Dagur - 19.02.1969, Blaðsíða 7
7
SMATT & STORT
(Framhald af blaðsíðu 8).
yfir, og endurtek það hér, að ég
tel það sjálfsagðan lilut, að fólk,
seni hefur grun um að það eigi
rétt á bótum, leiti upplýsinga
um rétt sinn. Og mér er það
mjög til efs að þér, herra rit-
stjóri, eða „sagnamenn“ yðar,
yrðuð niikið aðgangslinari en
aðrir, ef þér stæðuð í þeim spor
um, að þér hélduð yður eiga
rétt til bóta — sem liamingjan
vonandi forðar yður frá.
Hinu er ekki að neita, að
bráðabirgðalögin um atvinnu-
leysisbætur virðast nokkuð
snöggsoðin og yfirþyrmandi,
svo það er eðlilegt að þau komi
nokkru róti á ímyndunarafl
fólks.
Með þökk fyrir birtinguna.
Stefán Bjarman, fyrrv. vinnu
miðlunarstjóri.“
BRÉF FRÁ ÞREM JÓNUM
„í síðasta tölublaði Dags, blaði
Framsóknarmanna hér á Akur-
eyri, er að finna mjög illkvitnis
lega klausu varðandi greiðslu
atvinnuleysisbóta, til þess fólks,
sem atvinnuleysi hefur herjað
að undanförnu, og beinar árás-
ir á það fólk, sem um atvinnu-
leysisbætur sækja.
Við undirritaðir, sem vinnum
við útreikning atvinnuleysis-
bóta og greiðslu þeirra hér í bæ
til atvinnulausra, teljum að hér
sé algerlega farið með staðlausa
stafi.
Ennfremur er það með öllu
ósatt, að það verkafólk, sem
leitar eftir atvinnuleysisbótum,
hafi sýnt heimtufrekju eða aðra
ósæmilega framkomu, miklu
frekar hefur það sýnt þolin-
mæði og biðlund og skilið það
mikla starf, sem leggja þarf
fram þegar svo niargir eru á
atvinnuleysisskrá sem raun her
vitni um.
Úthlutunarnefnd atvinnuleys
isbóta hefur að undanförnu af-
greitt vikulega öll þau vottorð,
sem borizt hafa frá Vinnumiðl-
unarskrifstofu Akureyrarbæjar.
Akureyri, 14. 2. 1969
Jón Helgason,
Jón lngimarsson,
Jón Ásgeirsson.“
SNÖGGSOÐIN LÖG OG
YFIRÞYRMANDI
Fyrrverandi vinnumiðlunar-
stjóri, talar sjálfur um snögg-
soðin lög og yfirþyrmandi í sami
bandi við atvinnuleysisbætur
og staðfestir þannig þau um-
mæli blaðsins, að starfsmenn-
irnir hafi lent í vandræðum
vegna óljósra reglna, því annars
hefðu þau ekki verið yfirþyrm-
andi fyrir jafn reyndan mann
og fyrrv. vinnumiðlunarstjóra.
Hann segir ennfremur, að þau,
þ. e. lögin, hafi komið róti á
ímyndunarafl fólks, en það
styður þær sagnir, að fólk hafi
látið ímyndunaraflið hlaupa
með sig í gönur í sambandi við
atvinnuleysisbætur. Verður ef
til vill vikið að þessu máli síðar.
ÞRÍR JÓNAR
Þrír Jónar finna sig knúða til
Maðurinn minn og sonur okkar
ÁRNI GUNNAR TÓMASSON
lézt af slysförum laugardaginn 15. febrúar.
Halldóra Gunnarsdóttir.
Þorbjörg Jóhannesdóttir.
Tómas Kristjánsson.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
°g afi,
AÐALBJÖRN AUSTMAR
andaðist að morgni 17. þ. m.
Jóhanna Aðalsteinsdóttir, Magnús Aðalbjörns-
son, Ragna Magnúsdóttir, Svana Aðalbjörnsdótt-
ir, Páll Pálsson og barnabörn.
Eiginmaður niinn
HARALDUR KARLSSON,
Skarðshlíð 10, Akureyri, andaðist 14. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju laugar-
daginn 22. febrúar kl. 1.30 e. h.
Jóninna Jónsdóttir.
Hjartanlegar þakkir viljum við votta öllurn þeim
er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
jarðarför
KRISTJÁNS EINARSSONAR
frá Hermundarfelli.
Alveg sérstaklega viljum við þakka læknum og
lijúkrunarliði Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri er önnuðust hann af alúð og nærgætni síð-
ustu árin.
Aðstandendur.
að gefa út yfirlýsingu af sama
tilefni og fyrrv. vinnumiðlunar-
stjóri. Kannski var meiri
ástæða fyrir þessa menn, að
kynna fólki rétt þess til bóta
vegna atvinnuleysis og þær
reglur, sem um málið gilda og
væri Dagur fús að birta þær
ábendingar, viðkomandi til hag
ræðis og til þess einnig að forða
fólki frá því, að verða háð ein-
stökum mönnum í sambandi við
atvmnuleysisbætur. Rétt er að
geta þess, að núverandi vinnu-
miðlunarstjóri, Heiðrekur Guð-
mundsson, samvizkusamur
starfsmaður, hefur ekki séð
ástæðu til að gera athugasemdir
við þá smáklausu í Degi, sem
komið hefur róti á hugi Jón-
anna þriggja og Stefáns Bjarm-
an og blaðinu hefur ennfremur
verið tjáð, að liann hafi sagt
starfi sínu Iausu.
