka dreifingarkerfi olíuverzl-
ana í landinu til athugunar og leita
að hepplegustu leið til að sameina
það. Það er skoðun okkar, að síend-
urteknar gengisfellingar hafi í för
með sér spillingu, ýti undir eyðslu
og kæruleysi og sú lausn, sem far-
sælust muni reynast hljóti þjóðinni
og atvinnuvegunum, sé að snúa frá
stefnu verðbólgu, eyðslu og gengis-
fellinga. Við teljum eðlilegt, að leið-
beining og eftirlit séu af hálfu lána-
stofnana með þem fyrirtækjum, sem
aðstoðarlána þurfa að njóta, til þess
að tryggt verði, að fyrirtækið njóti
þess, sem að sé stefnt.
Við viljum einnig undirstrika það,
aíð sú stefna, sem fylgt hefur verið,
að leggja háa skatta á atvinnuveg-
ina og styrkja þá svo aftur með rík-
issjóði, er að okkar dómi röng stefna,
enda hefur reynslan sannað það.“
Sömu menn vekja athygli á, að
tekjur ríkissjóðs umfram fjárlaga-
áætlanir á síðustu átta árum, eru ca.
2500 millj. kr. □
Góðir íslendingar.
Ársins 1968 mun meðal annars
verða minnzt fyrir það, að þá
tókst mönnum í fyrsta sinn að
komast til annarra hnatta, fara
í kringum tunglið. Allir hljóta
að vona, að þetta dásamlega
afrek hugvits og hugrekkis
bendi fram á við til betra og
auðugra lífs í mannheimi. Allar
þjóðir keppast við að færa sér
í nyt hvern þann sigur, sem unn
inn er á sviði vísinda og tækni.
Vér íslendingar spyrjum, hvern
ig vér séum búnir til að sækja
það, sem vér þörfnumst, í skaut
náttúrunnar, nýta gæði hennar
og verjast áföllum af hennar
völdum.
í stuttu nýjársávarpi vil ég
leiða hugann að landinu, sem
vér byggjum, fósturjörðinni,
landinu, sem Jónas Hallgríms-
son kallaði farsælda frón og hag
sælda móður. Land hverrar þjóð
ar er örlagavaldur í sögu henn-
ar. Til skamms tíma gáfu sagn-
fræðingar þessu ekki þann
gaum sem skyldi. Þeir skrifuðu
um mannanna verk og athafnir,
því að það er sjálf sagan, en
gáðu þess miður en vert er,
hvem þátt lega lands og náttúru
far allt, landgæði og annmarkar,
áttu að baki þessu öllu. Saga
íslendinga verður ekki skilin
nema með sífelldri hliðsjón af
þeim lífsskilyrðum, sem landið
hafði að bjóða. Að sama skapi
unni. Þeir námu kaldara og
norðlægara land en heimahag-
arnir voru. Venjulega er þessu
þveröfugt farið um þjóðflutn-
inga. Snemma hófust átök milli
lands og þjóðar, ef svo mætti að
orði kveða. Það þurfti hörku til
að sækja lífsviðurværi sitt í
greipar náttúrunnar, og þjóðin
fór illa með landið sitt, af því
að hún vissi hvorki betur né gat,
en landið launaði líku líkt og
átti það til að vera harðleikið
við þjóðina. Þetta þrátefli hélzt
um aldir, og veitti ýmsum betur.
