Dagur - 19.03.1969, Page 5

Dagur - 19.03.1969, Page 5
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. AFMÆLISGJÖF MARGAR tillögur hafa fram komið um það, hversu minnast skuli ellefu alda byggðar á fslandi, árið 1974. Jón heitinn í Yztafelli taldi þá gjöf bezta, er þjóðin gæti gefið sjálfri sér, að liefja nýtt landnám með stór- felldri sókn í land- og skógræktar- málum. Sú þjóð, sem lætur gróður- moldina fjúka undan fótum sér í sínu eigin landi og þykist ekki sjá það, er á glötunarvegi. Hún stendur ekki í skilum með vexti og afborg- anir af þeini skuld, sem okkur ætti þó að vera ljúfast að greiða fóstur- jörðinni. Stór landsvæði, sem áður báru mikinn og fagran nytjagróður, eru orfoka sandar og melar nú, af því við gengum ekki í lið með gróð- uröflunum og gerum það að litlu leyti enn, þótt augu manna séu að opnast fyrir því, hvað er að gerast. Þrátt fyrir alla ræktun okkar minnka gróðurlönd landsins með ári hverju og á því sviði þurfum við að breyta vörn í sókn. Við eigum land- græðslu, sandgræðslu, skógræktar- félög, sem öll vinna að svipuðu marki, að því að hefta uppblástur og græða landið upp, og við erum nú að eignast gróðurkort til glöggv- unar. Og við eigum bændastétt, sem sýnir í verki, að hægt er að græða svartan sandinn og gera hann að arð- sömum töðuvelli, en þrátt fyrir allt þetta emm við á undanhaldi, og í svo miklum andlegum öldudal í umgengni við gróðuröflin, að um allt land blasa við ógurleg sár eftir opinbera starfsmenn vegagerðarinn- ar, sem mörg fara stækkandi ár frá ári. Ekki virðist duga minna en þjóð leg vakning til að menn læri að elska landið sitt í verki og að skilja, að gróður þess er alger forsenda búset- unnar. Sem lítið dæmi um, hvemig aðrar þjóðir líta á þær landskemmd- ir, sem við höfum daglega fyrir aug- um hér á landi, þarf ekki nema til Færeyja. Þar liggja þungar refsingar við hverskonar jarðraski og þar klæða vegagerðarmenn sárin jafn- óðum. Þar er sú undantekning ein, að sprengjugígir frá stríðsámnum vom ekki græddir. Við þurfum með öllum tiltækum ráðum, að hef ja einskonar landvinn- ingar- og menningarstefnu, með því að skipa okkur öll í fylkingu með gróðuröflunum á breiðum vettvangi og hefja sókn. Tækni, vísindi og fjár magn leysist úr læðingi þegar nauð- synleg liugarfarsbreyting hefur orð- ið með þjóðinni. En slík hugarfars- breyting eða þjóðamakning, væri þjóðinni meiri nauðsyn, er hún vill minnast búsetu sinnar í okkar fagra og norðlæga landi, en flest annað. PÁLL MAGNÚSSON, LÖGERÆÐINGUR: NATO-herstöðvarnar Með þessari og öðrum breyt- ingum á samningum, verður það að koma ótvírætt fram, að herstöðin er hér til varnar öll- um NATO-ríkjunum, með sam tals um 500 milljónum íbúa, en þar af eru 200 þúsund íslend- ingar, sem hlutfallslega er sama og 1 á móti 2500. Allur kostn- aður við herstöðina og öll áhætta, sem rekstri hennar fylg ir fyrir þjóð okkar, átti því vit- anlega að koma á hið breiða bak allra NATO-þjóðanna en ekki á hina örfáu íbúa íslands. Obeint framlag þeirra til hinna sameiginlegu varna, varð samt hlutfallslega miklu meira en sanngjarnt gat talizt, þar sem þeir láta land sitt undir her- stöðvamar og geta með því orð ið fyrir tjóni, sem aldrei verður bætt með peningum. I 5. gr. samningsins eru fyrirmæli, sem áttu að tryggja, að þessi áhætta yrði sem allra minnst. Þau hljóða svo: „Bandaríkin skulu fram- kvæma skyldur sínar sam- kvæmt samningi þessum þann- ig, að stuðlað sé svo sem frekast má verða að öryggi íslenzku þjóðarinnar, og skal ávallt haft í huga, hve fámennir íslend- ingar eru, svo og það, að þeir hafa ekki vanizt vopnaburði.