Dagur - 21.05.1969, Qupperneq 1
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Útigöngufé í Egilsdal
Frostastöðum 11. maí. Fleiri
heimta útigengið fé nú til dags
en Lárus í Grímstungu. Fyrir
skömmu kom Gunnar bóndi í
Flatatungu á Kjálka auga á
kindur frammi á Egilsdal, sem
er óralangur dalur, sem skerst
inn í hálendið milli Norðurár-
dals og Kjálka. Gunnari þótti
trúlegt, að þessar kindur hefðu
haft vetursetu þarna á dalnum
og gerði tilraun til að ná þeim
til byggða. Tókst honum að ná
þremur en tvær urðu eftir.
En kindurnar þrjár reyndust,
þegar nær var komið, fimm,
tveir gemlingar, annar frá
Frostastöðum en hinn ómark-
aður og ær frá Tyrfingsstöðum,
fyrir stuttu borin tveimur lömb
um. Voru lömbin hin hressustu,
sem og gemlingarnir en ærin
fremur rýr orðin. Allar voru
kindurnar óheimtar.
Þótt varla þurfi að gera ráð
fyrir að vorveðráttan verði að
fjörtjóni þeim tveimur kindum,
sem eftir eru úr því að veturinn
vann ekki á þeim, verður að
sjálfsögðu undinn bugur að því
að nálgast þær. nihg —
Fundu brugg a víðavangi
FREGNIR hafa borizt af því, að
nokkur börn hafi fundið heima-
bruggað áfengi í tveimur all-
stórum ílátum á víðavangi, þar
sem þau voru að leik milli bæja
í sveit einni við Eyjafjörð. Urðu
þau forvitin og neyttu af því er
þau fundu og komust þó til
bæjar, þó ekki heim til sín og
báru því glöggt vitni, að þau
höfðu drukkið áfengi.
Brugg þetta mun hafa verið
sæmilega til búið þar sem börn-
in veiktust ekki meira en raun
varð á, en hins vegar vitnar
þetta ótvírætt um það, sem hér
hefur oftar en einu sinni verið
vikið að, að allvíða mun nú far-
ið að brugga og væri yfirvöld-
um holt að fylgjast betur en
þau gera með hinum aftur-
gengna og hættulega ósið.
Mál þetta mun nú í athugun
hjá yfirvöldunum. □
Sauðburður stendur yfir og gengur vel. Margir vetrarklippa fé sitt.
!S4444554555455555544455555554445544545545555555555555554«55555555544«i555555S4554445S5554554«544455S555$5«
NYIR SAMNINGAR UM KJARAMÁL
Géður afli við Norðurland
FÖRSTÖÐUMENN 11 hrað-
frystihúsa á Norðurlandi, frá
Skagaströnd til Húsavíkur,
komu saman til fundar að Hótel
KEA, Ak., hinn 17. maí 1969.
Fundarefni var fyrst og
fremst að ræða sameiginleg
hagsmunamál fiskiðnaðarins á
Norðurlandi og sérstaklega þau
miklu vandamál, sem skapazt
hafa vegna hafíss og verkfalla,
sem eins og kunnugt er hafa
valdið stöðvun á afgreiðslu fisk
umbúða svo og stöðvun á út-
flutningi framleiðsluvaranna.
Vegna verkfalls á bátaflotan-
um var ekki unnt að hefja rekst
ur flestra fiskvinnslustöðvanna
fyrr en í febrúarlok og þrátt
fyrir tilveru Ilafísnefndar er
svo komið um miðjan maí, að
olíubirgðir eru að ganga til
þurrðar. Leiðir það óhjákvæmi-
lega til stöðvunar fiskiskipa og
f iskmj ölsverksmið j a.
Þær upplýsingar komu fram
á fundinum, að enda þótt vertíð
hæfist svo seint á svæðinu, er
innlagður vinnslufiskur til 15.
maí orðinn um það bil 18.500
smálestir. Áætlað útflutnings-
verðmæti þess fisks er um 300
ALÞINGI SLITIÐ
ÞINGLAUSNIR fóru fram sl.
laugardag og hafði það staðið
frá 10. okt. að jólaleyfi undan-
skildu eða 173 daga.
Fyrir þingið voru lögð 75
stjórnarfrumvörp og 159 þing-
mannafrumvörp. En samtals
voru 253 mál tekin til meðferð-
ár og prentuð þingskjöl voru
815.
Ekki eru þau mál nefnd tölu-
lega í fréttum, sem „svæfð“
voru í nefndum og aldrei af-
greidd á þessu þingi, sum þeirra
snemma fram komin. Q
milljónir króna og lætur nærri
að það nemi 3 milljónum króna
á hvern vinnsludag, ef stöðvarn
ar eru allar í gangi. Að fram-
leiðslunni hafa að staðaldri unn
ið um 800 manns í landi og um
500 manns á sjó, og sýnir það,
að framleiðsluverðmæti á hvern
mann, sem að framleiðslunni
vinnur, nemur um 230 þúsund
krónum á fyrrgreindum tíma.