En þegar á heildina er litið, er
það heillandi og lærdómsrík
saga, hvernig þjóðinni tókst áð
lifa hér lífi sínu innan þeirra
takmarka, sem landið sjálft
markaði henni á aðra hönd og
heldur frumstæð verkmenning
hennar á hina. Að ógleymdu mis
góðu stjórnarfari hlaut þetta
tvennt að skera henni stakk, og
hann var að vísu þröngur en þó
aldrei svo, að hún yrði að kosta
öllu lífsmagni sínu til að afla
brýnustu lífsnauðsynja. Þrátt
fyrir allt hafði hún þá orku af-
lögu að geta varðveitt og ávaxt-
að þá andlegu menningu, sem
landnámsmenn fluttu með sér
hingað að stofni til og verið hef
ur bakhjallur þjóðarinnar jafn-
an, og tekið við nýrri. Stundum
hefur verið sagt, að íslendingar
fyrr á tíð hafi aldrei lært að lifa
í sátt við landið sitt. Ef til vill
Forseti íslands dr. Kristján Eldjárn.
ÁRAMÓTARÆÐA FORSETA ÍSLANDS DR. KRISTJÁNS ELDJÁRNS:
Sambúð lands og þjóðar
verða allar framtíðarhugmyndir
um líf þjóðarinnar að styðjast
við fullkomna þekkingu á eðli
landsins og sjávarins, sem girðir
það og er í rauninni hluti af því.
Þjóðin verður að semja við land
sitt og una við það, gera sér
grein fyrir kostum þess til gagns
og gleði, og ókostum þess til
varnaðar. Því að ísland hefur
bæði kost og löst, eins og haft
er eftir einum hinna fyrstu
manna, sem af því sögðu fregnir.
Á því ári, sem nú er liðið,
varð mönnum tíðhugsað til þess,
að þá var hálf öld síðan hafís
lagðist upp að ströndum lands-
ins, en einmitt á því ári gerði
hann sig enn á ný heimakom-
inn, meira en nóg til að minna
rækilega á, að enn búum vér við
þann nágranna, sem oft hefur
gert oss þungar búsifjar. Og það
minnti um leið á, að vér íslend-
ingar höfum færzt það í fang,
sem mörgum útlendum mönn-
um þykir með eindæmum, ein
fámennasta þjóð veraldar, að
vera sjálfstæð þjóð og nútíma-
þjóð að lífsstigi og menningu í
tiltölulega köldu og erfiðu landi.
Fyrir allmörgum árum kom
frægur erlendum vísindamaður
hingað til lands og lét svo um
mælt, að ísland væri á takmörk
um hins byggilega heims, eða
öllu heldur að það væri á norð-
urmörkum þess, þar sem viðlit
væri að láta nútíma menningar-
þjóðfélag þrífast. Sumir þykkt-
ust við, þótti sem hallmælt væri
landinu, aðrir létu sér fátt um
finnast og þóttust ekki vita
annað en að hér hefði menning-
arþjóðfélag staðið inn aldir, enn
aðrir létu sem hér væru merki-
leg sannindi sögð.
Þarna var nokkuð harkalega
vakið máls að merku íhugunar-
efni. Fljótlegt er að ganga úr
skugga um, að suðurmörk ís-
lands liggja norðar en nokkurs
annars lands þar sem lifað ei' á
vísu nútíma menningarþjóð-
félaga, og Reykjavík er nyrzta
höfuðborg í heimi. Forfeður vor
ir gerðu það sem fátítt er í sög-
má eins vel svo að orði komast,
að þeir hafi aldrei beygt sig svo
mjög fyrir því harðdræga í nátt
úruskilyrðum þess, að þeir þar
fyrir seldu af höndum sér við-
leitnina til andlegs lífs. Og lífs
komst þjóðin af, og ásamt með
lífi sínu bjargaði hún þeim verð
mætum, sem vér viljum nú bezt
að hlúa á nýjum og gjörólíkum
tímum.
Saga íslenzku þjóðarinnar fyr
ir tækniöld sýnir, að hér á landi
gat tiltekinn hámarksfjöldi fólks
lifað við lífsstig frumbúskapar,
að vísu við fátækleg ytri kjör,
en þó við töluverða andlega
menningu og vann stundum
afrek í þeim efnum. Þetta var
hægt á þessu norðlæga landi.