“ Þarna eru loforðin, eins og vera ber, ekki skorin við nögl. Og það leiðir af sjálfu sér, að hér er ekki átt við það, að her- stöðvarnar verði sem öflugast- ar, heldur hitt, að öryggi þjóð- arinnar verði sem bezt tryggt gegn þeim hættum, sem henni stafa af því að hafa herstöðv- amar í landi sínu. En úr þeirri miklu áhættu varð aðeins dreg- ið með lagningu góðra vega um landið til undankomu á stund hættunnar. En allar slíkar öryggisráðstafanir hafa verið algerlega vanræktar. Eðlilegast var, að þeirra væri krafist strax og landið var hemumið 1940 og erlendur her tók að búa um sig í höfuðborginni og nágrenni. 5. gr. samningsins frá 1951 sýnir, að valdamenn okkar hafa gert sér grein fyrir hættunni, og er því furðulegt, að ekki skyldi vera hafizt handa um fram- kvæmdir eftir að um það efni hafði verið samið. En það er ekki nýtt, að orð og athöfn séu sitt hvað og að menn sofni á verðinum. Slíkt andvaraleysi kom Bretum og Frökkum eftir- minnilega í koll í síðustu heims styrjöld. Auðvitað áttu stjórn- völd okkar að ganga eftir því, að samningurinn yrði efndur í öllu, sem varðaði öryggi þjóðar innar. Sökin er því vafalaust hjá þeim, en ekki hjá Banda- ríkjamönnum. Þeir munu meira að segja hafa boðið að leggja fullkomna vegi um landið frá herstöðvunum, og miklar hafn- argerðir og fleira mun hafa staðið til boða, en öllu þessu mun hafa verið hafnað. Það er heldur ekki líklegt, að Banda- ríkin eða önnur stórveldi NATO hafi verið að þráast við að efna öryggisákvæði 5. gr. samningsins. í þeirra augum gat kostnaðurinn við það ekki munað neinu. — En þessar van- efndir eru nú skuld við okkar fámennu þjóð, sem nemur mörg um milljördum í okkar verð- litlu krónum. Því hefur fyrr og síðar verið haldið fram, að íslendingum beri sjálfstæðis síns vegna að verja land sitt á einn eða annan hátt. Hér er því í fyrsta lagi til að svara, að rangt er að blanda saman rétti þjóðar til sjálfstæð- is og varnarmætti hennar. Eng in smáþjóð getur nú varið land sitt að nokkru gagni í styrjöld. Nærtækt dæmi um það er upp- gjöf Dana fyrir Þjóðverjum 1940. Og mestu herveldin eru nú heldur ekki örugg í þessu efni, enda stofna þau hernaðar- bandalög sín af þeirri ástæðu. Það er því fjarstæða að hin fá- menna þjóð okkar geti á nokk- urn hátt varið hið víðlenda fjallaland sitt. Og í annan stað er um það deilt, hvort hinar erlendu herstöðvar séu hér fremur okkur til varnar, en til hins gagnstæða. Auk hinnar umræddu hættu, sem okkur stafar af NATO- stöðinni, hefur hin tiltölulega mikla og fjölmenna starfsemi hennar fært hið fámenna þjóð- félag okkar úr eðlilegum skorð- um á ýmsa lund, valdið hinni sívaxandi og seigdrepandi verð bólgu og því fjárhagslega