Dagur - 21.05.1969, Qupperneq 4
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Súnar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
MIKIL UMSKIPTI
ÞEIR menn munu orðnir fáir í
þessu landi, sem treysta sér til þess
að loka augunum svo gjörsamlega,
að þeir sjái ekki hin herfilegu mis-
tök í stjóm landsins á tíu ára ferli
núverandi ríkisstjómar. Aflaleysi og
verðhmn er ekki um að kenna
hvemig nú er komið, því afli var
t. d. nær þriðjungi meiri 1964—1968,
í stjómartíð B. Ben., en hann var á
stjómarámm Ól. Thors eða 1959—
1963 og verðlag einnig hagstæðara
erlendis.
Eysteinn Jónsson gerði nokkum
samanburð á ástandinu fyrr og nú
í útvarpsumræðu og sagði:
„Fyrir 10 árum var atvinnuleysi
ekki vandamál á íslandi og vinnuafl
vantaði og var sótt í önnur lönd á
vertíðum. Skólafólk átti sumai-vinnu
vísa og þar með námsbrautir opnar
öllum dugandi unglingum. Nú varð
stórfellt atvinnuleysi á miðri topj>
vertíð og geigvænlegt ástand blasir
við í næstu framtíð, enda hefur ríkis-
stjórnin haft uppi hreina vafninga
og kák eitt í stað þess að hefja harða
sókn gegn atvinnuleysinu. Skóla-
nemendur horfa í stórhópum fram á
atvinnuleysi, en stjórnin hefur ekk-
ert gert til þess að ráða fram úr þeim
málum, og sýnir það nýja viðhorf að
menn bollaleggja um vinnuútvegun
erlendis fyrir íslenzkt námsfólk og
stjómin er að gera ráðstafanir til
þess að skólanemendur geti fengið
atvinnuleysisstyrk yfir hásumarið."
Ennfremur sagði Eysteinn:
„Fyrir 10 ámm var kaupmáttur
algengustu launa meiri en hann er í
dag og hefur hann því farið lækk-
andi. Þetta er árangur af 10 ára kaup
lækkunarstyrjöld núverandi ríkis-
stjómar, sem háð hefur verið á mörg
um vígstöðvum, sem liður í úreltri
efnahagsmálastefnu, og heitir sá þátt
ur, að minnka kaupgetuna. Sumpart
hafa verið háðar kjaraorustur beint
og sumpart sú aðferð notuð að moka
álögum á algengustu neyzluvömr,
jafnvel innlendar vörur, eins og fisk
og kjöt í fyrsta skipti í sögu landsins,
og sumar brýnustu nauðsynjar heim-
ilanna hafa hækkað um 600—800%.
Ein orustan í þessu stríði hefur stað-
ið í allan vetur, fyrst við sjómenn,
síðan við landverkafólk, og grefur
undan framleiðslunni og afkomu
þjóðarinnar, en tilgangurinn er að
lækka launin enn meir en áður var
búið. Fyrir þessu stendur ríkisstjóm-
in og engin nema hún, því að hún
steig á háls atvinnurekendum í vet-
ur og bannaði þeim að greiða vísi-
töluuppbót jafnvel á lægstu laun og
kallaði skemmdarstarf, ef út af væri
(Framhald á blaðsíðu 7)
USA: Varför tiger man om alkoholdöden?
Hin fegurstu laukblóm spretta, þrátt fyrir kulda. (Ljósm.: E. D.)
-í LYSTIGARÐINUM Á AKUREYRI
ÞESSI er fyrirsögnin á mjög
markverðri grein í sænska blað
inu Accent, 14. júní 1968. Á ís-
lenzku er fyrirsögnin: Hvers
vegna er þagað um dauðsföllin
af völdum áfengisneyzlunnar?
Læknafélag Bandaríkjanna
( American Medical Assosiation)
birti í aprílskýrslu sinni nokkr-
ar staðreyndir um ofdrykkjuna
og tjónið af völdum hennar í
Bandaríkjunum. Anders E.
Nybacka (sænskur) námsstjóri,
hefur þýtt ýmislegt úr skýrsl-
unni og fer það hér á eftir:
Stærsta augljósa orsökin í
hinum örtvaxandi afbrotum
æskumanna er áfengisneyzlan,
bæði foreldra og bama þeirra.
Fimmti hver sálsjúklingur er
haldinn áfengissýki. Vandinn er
líkamlegs eðlis, áhrif áfengisins
taka á taugakerfið, sem venst
þeim og verða með vanadrykkj-
unni sljóvgandi. Ábyrgðarleys-
ið fær lauaan tauminn (Edgar
J. Hover). (Nafn þetta á senni-
lega að vera John Edgar
Hoover, forstjóri rannsóknar-
deildar dómsmálaráðuneytis
Bandaríkjanna. — Þýðandi).