En það er ekkert svar við þeim
efasemdum, sem fólust í þeim
ummælum sem ég nefndi áður.
Kröfumar til lífsins í þjóðfélagi
frumbúskapar eru svo gjörólík-
ar þeim kröfum, sem nútíma-
þjóðfélag gerir, að samanburður
hefur takmarkað gildi. Landið
er enn hið sama og það áður var,
á sömu norðurslóðum, en nú
verður það að standa undir
margfalt meiru til þess að þjóð-
in nái því markmiði, sem hún
ætlar sér, að lifa hér í nútíma
velmegunarþjóðfélagi. En síð-
ustu áratugir hafa sýnt og sann
að, að einnig þetta er hægt. Hin
miklu vísindi og tækni nútím-
ans hafa fengið oss í hendur
þau tæki, sem megnuðu að rjúfa
hinn þrönga hring, sem lega og
náttúra landsins mörkuðu allri
framvindu áður fyrr. Þjóðin hef
ur náð áður óþekktu valdi yfir
auðlindum lands og sjávar og
sótt á öllum sviðum kappsam-
lega fram að því marki, að hér
mætti blómgast nútímaþjóðfélag
með efnalegri og andlegri vel-
megun. Velviljaður umheimur
og rás heimsviðburða eiga hér
sinn hlut að máli, en þó er það
fyrst og fremst nýting landkost-
anna, sem vér eigum það að
þakka, sem vér nú höfum. Land
ið er að vísu norðlægt og nokk-
uð harðskiptið á stundum, en
það hefur ekki brugðizt þjóð-
inni. Það heyrist raunar ekki
sjaldan, að vér séum vanþróuð
þjóð og ísland sé í rauninni eins
konar verstöð, eins og forðum
var sagt með lítilli virðingu.
Slík ummæli krefj'ast þó nánari
skilgreiningar til þess að mark
sé á þeim takandi. Þótt eitthvað
megi út á setja og margt kunni
að vera hér hálfkarað, er full
ástæða til að gleðjast yfir því,
að vér búum nú við nútíma þjóð
félag á íslandi, þrátt fyrir efun-
arorð ókunnugra um möguleika
landsins og getu smárrar þjóðar.
Hitt er þó enn sem fyrri sjálf-
sagt, að vér verðum að halda
vöku vorri og stefna vitandi vits
að heillaríkri sambúð lands og
þjóðar. Trúin á hvorttveggja
má enga hnekki bíða. Við þessi
áramót eru efst í huga margra
þeir miklu efnahagserfiðleikar,
sem þjóðin á nú við að stríða.
Vegna þeirra horfa nú margir
fram á komandi ár með kvíða.
Allir vona þó, að úr rætist sem
fyrst, og hvað sem öllu líður er
nú um ekkert að gera nema
snúast við vandanum af alefli
og treysta giftu og manndómi
þjóðarinnar til að sigrast á hon-
um. Og þrengingarnar hvetja til
lærdóma, að þessu sinni meðal
annars þeirra, að leita þurfi ráða
til að treysta betur undirstöður
íslenzkra atvinnuvega. Vér höf-
um notað tæknina til að hag-
nýta hinar gömlu lífsuppsprett-
ur þjóðarinnar, frjómoldina og
ekki sízt fiskimiðin. Það mun-
um vér enn gera á ókomnum
tímum og með vaxandi gát og
gjörhygli og frá nýjum sjónar-
miðum. Víst er að landið og
sjórinn kringum það búa yfir
möguleikum, sem enn eru lítt
notaðir og alls ekki að fullu
kannaðir. Jónas Hallgrímsson
kallaði landið farsælda frón, og
var það mjög mælt ekki sízt í
hans tíð, en hann sagði einnig
í öðru kvæði, að vísindin vefji
lýð og láð farsældum, notar
sama orðið aftur. Þetta var
skáldsýn, vísindum mun verða
efld fjölbreytni í atvinnuhátt-
um á landi hér. Margt hefur
verið gert í þessa átt eða er í
uppsiglingu. En víst er, að betur
má ef duga skal. Rannsóknar-
starfsemi verður að auka til
muna, bæði grundvallarrann-
sóknir á náttúru lands og hafs
og hagnýtar rannsóknir í kjöl-
far þeirra og samhliða þeim. Því
má staðfastlega trúa, að með
skynsamlegri hagnýtingu þeirr-
ar þekkingar, sem vísindaleg
rannsókn leiðir í ljós, geti orðið
hér nægur auður í garði til
góðra lífsskilyrða í nútíma
menningarþjóðfélagi. Langar
vetrarnætur og sólarlítil sumur
norðursins geta ekki komið í
veg fyrir það.
