Dagur - 30.04.1969, Blaðsíða 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.t
KOSNINGAR
FLESTUM landsmönnum kemur
saman um það, að þörf sé nýrrar
stjómarstefnu. Til þess að knýja
hana fram, þarf kosningar, nýja for-
ystu og nýja menn.
Nokkur efnisleg atriði stjómmála
ályktunar miðstjómar-aðalfundar
Framsóknarflokksins fara hér á eftir,
þeim til glöggvunar, er vilja kynna
sér þær tillögur, sem aðaístjómar-
andstæðingurinn hefur m. a. fram
að færa:
Atvinnuvegunum verði tryggður
rekstrargrundvöllur með gjör-
breyttri stefnu á sviði fjármála.
Erlendar lántökur þjóðarinnar
verði takmarkaðar við arðvænlegar
framkvæmdir.
Beinir skattar verði látnir koma
réttlátar niður og óbeinir skattar
lagðir meir á óþarfa eyðslu en nú er.
Óþörf fjárfesting og gjaldeyris-
eyðsla verði stöðvuð og fjármagninu
beint í þjóðhagslega mikilvægar
framkvæmdir.
Vísitöluhækkun verði greidd á
laun og vandi atvinnulífsins leystur
með öðru en kauplækkun.
Ekki kemur til greina að tengjast
EFTA meðan ástand er ekki betra
í efnahagsmálum en nú er,
Gera verður ráðstafanir til að efla
atvinnuvegi þjóðarinnar og auka
fjölbreyttni þeirra m. a. með nýjum
iðngreinum.
í samstarfi við erlenda aðila sé
þess gætt að erlent fjármagn fái ekki
aðstöðu, sem raskað geti stöðu inn-
lendra atvinnugreina eða stefnt efna
hagslegu sjálfstæði í tvísýnu.
Til þess má ekki koma að erlendir
aðilar nái fótfestu í verzlun hér á
landi og verður því að búa þannig
að innlendri verzlun að hún geti
gegnt hlutverki sínu.
Meiriháttar framkvæmdum verði
skipað eftir fyrirframgerðum áætl-
unum.
Samstarf samvinnuhreyfingar og
verkalýðshreyfingar verði aukið.
ísland verði áfram í NATO, en
varnarmálin verði endurskoðuð.
Ríkisstjórnin segi af sér og efnt
verði til nýrra kosninga. □
10.000 dráttarvélar - rækfun - heyverkun og
búvélasýning
Á ÁRUNUM 1942 til 1968 að
báðum árum meðtöldum voru
fluttar til landsins 9902 hjóla-
dráttarvélar. Þessi innflutning-
ur skiptist þannig á tegundir:
Ferguson 4439 eða 45.0%
International
Harvester 2581 — 26.0%
Deutz 1025 — 10.0%
Fordson og Ford 696 — 7.0%
David Brown 232 — 2.0%
Hanomag 149 — 1.5%
Zetor 123 — 1.2%
John Deere Lanz 40 — 0.4%
Rússneskar vélar 40 — 0.4%
Nuffield 1 — 0.0%
Ýmsar tegundir 576 — 6.0%
Þegar á það er litið, að drátt-
arvélaframleiðendur í heimin-
um skipta tugum, ef ekki hundr
uðum, þá sést greinilega, að ís-
lenzkir bændur hafa séð sér
hag í því, að sem fæstar gerðir
dráttarvéla væru í notkun.
Meira en 70% allra vélanna
skiptast á milli aðeins tveggja
tegunda, Ferguson (Dráttar-
vélar h.f.) og Intemational
Hai-vester (Véladeild SÍS).
Við gengisfellinguna í nóvem
ber sl. hækkuðu flestar búvélar
um ca. 50%, en á móti hækkun-
unum kemur þó að ýmsir fram-
leiðendur selja vörur sínar á
lægra verði til íslands, en ann-
arra landa, vegna efnahags-
örðugleikanna hér.
Telja má að hugur bænda
varðandi bútækni standi helzt
til þriggja megin verkefna þ. e.:
1. Endurræktun túna, sérstak
lgea vegna kalskemmda.
2. Aukinnar nýtingar á bú-
fjáráburðinum, vegna alhliða
áburðargildis hans og til jarð-
vegsbóta (auk spamaðar á
áburðarkaupum ).
