Dagur - 19.02.1969, Page 6
6
v rn
A $
#
•f
«
-?-
■k
•5■
■3
Í
-t
1»
Gleðjiö eiginkonuna meö Lions-blómum
Félagar úr Lionsklúbb Akureyrar koma í heimsókn á konudaginn (sunnudaginn 23. þ.m.). Kanjíió a£ þeim fagran y
^ blómvönd og styrkið um leið gott málefni. — Sjá nánar í frétt á forsíðu. í'
? ->
T -•*
MÚLAÞING
NÝLEGA er komið út 3. hefti
af ritinu Múlaþing, sem Sögu-
félag Austurlands gefur út. Rit-
stjórar eru Ármann Halldórs-
son kennari á Eiðum og Sigurð-
ur O. Pálsson skólastjóri Borg-
arfirði eystia.
f inngangsorðum kvartar rit-
stj. um það, að afrek Sögufélags
ins séu lítil og fáir þeir, sem
taka viija þátt í störfum þess.
Þetta er rangt hvað tekur til
útgófustarfsemi hins unga fé-
lagsskapar, því að hún er þegar
lofsverð, en um hitt, hve fáir
gerist félagar, vil ég leyfa mér
að lýsa yfir því, að inngöngu-
dyr Sögufélagsins muni harðla
þröngar og ærið sjaldan opnar.
Efni Múlaþings að þessu sinni
er áþekkt fyrri heftunum, a. m.
k. ritgerðir um gamalt, aust-
firzkt efni, sem vera ber. Þá
birtir ritið allmörg nýtízkuleg
Ijóð; að því leyti, sem þau bera
vottinn um skáldskap eiga þau
rétt á að koma fyrir almenn-
ings sjónu, þótt betur færi í
bókmenntatímaritum, innan um
smásögur o. þ. u. 1., en hér, þar
sem sagan situr í fyrirrúmi.
Skemmtilegasta greinin í rit-
inu, lifandi, fróðleg og falleg,
er „Örlagabrúðkaupið eftir
Benedikt Gíslason frá Hofteiji.
Lokaorðin eru ógleymanleg, a.
m. k. lesanda, sem komizt hefur
í snertingu við umhverfi og
efni: „Hofteigur bjargaði nafni
sínu inn á nokkrar heiðnar bæk
ur, sem e. t. v. fylgja sögunni
tímakorn. Það er eins og ómi af
Hofteigsnafni um leið og
klukkustrengur sögunnar er
slitinn.“
Þrjár greinar eru um sam-
gönguleiðir yfir vatnsföllin
miklu á Héraði: Fljótið, Jökulsá
í Fljótsdal og Jökulsá á Brú.
Einar Pétursson frá Heykolls
stöðuni skrifar einkar læsilega
grein um svifferjuna á Lagar-
fljóti utan við Arnarmelinn. Er
mikils um vert að glata ekki
sögu slíkra mannvirkja, sem
héðan af hljóta að heyra sög-
unni einni.
Sama er um straumferjuna
undan Hrafnkelsstöðum í Fljóts
dal, sem Methúsalem Kjerúlf
greinir frá. Rekur hann sögu
lögferjunnar á Hrafnkelsst. frá
1904—1950, er árnar voru brú-
aðar.
Agnar Hallgrímsson stúdent
frá Droplaugarstöðum skrifar
langa grein um brýr á Jökulsá
á Brú. Virðist efnið tæmt að
hætti þeirra norrænumanna.
Ritgerð þessi er hin bezta heim
ild að því er tekur til brúnna,
einkutn undan Fossvölliun, en
eitthvað slær út í fyrir höf. um
kláfferjumar á Jöklu, sem raun
ar ætti að skrifa sjálfstæða
grein um. Ólukka er, að höf.
akuli ekki vita um kláfinn und-
an Merfd, en hann er nú eini
kláfurinn á þessari miklu for-
ynju, sem notaður er að stað-
aldri, ný uppgerður.
Sag» Skrúðsins er merkileg
og mun fjölbreyttari en við
varð búizt. Um nafnið á Fá-
akrúðsfírði var þó miður að
ekki var vísað til kirknatals
Páls biskups 1200, en þar stend
ur: Kolfreystaður í SkrúðsftrBi.
Við umræðuna af því hvort
Jónas Hallgrímsson hafi komið
í Skrúðinn og leidd er af dag-
bók hans, vantar að geta þess,
að Jónas dvaldist um skeið í
Vallanesi hjá síra Guttormi
Pálssyni og mdm. Margi-éti Vig
fúsdóttur, Ormssonar. Ingunn
systir hennar bjó á Eyjólfsstöð-
um, átti Sigurð stúdent Guð-
mundsson. „Úr gamanbréfi til
kunningja míns í Kaupmanna-
höfn“, er saga Jónasar um
drottninguna frá Englandi, sem
mun vera Ingunn á Eyjólfsstöð
um, en sagan skrifuð í Valla-
nesi af gefnu tilefni (sbr.