En þótt boðaður sé tími vís-
inda og vaxandi þekkingar má
sízt gera þessi hugtök að átrún-
aðargoðum, sem hægt sé að
varpa allri áhyggju sinni á. Vís-
indin leysa engan af hólmi, ekki
sjómanninn, bóndann, verka-
manninn, iðnaðarmanninn. En
þau eiga að tryggja honum
ávöxt síns erfiðis, gera hann og
þar með allt þjóðfélagið óháðara
veðri og vindum, sól og regni,
sem Stephan G. sagðist eiga allt
undir.
Ég sagði fyrir skömmu í ræðu,
að íslendingar gætu ekki gert
sér vonir um að verða forustu-
þjóð í vísindum. Ekki munum
vér stefna til tunglsins. En nær-
tækari rannsóknarefni eru ótelj
andi. Og því vil ég bæta við
áðurgreind ummæli mín, að víst
eigum vér að verða forustuþjóð
í þeim greinum, sem beinlínis
varða þjóðina sjálfa, sögu henn-
ar og menningu, og landið, gögn
þess og gæði. í því sambandi
rifja ég upp, að á gamla árinu,
1968, voru tveir merkir minn-
ingardagar, sem að þessu mega
lúta. Á því ári voru réttar 9 ald-
ir síðan talið er að fæddur væri
Ari prestur Þorgilsson, sem kall
aður hefur verið faðir íslenzkr-
ar sagnritunar, reyndar maður
á heimsmælikvarða á sínu sviði,
eins og nú er komizt að orði. £
5
Fr amsóknarmenn ræddu fjár
hagsáætlun bæjarins
honum persónugerðist evrópsk
menntastefna á furðulega full-
kominn og um leið þjóðlegan is-
lenzkan hátt. Til verka hans,
beint eða óbeint, verða raktar
rætur íslenzks þjóðernis, og hef
ur einhverntima verið haldið
upp á ómerkara afmæli.
Á því ári voru og tvær aldir
liðnar frá dauða Eggerts Ólafs-
sonar. Um nafn hans er mikill
Ijómi í minningu þjóðarinnar,
enda var hann frægt skáld,
framgjarn forustumaður og
hann hvarf þjóð sinni með harm
sögulega eftirminnilegum hætti
í blóma lífsins. Áhrif hans á ís-
lendinga urðu mikil, en nú minn
umst vér hans ekki hvað sízt
fyrir þá sök, að með honum
hófst, með næsta ótrúlegum
glæsibrag, vísindaleg rannsókn
landsins, sem einmitt nú er kjör
orð vort.
Vel mætti minning þessara
tveggja manna, hvors á sínu
sviði, vera leiðarljós í því þjóð-
félagi rannsókna og þekkingar,
sem hér hlýtur að koma og er
reyndar þegar að komast á legg.
