Dagur - 10.04.1969, Page 7
7
Hvðð er að gerasi í rafveitumáium fyrir vestan?
FRÉTTIR frá Alþingi og öðrum
aðilurn herma, að eitthvað nýtt
sé að gerast í rafveitumálum
Skagfirðinga og Húnvetninga.
Blaðið snéri sér því til rafveitu-
stjórans á Sauðárkróki, Adolfs
Björnssonar, til að fá nánari
fregnir af þessum málum, eins
og þau nú horfa við og varð
hann fúslega við þeim tilmæl-
um.
Hvernig er rafveitumálunum
háttað nú?
í Norðurlandskjördæmi
vestra, að Siglufirði frátöldum,
er samtengt rafveitukrefi, allt
frá Hrútafirði í Vestur-Hún. til
Blönduhlíðar í Skagafirði og út
til Hofsóss að austanverðu. Ork
an ei' framleidd á tveim stöðum.
Gönguskarðsárvirkjun á Sauð-
árkróki og vatnsaflsstöðin við
Laxárvatn við Blönduós eru
ófullnægjandi, enda disilraf-
stöðvar til viðbótar á báðum
stöðunum og vex álagið með
hverju ári. Vatnsaflsstöðin á
Sauðárkróki framleiðii' 1000 kw.
þegar bezt lætur, en þess utan
framleiða disilvélar 1200 kw.
til viðbótar. Stöðin við Lax-
árvatn framleiðir 500 kw Við
höfum því 1500 kw. i vatnsafli
en 2500 kw. frá disilstöðvum og
hefur disilaflið því tekið yfir-
höndina.
Verður haldið áfram að mæta
orkuþörfinni með nýjum disil-
vélum?
Við vonum fastlega, heima-
menn, að svo illa þurfi ekki að
fara. Sauðárkrókur hefur þá
sérstöðu á þessu svæði, að hann
FUNDUR í Bændafélagi Fljóts-
dalshéraðs, 31. marz, lýsir ein-
dregnum mótmælum út af enn-
þá nýjum undanslætti í verð-
lagsmálum landbúnaðarins.
í fyrsta lagi með töku 20
milljóna af gengishagnaði land-
búnaðarvara og nú síðast með
ákvörðun Framleiðsluráðs að
taka 5.00 krónur í verðjöfnunar
gjald á kjötið.
Lætur nærri að þetta þýði kr.
80 milljónir til frádráttar heild-
arframleiðsluverðmætis til
bænda, eða sem næst 14—15.000
krónui' á hvern bónda.
Fundurinn telur það vítavert
af Framlieðsluráði að hafa ekki
samráð við fulltrúa bænda áður
en svona kjaraskerðingar eru
samþykktar.
Fundarsamþykkt 2.
Fundur í Bændafélagi Fljóts-
dalshéraðs, haldinn 31. marz,
mótmælir harðlega ákvörðun
bankaráðs Seðlabankans og
ríkisstjórnarinnar að fyrirskipa
Áburðarsölunni, að leggja 49
er ekki nema að hálfu leyti háð
ui' Rafmagnsveitum ríkisins.
Við kaupum rafmagn frá þeim
og endurseljum það síðan. Við
sjáum því um dreifingu en ekki
orkuöflunina. Mörgum finnst,
Adolf Björnsson, rafveitustjóri.
að Ríkisrafveiturnar hafi veru-
lega brugðizt þeim vonum, er
til þeirra voru gerðai', gagnvart
orkuöflun. Það var aldrei reikn
að með því þegar Gönguskarðsá
var virkjuð á Sauðárkróki og
síðar Laxárvatn, að þá hæfist
áratugastöðvun í orkufram-
kvæmdum. En til nýrra vatns-
virkjana hefur enn ekki verið
milljón króna gengistap Áburð-
arsölunnar á sl. vori, á áburðar
verð næstu 5 ára.
Fundurinn bendir á þá stað-
reynd að fjöldi bænda átti inni
fyrir áburðinum á reikningum
viðskiptaaðila sinna og greiddi
hann því við móttöku, enda all-
ur áburður reikningsfærður við
afgreiðslu til þeirra.