Fannfergi
víða um
Evrópu
FREGNIR HERMA, að mikið
fannfergi sé nú víða í Evrópu.
Hefur það valdið umferðar-
truflunum og margvíslegum
erfiðleikum. Frost hefur víða
verið mikið t. d. 30 stiga frost
á Norður-ítaliu einn daginn.
Má því segja, að þar séu harð-
indi um þessar mundir — ekki
sízt vegna þess, að þar er fólk
hvorki vel undir kalda veðráttu
búið og víðast skapast hreint
öngþveiti þar sem umferðar-
æðar stíflast, svo sem nú af
völdum snjóanna. □
□ RÚN 59692197 = 2 .-.
IOOF — 1502218y2
AKUREYRARKIRKJA. Fyrsta
föstumessan verður í kvöld
(miðvikudagskvöld) kl. 8.30.
Sungið verður úr Passíusálm
unum sem hér segir: 1. sálm-
ur vers 1—8, 2. sálmur vers
16—20, 3. sálmur vers 13—18
og 25. sálmur 14. vers. — B. S.
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n.k. sunnudag kl. 2 e.h.
Sálmar: 285 — 337 — 290 —
370 — 264. — B. S.
SUNNUDAGASKÓLI Akur-
eyrarkirkju er á sunnudaginn
kl. 10.30. — Sóknarprestar
GLERÁRHVERFI! Sunnudaga
skólinn í skólahúsinu kl. 1.15
n. k. sunnudag. Öll börn vel-
komin.
SAMKOMUR að Kaupvangs-
stræti 4, II hæð. Biblíuskóli
og þjónustusamkoma fimmtu
daginn 20. febrúar kl. 20.30.
Opinber fyrirlestur: Hafið
þolgæði eins og Job — fluttur
af Holger Frederiksen, sunnu
daginn 23. febrúar kl. 16.00.
Allir velkomnir. — Vottar
Jehóva.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Almenn samkoma sunnudag-
inn 23. febrúar kl. 8.30 e. h.
Ræðumaður Gylfi Svavars-
son. Tekið á móti gjöfum til
kristniboðsins. — Allir vel-
komnir.
MINNINGARSPJÖLD kvenfé-
lagsins Hlífar. Öllum ágóða
varið til fegrunar við bama-
heimilið Pálmholt. Spjöldin
fást í Bókabúðinni Huld og
hjá Laufeyju Sigurðardóttur
Hlíðargötu 3.
AKUREYRINGAR. Munið sam
komuna í kvöld, miðvikudag,
kl. 8.30 e. h. Ofursti Arni
Ödegaard talar og deildar-
stjórinn Guðfinna Jóhannes-
dóttir stjórnar. Kaffiveiting-
ar. Verið velkomin. — Halló
krakkar! samkomur á hverju
kvöldi kl. 5 síðdegis. — Hjálp
ræðisherinn.
SAMKOMA á sunnudaginn kl.
4.30 e. h. Athugið bi'eyttan
samkomutíma. — Hjálpræðis
herinn.
I.O.G.T. stúkan Brynja nr. 99.
Fundur fimmtudaginn 20.
febrúar n. k. kl. 9 e. h. í Al-
þýðuhúsinu. — Fundarefni:
Vígsla nýliða. Upplestur o. fl.
Önnur mál. — Æ.t.
VISTHEIMILINU SÓLBORG
hafa borizt þessar gjafir: Frá
Kvenfélagi sósíalista (til heið
urs Elísabetu og Ingibjörgu
Ein'ksdætrum) kr. 5.380.00
ásamt tveimur hlutabréfum.
Minningargjöf um Bernólínu
og Sævald í Sigluvík fró Sig-
rúnu Ben. kr. 1.000.00. Kærar
þakkir. — Jóh. Ól. Sæm.
FRÁ SJÁLFSBJÖRG.
Fjórða og síðasta spila
kvöldið verður laugar
daginn 22. febrúar að
Bjargi kl. 8.30 e. h. —•
Dans á eftir.
SKEMMTIKLÚBBUR teinplara
heldur spilakvöld ó föstudag-
inn. Sjá auglýsingu á öðrum
stað í blaðinu.
DRENGJADEILD. —
Boðsfundur til stúlkna
O. deildar fimmtudags-
V S kvöld kl. 8. — Mætið
allir.
— Stefnan
(Fi-amhald af blaðsíðu 5).
legt að auka opinberar atvinnu-
framkvæmdir til muna um land
allt, ekki sízt þær, sem nota
vinnuafl, sem um munar. En því
miður eru fjárlögin ekki þannig
úr garði gerð. Sýpur þjóði þann
ig seyðið af veikri fjármála-
stjóm, sem hér sat í hinum
mikla góðæri, en kunni ekki
með fé að fara. Hafi fjöldi fólks
ekki vei'k að vinna, segir það
fljótlega til sín í þjóðarbúskapn
um. Nú hafa verkalýður og at-
vinnurekendur látið ríkisstjórn
ina lofa 300 millj. kr. til atvinnu
aukningar.