3. Möguleikum á tryggingu
fyrir úrvalsverkum á heima-
aflaða fóðrinu — heyinu.
Endurræktun túnanna.
Bændur hafa á sl. ári farið
töluvert inn á þá braut að út-
vega sér heppilega plóga, gjarn
an tví- eða fleirskera sem henta
vel við heimilisdráttarvélamar,
en með þeim er bæði ódýrt og
fljótlegt að bylta landinu og
koma húsdýraáburði í flögin.
Síðan er herfað yfir með t. d.
léttu fjaðraherfi, sáð og valtað.
Með þessari aðferð geta bænd-
ur nýtt eigin vinnu og vélarafl.
Veita norsku Kyllingstad plóg-
og herfaframleiðendurnir
„frændum sínum“ íslendingum
sérstaka verðlækkun nú og er
þess vegna ekki dýrt að eignast
nauðsynleg verkfæri. Einnig
fást aðgengilegar leiðbeiningar
um meðferð plóga, en eins og
menn vita er meðferð plóga og
vinna með þeim talin ein sú
merkasta af starfsíþróttunum.
Jafnvel þótt land sé dauð-
kalið eða í slæmri rækt, er eng-
inn vandi að fá fulla uppskeru
af því á fyrsta sumri — hvar
sem er á landinu með því að sá
„grænfóður“-höfrum með gras-
fræinu. Þetta þurfa bændur að
notfæra sér í auknum mæli.
Auk þessa kemur til greina
að rífa yfirborð gróins lands
með hnífaherfum sem skilja
eftir sig holur í túnið, sem hægt
er að sá í og mun þessi aðferð
töluvert hafa verið notuð í Bret
landi. Slík hnífaherfi kosta nú
um kr. 26.000.00.
Aukin nýting á búfjár-
áburðinum.
Bændur munu nú almennt
viðurkenna að það borgi sig að
nota búfjáráburðinn. Hins veg-
ar er jafnvíst að mikið tapast af
næringarefnum þeim sem nýti-
leg eru í honum, vegna þess að
algengt er að bera hann á
freðna jörð, sem svo og svo mik
ið á eftir að skolast burt af,
áður en grös fara að vaxa.
Við nýræktun mun búfjár-
áburðurinn þó nýtast vel, þar
sem hann er borinn í flögin.
Spurningin er þó, hvort búfjár-
áburðurinn mundi ekki nýtast
bezt með því að aðgengilegt
væri fyrir bændur að fíndreifa
honum (svo engrar ávinnslu
væri þörf) í byrjun gróanda og
jafnvel milli slátta. Hægt er að
búa dráttarvélina og dreifarann
þannig að auðvelt sé að fara
um túnin — þótt þýtt sé og
blautt. Virðist þetta geta haft
mikla þýðingu. Haugsuga er
tæki nefnt, sem kemur til
greina við þetta.
Betra fóður úr heyinu —
vélræn vinnubrögð.
Á síðustu árum hafa rutt sér
til rúms ýmsar aðferðir til þess
fyrir bændur á landssvæðum
þar sem úrkoma er mikil að
tryggja úrvalsverkun á heyjun-
um.
Bændur í fjallahéruðum Mið-
Evrópu og í nágrannalandi okk
ar Danmörku eru komnir fram
með mjög athyglisverðar að-
ferðir til þessa. (Mið-Evrópu/
heyturnar og Danmörk/gras-
kögglaverksmiðja). \
Véladeild SÍS kynnti hey-
turnana sérstaklega á landbún-
aðarsýningunni 1968 og hefur
nú tvær gerðir af þeim á boð-
stólum. Ódýrari heyturninn
sem tekur um 1000 hesta mundi
kosta ef hann væri tollaður sem
búvél um 600 þúsund — upp-
kominn og frágenginn með
byggingarkostnaði, heyblásara,
súgþurrkunarblásara m/heitu
lofti og sjálftæmibúnaði.
Tilraunir í Bretlandi sýna að
með slíkum tumi er auðvelt að
halda eftir í heyinu 85% af nær
ingu þeirri sem er í grasinu,
þegar slegið er.
Graskögglaverksmiðja
TAARUP.
Um nokkurra ára skeið hafa
Taarup verksmiðjurnar í Dan-
mörku gert tilraunir með fær-
anlega graskögglaverksmiðju.