Einhverjum kann að finnast
til um, að hér hafi verið talað
um fósturjörðina frá hagnýtu
sjónarmiði einu, af eins konar
matarást, en ekki minnzt á ætt-
jarðarástina, hina hreinu göfugu
tilfinningu. Henni hef ég þó
ekki gleymt. íslendingar unna
landi sínu, og það eins þótt þeir
viti, að það er ekki landa bezt,
ef einhver algildur mælikvarði
á slíkt væri þá til, enda vita
þeir einnig, að sitt er að jörðu
hverri. ísland þyrmir þjóð sinni
við mörgu, sem aðrar þjóðir
verða að þola af landi sínu, og
gefur þeim margt, sem aðrir
þrá, en hafa ekki. Olnbogarými,
hreint og heilnæmt loft, óendan
lega möguleika til að njóta upp-
runalegrar, óspilltrar náttúru í
fjölbreytilegustu myndum. Nýtt
viðhorf til alls þessa hefur skap-
azt á vorum dögum, eins konar
ný ættjarðarást. Ekki meiri en
áður var allt frá tímum róman-
tíkurinnar, sú sem birtist í ara-
grúa ættjarðarljóða, sem eiga
mest skylt við ástarjátningar og
tilbeiðslu. Slíkt á ekki við
smekk nútímans, í staðinn fyrir
þetta mikla tilhugalíf eru komin
persónulegri kynni og raunveru
leg sambúð. Þjóðin hefur numið
landið á nýjan hátt, og það er
gleðilegt tímanna tákn, og
mætti þó það landnám enn efl-
ast. En þetta nýja viðhoi'f til
landsins, nýja ást á landinu,
helzt í hendur við .trúna á landið '
sem lífgjafa. Vér verðum að
treysta landinu og trúa á mögu-
leika þess, þá fyrst fáum vér
notið þess unaðar og þeirrar
hamingju sem það er að búa í
þessu fagra og blessaða landi,
sem engan á sinn líka.
Góðir samlandar. Á þessum
fyrsta degi hins nýja árs vildi
ég mega þakka yður öllum góð
samskipti á því ári, sem nú er
liðið. Margs er að minnast fyrir
hvern og einn, og fyrir mig þess
þá helzt, að ég tók við því emb-
ætti, sem nú færir mér að hönd
um að ávarpa yður í dag. Þess
er mér ljúft að geta að þjóðin
hefur, jafnt háir sem lágir, auð-
veldað mér göngu mína með
góðvild og vinsemd, og fyrir
það færi ég henni þakkir. Ég
óska yður öllum árs og friðar.
Með þeirri gömlu íslenzku
kveðju tek ég þá undir óskir og
bænir manna víða um heim fyr_
ir friði meðal þjóða, friði meðal
manna. Gleðilegt nýjár, þökk
fyrir gamla árið. □
— LÆGST LAUNAÐIR
(Framhald af blaðsíðu 8).
ar tekjur og aðrir, sem líkamleg
störf stunda. Yfirdómur rétti þó
hlut bænda verulega nú í haust,
þótt mikið vantaði á, að þeir
fengu sinn réttláta hlut. □
FRAMSÓKNARFÉLÖGIN á
Akureyri héldu fund í Hafnar-
stræti 90 sl. fimmtudagskvöld.
Fundarstjóri var Björn Þórðar-
son og fundarritari Hákon
Eiríksson.
Umræðuefni var fjárhags-
áætlun Akureyrar fyrir árið
1969. Framsögumaður var Sig-
urður Óli Brynjólfsson en Stef-
án Reykjalín tók einnig þátt í
umræðum, sem stóðu til mið-
nættis. Mörgum fyrirspurnum
var beint til bæjarfulltrúanna,
Sigurðar og Stefáns, og af svör-
um þeirra og framsöguræðu
urðu menn margs vísari um
málefni bæjarins.
