Dagur - 10.04.1969, Side 8
8
SMÁTT & STÓRT
því vel. Ritstjóri er Dagrún
Kristjánsdóttir húsniæðrakenn-
ari, sem kunn er af mörgum
útvarpsþáttum um þessi efni.
Ritið er hvorki stórt í sniðum
eða mikið í það borið, en það
flytur góðar greinar og með
væntanlegu framhaldi, getur
hér orðið um góða handbók hús
mæðra að ræða. En efni fyrsta
lieftis er: Til lesenda, Hvernig
skiptast útgjöld heimilisins?,
Hvemig eigum við að nota
matarafganga?, Hvað eigum
við að borða?, Er starf húsmóð-
urinnar metið að verðleikum?,
Meðferð á parketgólfum, Um
þvott á ullarfatnaði og Vöru-
merkingar. Mér sýnist rit þetta
eiga fyllsta rétt á sér.
BJÓRFRUMVARP ENN
Enn er á Alþingi flutt frumvarp
um að leyfa sölu á sterkum bjóí
hér á landi og svo sem nærri
má geta og sigurstranglegast er,
flytja það þingmenn úr öllum
flokkum. Það felur í sér þjóðar-
atkvæðagreiðslu um málið.
Margir eru þeirrar skoðunar,
að betra sé að þamba bjór en
sterk vín. Aðrir segja þá plágu
nóga, sem sterk vín valda, þótt
ekki sé bætt við annarri plágu
þar sem bjórinn er. Nú þegar
eru um 200 tegundir léttra og
sterkra vína á boðstólum hér á
Iandi, og er því úrvalið allgott.
PÉTUR OG ANNAR PÉTUR
í fyrrakvöld rökræddu þeir
Pétur Sigurðsson alþingismaður
og Pétur Sigurðsson ritstjóri og
regluboði um bjórfrumvarpið
og voru þær rökræður prúð-
mannlegar en ekki að sama
skapi fróðlegar um þann megin
kjarna málsins, hverjar afleið-
ingar verða þar sem bjór er
skyndilega leyfður. Pétur rit-
stjóri sagði, að áfengisvanda-
málið væri annað eða þriðja
mesta vandamál fjölda þjóða,
er heilbrigðisyfirvöld hefðu við
að stríða. Pétur alþingismaður
lagði áherzlu á þá óskhyggju
sína, að betra væri að menn
drykkju bjór en sterk vín, sem
þeir yrðu vitlausir af, og er það
rétt, svo langt sem það nær.
En þá væri verr af stað farið en
licima setið, ef bjórdrykkjan
kæmi ekki í stað neins, heldur
væri viðbótardrykkja lslend-
inga, sem þegar er næg.
HUNGURVAKA
Á þriðja hundrað manns, nær
eingöngu skólafólk, fastaði á
annan sólarhring að tilhlutan
Æskulýðssambands Islands og
var fólkið til húsa í Mennta-
skóla Reykjavíkur. Allir fengu
þó vatn að vild. Mun þetta í
fyrsta sinn, að ungmenni hér á
landi taki sig saman um að
neyta ekki fæðu, en algengt í
sumum öðrum löndum til að
vekja athygli á sérstökum mál-
efnum. Fólk það, er hér um ræð
ir, var að vekja athygli á neyíl
Biaframanna og er vel ef árang
ur verður. En þ\d er ekki að
leyna, að hungurvaka þessi hef
ur ekki mætt þehn skilningi,
sem til var ætlast í upphafi.
Aðalfundur miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins
hefst í Reykjavík 11. apríl og
mun hann standa í tvo daga.
Þar munu að vanda stjórnmál
og flokksmál rædd, gerðar um
þau samþykktir og menn kosnir
til trúnaðarstarfa.
Formaður flokksins, Ólafur
Jóhannesson prófessor, mun
flytja yfirlitsræðu á aðalfund-
inum, gjaldkeri, ritari og fram-
kvæmdastjórn gera grein fyrir
störfum sínum. Q
Nemendur Gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar á leikæfhigu.
SAMTÍNINGUR
Yfir 20 bílar sátu fastir í ófærð
og illviðri á Oxnadalsheiði í
dymbilvikunni. Akureyrskir
skíðamenn virðast nú á uppleið
í íþrótt sinni og voru sigursælir
á landsmótinu á ísafirði. Menn
undrast það, að ekki skuli í
sjónvarpi sýndar skíðamyndir
úr Hlíðarfjalli, en kannski stend
ur það til bóta. Atvinnulaus
Akureyringur hreppti tveggja
millj. kr. virði í DAS á laugar-
daginn. Sana er upprisin og nú!
fer ölið að freyða á ný Ölfrum-
varpið er enn afturgengið á
Alþingi. I stærstu verstöðvum
landsins er afli á þessari vertíð
allt að þriðjungi meiri en í
fyrra, þrátt fyrir verkfallið.
Frægur bítill giftist nýlega og
tilkynnti, að hann myndi ekki
rísa úr rúmi sínu, né heldur
Akureyringai* náðu mikluin ár-
ansri á Skíðamóti ísl.
