Dagur - 12.03.1969, Side 7
Klúbbarnir „Öruggur akstur"
Klúbbarnir ÖRUGGUR
AKSTUR, sem hafizt var handa
um að stofna haustið 1965, eru
nú orðnir 33 að tölu, víðsvegar
um landið, og voru þeir síðustu
stofnaðir á sl. hausti á Vopna-
firði, Fáskrúðsfirði og að Núpi
í Dýrafirði.
Markmið klúbbanna er ein-
ungis að stuðla að auknu um-
ferðaröryggi í landinu, og tóku
þeir drjúgan þátt í undirbúningi
umferðarbreytingarinnar á sl.
ári, m. a. með þátttöku fulltrúa
klúbbanna í umferðaröryggis-
nefndunum. Klúbbarnir eru nú
um það bil að halda aðalfundi
sína, en á fyrsta fulltrúafundi
þeirra, haustið 1967, var kosin
■sérstök samstarfsnefnd til að
móta og samræma starfsemi
klúbbanna.
Samstarfsnefndin hefur nú
ákveðið, að klúbbarnir haldi á
þessu ári 2. fulltrúafund sinn.
Fundurinn, sem verður haldinn
í Reykjavík um miðjan apríl
n. k., verður í formi ráðstefnu,
þar sem flutt verða erindi um
ýmsa þætti umferðarmála,
raedd þróun þeirra undanfarin
ár og ályktað um þær leiðir,
sem færar eru til úrbóta. Á ráð
stefnunni verða afhent verð-
laun í hugmyndasamkeppni
þeirri, sem Samvinnutryggingar
hafa efnt til um bezta ráðið til
bættrar umferðar, svo og verð-
laun í getraun þeirri, sem efnt
er til í sambandi við útgáfu bók
arinnar ÖRUGGUR AKSTUR.
MOKVEIÐIER AF LOÐNU
UNDANFARIÐ hefur verið
uppgripaafli af loðnu við Suður
og Suðvesturland. Verð á loðnu
mjöli og loðnulýsi hefur hækk-
að.
Talað er um, að aðal loðnu-
göngurnar séu þrjár upp að
landinu. En rannsóknir á loðnu
göngum hafa litlar verið, en lík
legt talið, að þennan nytjafisk
megi veiða allt sumarið Lóðað
hefur á loðnu í Eyjafirði. □
Árbók Þingeyirtga 1967
BLAÐINU hefur borizt Árbók
Þingeyinga 1967. Ritstjóri henn
ar er Bjartmar Guðmundsson,
en ritnefnd skipa Helgi Krist-
jánsson, Þórir Friðgeirsson og
ritstjórinn. Utgefandi er Þing-
eyjarsýslur og Húsavíkurkaup-
staður.
Árbókin er nær 250 blaðsíð-
ur, myndskreytt og fróðleg
mjög að vanda. Meðal höfunda
eru Karl Kristjánsson, Sigurð-
ur Þórarinsson, Kári Sigurjóns-
son, séra Sigurður Guðmunds-
son, Steingrímur Baldvinsson,
Þórgrýr Guðmundsson, Jóhann
Skaptason, St. Kr. Vigfússon,
Jónas Jónsson og svo ritstjórinn
Eiginkona mín, móðir okkar og dóttír
RÓSA KRISTÍN JÓHANNSDÓTTIR
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsimi á Akureyri
mánudaginn 10. þ. m.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ólafur Eyland, Erna María Eyland, Jóhann Gísli
Eyland, Aðalbjiirg Helgadóttir, Jóliann Jónsson.
Útför eiginmanns rníns
SÆMUNDAR KRISTJÁNSSONAR
frá Hjalteyri
fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 14.
marz n.k. kl. 2 e. h.
Þorgerður Konráðsdóttir.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim sem auð-
sýndu okkur og fjölskyldum okkar sanrúð og
hluttekningu við andlát og útl'ör
ÁRNA GUNNARS TÓMASSONAR,
Skólavöllum 11, Selfossi.
Sérstakar þakkir til Fosskrafts og starfsmannafé-
lagsins við Búrfell.
Halldóra Gunnarsdóttir og dætur.
Þorbjörg Jóhannesdóttir.
Tómas Kristjánsson og systkini liins látna.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við frá-
fall og jarðarför
TRYGGVA GUÐMUNDSSONAR.
Skipasundi 92, Reykjavík.
Ragna Jónsdóttir, Magðalena Baldvinsdóttir,
systur og aðrir aðstandendur.
□ RÚN .: 59693127 = 6 .:
□ RÚN .: 5969137 — 2 .:
I.O.O.F. — 1503148Vu
I.O.O.F. Rb. 2 — 1173128Vu —
Atk.
MESSAÐ verður í BarnaskóLa
Glerárhverfis n. k. sunnudag
kl. 2 (Æskulýðsdagur þjóð-
kirkjunnar). Pétur Pétursson
menntaskólanemi predikar.
Yngri og eldri velkomnir. —
B. S.
AKUREYRARKIRKJA. Mess-
að n. k. sunnudag kl. 2 e. h.