Áfengissýkin í USA hefur
grandað 225 sinnum fleiri mönn
um en lömunarveikin, og árlega
fimmtíu sinnum fleh-i en
krabbameinið og tíu sinnum
fleiri en berklar. Þörfin á bólu-
setningarlyfi gegn áfengissýk-
inni er geysileg. Dr. W. W.
Bauer segir ennfremur:
Bágborið ástand.
Rannsóknir í Califomíu hafa
Ijóslega sýnt, að drykkjuskap-
urinn og afleiðingar hans kost-
ar ríkið tólf sinnum nieira en
það, sem það fær í sköttum af
áfengissölunni.
Dr. William Terhune: Tíundi
hluti þjóðfélagsins er háður
áfengisneyzlunni. Hún hefur
aukizt um 43 af himdraði síðast
liðin tíu ár, en fólksfjölgunin
aðeins um átján af hundraði.
Rétt mynd af ástandinu.
Talið er, segir dr. William
Holmes, að í Bandaríkjunum
séu um 50.000 eiturefnaneytend
ur (narkomaner), en áfengis-
sjúklingarnir eru þar fimm
milljónir. Fyrir þá sjálfa, fjöl-
skyldu þeirra og vini, er ástand
þeirra réttnefnt helvíti á jörðu,
og það sem ég hér segi, er rétt
mynd af ástandinu: Afbrotum
fjölgar, slysin aukast, sálsjúk-
dómar ágerast, og það kostar
allt of mikið af hreinsa til eftir
siðleysisspýj ur áf engisdrykkj -
unnar.
Upplýsingar slysavamafélags
þjóðarinnar er á þessa leið: 50
milljónir manna slasast eða far
ast ár hvert í Bandaríkjunum.
Þetta kostar 20 milljarða doll-
ara og 250.000 eyðilagða vinnu-
daga. Slysadauðsföllin voru
113.000 árið 1966, 5% hækkun
frá fyrra ári. Til viðbótar urðu
10.800.000 öryrkjar. Ölvun við
akstur átti sinn drjúga þátt í
53.000 af dauðsföllunum. Öll
þessi slys eru nú stærsta dánar
orsökin á aldrinum 1 til 37 ára.
Hvers vegna er þagað yfir
þessu?
Árið 1966 misstu Bandaríkin
8.155 menn í Víetnamstríðinu. Á
sama ári átti ölvun við akstur
þátt í 53.000 dauðaslysum í
Bandaríkjunum. Hvers vegna
minnast fréttablöðin ekki neitt
á þetta? Eiga ekki að vera til
neinar dánarskýrslur um þetta
fólk? Skal það vera löglegt, að
reiða megi þetta banvæna vopn
að hjarta samfélagsins? Veitið
athygli, hve lítið er skrifað um
öll þessi dauðsföll, en mikið um
þá, sem falla í Víetnam.
Kennum hinum ungu.
Hví ekki kenna ungu kyn-
slóðinni, hve skemmtilegt og
hrífandi það er að keppa að
verðugu marki á ævigöngunni.
Að standa á tveimur styrkum
fótum er betra en heimsins
beztu hækjur.
í einni af bókum sínum skrif
ar Upton Sinclair, að þegar um
áfengi sé að ræða, geti hann
bent á val æskumanns, sem
góða fyrirmynd ungum mönn-
um:
„Nei mér geðjast ekki bragð-
ið! — Nei, faðir minn dó sem
áfengissjúklingur! — Nei, ég vil
ekki þola hund í húsi mínu,
hversu vænt sem mér þykir um
hann, þótt hann bíti aðeins
fimmta hvern gesta minna.
Áfengi vil ég ekki þola heldur,
þótt það skaði aðeins einn af
hverjum fimm“.
Hanly ríkisstjóri segir: Ekk-
ert á jörðu hefur úthellt meira
blóði en áfengið, valdið meiri
sorg, eyðilegt fleiri heimili, að
engu gert fagrar vonir, þjáð og
beitt ofbeldi fleiri mæður og
börn, þjakað fleiri heimilum,
kramið fleiri hjörtu og niður-
lægt frekar allan manndóm en
áfengið".
Hér endar þessi markverða
grein sænska blðasins, sem
greinir frá óhrekjandi stað-
reyndum, samkvæmt beztu
fáanlegum heimildum. Tvívegis
er spurt: Hvers vegna er þag-
að? Eigum við, hér á landi, að
ganga framhjá særða mannin-
um við veginn? Eigum við að
vera samsek í „þögn yfir þjóð-
FORMAÐUR Landssambands
stangveiðimanna, G. J. Krist-
jánsson, sem ætlaði að mæta á
fundi á Akureyri 15. þ. m. og
ræða áhugamál stangveiði-
manna og félaga, gat því miður
ekki mætt en í hans stað kom
Jakob Hafstein og flutti erindi
um frumvarp hinna nýju lax-
og silungsveiðilaga, er komin
eru fram á Alþingi, um friðun
laxastofnsins í úthöfum, hvern-
ig unnt er að koma í veg fyrir
útbreiðslu sjúkdóma í laxi og
um Laxaeldisstöð ríkisins í
Kollafirði.
