Dagur - 19.02.1969, Blaðsíða 1
LII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 19. febrúar 1969 — 7. tölubl.
FILMU HÚSIÐ
Mafnarstræli 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
LIONS-BLÓM Á
SUNNUDAGINN
NÆSTKOMANDI sunnudag,
23. febrúar, Konudaginn, munu
félagar úr Lionsklúbb Akur-
eyrar fara um bæinn og bjóða
fagra blómvendi til sölu, en
ágóða af sölunni verður varið
til góðgerðarstarfsemi.
Um þessar mundir beinist
fjáröflunarstarfsemi klúbbsins
að því að styrkja ungan Akur-
eyring, sem þarf að ganga undir
mjög kostnaðarsama læknisað-
gerð erlendis.
Er ekki að efa að Lionsmönn-
um verði vel tekið, eins og und
anfarin ár, er þeir hafa selt
Akureyringum blóm á Konu-
daginn.
Vegirnir opnaðir í gær
1 GÆRMORGUN var stórhefill
Vegagerðarinnar sendur vestur
Svanbjörn
Frímannsson settur
seðlabankastjóri
DR. GYLFI í>. Gíslason, við-
skiptamálaráðherra, hefur orðið
við beiðni Sigtryggs Klemenz-
sonar, bankastjóra Seðlabanka
íslands, um að veita honum
leyfi frá störfum af heilsufars-
ástæðum í 6 mánuði frá 15.
febrúar að telja.
Hefur viðskiptamálaráðherra,
að fengnum tillögum bankaráðs
Seðlabankans, sett Svanbjörn
Frímannsson, bankastjóra, sem
seðlabankastjóra tímabilið 15.
febrúar til 15. ágúst 1969, vegna
forfalla Sigtryggs Klemenz-
sonar. □
á Öxnadalsheiði en þá var
mokstursdagur á Reykjavíkur-
leið.
Búist var við því, að opnuð
yrði Húsavíkurleið um Dals-
mynni og Kinn. Verið var að
opna Dalvíkurveg en Múlaveg-
ur er ófær með öllu og var eng-
in ákvörðun tekin í gær, í sam-
bandi við hann.
Snjóblásarinn nýi var á
Veigastöðum í gærmorgun og
var ekki búið að ákveða honum
verkefni, er blaðið ræddi við
Guðmund Benediktsson yfir-
verkstjóra fyrir hádegi í gær.
Nota verður fljótvirkari tæki
því fólk má ekki vera að því að
bíða, sagði verkstjórinn. En
reynslutími blásarans verður
að sjálfsögðu notaður til að full
reyna hæfni hins nýkomna
tækis við þau skilyrði, sem hér
eru fyrir hendi og við þau verk
efni, sem leysa þarf. □
Á norrænu bókasýningunni í Amtsbókasafninu á Akureyri: Frá vinstri: Ingibjörg Jónsdóttir, Ámi
Jónsson bókavörður og Else M. Sigurðsson. (Ljósm.: E. D.)
Bókasýning Norræna hússins komin til Ákureyrar
NORRÆNA HUSIÐ hefur nú í
annað sinn komið hingað og
opnað sýningu. Hin fyrri var
norræn listiðnaðarsýning, sem
sett var upp á Hótel KEA og í
Landsbankasalnum sl. haust.
En hin síðari var opnuð á laug-
ardaginn með viðhöfn í Amts-
bókasafninu nýja og er það
bókasýning. Má því segja, að á
íslirafl viða við Norðurland
SAMKVÆMT upplýsingum
Veðurstofunnar í gær, hefur is-
hrafl nálgast Norðurland en
meginísinn er þó nokkru fjær.
Helztu fréttir voru þessar:
Hofsjökull tilkynnti kl. 3 að
ísspöng væri 7 mílur suð-suð-
vestur af Melrakkanesi. ísbrún-
in liggur til norðausturs og er
6 mílna löng. Samfastar ísspang
ir í 13 mílna fjarlægð frá Brim-
nesi. Fyrir Langanes dreifðir
jakar. Siglingaleið greiðfær í
björtu en varhugaverð í myrkri.
Enginn ís á vanalegri siglinga-
leið frá Hrísey þar til 2 mílur
austur fyrir Rifstanga, þaðan
dreifður ís á siglingaleið.
Nokkrir ísjakar á siglingaleið
frá Barða að Stiga samkvæmt
frétt frá Landhelgisgæzlunni.
Frá Hornbjargsvita: Mikil
breyting á ísnum og ísinn að-
eins að losna frá landinu. Þétt-
leiki íssins á því svæði, sem séð
verður yfir er 5—8 tíundu.
ís hefur rekið inn á Siglufjörð
og frá Holti í Þistilfirði sýnist
samfelldur ís út í fjarðarmynn-
inu. Frá Skoruvík fréttist, að
dreifðir jakar séu á víkinni og
á siglingaleið. Staka jaka hefur
rekið inn í Ólafsfjórð.
Frá Hrauni á Skaga: Héðan
sjást nokkrir hafísjakar á reki
á siglingaleið.
Dreifðar ísspangir og ísjakar
kring um Grímsey, svo langt,
sem séð verður. □
hinum stutta tíma síðan Nor-
ræna húsið var opnað, hafi það
bæði starfað sunnanlands og
norðan og er það vel. Forstjóri
þess er Ivar Eskeland, mikill
áhugamaður um norræna sam-
vinnu í verki, svo sem hann hef
ur sýnt.