Samstæða þessi vegur um 6
tonn, er um 10 m. að lengd,
breidd er 2.88 m. og hæð 3.35 m.
Vélin er dieselvél, 45 hestöfl.
Afköstin eru um 700 kg. af full-
þurru grasi á klukkustund eða
ca. 500 fóðureiningar, lætur þá
nærri að hún vreki vetrarfóður
einnar mjólkurkýr á 3 tímum.
Grasið er slegið með sláttu-
tætara sem skilar því í vagn,
sem ekið er síðan að samstæð-
unni og tæmir hann sig í hana,
færiband skilar svo kögglunum
á vagn, sem notaður er til að
flytja kögglana í geymslu, þver
mál kögglana er um 6 cm. gróf-
saxaðir.
Með þessari verkunaraðferð
verður nær ekkert tap í fóður-
gildi grassins, fóðrið verður
jafnt að gæðum. Kögglarnir eru
þægilegir í meðferð og taka lít-
ið geymslupláss miðað við fóð-
urgildi. Heilbrigði búfjárins
verður mikið betra og því minni
kostnaður við sjúkrameðferð.
Búvéladeild SÍS mun á næstu
mánuðum kynna sér þessa nýju
verkunaraðferð ítarlega og verð
ur spennandi að fylgjast með
hyaða erindi þetta hefur til ís-
lenzkra bænda.
Búvélasýning.
Allan marzmánuð stendur
yfir í sýningarsal Véladeildar-
innar að Ármúla 3, sýning á
helztu búvélum o. fl. Gefst
mönnum kostur á að kynnast af
eigin raun McCórmick traktor
og heybindivél, sláttuþyrlu, hey
þyrlu, New Idea áburðardreif-
ara, pípumjaltakerfi, kælitank
og bifreiðum, auk þess sem
veittar eru upplýsingar um ofan
greind viðfangsefni. Fullkomnir
mjmdalistar og upplýsingar um
bútækni eru veittar á sýning-
unni og fræðslu- og kynningar-
kvikmyndir eru sýndar daglega
kl. 3 og eftir óskum einstaklinga
— eða hópa.
Sýningin er opin alla virka
daga vikunnar frá 9—18 og
laugardaga 9—12.
Bændur leggið leið ykkar í
Ármúla 3 og kynnið ykkur leið-
ir til framfara í búskapnum. □
- HAFÍSINN LOKAR
(Framhald af blaðsíðu 8).
1—5/10 að þéttleika, að landi.
Tíu sjómílur norður af Rauða-
núp er ís 1—3/10 og 20 sjómílur
norður er ísinn 4—6/10.
f 15 mílna fjarlægð norðan
við Langanes er dreifður ís og
í 30 mílu fjarlægð er ísinn 7—
9/10. Siglingaleið fyrir Langa-
nes er greiðfær og aðeins dreifð
ir jakar. □
- Skógarreitir
(Framhald af blaðsíðu 8).
um 450 ha. að stærð. Þá færði
formaður þakkir til bæjarstjórn
ar Akureyrar, sýslunefndar
Eyj afj arðarsýslu, Landgræðslu-
sjóðs og annarra aðila er styrkt
hafa starfsemi félagsins.
Ingvi Þorsteinsson land-
græðslufulltrúi flutti erindi um
gróðureyðingu, landgræðslu og
beitarþol afrétta. Um skógrækt
arfélögin sagði Ingvi að hlut-
verk þeirra ætti að vera að varð
veita og fegra skógreiti gamla
og nýja og nú síðar að rækta
nytjaskóga. Starf skógræktar-
manna væri mikilvægt fyrir
land og lýð. Taldi hann ósæmi-
lega þá skoðun að skógrækt og
landgræðsla ættu ekki samleið,
því markmiðið væri hið sama
hver sem ræktunin væri. Sam-
staða yrði að vera um verndun
og aukningu gróðurs og verk-
efni væru óendanleg fyrir alla
ræktun í landinu.
Sigurður Blöndal skógarvörð
ur ræddi um innflutning trjá-
plantna og hvað núverandi gróð
urríki landsins ekki mæli-
kvarða á vaxtarskilyrði hér.
Með innflutningi framandi gróð
urs réttum við náttúrunni hjálp
arhönd, en skilyrði væri að
plöntur séu sóttar til staða með
svipaða lengd vaxtartíma og
hér á landi.