í minnihlutaáliti fjárveitinga-
nefndar Alþingis sem alþingis-
mennirnir Ágúst Þorvaldsson,
Halldór E. Sigurðsson og Ingv-
ar Gíslason stóðu að í desember
sl. var vakin athygli á ýmsum
alvarlegum staðreyndum í sam
bandi við fjármál ríkis og þjóð-
ar, og hvernig bregðast þyrfti
við þeim vanda, sem þar er á
ferðum. Á undanförnum átta
árum hafa tekjur ríkisins farið
samtals 2500 millj. kr. fram úr
áætlun fjárlaga og bætzt hafa
við hundruð milljóna, sem
skuld í Seðlabankanum. Mikið
af þessari fjárhæð var í verð-
meiri krónum en nú eru í gildi.
Vegasjóður skuldar nú 500
millj. kr. vegna nýbyggingar
vega, sem lagðir hafa verið án
fjárveitingar og ríkissjóður sjálf
ur skuldar aðrar 500 millj. kr.,
sem honum hefur ekki tekizt
að leggja fram til hafnargerða,
skóla, sjúkrahúsa, rafmagns-
veitna og flugvalla.
Skuldir þjóðarinnar útá við
mörkuð
eru orénar mjög miklar, miðað
við það, sem áður var, t. d. fyrir
einum áratug.
IX.
En þjóðin verður að halda
áfram að lifa í landi sínu. Það
verður að nota vinnuafl henn-
ar, framleiðslutæki og önnur
gagnleg verðmæti. Það, sem
óhjákvæmilegt er og ekki verð
ur vahrækt án stórtjóns fyrir
þjóðina, verður að ná fram að
ganga ef unnt er, þó það kosti
fé, og þjóðmálastefnuna þarf að
miða við það, ef vel á að fara.
Skammsýnir menn kalla það
stundum ábyrgðarleysi að vilja,
hvað sem það kostar, koma í
veg fyrir, að heimili og atvinnu
vegir, svo og heil byggðarlög,
verði óvíg í lífsbaráttunni á
erfiðum tímum. En þegar kom-
ið er að skuldaskilum stjórn-
leysisins, skilja menn betur en
ella, hvað það er sem máli skipt
ir. Og það verður, þótt erfitt sé,
í lengstu lög að knýja fram „afl
þeirra hluta, sem gjöra skal“,
þegar brýna nauðsyn ber til.
- Mikið atvinnuleysi
(Framhald af blaðsíðu 1)
Trillubátar hafa lítt farið á sjó.
ísinn er kominn hingað inn,
að vestanverðu inn í fjarðar-
botn, og er sízt minni en í fyrra.
í honum eru allmargir stórir
jakar, en ekki er mikinn ís að
sjá hér út fjörðinn. Verið er að
opna veginn vestur.
Fjárhagsáætlun Siglufjraðar-
kaupstaðar hefur enn ekki ver-
ið lögð fram. J. Þ.
ÆSKULÝÐSHEIMILIÐ í skáta
heimilinu Hvammi verður
framvegis opið þriðjudaga og
fimmtudaga. Sömu reglur og
áður gilda. — Æskulýðsráð
Akureyrar.
SKOTFÉLAGAR. Æfing föstu-
dagskvöld kl. 8.15 til 915.
GJAFIR. Til Ragnars Ármanns
sonar kr. 300 frá Birgi Pálma
syni. — Til svöngu barnanna
í Biafra kr. 200 frá Magnúsi
Árnasyni, kr. 200 frá Lauf-
eyju Árnadóttur bæði Þing-
vallastræti 36, og kr. 1000 frá
Guðrúnu Guðjónsdóttur,
Gránufélagsgötu 17. — Beztu
þakkir. — Birgir Snæbjörns-
son.
Happdrætti Háskóla
r
Islands
Vinningar í 2. flokki 1969.
Akureyrarumboð.
10.000 kr. vinningar: 24764,
36463.
5.000 kr. vinningar: 11305,12429,
17946, 21757, 23874, 31184, 51898,
53201, 55791, 57912, 58035, 59574.
2.000 kr. vinningar: 1154, 1541,
2942, 3373, 3584, 4653, 5379,
6882, 7005, 7257, 8840, 8984,
9065, 9229, 9239, 9766, 10212,
12075, 13380, 13636,13791, 14027,
14884, 16076, 16094, 16099, 16598,
17937, 17938, 19005,19070, 19588,
20519, 20721, 22090, 22140, 22144,
23248, 25956, 28853, 29047, 29050,
30508, 30532, 30540, 30594, 31126,
31151, 36465, 36468, 40591, 40596,
42831, 42835, 44597, 44622, 44845,
44854, 44870, 47451, 48267, 49127,
49273, 49298, 52989, 53825, 53830,
53963, 59007.
Birt án ábyrgðaf.