Blanda IV, 1 bls. 41).
Enn má geta af efni Múla-
þings greina Halldórs Stefáns-
sonar fv. alþingismanns, Prests-
kosningin í Kirkjubæ í Hróars-
tungu 1888, sem er fyrsta prests
kosning á Austurlandi, er stutt
og skemmtileg frásögu. Ævi-
þættir Halldórs eru og prýðileg
lesning. Halldór hefur skrifað
mikið um sögu Austurlands og
má þar minna á hinar stórfróð-
legu greinar um Jökuldalsheið-
ina og byggðina þar, Hrafnkels-
dalinn o. fl. í Austurlandi, safni
austfirzkra fræða.
Mikill fróðskapur er í grein
Jóns Eiríkssonar skólastjóra á
Torfastöðum í Vopnafirði. Slík-
ar ritgerðir gera Múlaþing að
merku heimildarriti.
Greinar tveggja nýlátinna
manna, Halldórs Einarssonar
frá Kóreksstaðagerði og Sigurð
ar Vilhjálmssonar á Hánefsstöð
um, eru ávinningur, einkum ber
frásögn Halldórs hugþekkan
málblæ.
Laugum 15. febrúar. í síðustu
viku kom saman til fundar
nefnd, sem sjá skal um þorra-
- Áfengismálafélag ísl.
(Framhald af blaðsíðu 8).
og fá stöðugt frá þeim upplýs-
ingar um alla framþróun áfeng-
ismálanna hjá hverju fyrir sig.
ÁMÍ er þegar í sambandi við
sterkasta áfengismálafélag ver-
aldarinnar, National Council on
Alcoholism Inc. í Bandaríkjun-
um, sem þegar telur meðlima-
stofnanir víða um heim. Frá
þessu félagi hefur ÁMÍ þegar
fengið hafsjó upplýsingabækl-
inga og rita, sem gefin eru út
fyrir sérstaka starfshópa, svo
sem lækna, presta, lögfræðinga,
kennara, fyrirlesara og forvígis
menn í viðskiptum, iðnaði og
framleiðslu.
Að gefa út fréttabréf um
áfengismál og hverja framvindu
félagsstarfseminnar til allra
meðlima félagsins.
Að gefa út sérhæfða bækl-
inga, sem fyrst og fremst verða
miðaðir við að vekja áhuga al-
mennings á því, að alkóhólismi
er sjúkdómur, að alkóhólistar
eru sjúklingar, og það er hægt
að lækna alkóhólisma og það er
þess virði fyrir einstaklinga og
þjóðfélagið í heild, að alkóhólist
um sé veitt sú aðhlynning, sem
nauðsynleg er til þess að þeir
geti náð bata. □
Ættargrein Guðmundar á
Þvottá um Einar í Hjáleigunni
og Ragnheiði konu hans er
prýðilega unnin. Slíkur frágang
ur er til mikils sóma. Guðmund
ur er eini höfundurinn, sem
skrifar í ritið um efni af sunnan
verðum Austfjörðum, nema
hvað sögu Halldórs Stefánsson-
ar víkur þangað nokkuð. Er auð
sær ávinningur fyrir lesenda-
hópinn og útbreiðslumöguleika.
Múlaþings að dreifa efni og höf
undum sem mest.
Stuttir þættir eru eftir Gísla
heitinn í Skógargerði, Hrólf á
Hallbjarnarstöðum og Sigur-
bjöm Snjólfsson — auk ljóð-
anna, sem áður gat.
Nýlega sagði bæjarstjórinn í
Neskaupstað eitthvað á þá leið
í útvarp að bókaramennt og
skáldamál væri liðin fyrirbæri
á Austurlandi.
Múlaþing 1—3, sem út hefur
komið í röð sl. 3 ár, sýnir þó
annað. Bendi þar til þess, sem
hér getur lauslega að framan og
minni á að auk húsganga og
lausavísna eru Ijóð eftir 6 Aust
firðinga í ritinu, sem allir eru á
lífi nema síra Ólafur Indriðason
á Kolfreyjustað. Hann var sem
kunnugt er faðir Páls umboðs-
manns og skálds á Hallfreðar-
stöðum, en það er trúa mín að
andi Páls og eldri frænda hans,
síra Stefáns Ólfassonar í Valla-
nesi, lifi enn með Austfirðing-
um, bæði á Héraði og í Fjörð-
um. Líklega á skáldskapur bæði
hins bundna og óbundna máls
svo sterkan þátt í Austfirðing-
um að ástæða væri til að gera
skil milli Múlaþings fræðimann
anna og skáldanna.
blót hér í sveit. Var þá sæmi-
legt færi eftir hlákublota. En
svo brá við, að morguninn eftir
fundinn, var komin stórhríð og
varð ekki af hátíðahöldum.