Hákon Bjarnason skógræktar
stjóri talaði um skóggræðslu
Eyfirðinga og kvað næsta verk-
efni þeirra vera að verða sér
úti um land fyrir sýsluskóg og
tryggja öruggan rekstrargrund-
völl fyrir starfsemi félagsins.
Snorri Sigurðsson erindreki
taldi fjárskort hamla aðgerðum.
Hann kvað girðingar víða gaml
ar og úr sér gengnar og þyrfti
að bæta þar um áður en nýjar
yrðu reistar.
Fundurinn samþykkti nokkr-
ar tillögur og m. a. um að félag-
ið beiti sér fyrir því að réttir
aðilar sjái um að 'hin gamla
gróðrarstöð Ræktunarfélags
Norðurlands verði endurbætt
þannig, að hún verði verðugur
minnisvarði yfir störfin sem þar
voru unnin.
Stjórn félagsins skipa: Guð-
mundur Karl Pétursson for-
maður, Björn Þórðarson, Ár-
mann Dalmannsson, Haraldur
Þórarinsson, Sigurður O. Björns
son, Steindór Steindórsson og
Þorsteinn Davíðsson. □
5
- Skóverksmiðja ISunnar
Þrír Laxdælingar kvaddir
(Framhald af blaðsíðu 1).
Hve gömul er skógerð sú á
Akureyri, sem nefna má verk-
smiðjuframleiðslu?
Skóverksmiðjan var upphaf-
lega deild í Skinnaverksmiðj -
unni Iðunn, sem Þorsteinn
Davíðsson stofnsetti, samkvæmt
samþykkt á fundi SÍS 1936.
Hann hófst handa á byggingu
og útvegun véla á því sama ári
og fyrstu skórnir voru fram-
leiddir í verksmiðjunni fyrir
næstu áramót. Vélar verksmiðj
unnar voru keyptar frá Svíþjóð,
nýjar og notaðar, útvegaðar af
sænska samvinnusambandinu
og sérfræðiaðstoð var einnig
fengin frá Svíþjóð. Sérfræðing-
ur í skóiðnaði, Nyberg að nafni,
setti niður vélarnar og vann hér
svo næstu misseri. Hann stund-
ar enn skóframleiðslu í Svíþjóð.
En danskur maður, Cristian
Lhin, kom í staðinn og starfaði
sem verkstjóri og framkvæmda
stjóri um 15 ára skeið.
Hvenær tókstu við fram-
kvænidastjórastörfum verk-
smiðjunnar?
Þegar Lhin flutti héðan 1954.
Við vorum með verksmiðjuna
tvískipta og höfðum húsnæði að
hálfu leyti lijá Gefjunni og að
hálfu hjá Sútunarverksmiðj-
unni og þannig stóðu málin þeg
ar brann eftir síðustu áramót
og við misstum allt okkar í
sauma- og sníðadeild, en
skemmdir urðu í vélasal.
Og þá var ákveðið að byggja
upp að nýju?
Ákveðið var að byggja sér-
staka verksmiðjuhæð, þar sem
áður var efri hæð Sútunarverk
smiðjunnar. Þar fáum við 1200
fermetra gólfflöt og sú bygging
verður komin undir þak áður
en langt líður og væntanlega
verður hægt að hefja fram-
leiðslu í nýju verksmiðjunni
fljótt úr næstu áramótum. Hæð
in er byggð úr strengjasteypu.
Og er við flytjum allt okkar
þangað, verður verksmiðjan
endurskipulögð og verður það
þægilegt í nýju húsnæði. Það
húsrými gefur möguleika til
framleiðslu á eitt þúsund pör-
um af skóm á dag. En á meðan
þetta húsnæði er í smíðum,
rekum við sauma- og sníða-
deildina í því húsnæði, sem áð-
ur var Saumastofa Gefjunar,
við Ráðhústorg, og framleiðslan
er hafin á ný, eftir fjögurra
mánaða hlé .
Sex eða sjö skóverksmiðjur
voru starfræktar hér milli 1950
—1960?