Almennur æskulýðsdagur
kirkjunnar. Sverrir Pálsson
skólastjóri predikar. Ung-
menni aðstoða við guðsþjón-
ustu. Sálmar: (Unga kirkjan)
31 — 23 — 36 — 68 — 8. —
Sóknarprestar.
FÖSTUMESSA verður í Akur-
eyrarkirkju í kvöld (miðviku
dagskvöld) kl. 8.30. Sungið
verður úr Passíusálmunum
sem hér segir: 16, 7—11; 17,
21—27; 19, 17—21; 25, 14. —
B. S.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURS-
PRESTAKALL. N. k. sunnu-
dag, 16. marz, verður guðs-
þjónusta í Glæsibæjarkirkju
kl. 2 e. h. og Elliheimilinu í
Skjaldarvík kl. 4 e. h. Söng-
kór Möðruvallaklausturs-
kirkju syngur. — Sóknar-
prestur.
MÖÐRU V ALL AKL AUSTURS -
KIRKJA. Föstuguðsþjónusta
verður miðvikudaginn 19.
þ. m. kl. 9 e .h. — Sóknar-
prestur.
SAMKOMUR að Kaupvangs-
stræti 4, II hæð. Biblíuskóli
og þjónustusamkoma fimmtu
daginn 13. marz kl. 20.30.
Opinber fyrirlestur: Góð sam
búð við aðra vegna kristilegs
kærleika — fluttur af Óskari
Karlssyni, sunnudaginn 16.
marz kl. 16. Allir velkomnir.
— Vottar Jehóva.
ZION. Samkoma n. k. sunnu-
dag kl. 8.30 e. h. Ræðumaður
Guðmundur Ómar Guð-
mundsson. Sýnd verður kvik
myndin „Dásemdir sköpunar
verksins'1. Allir velkomnir.
SLYSAVARNAKONUR Akur-
eyri. Aðalfundur verður í Al-
þýðuhúsinu þriðjudaginn 18.
marz kl. 8.30 e. h. Vanaleg
aðalfundarstörf. Mætið vel og
stundvíslega, og takið með
kaffi. — Stjórnin.
FRÁ Slysavamadeild kvenna á
Akureyri. Hverfisstjórar eru
beðnir að skila árgjöldum
strax til gjaldkera. — Gjald-
keri.
BAZAR. K.F.U.K. hefur köku-
og munasölu í kristniboðs-
húsinu Zion laugardaginn 15.
marz kl. 4 e. h. Margt góðra
muna. — K.F.U.K.
KVENFÉLAGIÐ FRAMTÍÐIN
þakkar innilega öllum, sem
lögðu lið sitt og aðstoðuðu við
kaffisamsætið sunnudaginn 2.
marz. — Stjórnin.
SÝNIKENNSLA í veizluundir-
búningi e í Húsmæðraskóla
Akureyrar um þessar mund-
ir. Næsta námskeið verður
n. k. föstudag kl. 8 e. h. og
laugardag kl. 3 e. h. Upplýs-
ingar veittar og tekið á móti
þátttökutilkynningum milli
kl. 8 og 9 á fimmtudagskvöld-
ið í síma 1-11-99.
HJÓNAEFNI. Hinn 21. febrúar
opinberuðu trúlofun sína ung
frú Jóhanna Ragnarsdóttir,
Skarðshlíð 40, Akureyri, og
Þórir Snorrason, Skipalóni.
BRÚÐHJÓN. Hinn 1. marz sl.
voru gefin saman í hjónaband
í Akureyrarkirkju, ungfrú
Jónína Guðrún Aðalsteins-
dóttir og Hreiðar Leosson
verkamaður. Heimili þeirra
verður fyrst um sinn að Aðal
stræti 14, Akureyri.
BRÚÐHJÓN. Hinn 8. marz
voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju ung-
frú Auður Björk Hermanns-
dóttir og Jón Snorrason síma
maður. Heimili þeirra verður
fyrst um sinn að Hamarsstíg
29, Akureyri.
BRÚÐKAUP. Hinn 1. marz sl.
voru gefin saman í Akureyr-
arkirkju brúðhjónin ungfrú
Svanhildur Sigtryggsdóttir
frá Jórunnarstöðum og
Tryggvi Valdimarsson bóndi
að Halldórsstöðum, Bárðar-
dal.
GJAFIR. Til Ragnars Ármanns
sonar kr. 500 frá ónefndri
konu. — Til Rauða kross ís-
lands kr. 100 frá öskudagsliði
á Syðri-Brekkunni, kr. 100
frá Sigrúnu Bjarnhéðinsdótt-
ur og kr. 100 frá Stefáni Bjarn
héðinssyni. — Beztu þakkir.
— Birgir Snæbjörnsson.
VISTHEIMILINU SÓLBORG
hafa borizt eftirtaldar gjafir.
Minningarsjóður Þorbergs H.
Jónssonar frá Laxamýri, gjöf
frá foreldrum hans, kr.