Félagslíf liggur svo að segja allt
í dái hér í sveit. Veldur því
bæði erfitt tíðarfar og inflúensa,
sem enn er á sveimi, þótt rúmur
mánuður sé liðinn síðan hún
kom í Laugaskóla. Náði hún
þar hámarki eftir miðjan janú-
ar og lágu flestir í einu 70—80
nemendur. Var hún þó fremur
væg og hefur ekki borizt nema
á einstöku heimili hér í sveit,
en leggur þar stundum allt
heimilisfólk í rúmið í einu.
Vegna veikindanna seinkaði
miðvetrarprófunum í Lauga-
skóla og lauk þeim um síðustu
mánaðamót. Má telja það til
tíðinda, að einn nemandinn,
Þóra Þóroddsdóttir frá Breiðu-
mýri, hlaut í meðaleinkunn
9.79. Prófað var eingöngu í bók
legum greinum. G. G.
TIL SÖLU
RÚSSAJEPPI, árg. 1960
Skijrti á 4 til 5 manna
bíl, árgerð 1960 til 1963,
koina til greina.
Uppl. í síma 2-13-22.
Ágúst Sigurðsson
í Vallanesi.
Lítið félagslíf í Reykjadal
Vinnuveitendur og sveitar-
félög á Norðurlandi:
Erindi og umsóknir um fyrirgreiðslu til Atvinnu-
málanefndar Norðurlands eiga að berast á eyðu-
blöðum Atvinnujöfnunarsjóðs til íormanns, Lár-
usar Jónssonar c/o bæjarskrifstofur, Akureyri,
sími 21000. Eyðublöðin munu fást hjá bæjar-
stjórum, sveitarstjórum og oddvitum í kaupstöð-
um og kauptúnum á svæðinu.
Atvinnumálanefnd Norðurlands.
VESTFIRÐINGAR á Akureyri og í nágrenni!
Vestfirzkar ættir, 4. bindi,
Eyrardalsætt og nafnaskrá, er komtn.
Tíl afgreiðslu hjá Sig. Baldvinss., Þingvallastr. 8
og Gúmmíviðgerðinni, Strandgötu 11.
Barngóð stúlka óskast
til að gæta tveggja barna
í Reykjavík, þar sem
húsmóðirin vinnur úti.
Herbergi fylgir.
Uppl. í síma 2-16-39 í
Reykjavík eftir kl. 5 e.h.
Vantar MATSVEIN
á trollbát frá Vest-
mannaeyjum. — Þarf
ekki að -vera vanur.
Uppl. í síma 1-19-83
GÓÐ AUGLÝSING - GEFUR GÓÐAN ARÐ
eftir kl. 7 á kvöldin.
Iðja, félag verksmiðju-
fólks á Akureyri, heldur
ÁRSHÁTÍÐ sína í Al-
þýðuhúsinu laugard- 1.
marz n. k. — Þorrablpts-
matur á borðum. — .
Aðgangseyrir kr. 250.00
pr. mann. .
Miðasala o. fl. auglýst í
næsta blaði.
Nefndin.
SPILAKVÖLD.
Skemmt iklúbbur tfempl-
ara hefur spilakvöld í
Alþýðuihúsinú?|pstu-
dagskvöld 2L febr. kl.
8.30. Miðar sejdir við
innganginn og, kosta kr.
100.00. Fern verðlaun.
Dansað eftir keppni. —
Allir velkomnir án
áfengis.
S. K. T.
ÓDÝRT - NOTAÐ!
TIL SÖLU:
RAFELDAVÉL,
DÍVANAR, BORÐ og
STÓLAR, GÓLFDÚK-
UR, VERKFÆRI o. fl.
Uppl. í dag og á morgun
í Hríseyjargötu 6, uppi.
Til sölu tvöfaldur
SVEFNSÓFI.
Verð kr. 1.500.00. -
Enn fremur
T ÖSKURIT VÉL
í góðu lagi.
Verð kr. 1.500.00.
Uppl. í síma 12461.
Til sölu
LJÓSMYNDAVÉi,
„Sujier 8" og sý’- ngar-
vél af scimu tegund.
Uppl. í síma 1-13-74
eftlr kl. 7 á kvöldin.
Til sölu
VÖSTRA skíði (1.95)
með bindingum.
Verð kr. 2.000.00.
Ujipl. í súna 1-20-81.
TIL SÖLU:
BLÁSARAR
MÓTORAR
HEYVINN UVÉLAR
VAGNAR
MJÓLKURDUNKAR
Gísli Guðmann, Skarði.
TIL SÖLU
Peregree
BARNAVAGN
Sími 2-11-76.