En formaðurinn, Guðm. J.
Kristjánsson, sendi Degi með-
fylgjandi ávarp til allra þeirra,
er stangveiðar stunda:
„Lax- og silungsveiði mun nú
víðast hvar vera hafin í landinu.
Þykir mér rétt að senda kolleg-
um mínum í sportveiðinni kær-
ar kveðjur með ósk um ánægju
legar stundir í dvöl sinni við
veiðivötnin í faðmi íslenzkra
fjalla og fallvatna, um leið og
ég læt hér með nokkrar hug-
leiðingar til sportveiðimann-
anna, hvað ber að hafa í huga
við vatnafiskaveiðarnar.
1. Sportveiði iðka menn sér
tU ánægju og afþreyingar. Sann
ur sportveiðimaður hefir áhuga
á fiskistofninum og viðhaldi
hans.
2. Sportveiði er iðkuð með
kastHnu af stöng. Þannig teljast
neta-, nóta-, ádráttur- eða línu
veiði ekki til sportveiði.
3. Um leið og tekið er tillit til
öryggis og styrks veiðitækjanna
skal vali þeirra stjómað af sport
sjónarmiðum. Vatnafiska skal
sem mest veiða á flugu, þar senj
kringumstæður leyfa. — Vertu
búinn að ganga úr skugga um
að færi, gimi og agn sé í lagi
áður en veiði hefst.
4. Veiddu aðeins þar sem þú
hefur leyfi til. Aflaðu þér vitn-
arvömm,“ þótt unga kynslóðin
gangi fyrir björg af völdum
seiðskrattans versta? Hugleið-
um orð skáldsins:
Um samsekt í þögn yfir þjóðar-
vömm
var þungur lestur hans reiði.
Hvar frekja sig rændi og raup-
aði af skömm,
þar reiddi hann öx að meiði.
Hver illgresi banvænu biður
hlíf,
hann bælir og traðkar í eyði.
Sé drepinu hlúð, visnar heil-
brigt líf,
og hefndin grær á þess leiði.
(Einar Ben.)
Mér undirrituðum þótti sum-
ar tölurnar í þessari grein svo
ótrúlega háar, t. d. að 50 millj-
ónir manna slasizt eða farizt í
Bandaríkjunum árlega, að ég
skrifaði sænska blaðinu fyrir-
spurn um þessar tölur. Ég fékk
bréf frá tveimur aðilum, sem
staðfestu að tölurnar myndu
vera réttar. Þá skrifaði ég til
slysavamafélags Bandaríkjanna
og fékk enn það svar, að tölum
ar væru réttar, en þess bæri að
•gæta, að þegar um slysin væri
að ræða, væri allt talið, þótt
ekki væri meira en það, að mað
ur missti hluta af fingri sínum.
Niðurstaðan verður þá þessi, að
þótt frádrátturinn sé mikill í
þessum þætti skýrslunnar, þá
eru eftir ófarirnar af völdum
áfengisneyzlunnar mjög geig-
vænlegar.
eskju um veiðistaðina. Veiddu
aðeins á löglegum tíma. Kynntu
þér sjálfur hverjar reglur gilda
um friðun á hverjum stað.
5. Taktu nákvæmlega tillit til
fyrirmælanna um lágmarks-
stærð. Sértu í vafa, slepptu veið
inni. Fiskurinn er þá varlega
Guðmundur J. Kristjánsson.
losaður með rakri hendi og
sleppt varlega, helzt alveg niður
við vatnsyfirborð. Dreptu ann-
an veiddan fisk þegar í stað.
6. Sportveiðimanninum ber
alltaf að starfa að vemdun fiski
stofnsins og haga veiði sinni
eftir því. Þar sem hann hefur
einkarétt til veiða, ber honum
að hafa veiði sinni þannig, að
ekki gangi á stofninn, heldur
vinni að aukningu hans. Þar
sem fleiri hafa veiðiréttindi ber
þehn í sameiningu að gæta
þess. — Láttu fiskinn í friði uni
hrygningartímann.
7. Sportveiðimaðurinn lætur
enga veiði fara í súginn, hann
stundar ekki veiði sína í fjár-
gróðaskyni.