Já, það er rett, en þær hafa
týnt tölunni eða starfsemi
þeirra legið niðri. Verksmiðja
okkar og aðrar verksmiðjur
hafa lent í miklum erfiðleikum
vegna samkeppni við innflutt-
an skóvarning, sem misjafnlega
hefur verið til stofnað. Þar var
t. d. um að ræða niðurgreidda
vöru austan frá Rúmeníu og fl.
af svipuðu tagi, sem var inn-
lendri skógerð mjög óhagstæð.
Þetta gekk svo langt, að það var
ekki unnt að fá hingað hráefni
í skó við sama verði og inn-
fluttu skórnir kostuðu. En svo
breyttist þetta mjög í eðlilegra
horf.
Svo þú álítur að innlend skó-
gerð eigi fullan rétt á sér?
Já, alveg tvímælalaust. f
fyrsta lagi höfum við verulegan
hluta hráefnis til skógerðar hér
innanlands og svo allt vinnu-
aflið. Það sýnir sig meðal ann-
arra þjóða, að bezt vegnar þeim,
sem mest búa að sínu. Gildir
það auðvitað einnig hér, að hag
kvæmast er að vinna til fulls
vörur úr innlendu hráefni, þeg-
ar það er hægt. Hér á Akureyri
er þegar orðið vel þjálfað iðn-
aðarfólk í þessari grein, eins og
ýmsum öðrum greinum iðnaðar
ins.
Á hvað leggið þið mesta
áherzlu í framleiðslunni?
Framlelðsla okkar hefur mjög
beinzt að standard-gerðum af
margskonar karlmannaskóm,
unglingaskóm og allskonar
sport-skófatnaði, auk kven-
skónna. Ég tel, að hér á landi
eigi að framleiða allt að helm-
ingi af því skótaui, sem við þurf
um að nota, og framleiða það
sem mest úr innlendu efni. Þá
spörum við verulegan gjaldeyri
og sköpum kærkomna vinnu.
Hvað framleiðið þið mikið á
NORSKI píanósnillingurinn Ro
bert Riefling lék í Borgarbiói á
vegum Tónlistarfélags Akureyr
ar sl. mánudagskvöld, og voru
það fjórðu og síðustu tónleikar
þessa starfsárs.
Robert Riefling er í allra
fremstu röð píanóleikara og hef
ur ásamt hljómleikahaldi aust-
an hafs og vestan innt af hendi
kennslustörf í verulegum mæli.
Hann er búsettur í Osló, en
gegnir einnig starfi sem pró-
fessor við konunglega tónlistar-
Mest höfum við framleitt um
90 þús. pör af skóm, en nú um
60 þús. pör. Við framleiðum
sennilega 12% af þeim leður-
skófatnaði, sem þjóðin notar.
Það eru því mikil verkefni í
þessari grein og full þörf á mjög
aukinni skógerð. Eða hví skild-
um við heldur greiða einhverj-
um erlendum aðilum vinnulaun
in, í stað þess að láta innlendar
hendur njóta þeirra?
Hvemig er eftirspumin nú?
Skór frá okkur eru seldir ná-
lega í hverri skóverzlun á land
inu og í haust var óvenjulega
mikið pantað hjá okkur, já
sennilega þriðjungi meiri en
nokkru sinni áður. Við brun-
ann skapaðist nýtt viðhorf,
vegna framleiðslutafanna svo
við getum ekki annað eftir-
spurn nú.
Fjöldi starfsfólks?
Ef verkföll tefja okkur ekki
að ráði, getur full framleiðsla
hafizt næstu daga, með sama
starfsliði og áður eða 80 manns.
En eftir að við höfum flutt í það
húsnæði, sem nú er verið að
byggja, getum við væntanlega
bætt við okkur nokkrum tug-
um fólks, jafnframt því að auka
framleiðsluna verulega. En við
höfum verið með helming starfs
liðsins í vinnu að undanförnu,
við uppbygginguna. Við höfum
fengið nokkuð af nýjum vélum
og nú verðum við að vinna úr
erlendu hráefni, þar til Sútunar
verksmiðjan getur farið að
framleiða fyrir okkur á ný.
Dagur þakkar svör verk-
smiðjustjórans.
Skóverksmiðja Iðunnar fram
leiddi fyrir 23 millj. kr. á síð-
asta ári. Ákvörðun forráða-
manna SÍS, um endurbyggingu,
duglegur framkvæmdastjóri og
vel æft starfsfólk ætti að gera
verksmiðjunni mögulegt að
skUa verulegri framleiðsluaukn
ingu á næstu árum. □
háskólann í Kaupmannahöfn.