öng- þveiti, sem henni fylgir, og SÍÐARI HLUTI raskað atvinnulífi okkar og stjórnarháttum á margan óæski legan hátt. Við gátum þolað þetta bótalaust í langvarandi og óvenjulegu góðæri til lands og sjávar, en nú, þegar úr góðær- inu hefur dregið til muna, segja afleiðingarnar strax til sín í alvarlegri kreppu og atvinnu- leysi. Jónas Jónsson frá Hriflu sá þetta fyrir og barðist á sín- um tíma fyrir því, að við leyfð- um Bandaríkjamönnum að hafa hér herbækistöðvar um ákveðið tímabil, t. d. í 20 ár, gegn því, að við fengjum á móti hömlu- lausa og tollfrjálsa sölu í Banda ríkjunum á allri okkar útflutn- ingsvöru. Hann taldi víst, að Bandaríkjamenn myndu fallast á þessa lausn málsins og sagði, að með þessu fengjum við eins- konar þegnrétt í landi þeirra, án þess að honum fylgdi nokkur þegnskylda frá okkar hendi, og hann áleit, að með þessu móti tryggðum við efnahag landsins í náinni framtíð. Þessar raun- hæfu tillögur fólu í sér óbeina leigu fyrir hemaðarleg afnot landsins, en þeim var illa tekið og ranglega túlkaðar sem lands sala. Það sama gerist nú, þegar vakið er máls á því, að her- stöðvasamningurinn verði end- urskoðaður og að tekin verði leiga fyrir afnotin. Menn látast vera hneykslaðir. — En sam- tímis er teflt fram í útvarpinu opinberri skýrslu, sem á að sýna, að þjóðin hafi árlega um hálfan annan milljarð ísl. króna í erlendum gjaldeyri upp úr hersetunni fyrir vinnu Islend- inga hjá setuliðinu og önnur viðskipti við það. Átti auðvitað að skilja þetta svo, að þarna hefðum við ágæta leynilega leigu fyrir landsafnot NATO, en hún yrði ekki talin lands- sala, þar sem ekki væri um hana samið opinberlega. Þenn- an gjaldeyrishagnað má vafa- laust til sanns vegar færa, ef reiknað er með stöðugu atvinnu leysi í landinu. En sé reiknað með þeim virinuaflsskorti, sem hér hefur verið undanfarna ára tugi og, að launafólkið hjá setu- liðinu sé því tekið frá sjávar- útveginum og öðrum fram- leiðslurekstri okkar, þá verður útkoman stórkostlegt gjaldeyris tap. Talið er, að hver maður á íslenzku fiskiskipi færi 150—200 á íslandi tonn af fiski í þjóðarbúið á ári og er þá auðreiknað, hver þjóð félagshagnaður það er, að sjó- maðurinn fari úr skipsrúminu í launað starf hjá hernum eða öðrum erlendum atvinnuveit- anda. Fjasið um, að hófleg og réttmæt tímabundin leiga sé sama og landssala, er blekkj- andi vitleysa. Ársleigu fyrir hernaðarleg afnot landsins er eðlilegast að skoða sem endur- gjald og tryggingu þeirra óút- reiknanlegu fjárhagslegu verð- mæta þjóðarinnar, sem stofnað er í hættu með því að hafa hér NATO-herstöð og gera landið með því að líklegu árásar- og orustusvæði. Af öllu framansögðu, tel ég sjálfsagt og alveg óhjákvæmi- legt, að þessi gamli, mislukk- aði og vanefndi samningur verði tekinn sem allra fyrst til endurskoðunar og breytinga, með eða án uppsagnar. Ég skil ekki af hverju þjóðin ætti að vera þessu mótfallin. Hún hefur í því efni allt að vinna en engu að tapa. Því hefur að vísu verið borið við, að NATO kunni að yfirgefa herstöðina, ef við hreyf um framangreindum kröfum. Þetta er hrein vitleysa. NATO- ráðið leggur herstöðvarnar nið- ur að meira eða minna