Hér fara á eftir nokkur efnis-
leg atriði úr ræðu Sigurðar Óla
Brynjólfssonar:
Sígurður Óli Brynjólfsson
bæjarfulltrúi sagði í upphafi
framsöguræðu sinnar, að fjár-
hagsáætlun bæjarins nú, mót-
aðist af því efnahagsástandi,
sem ríkti í landinu um þessar
mundir. Við samningu fjárhags-
áætlunarinnar hefði óvissan og
ringulreiðin í efnahagsaðgerð-
um ríkisstjórnarinnar komið
átakanlega í ljós. Þar væri verið
að berja brestina hér og þar án
þess að unnt væri að vita hverj-
ar afleiðingarnar yrðu. Sem
dæmi um þetta mætti nefna, að
um miðjan des. sl. hefði verið
leitað upplýsinga hjá opinber-
um aðilum um, hver áætlaður
hluti Akureyrarkaupstaðar í
sjúkratryggingum þyrfti að
vera. Upplýst var, að gert væri
ráð fyrir 8.5 millj. kr. í stað 7.4
árið áður. En ekki var fyrr búið
að renna áætluninni gegn um
HINN 8. jan. héldu vinir og sam
herjar Bernharðs Stefánssonar
á Akureyri og í Eyjafjarðar-
sýslu honum og konu hans,
Hrefnu Guðmundsdóttur, kaffi-
samsæti á Hótel KEA í tilefni
af áttræðisafmæli hans þann
dag.
Stefán Reykjalín bæjarfull-
trúi stjómaði samsætinu, sem
var vel sótt og hið ánægjuleg-
asta. Ræður fluttu: Ingvar Gísla
son, Þórir Valgeirsson, Ketill
Guðjónsson, sem færði afmælis
barninu áletraðan silfurskjöld
frá Framsóknarfélagi sýslunnar,
Sveinn Jónsson, er aflienti Bem
harði skrautritað skjal frá ey-
firskum ungmennafélögum, Sig
fjölritaran, þegar nýjar upplýs-
ingar sýndu, að liðurinn þyrfti
að vera 11.3 millj. kr. og er það
50% hækkun frá síðasta ári.
Á sama tíma fréttist svo það,
sem er regin hneiksli: Daggjöld
sjúkrahússins hér eigi að vera
760 krónur en eru t. d. í Borgar
sjúkrahúsinu í Reykjavík 1500
krónur og 1050 krónur á Lands-
spítalanum. Hér getur, sagði
bæjarfulltrúinn, ekki verið um
annað að ræða en verið sé að
láta Fjórðungssjúkrahúsið hér
gjalda þess mjög ómaklega, að
einstakrar hagsýni hefur verið
gætt í rekstri þess á liðnum ár-
um. Þetta verður að leiðrétta.
Nú lýlega komu svo enn þær
upplýsingar, að framlag Akur-
eyrar til Almannatrygginga
þyrfti að hækka um 600 þúsund
kr. frá því er gert var ráð fyrir í
desember. Þessir tveir liðir:
Framlag til sjúkratrygginga og
Almannatrygginga þurfa nú að
vera 22.2 milljónir móti 16.6
millj. kr. árið áður. Þegar við
þetta bætast svo stöðugar kostn
aðarhækkanir á flestum sviðum,
er ekki að undra, þótt fjárhags-
áætlunin feli í sér nokkurn sam
drátt í framkvæmdum, en það
er þó það, sem sízt mátti, sagði
ræðumaður.
Framkvæmdaféð er í krónu-
tölu svipað og í fyrra, en vegna
hækkananna, bæði á efni o. fl.,
er framkvæmdamáttur þess
minni.
Utsvarsupphæðin hækkar,
samkvæmt áætluninni um 3.9%
frá síðasta ári og miðað við
óbreyttan álagningarskala. Auk
útsvaranna eru aðstöðugjöld og
urður Jóhannesson, er færði
þeim hjónum blómakörfu frá
Framsóknarfélögum á Akur-
eyri, Aðalsteina Magnúsdóttir,
er afhenti frú Hrefnu blómvönd
frá viðstöddum konum, Skúli
Jónasson, Ólafur Magnússon og
að síðustu flutti Bemharð Stef-
ánsson ræðu og þakkaði.