Þá hefur hann leikið inn á fjöl-
margar hljómplötur. Svo nokk-
uð sé nefnt hefur Robert Rief-
ling leikið inn á plötur allt
„Wohltemperiertes Klavier" eft
ir J. S. Bach, fjörutíu og átta
prelúdíur og fúgur, og um þess
ar mundir er unnið að upptöku
á flutningi hans á öllum sónöt-
um Beethovens, þrjátíu og
tveimur talsms.
Robert Riefling hefur hlotið
margskonar viðurkenningu á
GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR,
Auðnuni í Laxárdal.
Guðný Jónsdóttir á Auðnum
andaðist á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri, 14. ágúst sl.,
eftir þunga legu. Hafði hún ver
ið heilsuveil síðustu árin. Hún
var jarðsungin 21. ágúst í heima
grafreit að Auðnum.
Guðný Jónsdóttir fæddist að
Auðnum 24. janúar 1894. For-
eldrar hennar voru Hildur
Benediktsdóttir, Jónssonar á
Auðnum og Jón Pétursson,
Péturssonar, fyrrum bónda í
Mjóadal og víðar. Jón og Hild-
ur bjuggu á Auðnum. Guðný
var elzt af níu systkinum, og
svo sem oft vill verða undir
þeim kringumstæðum, kom
mikil vinna á hennar herðar
þegar í æsku. Gætti hún syst-
kina sinna og hjálpaði móður
sinni við heimilisstörf. Hún var
bæði vinnufús og verkhög.
Snemma fór hún að vinna utan
heimilis, einkum þar sem hjálp-
ar var þörf vegna veikinda, eða
annara erfiðleika. Er að því
kom, að systkini hennar stofn-
uðu sín eigin heimili var hún
þeim til hjálpar, ekki sízt þegar
systkinabörn hennar fæddust.
Þannig vann Guðný um tugi
ára, hið mesta fórnar- og mann
kærleikastarf, og á fjölda heim-
ila henni ómetanlegar þakkir að
gjlada. Öll störf sín vann Guð-
ný þannig, að hún ávann sér
vináttu og virðingu allra, sem
þar áttu hlut að máli. Þegar
kraftar móður hennar tóku að
þverra, settist Guðný að heima
á Auðnum og hjúkraði henni og
vann heimilinu allt hvað er hún
mátti, þar til á síðastliðnu vori,
að heilsa hennar var á þrotum.
Guðný Jónsdóttir unni af
hjarta öllu því, sem fagurt var.
Hún var ágætlega greind og
hafði ánægju af skáldskap,
einkum var hún ljóðelsk. Hún
hafði mikla gleði af blómum og
annaðist þau af móðui’legri
hlýju. Sunnan við bæinn á
Auðnum er fagur og vel hirtur
garður, með runnum og blóm-
um og öllu fyrir komið af
smekkvísi. Það var heillandi
sjón, að horfa á Guðnýju vinna
í þessum garði. Fór hún hönd-
\um um gróðurinn líkast því
sem börn væru.
Guðný var verkhög, að
hverju sem hún gekk, stillt og
prúð í framgöngu, hógvær, vin-
sæl og virt af öllum, sem hana
þekktu.
HILDUR BENEDIKTSDÓTTIR
húsfreyja á Auðnum.
Hildur Benediktsdóttir fædd-
ist að Auðnum í Laxárdal, 1.
september 1875. Foreldrar henn
ar voru Benedikt Jónsson, sem
jafnan var við þann bæ kennd-
ur, bóndi þar og hreppstjóri um
árabil, en síðan skrifstofumaður
og bókavörður á Húsavík, og
kona hans, Guðný Halldórsdótt
ir bónda í Geitafelli, Jónssonar
prests á Grenjaðarstað. Meðal
Akureyri
alþjóðavettvangi fyrr og síðar.
Er það mál þeirra, sem gerst
mega um það dæma, að þar fari
sá listamaður, er valdið hafi til
þess að túlka meistarann J. S.
Bach og risann Beethoven í
fullri stærð. Það liggur nærri
að álykta sem svo, að einkum
þar muni vera hið músíkalska
heimkynni listamannsins, alla-
vega sé það innan „hringsins“.