leyti, þegar það álítur þær orð,nar þarflausar fyrir sig. En það eru engar líkur til, að þetta verði í náinni framtíð, um það má vísa til álits Stórþings Norðmanna sl. sumar. Sanngjarnar kröfur frá okkur um efndir öryggis- varna eða leigu skipta engu fyrir NATO. — Öll mistök okk- ar í þessu máli stafa af al- þekktri minnimáttarkennd og einurðarleysi lítilmagnans, er hann á í samningum við efna- legan ofjarl sinn. AKUREYRi M hJOÚÚ Skipulagsuppdráttur af framtíðarhöfn á Akureyri, sem bæjarstjóm liefur samþykkt og frá sagði í síðasta blaði. - ÚRSLIT í HERMANNSMÓTINU 23. febrúar 1969, Páll Magnússon. (Framhald á blaðsíðu 2). Viðar Garðarsson, A. 33.74 Söngglöðum MA-félögum þakkað ÞEIR, sem lögðu leið sína í Samkomuhús Dalvíkur mið- vikudaginn 12. þ. m. áttu þar óvenjulega ánægjulega og góða kveldstund. Þetta gamla hús ómaði af söng og gleði, fölskva- lausri og smitandi lífs og söng- gleði. „24 M. A. félagar“ héldu þar söngskemmtun undir stjórn Sigurðar D. Franzsonar og með aðstoð Ingimars Eydal og hljóm sveitar hans. Það er skemmst frá því að segja, að þau komu, sáu og sigruðu. Ég legg engan listrænan dóm á frammistöðu þeirra, enda kom ég ekki til að setja út á og leita að göllum og mistökum, heldur til þess að skemmta mér. Og það tókst sannarlega. Og allir þeir, sem ég átti tal við, höfðu sömu sögu að segja. Það sem mér fannst mest áberandi var sönggleðin og léttleikinn, sem hreif alla með sér. Það var enginn afkára skapur eða fígúruháttur en - FROSTHÖRKUR (Framhald af blaðsíðu 8). un sína Kristín Sigurðardóttir frá Ingjaldsstöðum í Reykdæla- hreppi og Atli Sigurðsson á Lundarbrekku, og gefin voru saman í hjónaband Svanhildur Sigtryggsdóttir frá Jórunnar- stöðum í Eyjafirði og Tryggvi Valdimarsson á Halldórsstöðum hér í sveit. Þ. J. mun meiri hreyfing og léttleiki en við eigum að venjast hjá öðrum kórum og söngsveitum. Ég fjölyrði svo ekki meira um þetta, en ég þakka ykkur öll- um komuna og vona að þið eig- ið eftir að koma hingað aftur og veita okkur ámóta eða betri stund síðar. Ég veit ég þarf ekki að hvetja þá, sem heyrðu þenn- an konsert til að koma aftur, því að þeir munu gera það ótil- kvaddir, en hinum, sem ekki komu segi ég: Þið fóruð mikils á mis og látið vonandi ekki happ úr hendi sleppa næst þegar „24 M. A. félagar" verða á ferðinni. JAKOB KRISTINSSON, fyrr- um útgerðarmðaur í Hrísey, andaðist á Dvalarheimili aldr- aðra sjómanna 12. marz, nær áttræður að aldri. Hann fædd- ist á Stóra-Eyrarlandi, Akui'- eyri 2. október 1890. Á ferm- ingaraldri fluttist hann til Hris- eyjat- og dvaldi þar til ársins 1926 en fluttist þá til Akureyr- ar og átti þar heima alla ævi, eða þar til í haust. Jakob gerði báta sína út frá Hrísey, þótt hann væri löngum búsettur á Akureyri. Hér á Akureyri fékkst hann við bú- skap í smáum stíl, sér til gagns Magnús Ingólfsson, A. 38.68 Guðrún Sigurlaugsd., A. 125.4 Barbara Geirsdóttir, A. 136.0 Tvíkeppni karla. stig Hafsteinn Sigurðsson, í. 1.56 Reynir Brynjólfsson, A. 18.64 Tvíkeppni kvenna. stig Barbara Geirsdóttir, A. 129.10 Sigrún Þórhallsdóttir, H. 156.76 Guðrún Sigurlaugsd., A. 274.88 10. km, ganga. mín. Halldór Matthíasson, A. 