Dagur - 10.04.1969, Qupperneq 1
LII. árg. — Akureyri, firamtudaginn 10. apríl 1969 — 15. tölublað
FILMU húsið
Hafnarslræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SERVERZLUN:
ljosmyndavörur
FRAMKÓLLUN - KOPIERING
Verkíöll á fimmfudag og föstudag
YFIR þrjátíu verkalýðsfélög, og
þar með öll stærstu verkalýðs-
félög landsins, hafa boðað verk-
fall í dag, fimmtudag, og á
föstudaginn einnig, ef samning-
ar samninganefnda ASÍ og at-
vinnurekenda hafa ekki tekizt.
Ottast er, að allsherjarverk-
flal verði frá 17. apríl, en
ákvörðun mun verða tekin um
það í dag. Líklegt er talið,
að „sáttatillaga“ sé í undirbún-
ingi frá sáttasemjara, hvernig
sem framhaldið verður. En víst
er, að nú dregur til tíðinda og
er mál til komið, að niðurstaða
fáist, og flestir vona að hún
náist án verkfalla. □
Afvinnuleysinu lokiÖ í ÓlafsfirÖi
FYRIR páskana öfluðu togbát-
ar í Ólafsfirði ágætlega og var
unnið í báðum hraðfrystihúsum
staðarins alla daga nema föstu-
VALT NIÐUR f FIÖRU
AÐFARARNÓTT sl. þriðjudags
valt fólksbíll út af veginum
framan við Samkomuhúsið á
Akureyri og hafnaði í fjörunni.
Ökumaðurinn hvarf fljótt af
staðnum, en var handtekinn
litlu síðar, grunaður um ölvun.
Hann var einn í bílnum og
slapp ómeiddur en bíllinn
skemmdist mikið.
Yfir hátíðina urðu nokkrir
árekstrar í umferð. Ölvun var
tiltölulega lítil.
Nokkur innbrot voru frarnin
á Oddeyri, litlu sem engu stolið
en skemmdar hurðir og glugg-
ar. Brotist var inn í Sundlaug-
ina og einhverju af peningum
stolið. □
daginn langa og páskadag og
venjulega er unnið til kl. 7 á
kvöldin. Virðist atvinnuleysið
nú úr sögunni, ef svo heldur
sem horfir. Hefur mikið af ágæt
um fiski borizt á land af sex
togbátum. Þeir eru þesir: Stíg-
andi, Þorleifur, Ólafur Bekkur,
Sæþór, Guðbjörg og Sigurbjörg.
Síðustu daga hefur tíð verið
óhagstæð. Bátarnir fóru út á
páskadag og Stígandi kom í gær
með 50 tonn.
Einn bátur rær með línu og
aflar lítið, nokkrir bátar eru
með net og fá enn minna. Grá-
sleppan er aðeins farin að láta
sjá sig.
Nemendatónleikar Tónskól-
ans voru haldnir í Ólafsfirði á
páskadag og voru þeir ágætlega
sóttir. Skólastjóri er Magnús
Magnússon.
í gær var Múlavegur lag-
færður og þar nú ágætt færi
öllum bifreiðum. □
Frú Guðmunda Péiursdóttir umboðsmaður DAS-happdrættis og maður hennar, Finnur Daníelsson,
en á milli þeirra er hinn nýríki Víglundur Guðmundsson og lætur sér hvergi bregða. (Ljósm.: E. D.)
Akureyringur vann 2 milljónir hjá DÁS
Á LAUGARDAGINN var dreg
ið í 13. flokki DAS-happdrætt-
isins og varð þá einn Akureyr-
ingur tveim milljón króna rik-
ari. Er vinningur þessi hæstur
að krónutölu, er hingað hefur
komið og fengu raunar margir
aðrir smá-glaðningu, 5—25 þús.
króna vinninga, sem ekki verð-
ur fjölyrt um hér að þessu sinni.
Umboðsmaður DAS á Akur-
Ylir 20 bílar laslir á Öxnadalsheii
SÍÐASTA miðvikudag var um-
ferð mikil á vegum, því fram-
undan var langt frí, er margir
notuðu til ferðalaga um landið
þvert og endilangt. Vegir voru
greiðfærir um mestan hluta
landsins en veður óvenju óstillt.