Einnig hefur hann unnið mikið
að kynningu á norskri tónlist
(Framhald á blaðsíðu 2).
systkina Halldórs voru Magnús
prestur og læknir á Grenjaðar-
stað og skáldkonan ástsæla,
Guðný í Klömbrum, og bar
Guðný Halldórsdóttir nafn
hennar.
Hildur Benediktsdóttir ólst
upp á Auðnum, elzt þeirra
systra, er ólust upp heima. Hún
vandist snemma allri algengri
vinnu úti og inni, sat ær á sumr
in og vann að heyskap og tó-
vinnu. Hún var létt og kvik í
hreyfingum og hélt þeim ein-
kennum til hárrar elli og kapp-
söm til allra verka, hvort sem
var úti eða inni.
Auðnasystur nutu ekki ann-
arrar menntunar en þeirrar, er
þær hlutu heima á Auðnum.
Allar voru þær ágætlega gefn-
ar, og á uppvaxtarárum þeirra
var Auðnaheimilið menntasetur
— eitt af mörgum heimilum hér
í sýslu — og þar var félagsmála
skóli Þingeyinga, og skólastjór-
inn var Benedikt Jónsson. Syst
ur Hildar, Aðalbjörg og Unnur
— Hulda skáldkona — hafa báð
ar minnzt æskuheimilis sins
með sérstakri ástúð og hlýju,
og enginn staður var þeim svo
ástfólginn sem Auðnir og um-
hverfi þeirra. Hildur unni æsku
heimili sínu ekki síður en þær
systur hennar og undi þar glöð
sína löngu ævi, svo til alla.
Hildur Benediktsdóttir giftist
1894 Jóni Péturssyni, Péturs-
sonar, bónda í Mjóadal og Stóru
laugum, Jónssonar, bónda á
Hólmavaði, Magnússonar, sem
mikill ættbogi er frá kominn.
Þau Hildur og Jón bjuggu á
Auðnum allan sinn búskap, að
tveimur árum undanskildum.
Jón Pétursson andaðist 9. janú-
ar 1953 og hafði þá nokkrum
árum áður látið jörð og bú í
hendur Benedikts sonar síns,
sem þar býr enn. Hildur veitti
þó heimilinu forstöðu lengi eftir
það.
Hildur og Jón eignuðust 9
börn, sem öll eru á lífi nema
Guðný, sem getið er hér að
framan. Öll eru börn þeirra
ágætt fólk. Þau eru starfhæf í
bezta lagi, vinsæl og vel virt.
Það er því mikill arfur, sem þau
Auðnahjón skiluðu þjóðfélag-
inu. En erfiðislaust var það
ekki, og oft hefur svefntími hlot
ið að vera stuttur og þreytu
kennt að morgni, þegar hefja
þurfti dagsverkið. Auðnir eru
lítil jörð og búskapur þeirra
Hildar og Jóns og barna þeirra,
var aldrei stór í sniðum, en
áfallalaus og farsæll. Jón var
ágætur búfjárhirðir, heyin jafn
an góð, þótt oft væru þau lítil,
og komst hann af með minna
fóður en margur annar, en bú-
stofn hans skilaði alltaf góðum
afurðum. Jón gerði ekki lítið úr
þætti konu sinnar við hirðingu
búfjárins. Þau hjón voru bæði
dýravinir, og enga konu hefi ég
þekkt, sem hafði eins mikið
yndi af sauðfé og Hildi. Áhugi
hennar á þeim efnum vaknaði
snemma og entist til hinzta
dags. Þáttur slíkrar konu er
ekki lítill við fjárbú heimilisins.
Auðnabærinn var ekki stór
eða háreistur, en hann var
hreinn, umgengni öll hin þrifa-
legasta, reglusemi og smekk-
vísi, hvert sem litið var. Mér
fannst Auðnabaðstofan falleg,
og húsið þeirra Jóns og Hildar
er einhver vinalegasta íbúð,
sem ég hefi komið inn í.
Hildur Benediktsdóttir and-
aðist þrotin að kröftum 93 ára,
hinn 5. september sl. Hún var
jarðsungin 11. sama mánaðar
við hlið manns síns í heimagraf
reitnum á Auðnum. Sú jörð,
sem fóstraði hana unga, og þar
sem hún lifði sínar sælustu
stundir, tók hana nú í faðm
sinn.
