Dagur - 12.03.1969, Síða 1
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstrætj 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVER2LUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
SJÓNVARPIÐ NÆR
NÚ TIL GRÍMSEYJAR
Grímsey 10. marz. Hafíshrafl er
allt í kring um eyna og nokkr-
ar samfeldar spengur. Höfnin
er lögð og bátar frosnir inni.
í janúar og febrúar var töluvert
róið og aflaðist allvel.
Loksins munum við losna við
það síðasta af fiskinum, sem
hér hefur legið pakkaður og
beðið skipsferðar.
Fimm sjónvarpstæki eru kom
in hingað og sést vel í þeim. Við
njótum geisla Dalvíkurstöðvar-
innar, þótt sérfræðingar tryðu
ekki á, að svo mætti verða, fyrr
en fyrsta sjónvarpstækið kom
og þetta var reynt. S. S.
JÖRÐ SPRINGUR
Eðvarð Sigurgeirsson tók þessa mynd af Lindu eftir fárviðrið 5. marz.
JÖRÐ springur nú af frostum
með dunum og dynkjum, svo
hús skjálfa sem í jarðskjálfta.
Yfir 80 liús skemmdust í ofviðri á Akurevri
Þretfán sjómenn lýndu líti
45 BILAR SKEMMDIR 0G FOLK HRAKTIST
BÁTARNIR Dagný SF 61, 27
lestir að stærð, og Fagranes
ÞH 123, 17 lestir, eru týndir.
Á hvorum bát var þriggja
manna áhöfn. Fagranes var á
leið til Akraness en Dagný á
leið til Reykjavíkur. Síðast var
vitað um bátana á föstudags-
kvöld. Brak hefur fundizt úr
Fagranesi.
Á fimmtudaginn fórust sex
sjómenn á togaranum Hallveigu
Fróðadóttur, er sprenging varð
í kyndiklefa hásetaíbúðar og
nokkrir menn veiktust af reyk-
eitrun að auki.
Og enn einn íslenzkur sjó-
maður fórst á Agli Skallagríms
syni í Þýzkalandi, en kviknað
hafði í hásetaklefa og lézt sjó-
maðurinn af reykeitrun.
AHt eru þetta hin hörmuleg-
ustu- tíðindi, sem snerta alla
þjóðina. □
Á MIÐVIKUDAGINN, 5. marz,
gekk fárviðri af vestri og suð-
vestri yfir Norðurland og olli
miklu tjóni. Talið er að veðrið
hafi verið verst á Akureyri, en
þar urðu 82 hús fyrir skemmd-
um og 45 bílar. Og í Bæjar-
landinu norðan Glerár að Lóns-
brú brotnaði hver einasti staur
raflínunnar, 33 eða 34 talsins,
og þar að auki 12 staurar norð-
an Blómsturvallavegar í Kræk-
lingahlíð.
Þakið af verksmiðjuhúsinu
Lindu, 900 fermetrar, fauk af í
heilu lagi, mörg önnur stærri
hús urðu fyrir skemmdum á
þökum og gluggum, þar af
fjölbýlishús og fjöldi einbýlis-
húsa. Skorsteinar fuku, sjón-
varpsloftnet, girðingar og allt,
sem lauslegt var.
Tólf vindstig voru talin, en
þó mun veðurhæðin hafa verið
nokkru meiri öðru hverju.
(Framhald á blaðsíðu 4)
Akureyrardeild KEA með 2673 lélagsm,
r
I
Morðingi leigubílstjóra
RÚMLEGA fertugur leigubíl-
stjóri í Reykjavík var handtek-
inn á föstudaginn, grunaður um
að vera morðingi Gunnars heit-
ins Tryggvasonar, er skotinn
var í bíl sínum aðfaranótt 18.
Grunur sá, er beindist að hin
um fertuga leigubí'lstjóra, er
m. a. vegna skammbyssu, er hjá
honum fannst hlaðin. En þess-
arj byssu vai- stolið 1965.
Njörður Snæhólm mun í gær
hafa tekið sér far vestur um haf
með byssuna, skothylki, er
fundust á morðstað og kúlu þá
er banaði Gunnari. Sérfræðileg
athugun verður gerð á þessum
hlutum, er taka nokkra daga.
Hinn grunaði maður hefur
áður verið yfirheyrður vegna
ANY
Reykjavík fundinn?
morðsins, en situr nú í varð-
haldi og hefur verið yfirheyrð-
ur nokkrum sinnum án árang-
urs. Játning eða sannanir liggja
ekki fyrir, en sú staðreynd, að
morðingjar ganga lausir á ís-
landi er í senn uggvekjandi og
hörmuleg — og er mál að linni.
AÐALFUNDUR Akureyrar-
deildar KEA var haldinn 4.
marz á Hótel KEA. Deildar-
stjórinn, Ármann Dalmannsson,
setti fundinn og stjórnaði hon-
um og gerði grein fyrir störfum
deildarstjórnar á liðnu ári. Þar
kóm'm. a. fiarri, að Akureyrár-
deild hefur á undanförnum ár-
um gefið um 100 þús. krónur til
ýmsra menningarmála í bæn-
um, nú síðast Skátafélagi Akur
eyrar 15 þús. kr.
í Akureyrardeildinni eru nú
2673 eða 44 fleiri en árið áður
og í sjóði á deildin 184 þús. kr.