Vegagerðin varaði ferðafólk
við að leggja á Öxnadalsheiði
þennan dag, en þar var veður
mjög versnandi og skafrenning-
ur. En fjöldi bíla var á leið að
sunnan. Um eða yfir 20 bílar og
margir farþegar áttu nótt á
Öxnadalsheiði er í hönd fór.
hönd fór.
Blaðið hitti að máli Pétur
Kristjónsson ökumann Norður-
leiða, er var meðal ökumanna
norður þennan dag og sagðist
honum frá á þessa leið, efnis-
lega:
Það var leiðindaveður alla
leið fi’á Reykjavík þennan dag,
sunnan-suðaustanátt syðra og
rigning og tafði það ofurlítið
fyrir, sunnan heiða. Færð var
ágæt á Holtavörðuheiði, Vatns-
skarði og allt norður í Skaga-
fjörð, enda má heita mjög snjó-
létt á þessari leið núna, miðað
við árstíma og eiginlega snjó-
laust að kalla nema á Holta-
vörðuheiði og Öxnadalsheiði og
vegir eru enn sæmilegir, lítið
grafnir ennþá.
Um klukkan 7 síðdegis var
haldið úr hlaði í Varmahlíð í
Skagafirði og gekk ferðin bæði
fljótt og vel norður á heiði. Ég
vissi um sjö eða átta vörubíla
á eftir mér, og voru þeir bæði
frá KEA og Stefni, ásamt tölu-
verðum hóp af smábílum af
Félagsmálanámsk. KEA og UMSE
UNGMENNASAMBAND Eyja
fjarðar og Kaupfélag Eyfirðinga
hafa ákveðið að hafa samvinnu
um að efna til félagsmálanám-
skeiða, sem einkum eru ætluð
ungu fólki. Á þessum námskeið
um verður kennd fundarstjórn
og fundarreglur, ræðuflutning-
ur og framkoma á fundum, auk
þess sem ýmsir málaflokkar
verða ræddir sérstaklega.
Námskeið þessi verða haldin
á fjórum stöðum: Melum ; Hörg
árdal, hefst 15. apríl, Skáta-
heimilinu á Dalvík, hefst 16.
apríl, Freyvangi, hefst 17. apríl
og Laugaborg, hefst 18. apríl.
Allt eru þetta kvöldnámskeið,
sem hefjast kl. 9 e. h. Ráðgert
er, að námskeiðin standi 5—6
kvöld á hverjum stað.
Stjórnandi námskeiðanna og
leiðbeinandi verður Baldur
Óskkrsson, starfsmalður Fræðslu
deildar SÍS, sem ráðinn hefur
verið um nokkurra vikna skeið
til að annast margháttað félags-
og fræðslustarf hjá Kaupfélagi
Eyfirðinga.
Þeir sem hafa áhuga á að
taka þátt í þessum námskeið-
um eru vinsamlega beðnir að
snúa sér til formanna ung-
mennafélaganna eða Kaup-
félags Eyfirðinga, sem fyrst,
þar sem þátttaka er takmörkuð.
mörgum stærðum og gerðum.
Þar voru jeppar, fjögurra
manna fólksbílar og allavega
aðrir bílar.
Hann fór að hvessa fljótlega
eftir að ég kom fram í Norðurár
dalinn og þegar komið var í
heiðarsporðinn var veður orðið
töluvert hvasst og farið að
snjóa. Átt var suðlæg. Blindað
varð enda skafrenningur. Fljót-
lega ók ég fram úr nokkrum
mmni bílum, enda rúmt á vegi,
dálitlar driftir á Klifinu. í Höll-
unum vestan Grjótár áttu
minni bílarnir í erfiðleikum en
ég ók norður fyrir Sesseljubúð
og átti ekki eftir nema lítinn
spöl norður af heiðinni, þegar
ég kom að sjö bílum, er þar
sátu fastir.
Veðrið var orðið mjög vont
og kóf í byljunum, með lítils-
háttar upprofi á milli. Þetta
veður helzt til klukkan fjögur
um morguninn. Nóttinni eyddi
fólkið í bílum sínum, sem hægt
var að hita upp. Margir komu í
(Framhald á blaðsáðu 2)
eyri, frú Guðmunda Péturs-
dóttir, hringdi til blaðsins, er
kunnugt var um þennan stóra
vinning og ákveðið var, í fram-
haldi af því, að heimsækja hinn
nýríka mann, þar sem honum
yrði tilkynnt vinningsupphæð-
in, en áður hafði umboðið
hringt til hans og tjáð honum,
að hann hefði vinning hlotið, án
frekari upplýsinga.