Börn þeirra Hildar Benedikts
dóttur og Jóns Péturssonar eru:
Guðný, sem minnst er hér á
undan. Benedikt, bóndi á Auðn
um, kvæntur Sigríði Torfadótt-
ur á Birningsstöðum, Halla, hús
freyja á Þverá, gift Jónasi
Snorrasyni hreppstjóra. Pétur,
bóndi í Árhvammi, kvæntur
Regínu Frímannsdóttur. Sigríð-
ur, húsfreyja á Ökrum, var gift
Ásvaldi Þorbergssyni, sem lát-
inn er fyrir mörgum árum. Þor-
gils, bóndi á Daðastöðum,
kvæntur Sigríði Hallgrímsdótt-
ur. Þórólfur, húsasmíðameistari
í Kópavegi, kvæntur Maríu
Sveinsdóttur. Heiðrún, hús-
freyja að Hamarsstíg 32, Akur-
eyri, gift Pétri Gunnlaugssyni
múrarameistara. Sigurbjörg,
sem nú veitir heimilinu á Auðn
um forstöðu.
SNORRI TORFASON, "I-
Birningsstöðum.
Snorri Torfason andaðist að
kveldi Þorláksdags sl. á Sjúkra
húsinu á Húsavík, en þar hafði
hann dvalið sem sjúklingur um
tveggja mánaða skeið. Hann var
jarðsunginn að Þverá í Laxár-
dal hinn 5. janúar.
Snorri Torfason fæddist að
Geitafelli í Reykjahverfi, 24.
okt. 1890. Foreldrar hans voru
Guðrún Snorradóttir, Oddsson-
ar, bónda þar og maður hennar
Torfi Sæmundsson frá Narfa-
staðaseli í Reykjadal. Meðal
bræðra Torfa voru Jóhannes í
Krossdal og Friðrik á Efri-
Hólum. Árið 1898 fluttu foreldr
ar Snorra að Birningsstöðum í
Laxárdal og bjuggu þar upp frá
því, unz börn þeirra tóku við
jörðinni. Á Birningsstöðum átti
Snorri því heima í full 70 ár.
Guðrún og Torfi á Birnings-
stöðum voru efnalítil og jörðin
engin kostajörð við þáverandi
búskaparhætti. Lífsbaráttan var
því hörð, þar sem annars staðar,
og kom það niður á börnunum.
Snorri Torfason var elztur átta
systkina, og kom því fljótt í
hans hlut að vinna, svo sem
þrek framast leyfði, og vitan-
lega oft miklu meira. Var það
að vísu ekki sjaldgæft á þeim
árum. Snorri yfirgaf síðan
aldrei foreldra sína, en vann
þeim á meðan þau þurftu á að
halda, en síðan systkinum sín-
um. Hann vann af framúrskar-
andi dyggð og trúmennsku.
Þannig mundi hann hafa unnið
hvaða húsbændum, sem var.
Slík var skapgerð hans. Þau
voru orðin mörg handtökin og
sporin, sem hann hafði helgað
fjölskyldu sinni.
Á unglingsaldri tók Snorri að
mestu við fjárhirðingu á búi
föður síns, og rækti það starf af
hinni mestu samvizkusemi og
alúð. Hann var dýravinur, hest-
ar voru honum mjög kærir, en
mesta ást lagði hann við sauð-
féð. Hefi ég engan mann þekkt,
sem eins og hann, lagði á sig
takmarkalaust erfiði og fyrir-
höfn, svo að hverri kind mætti
líða sem bezt. Oft naut hann
líka sælla stunda með fénu, eft-
ir vel heppnað erfiði. Hann var
virkilega góður fjárhirðir, sem
ekki hikaði við að leggja lífið
að veði fyrir hjörð sína. Vel
mundi hann hafa kunnað því,
að fylgja hjörð sinni allt árið og
hvílast um nætur í nálægð
hennar. Hann var í eðli sínu
hjarðmaður. Engan mann hefi
ég séð fyllast svo réttlátri reiði
sem Snorra, ef hann sá illa far-
ið með skepnur, eða þehn mis-
þyrmt. Aldrei sagðist hann hafa
tekið annað eins út og fráfærna ,
(Framhald á blaðsíðu 2)
ári?
Píanótónleikar Roberts Riefling á