SKÍÐAMÓT ÍSLANDS var
haldið á ísafirði dagana 31.
marz til 6. apríl, nánar tiltekið
í Seljalandsdal, kunnum skíða-
stað þeirra ísfirðinga. Fréttir
hafa nú verið sagðar af lands-
móti þessu og eru aðalúrslit
birt á öðrum stað í blaðinu í
dag.
Dagur bað frú Karólínu Guð-
mundsdóttur, hina landskunnu
skíðakonu á Akureyri, að segja
lesendum nokkru nánar frá
skíðalandsmótinu og fer sú frá-
sögn efnislega hér á eftir.
Skíðamót íslands var sett að
kveldi mánudagsins 31. marz
undir berum himni á Silfur-
torgi í ísafjarðarkaupstað. Það
gerði Jóhann Einvarðsson bæj-
arstjóri, sem var mótsstjóri og
voru þá flestir keppendur komn
ir til mótsins. Þaðan var gengið
í kirkju og hlýtt á messu hjá
séra Sigurði Kristjánssyni.
Keppni átti að hefjast næsta
dag með 15 km. göngu, sem var
frestað vegna óveðurs.
Stökkkeppni fór fram á mið-
vikudaginn og var veður þá
gott og skemmtilegt í Seljalands
dal. Þar er skíðaskáli og skíða-
lyfta og hið fegursta útsýni í
björtu veðri. Áhorfendur voru
ekki mjög margir því flestir
lengra að, voru um borð í Gull-
fossi, sem þá var ókominn en
kom á skírdagsmorgun og flug-
Ágæfur loðnu og þorskafli á
ferðir féllu niður.
Á fimmtudag fór stórsvigið
fram og var þá hið versta veð-
ur, grenjandi stórhríð. Og á
(Framhald á blaðsíðu 2).
með því mótmæla ofbeldi í
heiminum. Hann segir vikuna
erfiða.
GRÓÐUR LANDSINS
Ingvi Þorsteinsson magister
segir nýlega í blaðagrein, að
þrír fjórðu hlutar Islands séu
gróðurlausir. En einn hundraðs
hluti landsins eru ræktaðir eða
120 þús. ha. En þrátt fyrir þessa
120 þús. ha. ræktaðs lands tek-
ur búpeningur landsmanna lang
mestan hluta fóðursins á órækt
uðu landi, bæði á hálendi og
láglendi. En þetta leiðir til
þess, segir gróðurfræðingurinn,
að gróður óræktaðs Iands er
víða nýttur um of. Gróðurfars-
rannsóknir styðja þessa kenn-
ingu, sem er hin ískyggilegasta.
Ástæða er fyrir landsmenn, að
kynna sér þessa grein. (Tíminn
3. apríl 1969) og halda vöku
sinni.
HÚSMÓÐIRIN
Neskaupstað og Eskifjörð og
Fáskrúðsfjörð og suður um. En
á Seyðisfirði hefur staðið í
stappi milli fjármálaráðuneytis-
ins og heimamanna, sem höfðu
hug á því að kaupa hraðfrysti-
húsið, en samningar gengu
seint og illa, eins og jafnan við
ríkisvaldið, en loks tókust samn
ingar, en þá á eftir að fram-
kvæma ýmsar viðgerðir á hús-
inu og dýrmætasti tíminn hefur
þegar tapazt vegna þessa seina-
gangs í samningum.
Snjólaust er í byggð en hjarn
til fjalla og heiða og jeppafært
var þar til skamms tíma og
greiðfærara á hjarninu en á veg
um byggðanna. Nú er rigning
og sunnanátt. Vegir eru enn
greiðfærir um héraðið og hafa
ekki vaðizt upp ennþá, hvað
sem seinna verður. Fram að síð
ustu dögum óku menn á harð-
fenni á Fjarðarheiði en þar er
töluvert mikill snjór. Vegurinn
um Oddsskarð hefur verið vel
fær undanfarið. V. S.
Ausffjörðum
Egilsstöðum 8. apríl. Ágætur
loðnu- og golþorskafli hefur
verið á Austfjörðum að undan-
förnu. Mú þar sérstaklega nefna
Frá Akureyri.
Karólína Guðmundsdóttir.
Húsmóðirin og heimilið nefnist
nýtt rit, sem út á að koma hálfs
mánaðarlega ef húsmæður taka
Hans og Gréta í Úlðlslirði
Ólafur Jóhannesson.
LEIKFÉLAG Gagnfræðaskóla
Olafsfjllrðar frumsýndi ævin-
týraleikinn Hans og Grétu um
fyrri helgi í Tjarnarborg við
ágætar undirtektir. Leikstjóri
er Kristinn Jóhannsson skóla-
stjóri en Halldór Ó. Ólafsson
þýddi leikinn. Höfundur er
Willy Kruger.
Ólafsfirðingar hafa undan-
farin ár æft og sýnt marga sjón
leiki. Líklegt er, að þegar börn
og unglingar eru með í starfi,
verði þau síðar hneigðari til
leikstarfa í tómstundum en
annars myndi verða. Leikendur
í Hans og Grétu eru þrettán að