(Framhald á blaðsíðu 5)
SÍÐDEGIS á mánudaginn undir
rituðu fulltrúar ASI og fulltrú-
ar atvinnurekenda samkomulag
í kjaradeilunni, eftir nær
þriggja mánaða samningaþóf.
Og í fyrrakvöld höfðu atvinnu-
rekendur og fjölmennustu
verkalýðsfélögin samþykkt sam
komulagið, sem gildir til eins
árs. Helztu atriði samningana
eru þessi:
Engar verðlagsuppbætur
skulu greiddar frani til 1. sept-
ember. Áætlað hefur verið að
samkvæmt marzsamkomulag-
inu ættu þær að vera 14.8%.
Þess í stað kemur kauphækk
un, sem þó kemur fyrst til fram
kvæmda 15. maí sl. — þ. e.
marz, apríl og hálfur maí falla
alveg niður. Þessi kauphækkun
er 1200 krónur á mánaðarkaup
sem er frá 8.800 upp í 18.000.
Samsvarandi greiðist á viku-
kaup og tímakaup. Miðað er við
grunnkaup.
Sú hækkun sem leiðir ai(
kaupkækkuninni, skal ekki
ganga inn í vísitöluna. Taka
launþegar þar á sig 3% skerð-
ingu kaups.
Vísitalan skal sett 100 1. ágúst
næstkemandi, og verðlagsupp-
bætur greiðast fyrst 1. septem-
ber í samræmi við hækkanir
vísitölunnar í ágúst. Við þaðl
bætist hækkun verðlags, ef hún
verður meiri á tímabilinu fram
til 1. ágúst, en áætlað hefur ver
ið. Skal vísitalan 1. september
virka til greiðslu- verðlagsupp-
bóta samkvræmt hinu skerta
kerfi frá marz í fyrra, og svo
ganga þar til samningurinn
(Framhald á blaðsíðu 5)
Enn er dorgað í Mývatni
;
Reynihlíð 20. maí. Sauðburður
er í fullum gangi. Ærnar eru
tvílembdar og þrílembdar. Geld
fé hefur verið flutt austur á
fjöll þar sem melurinn grær
fyrr en annar gróður.
Dágóður dorgafli hefur verið
að undanförnu. En veiði á dorg
er bönnuð sunnudaga og mánu
daga og veiðileyfi aðra daga
seld. Þessi nýbreytni er til bóta.
Fáir sinna dorgarveiði. Mikill
ís er enn á Mývatni.
Hér var ferðamálaráðstefna
fyrir helgina. Sænskur maður
fór þá á dorg og aflaði vel. Slík-
um veiðum er hann vanur. En
í stað þess að nota maðk fiski-
flugunnar í beitu, eins og hér er
gert, er hann því vanastur úr
heimalandi sínu að leita maðks
innan við börk sumra trjáteg-
unda.
Geysir söng hér um helgina.
Of fáir höfðu tíma til að hlusta.
P. J.
Sungið og leikið í S. Þing,
Miss Ann Griffiths hörpuleikari frá Bretlandi leikur í Akureyrar-
kirkju á annan í hvítasunnu kl. 4 síðdegis. — Sjá götuauglýsingar.
Fylgist ennfremur með umsögnum í hljóðvarpi og sjónvarpi.
Húsavík 19. maí. Bridgemót
Norðurlands var háð hér á
Húsavík dagana 15., 16 og 17.
maí. Sex sveitir tóku þátt í
keppninni, tvær frá Húsavík,
tvær fró Siglufirði og tvær frá
Akureyri.
Bridgemeistari Norðurlands
varð sveit Harðar Amþórsson-
ar, Siglufirði með 65 stigum,
önnur varð sveit Guðjóns Jóns-
sonar, Húsavík með 62 stig og
þriðja varð sveit Mikaels Jóns-
sonar, Akureyri með 56 stig.
Leikfélag Akureyrar sýndi
tvisvar í gær hér á Húsavik,
Poppsöngvarann. Það er gaman
leikur, sem segir á skemmtileg-
an hátt frá fáránlegu fyrirbæri
nútíma mannlífs meðal svo-
nefndra menningarþjóða. Leik-
urinn hefði átt skilið að fá fleiri
áheyrendur, en þeir voru því
miður alltof fáir, en þeir fáu
skemmtu sér með afbrigðum
vel.
Karlakórinn Geysir frá Akur
eyri hélt í gær söngskemmtun í
Skjólbrekku við Mývatn og
félagsheimili í Ljósavatns-
hreppi. Þ. J.
Nemendatónleikar
Tónlistarskólans á Ak.
AÐRIR tónleikar Tónlistarskól
ans verða í Lóni laugardaginn
24. maí kl. 3 e. h.
Koma þar fram yngri nem-
endur skólans og leika á píanó,
fiðlu og lúðra.
Fólk er hvatt til að sækja tón
leikana og eru allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir. □