Frá bæj arstj órninni
Um vísitöluuppbót á laun bæjar
starfsmanna.
Þar sem deilur standa yfir
um greiðslu vísitöluuppbóta á
laun frá 1. marz n. k. og kaup-
Söfnðu limmfíu þúsundum
SÖNGFLOKKURINN „Nútíma
börn“, sem gekkst fyrir vel
heppnaðri skemmtun í Austur-
bæjarbíói hinn 26. f. m., hefur
afhent framkvæmdanefnd
Biafra-landssöfnunar 50.080.00
krónur til styrktar hinu nauð-
Nokkrir skaðar urðu I Kinn
Ófeigsstöðum 10. marz. Skaðar
urðu nokkrir hér í sveit í of-
viðrinu sl. miðvikudag. Þriðj-
ungurinn af þakjárni nýja fé-
lagsheimilisins fauk, 9 eða 10
raflínustaurar brotnuðu hjá
Hriflu, þakplötur fuku af íbúð-
arhúsinu á Stað í Kinn að ein-
hverju leyti og þakskemmdir
urðu líka á Hálsi og Garðs-
horni.
Ekki er trúlegt, að margir
vilji tala um daginn og veginn
eftir hið ágæta erindi Skúla
Guðjónssonar í gærkvöldi.
Hér stendur yfir andleg
íþróttakeppni milli hreppa, þar
sem glímt er við spurningar.
Ennþá birtir ekkert í launa-
pótitíkinni og er það enn
áhyggjuefni. Hvorki hafa bjarn
dýr gengið hér á land eða hvali
rekið. B. B.
stadda fólki í Biafra. Er hér um
að ræða ágóða af skemmtun-
inni, sem haldin var gagngert í
fjáröflunarskyni fyrir söfnun-
ina handa íbúum þessa hrjáða
lands. Margir kunnir skemmti-
kraftar komu fram á skemmt-
uninni án endurgjalds — og
sýndu með því hug sinn til máls
ins.
Auk aðalátaks landssöfnunar
innar, sem fram mun fara helg-
ina 15. og 16. þ. m. mun fjár til
söfnunarinnar verða aflað á
ýmsan annan hátt, m. a. með
skemmtunum af þessu tagi á
ýmsum stöðum um allt landið.
Hafa ýmis félagasamtök og ein-
staklingar heitið stuðningi sín-
um svo og skólabörn margra
skóla, að því er Biafra-lands-
söfnunin hefur tjáð blaðinu.
Hér á Akureyri verður safn-
að fé á sunnudaginn. □
*v*3 '
greiðsluvísitala febrúar-mánuð
ar hefur enn ekki verið birt,
ákveður bæjarráð, að kaup-
greiðslur til starfsmanna Akur-
eyrarbæjar verði greiddar með
óbreyttri vísitöluuppbót, þar til
um annað kann að verða samið.
íþróttafélagið Þór sækir um
íþróttasvæði.
Með bréfi dagsettu 24. febrú-
ar sl. fer íþróttafélagið Þór þess
á leit við bæjarráð, að félaginu
verði úthlutað svæði fyrir starf
semi sína vestan og norðan
Barnaskóla Glerárhverfis í stað
svæðis austan Hörgárbrautar og
(Framhald á blaðsíðu 2)
Deildargjald hefur verið 5 kr.
en hækkar nú í 15 kr. Fulltrúar
deildarinnar á næsta aðalfundi
KEA verða 90 talsins.
Akureyringar lögðu inn 575
þús. lítra mjólkur á árinu og er
það 22 þús. 1. minna en árið
1967. Þeir lögðu inn 1158 dilka
og talsvert af fullorðnu fé. Með
alvigt dilka var 14.87 kg. eða
aðeins meiri en árið áður.
Jakob Frímannsson kaup-
félagsstjóri flutti yfirlit um hag
og rekstur KEA á liðnu ári í
mjög fróðlegri og yfirgripsmik-
illi ræðu, en þar sem hún var í
aðalatriðum samhljóða þeirri,
sem hann flutti félagsráðsfundi
fyrir skömmu og blaðið birti að
nokkru, verður ekkj nánar frá
henni sagt nú.
Stjórn Akureyrardeildar
KEA skipa: Ármann Dalmanns
son, Sigurður O. Bjömsson,
Brynjólfur Sveinsson, Sigurður
Jóhannesson, Jón Kristinsson,
Tryggvi Þorsteinsson og Jón
Aspar, en tveir þeir síðasttöldu
voru endurkjörnir í stjórnina
til næstu þriggja ára. □
MEÐGENGU ÞRETTÁN INNBROT
FRÁ því í haust hefur innbrota
faraldur gengið á Akureyri, ef
svo má að orði komast, og
margskonar þjófnaðir. Blaðið
sagði frá því fyrr í vetur, er
mörg innbrotanna voru upplýst,
en þar voru fjórir ungir menn
að verki.
Hinn 7. marz voru tveir ungir
piltar teknh' til yfirheyrslu eftir
innbrot í útibú Kaupfélags
Verkamanna við Byggðaveg.
Leiddi rannsókn til þess, að
þessir menn játuðu á sig þrettán
innbrot á Akureyri frá því í
október í haust. Eru með þessu
flest innbrot á nefndu tímabili
nú upplýst orðin. Piltamir, sem
hér um ræðir, eru 15 ára.
(Upplýsingar
bæjarfógeta).
frá skrifstofu