Það er ánægjulegt að eiga
þess kost hér á landi, fyrst fyrir
sunnan og síðan hér nyrðra, að
geta gert sér grein fyrir þróun-
inni á bókamarkaði Norður-
landanna og sjá nýjar bækur
frá þessum löndum, 1626 að
tölu í öllum bókmenntagrein-
um á fyrstu slíkri sýningu, sem
haldin hefur verið. Og hér er
ekki aðeins um það að ræða, að
sjá nöfn bóka og höfunda, held-
ur einnig prentun og bókband.
Bókum þessum hefur verið
smekklega fyrir komið, að
mestu á efri hæð hins nýja safn
húss hér, en barnabækurnar
eru þó á fyrstu hæð, eins og
barnabækur Amtsbókasafnsins.
Því miður var Ivar Eskeland
veikur af kvefi og gat ekki kom
ið norður. í hans stað kom Else
Mia Sigurðsson bókavörður
Norræna hússins og Ingibjörg
Jónsdóttir bókavörður Borgar-
bókasafnsins. Opnaði Else sýn-
inguna á laugardaginn.
í sambandi við þessa myndar
legu bókasýningu, sem verður
opin til 31. marz, geta þeir, sem
vilja, tekið þátt í skemmtilegri
getraun um fallegustu bækurn-
ar. Verðlaunin eru góðar bæk-
ur. □
Ferðamönnum hjálpað á Öxnadalsheiði
Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ
óku tveir menn bílaleigujeppa
norður Öxnadalsheiði og misstu
hann út af veginum skammt
frá Grjótá. Þeir gengu áfram og
komust í Sesseljubúð Slysa-
varnafélagsins. Veður versnaði
mjög á heiðinni og náðu menn-
irnir ekki sambandi gegn um
talstöðina. Á mánudaginn gátu
þeir gert vart við sig og fóru þá
7 menn úr Flugbjörgunarsveit-
inni á Akureyri á 2 bílum af
stað til aðstoðar, undir farar-
stjórn Gísla Kr. Lorenzsonar
formanns sveitarinnar. Þeir
fóru um kl. 1 frá Akureyri og
komu í Sesseljubúð kl. 6. Til
Akureyrar komu þeir kl. 2 í
fyrrinótt. Þæfingsfæri var á
köflum. Ferðamennirnir að
sunnan heita Birgir Helgason
og Þorsteinn Kristjánsson. Dvöl
þeirra í Sesseljubúð var ekki
góð, því kolaofn, sem þar er,
reykti mjög og þarf úr að bæta.
(Framhald á blaðsíðu 2)
Nennlaskólaleikur
Margar eru þær bækurnar
BANASLYS
UNGUR Akureyringur, Árni
Gunnar Tómasson vélvirki, lézt
af slysförum við Búrfell á laug-
ardaginn. Hann lætur eftir sig
konu og þrjú börn. □
Á BÓKASÝNINGU Norræna
hússins, sem nú er opin dag
hvern í Amtsbókasafninu á Ak-
ureyri, er þessar upplýsingar
m. a. að finna um bókaútgáfu
á Norðurlöndum:
í Svíþjóð komu út 5.809 titlar
1967.
í Danmörku komu út 4.895
titlar 1967. Smárit innan við 48
síður innifalin. 62% bókanna
voru danskar.
í Finnlandi komu út 5.485 titl
ar 1967. Þar með ný upplög af
eldri bókum — alls komu út 15
milljón eintok.
í Noregi voru gefnar út 625
bækur 1967 og endurprentaðar
355 bækur.
Á íslandi hafa verið gefin út
frá 1887 til 1966, samtals 19.919
bækur og rit. Árið 1966 komu
út 533 titlar. Frumsamdar ljóða
bækur frá 1887 til 1966 eru sam
tals 1.257. □
í MENNTASKÓLANUM á Ak-
ureyri starfar leikfélag. For-
maður þess nú er Ragnheiður
Ríkharðsdóttir. En verndari
þess er Jón Árni Jónsson
menntaskólakennari.
Á hverjum vetri sýnir þetta
leikfélag skólans einn sjónleik
og er hann jafnan góð tilbreyt-
ing í fremur fáskrúðugu leik-
listarlífi bæjarins. Þórunn M.
Magnúsdóttir hefur sviðsett
leikinn að þessu sinni og varð
Romanoff og Júlia fyrir valinu,
en það er gamanleikur um
heimsmálin, ef svo má segja.
Frumsýningin verður í leikhúsi
bæjarins á laugardaginn og
hefst kl. 8. Sýningin mun
standa tvær og hálfa klukku-
stund. Sigurgeir Hilmar Frið-
þjófsson, Sólveig Brynja Grét-
arsdóttir og Kristján Sigur-
björnsson fara með þrjú
stærstu hlutverkin af þrettán.
Bændaklúbbsfundur
verður mánudaginn 24. þ. m. að
Hótel KEA. Hefst fundurinn af
venju kl. 21,
Umræðuefni verður að þessu
sinni, náttúrunafnakenningin
og hefur prófessor Þórhallur
Vilmundarson framsögu í mál-
inu. □