Fundurinn telur ákvörðun
þessa vera skýlaust brot gegn
lögum, er sett voru um gengi
ísl. krónu 12. nóv. sl., að vöru
sem til er í landinu og leyst er
úi' tolli, megi ekki hækka í
verði, hvað þá áburð, sem seld-
ur er fyrir mörgum mánuðum
og greiddur af kaupendum. Enn
fremur að mikill hluti áburðar-
ins er innlend framleiðsla og
má því ekki hækka af þeim
sökum.
Fundurinn vítir vanrækslu
stjórnarvalda, við að sjá verzl-
unarfyrirtækj um bænda fyrir
nægum rekstrarlánum og telur
gengistap Áburðarsölunnar til
orðið af þeim sökum.
Báðar samþykktar samhljóða.
horfið. Bæjarstjórn Sauðár-
króks hóf þá rannsókn á virkj-
unarmöguleikum Svartár í Lýt
ingsstaðahreppi. Talið var fyrst,
að unnt væri að fá þar 900—
1000 kw. En nú hefur komið í
ljós, að hér er um möguleika að
ræða fyrir 3800—4000 kw. virkj
un og hefur þeirri áætlun ekki
verið hnekkt af neinum. Skil-
yrði eru þarna hagstæð að
flestra dómi og hefur þetta
breytt viðhorfinu. Að ósk Sauð
árkrókskaupstaðar var flutt
frumvarp á Alþingi um þessa
virkjun, en það dagaði uppi.
Síðar var það aftur upp tekið
og fór á sömu leið. En rafoi'ku-
lögunum frá 1946, sem þá voru
í gildi, hefur nú verið breytt til
betri vegar.
Hafa verið mynduð samtök í
héraði xmi rafveituframkvæmd-
ir?
Það er nú einmitt það, sem
hefur gerzt í kjördæminu og
eru allai' sýslurnar og Sauðár-
krókskaupstaður þar með. Sam
staðan sú, er nú hefur myndazt,
spannai' allt orkuveitusvæðið.
Nú starfar 10 manna nefnd í
málinu og það er sú nefnd, sem
undirbjó það frumvarp, sem nú
hefur enn verið lagt fram á
Alþingi, stutt af þingmönnum
allra flokka í kjördæminu.
Hvað er það, sem frumvarp
þetta felur í sér?
Farið er aðeins fram á það,
að raforkunotendur á þessu
svæði, sem eiga sinn eigin not-
endamarkað, fái að hafa áhrif á
þessi mál, með því að eiga helm
ing þeirra orkuöflunarfyrir-
tækja, sem þarna eru og að fá
stjórn þessara mála á þessu
sama svæði, svo þar verði mál-
um stjórnað af heimamönnum.
Við getum ekkert um það full-
yrt hvort rafoi'kuverð lækkaði
strax og Svartárvirkjun væri
komin í gagnið, en verðlagið
yrði þá a. m. k. í höndum stjórn
enda fyrirtækisins og þætti okk
ur það mikil og góð trygging,
hvað raforkuverð til neytenda
snertir, segir rafveitustjórinn á
Sauðárkróki að lokum, og þakk
ar blaðið viðtalið. E. D.
FERMINGARBÖRN
í Akureyrarkirkju
sunnud. 13. apríl kl. 10.30 f. h.
STÚLKUR:
Auður Hafdís Steindórsdóttir, Kotár*
gerði 9
Asta Margrét Eggertsdóttir, Eyrarvegi 2
Guðný Þöll Aðalsteinsdóttir, Eyrarlands-
vegi 3
Helga Stefánsdóttir, Þórunnarstr»ti 118
Lilja Stefánsdóttir, Þórunnarstræti 113
Hildur Guðrún Gunnarsdóttir, Sól-
völlum 17
María Jakobína Sölvadóttir, Eiðsvalla-
götu 26
Nanna Baldursdóttir, Eyrarvegi 8
Ragnheiður Ólafsdóttir, Hrafnagils-
stræti 30
Rannveig Ósk Agnarsdóttir, Byggða-
vegi 128
Sigríður Sigurvinsdóttir, Suðurbyggð 15
Sigrún Ásdís Jónsdóttir, Sólvöllum 19
Unnur Bjarnadóttir, Byggðavegi 88
Unnur Guðrún Karlsdóttir, Norður-
götu 46
DRENGIR:
Anton Sigurðsson, Goðabyggð 9
Ari Már Torfason, Brekkugötu 33
Davíð Jónsson, Byggðavegi 107
Ingi Kristinn Magnússon, Víðimýri 9
Kristinn Frímann Sigurharðarson,
Sólvöllum 17
Marinó Víborg Marinósson, Brekku-
götu 14
Óskar Haukur Óskarsson, Kotárgerði 2
Stefán Lárus Jónsson, Glerárgötu 14
Tryggvi Ásgrímsson, Ásvegi .18
Örn Pálsson, Brekkugötu 23
I.O.O.F. — 1504118y2 —
MESSAÐ veiður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl.