Fjöldi skeyta barst afmælis-
baminu í samsæti þessu og las
Gísli Konráðsson þau upp.
Jóhann Konráðsson söng
nokkur lög við undirleik Ás-
kels Jónssonar, sem einnig
stjórnaði almennum söng.
Samsæti þetta var sérstaklega
ánægjulegt og að öllu leyti hið
myndarlegasta. □
skattar af fasteignum, ásamt
framlagi úr Jöfnunarsjóði, helzt
ir tekjuliðir, sagði ræðumaður.
Framlag úr Jöfnunarsjóði er í
samræmi við fjárhagsáætlun
ríkisins ig hækkar um 13%.
Gjaldaliðir fjárhagsáætlunar
bæjarins breytist mjög misjafn-
lega. Sumir hækka verulega,
eins og framlag til trygginga-
sjóðanna, en aðrir liðir lækka
allt að 35%, svo sem framlög til
íþrótta. En þar munar mestu,
að niður fellur stofnframlag til
skíðalyftu.
Framlag til skipulags- og
gatnagerðar er nú áætlað 26.1
millj. kr. og er það 19% hækk-
un, þar af er til endurbyggingar
gatna, holræsagerðar og mal-
bikunar 15 millj. kr. eða 2.2
Sigurður Óli Brynjólfsson
millj. kr. meira en i fyrra. En
vegna hins aukna tilkostnaðar
verða um minni framkvæmdir
að ræða en á síðasta ári.
í mörg ár hefur fjárveiting
bæjar-sjóðs til framkvæmdasjóðs
verið frá 3—7 millj. kr. árlega.
Markmið þessa sjóðs var að
stuðla að uppbyggingu atvinnu-
fyrirtækja og treysta atvinnu-
lífið. Mestum hluta þessa fjár
hefur verið varið til að treysta
atvinnurekstur Ú. A. á liðnum
árum og sjá allir þýðingu þess.
í ár eru 4 millj. kr. áætlaðar til
framkvæmdasjóðsins. Vonir eru
Trúboðshjón
UM SÍÐUSTU HELGI komu
trúboðshjónin Kjell og Iiris
Geelnard hingað til Akureyrar.
Þau hjónin munu dvelja á Akur
eyri í þessari viku til þess að
taka þátt í starfsemi safnaðar
votta Jehóva hér í bæ. Margir
Akureyringar kannast vel við
Kjell og Iiris þar sem þau hafa
verið búsett á Akureyri í fjögur
ár áður en þau fyrir nokkru
fiuttust til Reykjavíkur þar sem
Kjell nú starfar sem forstöðu-
maður votta Jehóva hér á landi.
í sambandi við heimsóknina
nú í vikunni verða fleiri sam-
komur haldnar aukalega. Meðal
annars verður kvikmynd sýnd
að Bjargi föstudagskvöld 17. jan.
kl. 20.30. Myndin er nefnd „Guð
getur ekki farið með lygi“ og
fjallar aðallega um spádóma
Biblíunnar og hvemig þeir hafa
reynzt vera sannir. Efni mynd-
arinnar beinir eirmig athygli
manna að því að Guð og Jesús
Kristur eru ekki ein og sama
persóna, heldur tvær mismun-
andi þersónur. Myndin er í lit-
um og er að mestu leyti tekin í
biblíulöndunum fyrir botni Mið
jarðarhafs. Skýringatexti á ís-
lenzku er lesinn með myndinni.
Sunnudaginn 19. jan. lýkur
heimsókn þeirra hjónanna með
því að Kjell flytur fyrirlestur að
Kaupvangsstræti 4, II hæð. Fyr
bundnar við það, að efnahags-
aðgerðir ríkisstjórnarinnar í
vetur, sem sagðar eru miðaðar
við að tryggja rekstur slíkra
fyrirtækja, geri það að verkum,
að nota megi þessa upphæð til
uppbyggingar á öðrum sviðum.