53.45 Stefán Jónasson, A. 57.49 Sigurður Jónsson, A. 58.33 Ingvi Óðinsson, A. 58.59 Mótsstjórn. Mótsstjóri var Óðinn Árna- son, yfirtímavörður Halldór Ólafsson, brautarstjóri Reynir Pálmason, göngustjóri Guð- mundur Ketilsson, og mark- stjóri Hermann Sigtryggsson. og gleði þegar útgerð lauk og umsvif minnkuðu. Hann átti heima í Lækjargötu 4, og undi sér þar vel. Ekkja Jakobs er Filippía Valdimarsdóttir. Fimm börn þeirra eru á lífi: Þordís, húsfreyja á Akureyri, Viktor, sölustjóri í Reykjavík, Kristinn, útgerðarmaður í Hrísey, Valdi- mar, skrifstofustjóri í Reykja- vík og Þorsteinn, stýrimaður í Reykjavík. Haraldur, kaupmað ur á Akm'eyri, dó fyrir fáum árum. Útför Jakobs heitins Kristins sonar verðm- á laugardaginn. St. Sn. Jakrtb Krisfinsson frá Hrisey SMÁTT & STÓRT (Framhald af blaðsíðu 8). áður en þau næðu til síns heima. Um fyrra atriðið verður hér enginn dómur lagður á. Um hið síðara mætti aftur spyrja: Vissu foreldrar að ofviðri væri á næstu grösum? Vissi veður- stofan það? Vissu kennarar það? En ofsarok skall samt sem áður á og um það er þarflaust að deila. Hitt er svo annað mál, að eftirá eru menn jafnan vitrari og sýndist þá flestum, að börnin liefðu betur verið geymd í skól- unum þar til veðri slotaði. Ábyrgð kennara og skólastjóra, svo sem annarra umráðamanna barna, er mikil og gagnrýni nauðsynleg, þegar hún er á rök um reist. SKRÍTIN VIÐBRÖGÐ Viðbrögð Akureyrarblaðanna hafa verið eftirtektarverð, eins og umsagnir ýmsra borgara. Sigurjón ritstjóri Alþýðumanns ins leitar orsaka óveðursins til reiði Drottins allsherjar, sem e. t. v. hafi kjörið Akureyri, sem Sódómu aldarinnar. En á með- an Akureyri var svo ógurlega skekin, gælir ritstjórinn við þá hugsun, hvort hann hefði nú rétt pólitiskum andstæðingi hjálparhönd í neyð! Herbert, ritstjóri fslendings-fsafoldar lætur sér hugkvæmast, að veð- urstofan geti fyrirbyggt þá hættu í skólum, að nemendur lendi í vondu veðri, með því að koma upp einskonar viðvörun- arkerfi, eins og t. d. varðandi eldsvoða! - LEIKFÉL, SKAGAFJ. (Framhald af blaðsíðu 8). að láta ekki þá aðstöðu ónotaða og stofnuðu, nú á öndverðum vetri, Leikfélag Skagafjarðar og eru meðlimir þess úr fjórum fremstu hreppum héraðsins. — Stjórn félagsins skipa: Frey- steinn Þorbergsson, formaður, Kristján Sigurpálsson, ritari og Sigfús Pétursson, gjaldkeri. Hófst félagið þegar handa um æfingar á sjónleiknum Manni og konu, sem þeir Emil Thor- oddsen og Indriði Waage sömdu upp úr sögu Jóns Thoroddsens, svo sem alkunna er, — og réðu Kristján Jónsson til þess að annazt leikstjórn. Þótti rösklega riðið úr hlaði af hinu unga leik félagi, þegar þess er gætt, að allir máttu leikendur kallast gjörsamlega óvanir á leiksviði. En þegar þessar línur eru rit- aðar hefur félagið sýnt leikinn fjórum sinnum í Miðgarði, tvisvar á Dalvík, einu sinni á Reykjum í Hrútafirði, einu sinni á Blönduósi og einu sinni á Sauðárkróki, þvínær ávallt fyrir fullu húsi og við ágætar undirtektir. Og enn eru sýning- ar fyrirhugaðar utan héraðs. Hér skulu leikurum ekki gefn ar einkunnir að öðru leyti en því, að eftirminnilegast verður mér klækjarefurinn sr. Sigvaldi í höndum