30.573.92, frá Laxdalshjónum
í Tungu á Svalbarðsströnd
kr. 3.000.00, frá M. V. (ösku-
dagSgöfnun) kr. 35.00, og frá
A. J. kr. 2.000.00. Samtals kr.
35.608.92. — Kærar þakkir. —
J. Ó. Sæm.
ÞINGEYINGAFÉLAGIÐ, Akur
eyri heldur spilakvöld að
Bjargi laugardaginn 15. marz
n. k. kl. 8.30 e. h. Spiluð verð
ur félagsvist. Skemmtiatriði
og dans. Mætið vel og stund-
víslega. — Nefndin.
SKEMMTIÐ ykkur án áfengis
hjá Skemmtiklúbb Templara
n. k. föstudagskvöld. — Sjáið
nánar auglýsingu í blaðinu í
dag.
I.O.G.T. stúkan Ísafold-Fjall-
konan nr. 1. Fundur miðviku
daginn 12. marz kl. 8.30 e. h.
í Æskulýðsheimilinu Kaup-
vangsstræti 4. Systrakvöld
fimmtudaginn 13. marz kl.
8.30 e. h. í Alþýðuhúsinu.
Mörg skemmtiatriði. Kaffi og
dans. Bræðumir sérstaklega
boðnir. Fjölmennið. — Syst-
urnar.
FRÁ Sálarrannsóknarfélagi Ak
ureyrar. Fundur verður hald
inn í Bjargi fimmtudaginn 13.
þ. m. kl. 8.30 e. h. Frú Guðrún
Sigurðardóttir sér um fundar
efni. Félagsfólki heimilt að
taka með sér gesti meðan hús
rúm leyfir. — Stjómin.
■hb IRSÞING Ungmenna
Bambands Eyjafjarðar
zerður haldið í Lauga-
iorg 29. og 30. marz n.k.
— Nánar auglýst síðar. —
UMSE.
ST. GEORGS-GILDIÐ.
Fundur verður haldinn
í Hvammi mánudaginn
17. marz kl. 8.30 e. h. Stjórnin.
SKOTFÉLAGAR. Munið æfing
una á föstudaginn kl. 8.15. —■
FERÐAFÉLAG AKUREYRAR
hefur kvöldvöku að Hótel
KEA n. k. föstudagskvöld. —
Sjáið nánar auglýsingu í blað
inu í dag.
GJÖF til Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri frá sjúklingi
kr. 2.000.00. Með þökkum
móttekið. — Guðm. Karl
Pétursson.
GJÖF. Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri hefur borizt gjöf
frá Pálínu Daníelsdóttur,
Vinaminni (Stekkjargerði 7,
Akureyri) kr. 1.000.00. Kærar
þakkir. — T. G.
GJAFIR og áheit. Til Ragnars
Ármannssonar kr. 200 frá
ónefndri konu. — Til svöngu
bamanna í Biafra kr. 200 frá
sömu, og kr. 3.000 frá G. E. —
Áheit á Strandarkirkju kr.
500 frá G. E. — Beztu þakkir.
— B. S.
DRENGJADEILD! —
A* ‘A
Fundur kl. 8 á fimmtu
v* 'T / ^aSs^vöH. Stúlkunum
V —' boðið á fundinn. Mæt-
ið vel. — Stjórnin. — Eftir
guðsþjónustu á sunnudaginn
verður árshátíð Æskulýðs-
félagsins í Sjálfstæðishúsinu.
SJÓNARHÆÐARSTARFIÐ. —
Sunnudagur. Sunnudagaskóli
kl. 1.30. Öll börn velkomin.
Almenn samkoma kl. 5. Allir
velkomnir. — Mánudagur.
Drengjafundur kl. 5.30. Allir
drengir velkomnir. — Þriðju-
dagur. Telpnafundur kl. 5.30.
Allar telpur velkornar.
- Endurhæfingarslöð
(Framhald af blaðsíðu 8).
efnið, sem Kiwanisklúbburinn
Kaldbakur tekur sér fyrir hend
ur, en fjár til framkvæmda verð
ur aflað með ýmsum hætti. Er
stefnt að því, að afla til stöðvar
innar allt að 300 þús. króna.
Fyrsta fjáröflun klúbbsins
verður fyrir páskana, en þá
munu klúbbfélagar selja páska-
egg í sérstökum umbúðum, við
vægu verði, og verður öllum
ágóða af sölunni varið til endur
hæfingarstarfsemi. Treystir
klúbburinn á skilning og vel-
vild Akureyringa varðandi
þetta mikilsverða stefnu- og
framkvæmdamál sitt, sem snert
ir beint og óbeint stóran hluta
bæjarbúa.
Forseti Kiwanisklúbbsins
Kaldbaks er Jóhannes Sigvalda
son, varaforseti Stefán Gunn-
laugsson, kjörforseti Haukur
Haraldsson, ritari Rafn Hjalta-
Ifn, erlendur ritari Pétur Jósefs
son, gjaldkeri Guðmundur Guð
laugsson, féhirðir Sveinn
Tryggvason, svo og 7 meðstjóm
endur, en félagar eru alls 32.
(Fréttatilkynning)
HOLLENZKAR
NÝ SENDING
Stærðir 38—46
SÍÐBUXUR
MARGAR GERÐIR
MARKAÐURINN
SÍMI 1-12-61