10.30 f. h. (Ferming). Sálmar:
372 — 590 — 594 — 595 —
591. — B. S.
SAMKOMUR að Kaupvangs-
stræti 4, II hæð. Biblíuskóli
og þjónustusamkoma fimmtu
daginn 10. apríl kl. 20.30. —
Opinber fyrirlestur: Guð ger-
ir kærleiksverk í þágu jarðai'
búa — fluttur af Ulf Carl-
bark, sunnudaginn 13. apríl
kl. 16.00. Allir velkomnir. —
Vottar Jehóva.
FRÁ KRISTNIBOÐHÚSINU
ZION. Samkoma næstkom-
andi sunnudag kl. 8.30 e. h.
Benedikt Arnkelsson og Guð
mundur O. Guðmundsson
tala. — Sunnudagaskóli kl.
11 f. h. Oll börn velkomin. —
KVEÐJUSAMKOMA fyrir
kapt. og frú Östervik verður
n. k. sunnudag 13. api'íl kl.
8.30 e. h. Allir velkomnir. —
Hj álpræðisherinn.
GJAFIR OG ÁHEIT. í Biafra-
söfnunina samtals kr. 22.175.
— Til Akureyrarkirkju kr.
2.000 frá N. N. og kr. 100 frá
konu. — Til Staðarkirkju kr.
100 frá konu. — Til Strandar
kirkju kr. 200 frá N. N., kr.
1.000 frá S. J. og kr. 200 frá
N. N. — Til Ragnars Ármanns
sonar kr. 5.225 frá starfsfólki
Hraðfrystihúsi U. A. — Beztu
þakkir. — Birgir Snæbjörns-
son.
BIAFRASÖFNUNIN. — S. H.
Akureyri kr. 100, Jón Bene-
diktsson Kristneshæli kr. 300,
Ari kr. 500, Jónas Þorleifsson
kr. 300, N. N. kr. 200.
I.O.G.T. st. Ísafold-Fjallkonan
nr. 1. Fundur fimmtudaginn
10. þ. m. kl. 8.30 e. h. í Alþýðu
húsinu. Fundarefni: Vígsla
nýliða, önnur mál. Eftir fund:
Félagsvist. — Æ.t.
LIONSKLÚBBURINN
HUGINN. — Fundur
fimmtudaginn 10. apríl
kl. 12.00 að Hótel KEA.
LIONSKLÚBBUR
AKUREYRAR
Fundur í Sjálfstæðis-
húsinu fimmtudaginn
10. apríl kl. 12.
BRIDGEFÓLK. Ein-
menningskeppni B. A.
hefst 15. apríl. 3 um-
ferðir. Tilkynnið þátt-
töku fyrir 13. apríl til stjórn-
ar Bridgefélags Akureyrar.
ÉÞRIÐJA og síðasta
spilakvöld Sjálfsbjarg
ar verðui' að Bjargi
laugardaginn 12. þ. m.
kl. 8.30 e. h. Dansað á
eftir.
GEYSISFÉLAGAR! — Munið
æfinguna fimmtudaginn 10.
þ. m. kl. 8. Áríðandi að allir
mæti stundvíslega.
MINJASAFNIÐ er opið á
sunnudögum frá kl. 2—4 e. h.
svo og á öðrum tímum fyrir
skóla- og áhugafólk eftir sam
komulagi. Sími safnsins er
1-11-62, en safnvarðar
1-12-72.
TRILLA ÓSKAST til
'kaups eða leigu.
Uppl. í síma 2-15-28.
BRÚÐHJÓN. Hinn 3. apríl
voru gefin saman í hjónaband
í Akureyrarkirkju, ungfrú
Heiðbjört Antonsdóttir og
Sveinn Jónasson húsasmíða-
nemi. Heimili þeirra verður
að Eiðsvallagötu 5, Akureyri.