Knúts Ólafssonar. Fleiri skila vel sínum hlutverk- um og öll er frammistaða leik- aranna lýtalaus og ber leik- stjóranum, Kristjáni Jónssyni, gott vitni. Leikfélag Skagafjarðar hefur farið myndarlega af stað. Von- andi bíður þess góð framtíð og vöxtur með verkefnum. mhg — FRÁ ENDURVARPS - STÖÐINNI Óli Jakobsson endurvarpsstjóri í Skjaldarvík liefur beðið blaðið fyrir eftirfarandi, vegna fyrir- spumar í síðasta tölublaði: Frá 11. marz liafa orðið mikl- ar rafmagnstruflanir á Eyja- fjarðar- og Þingeyjarveitum. Hefur rafmagnið farið af oft á dag, allt að 5 sinnuin. Af þess- um sökum hafa útsendingar frá endurvarpsstöðvunum við Eyja fjörð fallið niður. Eru hlustend- ur beðnir velvirðmgar á þessu. NÆTURKLÚBBAR Sex næturklúbbar hafa verið opnaðir í Reykjavík og auðga þeir eflaust næturlífið verulega.1 En árekstrar liafa orðið milli þeirra og lögregluyfirvalda borgarinnar, svo sem kunnugt er af blaðafregnum. En klúbbar þessir virðast eiga sér marga formælendur. Og víst er, að nokkrar fyrirspurnir liafa bor- izt um það hingað norður, hvorþ ekki muni hentugt húsnæði að fá í höfuðstað Norðurlands! EITURLYF OG MEIMA- BRUGG Fregnir berast af því, þótt leynt fari, að hér á Akureyri séu unglingar að komast í snertingu við eiturlyfin. Þá er uppi orð- rómur um, að hehnabrugg áfangis fari vaxandi. Bæði þessi atriði eru hér gerð að umtals- efni vegna þess að blaðið veit með vissu, að fregnir þessar eru ekki úr lausu lofti gripnar. Því er þess vænst, að yfirvöldin verði vel á verði í þessum efn- um áður en hér skapast þau vandamál, sem verða kumia, ef ekki er gripið í taumana á tæka tíð. Þó er fræðsla enn nauðsyn-l legri en lögregluaðgerðir og samkvæmt reynslu nágranna- þjóðanna þarf hvorttveggja til, og mun ekki af veita. HÚSEIGNIN Laxagata 3B er til sölu. Húsið getur verið laust nú þegar. Uppl. í síma 2-11-67 á daginn og á staðnum, eltir vinnutíma. Viljum taka á leigu 2ja—3ja herbergja í B Ú Ð . Uppl. í síma 1-17-77 eltir kl. 6 e. h. TIL SÖLU eldra EINBÝLISHÚS á Eyrinni. Gott lán get- ur fylgt. Uppl. í síma 2-14-61. Hjón með eitt barn óska eftir þriggja til fjöguiTa herbergja í B Ú Ð. Uppl. í síma 1-21-81. Bergþóra Gústafsdóttir. Dögum saman sá ekkl í auðan sjó Gunnarsstöðum, Þistilfirði 18. marz. Sæmilegur hagi kom í hlákunum fyrir og um helgina, en örlítið hefur snjóað á ný. Vegir eru færir innan sveitar- innar. Hér voru hafþök af ís svo ekki sá í auðan sjó í marga daga. Og hér var frostið 20 stig og meira sex nætur í röð. Fyrir viku fór Hermundur Kjartansson í Svalbarðsseli að sækja hey í Búrfellsheiði, en þar hafði hann heyjað dálítið í sumar. Fann hann í þeirri ferð fullorðna á og tvö hrútlömb hennar. Kom hann kindunum að heyinu og sótti þær degi síð- ar. Ærin var orðin mjög mögur en hrútarnir allvel haldnir. Þessi ær var frá Klifshaga í Axarfirði. Atvinnuástand er enn hið hörmulegasta á Þórshöfn og lítið um aðra vinnu að ræða þar, en við verzlunarstörfin. Ó. H. VORFARGJÖLD FLUGFÉLAGSINS GENGIN eru í gildi vorfargjöld Flugfélags íslands, en þau skapa mörgum tækifæri til að ferðast. Þau gilda til 15. maí og voru samþykkt á fargjaldaráð- stefnu IATA. Gildistími