Héldum við nú sem leið ligg-
ur inn í Fjöru, elzta bæjarhluta
Akureyrar og að húsinu Aðal-
stræti 76, sem er gamalt hús,
asbest-klætt, tvær íbúðir.
Á efri hæðinni búa feðgarnir,
Guðmundur Guðmundsson, fyrr
um lengi bóndi á Naustum við
Akureyri, áttræður að aldri og
Víglundur sonur hans, 37 ára og
búa þar sjálfir hjá sér því Guð-
mundur er ekkjumaður og son-
urinn ókvæntur. Það var drepið
á dyr og Víglundi tilkynnt, að
vinningur hans væri tvær
milljónir króna.
Víglundur Guðmundsson hef
ur verið atvinnulaus síðan um
áramót, en hefur undanfarin ár
unnið ýmis verkamannastörf
hjá bænum. Happamiðann átti
systir Víglundar, en er hún and
aðist fyrir tveim árum, fékk
Víglundur og er hann nr. 21421.
Grunaði þig, að þú myndir
vinna í happdrættinu að þessu
sinni?
Já, en mig grunaði ekki, að
vinningurinn yrði svona stór,
svaraði hann.
(Framhald á blaðsíðu 5).
Erétfatiíkynning frá Laxárvirkjun
VEGNA missagna í fréttum
sumra dagblaða frá hinni nýju
jarðgufustöð Laxárvirkjunar
við Mývatn, vill Laxárvirkjun
taka þetta fram:
Dagana 23. og 24. marz var
stöðin tengd við kerfið og ýmis
tæki vélarinnar reynd.
Þriðjudaginn 25. marz var
vélin prófuð og keyrð samfellt
í 11 klst. með mismunandi álagi,
mest um 2400 kw. Lengst af var
álagið á bilinu 1800—2100 kw.
Þar sem Kísiliðjan starfaði
með fullum afköstum þennan
dag, þá reyndist ekki unnt að
fá meira afl úr vélinni, en búast
má við að vélin muni geta fram
leitt allt að 3000 kw. þegar næg
gufa er fyrir hendi.
Unnið er að lokafrágangi
stöðvarinnar og mun starf-
ræksla stöðvarinnar hefjast
fljótlega eftir páska.
Nánar mun verða skýrt frá
stöðmni síðar. Q
>ii
Poppsöngvarinn
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
hefur síðustu þrjár vikur æft af
miklu kappi þriðja og síðasta
sjónleik sinn á þessum vetri og
hyggst sýna hann í næstu viku.
Leikur þessi, sem er brezkur,
eftir Vernon Sylvaine, hefur í
þýðingu Ragnars Jóhannesson-
ar hlotið nafnið Poppsöngvar-
inn og er gamanleikur.
Leikstjóri er Bjarni Stein-
grímsson frá Reykjavík. Leik-
endur eru þessir: Helga Tor-
berg, Kristjana Jónsdóttir, Þór-
ey Aðalsteinsdóttir, Guðlaug
Hermannsdóttir, Sigurveig Jóns
dóttir, Jón Kristinsson, Olafur
Axelsson, Marinó Þorsteinsson,
Sæmundur Guðvmsson og Árni
Valur Viggósson. □
Kynning á „ÞRIF
hreingemingalegi
NÚ FER vorið í hönd, og ef að
vanda lætur, munu húsmæður
fara að taka til við hreingern-
ingar, sem að jafnaði fylgja þess
um árstíma. Það er því vel, að
Efnaverksmiðjan SJÖFN efnir
um þessar mundir til kynningar
viku á „ÞRIF“, sem er nýr
hreingernmgarlögur.
Vei’ksmiðjan lét á sínum
tíma þetta efni á prufu-markað
hjá nokkrum opmberum stofn-
unum hér í bænum með þeim
árangri, að þeir sem reynt hafa
ljúka miklu lofsorði á þessa
vöru og telja hana standast all-
an samanburð við erlend merki,
auk þess sem verðið er að mun
lægra.
Sjá nánar í verzlunum.
(Fréttatilky nning )