'Sama dag voru gefin saman
í hjónaband í Akureyrar-
kirkju, ungfrú Þorgerður
Jóna Þorgilsdóttir sjúkraliði
og Helgi Kristinn Aðalsteins-
son húsgagnasmíðanemi. —
Heimili þeirra verður að
Norðurgötu 3, Akureyri. —
Hinn 5. apríl voru gefin
saman í hjónaband í Akur-
eyrarkirkju, ungfrú Jóhanna
Sveinfríður Júlíusdóttir og
Brynjólfur Snorrason verka-
maður. Heimili þeirra verður
að Gránufélagsgötu 48, Akur
eyri. —
Sama dag voru gefin saman
í hjónaband í Akureyrar-
kirkju, ungfrú Soffía Valdi-
marsdóttir og Eyþór Gunn-
þórsson starfsmaður simstöð-
inni. Heimili þeirra verður að
Lundargötu 3, Akureyri. —
Hinn 6. apríl voru gefin
saman í hjónaband í Akur-
eyrarkirkju, ungfrú Svava
Halldóra Ásgeirsdóttir og
Hjörtur Böðvarsson hús-
gagnasmiður. Heimili þeirra
verður að Ægisgötu 4, Akui'-
eyri. —
Sama dag voru gefin saman
í hjónaband, ungfrú Oddný
Rósa Eiríksdóttir og Grétar
Sævar Sverrisson prentnemi.
Heimili þeirra verður að
Suðurbyggð 16, Akui’eyri. —
Sama dag voru gefin saman
í hjónaband, ungfrú Bryndís
Guðrún Friðriksdóttir hár-
greiðsludama og Þorbergur
Hinriksson sjómaður. Heimili
þeirra verður að Hafnar-
stræti 20, Akureyri. —
Hinn 7. apríl voru gefin
saman í hjónaband í Akur-
eyrarkirkju, ungfrú Bára
Guðrún Sigurðardóttir og
Róbert Sverrisson sjómaður.
Heimili þeirra verður að Víði
mýri 4, Akureyri. —
BRÚÐHJÓN. Á páskadag voru
gefin saman í hjónaband brúð
hjónin ungfrú Hermína Ósk
Valgai'ðsdóttir frá Brún og
Matthías Eiðsson sjómaður.
Heimili þeirra er að Helga-
magrastræti 46, Akureyri. —•
A SUNNUDAGINN verða seld
merki fyrir Sumarbúðimar
að Vestmannsvatni. — Stjórn
ÆSK í Hólastifti.
KA-FÉLAGAR. Sjáið auglýs-
ingu um aðalfund félagsins,
sem verður í Sjálfstæðishús-
inu fimmtudaginn 17. þ. m.
ST GEORGS-GILDIÐ.
Aðalfundur verður
mánudaginn 14. þ. m.
kl. 8.30 e. h. í Hvammi. —
Stjómin.
SKOTFÉLAGAR. Munið æfing
una á föstudaginn kl. 8.15. —
ÓSÓTTIR vinningar í happ-
drætti ÍSÍ í marz sl.: Nr. 7128
bifreið, 3940 kæliskápur,
61062 kæliskápur, 9636 kæli-
skápur, 947 saumavél, 25917
saumavél, 52905 saumavél. —
Upplýsingar í síma 91-30955.
(íþróttamiðstöð ÍSÍ, Laugar-
dal, Reykjavík).
VEITIÐ ATHYGLI auglýsingu
Sálarrannsóknafélagsins um
fyrirlestra forseta Sálarrann-
sóknafélags íslands um næstu
helgi.
Ú tiför
GUÐNÝJAR EINARSDÓTTUR,
Þingvöllum við Akureyri,
fer fram frá Akureyrarkirkju laugardaginn 12.
apríl n. k. 'kl. 1.30 eftir hádegi.
Vandamenn.
Innilegar þakkir til allra vina og vandamanna,
fjær og nær, fyrir auðsýnda vinsemd og samúð
við andlát og jarðarför
GUNNARS ÁRNASONAR.
Ennfremur færum \ ið læknum og hjúkrunarliði
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri sérstakar
þakkir.
ísgerður Pálsdóttir, börn og barnabörn.
Samþykktir um landbúnaðarmál