far- seðils er 30 dagar frá því að ferð hefst. Vorfargjöldin eru 25% ódýr- ari en venjuleg fargjöld og freista manna til að „fá sér sumarauka“. Allar upplýsingar á afgreiðslu félagsins, um ferða val, kostnað, svo og önnur nauðsynleg fyrirgreiðsla. □ Nokkur orð um söngskemmtuu og kaffisölu Á SUNNUDAGINN kemur ætl ar kirkjukór Lögmannshlíðar- sóknar að efna til söngskemmt- unar í félagsheimilinu Bjargi kl. 3.30 e. h. og þar geta menn um leið drukkið miðdegiskaffið sitt, því að konur í kirkjukórn- um sjá um kaffiveitingar. Á efnisskránni verður fjöl- breyttur söngur, auk kirkju- kórsins verður einsöngur Jó- hanns Konráðssonar og kvenna kór syngur. Söngstjóri er Ás- kell Jónsson. Ræðu flytur Gísli Jónsson menntaskólakennari. Enginn aðgangseyrir er að söngskemmtun þessarri, en ágóðinn af kaffisölunni rennur til heimilis fyrir vangefna að Sólborg, sem nú er í smíðum. Ég vil hvetja sóknarfólk til þess að sækja skemmtun þessa og styðja hið mikla mannúðar- starf, sem verið er að vinna fyr ir hina vangefnu. Stórar framkvæmdir eru í Kotárborgum við byggingarnar, sem þar eru komnar undir þak. Starfsemin mun geta hafist að einhverju leyti í árslok. Fjöldi barna bíður þess að geta fengið vist í heimilinu, sem jafnframt verður skóli þeirra og hjálpar- stöð. Vinnum að því að líknar- stofnun þessi geti sem fyrst tek ið á móti börnunum opnum blessandi örmum. Pétur Sigurgeirsson. - FÓLKSFJÖLGUNIN (Framhald af blaðsíðu 1). ingahópurinn, sem dvelst í land inu í þrjár vikur, samanstendur af starfsmönnum Skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í New York, Þróunaráætlunarinnar (UNDP), Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar (WHO) og Menningar- og vísindastofnun- arinnar (UNESCO). □ Greiff fyrir auka sförf presfanna BISKUPINN yfir fslandi hefur ritað mér svohljóðandi: „Hér með tilkynnist yður, virðulegi prófastur, að samkvæmt upp- lýsingum í dag (28/2) frá dóms- og kirkjumálaráðuneyt- inu hækkar þóknun fyrir auka- verk presta um 24.9% miðað við gjaldskrá eins og hún var síðast birt í Lögbirtingarblaðinu 16. apríl 1966. Gildir hækkun þessi frá 1. des. 1968. Það er þægilegra að greiðsla fyrir aukaverk standi á heilum eða hálfum tug og legg ég því til að þóknun fyrir aukaverk verði sem hér segir: Skráning nafns í kirkjubók kr.115.00. Gifting án ræðu kr. 300.00. Ferming ásamt ferming- arundirbúningi kr. 415.00. Lík- söngseyrir kr. 190.00. Eendur- NYKOMIÐ SKÍÐASTAKKAR margar tegundir. SKÍÐABUXUR HERRADEILD skoðun kirkjureikninga kr. 45.00. Vottorð kr. 25.00. Prestum er í sjálfsvald sett hvað þeir taka fyrir útfarar- ræður og aðrar athafnir. Án frekara tilefnis að sinni. Völlum, Dalvík, 7. marz 1969. Stefán Snævarr. P. s. Þeir prestar, sem ekki hafa ennþá sent ársskýrslur sendi þær sem allra fyrst. »ÍÍ:Í»íiÉ*í ATVINNA STÚLKA óskast til starfa á fámennu heim- ili í nágr. Akureyrar. Uppl. á Vinnumiðlunar skrifstofu Akureyrar. S T Ú L K A vön afgreiðslu óskast frá 1. júní n. k. Sigtryggur og Pétur, gullsmiðir. ATVINNA! Vanur bifvélavirki ósk- ast senr fyrst. Bifreiðaverkstæðið Þórshamar hf, sími 1-27-00.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.