I einhverju ættu hinar miklu
álögur ríkifeins á almenning og
bæjarfélög að sjást.
Áætlað er að verja 3.5 millj.
kr. til Iðnskólahússins og er von
ast til að unnt verði að vinna
þar fyrir 10 millj. kr. og yrðu þá
tvær hæðir fullgerðar. Þetta
horfir þó þunglega, þar sem
hlutur ríkissjóðs er aðeins áætl-
aður 1.1 millj. kr.
Sigurður Óli Brynjólfsson
sagði að lokum: Eins og fram
hefur komið í ræðu minni er
útlitið fremur ískyggilegt. En
við verðum að treysta því, að
dugnaður og þrautseigja Akur-
eyringa og annarra Islendinga
vinna skjótan sigur á erfiðleik-
unum, sem nú er við að eiga,
og aftur birti í efnahags- og
atvinnumálum. Við, hér fyrir
norðan, verðum, þrátt fyrir allt,
að treysta á velvilja ríkisvalds-
ins, en sá velvilji má ekki vera
orðin ein, heldur verður hann
að birtast í skjótum aðgerðum
með ríflegum stuðningi við fyrir
tækin, uppbyggingu atvinnu-
fyrirtækja í bæ og héraði og
stuðningi við þau, sem fyrir eru.
-ÚRLAXÁRDAL
(Framhald af blaðsíðu 8).
sveit. Nýrækt var um 2 ha. á
jarðabótamann og er það meira
en undanfarin ár. Um 3 km. veg
ur var gerður að Hólum og Ár-
hólum og malborinn, og er það
mikilvæg samgöngubót fyrir
þessa bæi. Vegaviðhald var aft-
ur á móti lítið og lélegt.
Það var alveg rétt ályktað hjá
forsætisráðherranum á gamlárs
kvöld, að ætla Pétri Ottesen að
blása á erfiðleika þjóðarinnar
þó vafi hljóti að vera á því hvað
Pétur orkar miklu hér eftir. Hitt
hefði verið eðlilegra að forsætis
ráðherra sjálfur hefði blásið á
þá eða a. m. k. skýrt þá. Ég
skil ekki í öðru en fleirum en
mér hafi þótt áramótaræða for-
sætisráðherrans lítilfjörleg.
G. Tr. G.
í heimsókn
irlesturinn er nefndur „Orsök
eilífðar gleði“ og verður fluttur
kl. 16. Almenningur er velkom-
inn að báðum þessum samkom-
um og er aðgangur ókeypis. Q
HJÁLPARBEIÐNI
Góðir Akureyringar.
Ungur samborgari, Ragnar Ár-
maimsson, Norðux-götu 51, hefir
þrisvar orðið að fara til Dan-
merkur til hjarta- og æðaað-
gerða. Nú þarf hann utan hið
fjórða sinnið til mjög kostnaðar
samrar hjartaaðgerðar. Að
þessu sinni er förinni, sam-
kvæmt læknisúrskui'ði hér
heima, heitið til London.
Það liggur í augum uppi, að
di'engurinn og móðir hans, sem
er ekkja, geta eigi boi'ið svo
mikinn útgjaldabagga ein. Þess
vegna er nú leitað eftir hjálp
ykkar, lesendur góðir. Við
treystum því að þið bregðist vel
við eins og svo oft áður. Hvert
smáfi'amlag er mikils virði e£
margir leggja saman.
Blöðin í bænum, Húsgagna-
verzlunin Kjai'ni og undirritaðir
munu taka á móti fi-amlögum.
Blessunaróskir til ykkar alli’a
á nýbyrjuðu ári.
Pétur Sigurgeirsson,
Birgir Snæbjömsson. »
Sveinn Jónsson afhendir Bernharði Stefánssyni skrautritað' ávarp.
Bernharði Stefáns-
syni lialdið samsæti