8. Láttu báta og veiðitæki
annarra afskiptalaust. VEIDDU
EÐA VADDU EKKI ÞAR,
SEM AÐRIR ERU AÐ VEIÐ-
(Framhald af blaðsíðu 8).
margra hluta sakir hinn merki-
legasti. Þar eru til dæmis nær
allar íslenzkar tegundir jurta og
þar er líka Grænlands-deild.
Allar tegundir vel merktar. Þar
ætti unga fólkið að læra sína
grasafræði.
í litlu gróðurhúsi Lystigarðs-
ins standa sumarblómaplönturn
ar, tilbúnar til útplöntunar, og
þar er fjöldi plantna að gægjast
upp úr moldinni, sprottnar af
fræjum fjarlægra landa. Verið
getur, að þar felist nytjaplönt-
ur, er eigi eftir að auðga Flóru
Islands.
Lystigarður Akureyrar hefur
um áratugi verið bænum til
UM. GERÐU EKKI EINN TIL-
KALL TIL BEZTU FISKI-
STAÐANNA.
9. Sýndu öðrum sportveiði-
mönnum tillitssemi. TAKTU
FULLT TILLIT TIL ÍBÚ-
ANNA Á VEIÐISVÆÐUNUM.
— Sannur sportveiðimaður tem
ur sér þá framkomu sem verður
sportveiðinni til hróss og aflar
henni vinsælda.
10. Leggðu þinn skerf til
starfs veiðifélaganna fyrir fiski
vemd.
11. Sportveiðimaðurinn geng-
(Framhald á blaðsíðu 2)
SAMVINNUSKÓLANUM að
Bifröst var sagt upp sunnudag-
inn 4. maí. 37 nemendur útskrif
uðust að þessu sinni, en alls
voru 75 nemendur í skólanum í
vetur.
Skólaslitaathöfnin hófst kl.
1.30 að viðstöddum nemendum,
foreldrum þeirra og gestum.
Skólastjórinn, Guðmundur
Sveinsson, rakti skólastarfið sl.
vetur, las upp einkunnir og af-
henti prófskírteini.
37 nemendur útskrifuðust að
þessu sinni. Efstur á burtfarar-
prófi var Rúnar B. Jóhannsson,
Akranesi, sem fékk 9.19. Önnur
var Þuríður Ragnarsdóttir,
Vopnafirði með 9.00.
Er skólastjóri hafði afhent
prófskírteini, fluttu fulltrúar 25
éra nemenda og 10 ára nem-
enda ræður, og eins formaður
Nemendasambands Samvinnu-
skólans, Sævar Sigurjónsson.
Afhenti hann sem gjöf frá Sam-
bandinu, Félagsstyttuna, sem á
að afhenda í lok skólaárs þeim
nemanda, sem mest hefur skar-
að fram úr í félagsmálum.
sórna og allri ræktun lyftistöng.
Hann er ein af menningarstofn-
unum staðarins, og undir stjórn
Jóns og Kristjáns aðstoðar-
manns hans, Rögnvaldssona, til
hinnar mestu fyrirmyndar. □
KVEÐJA
Hvar er leiðin, hvert skal lialda,
hví er allt svo undurhljótt,
seiðir liafsins ógnaralda
emn á ferð um dimma nótt?
r!i ■ r ri fi
Þú hafðir unnið myrkra í milli
mjög, svo nú var hvíldar þörf,
samstarfsmanna hlaustu hylli
hóps, við mörg og erfið störf.
Vinnugleði vandann leysti
verðskuldaðar þakkir fékkst,
meðan leyfði heilsa og hreysti
liugrakkur að starfi gekkst.
Sumir lengi sárin dylja
sjá ei margra kosta völ,
lamar þrekið, veikir vilja
vonleysi og hugarkvöl.
Hinna hrjáðu vinur varstu
veginn ef þið fylgdust að,
duldan harm í brjósti barstu
bjartan þráðir samastað.
Snorri Þorsteinsson yfirkenn
ari, flutti ræðu fyrir hönd kenn
ara skólans, en í lokin flutti
Guðmundur Sveinsson, skóla-
stjóri, ávart til nemenda.
Ymis verðlaun og viðurkenn-
ingar voru veittar við skóla-
slitin. Rúnar B. Jóhannsson
hlaut Samvinnustyttuna fyrir
beztan námsárangur og sömu-
leiðis bókargjöf frá skólanum,
ritsafn Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi.
Hrafnkell Björnsson hlaut
bókfærslubikarinn fyrir beztan
árangur í bókfærslu.
Atli Freyr Guðmundsson, for
maður skólafélagsins, hlaut Fé-
lagsstyttuna.
Margrét Jónsdóttir hlaut verð
laun er VR veitir fyrir beztan
árangur í vélritun.
Þá voru veitt þrenn bókar-
verðlaun fyrir beztan árangur í
þýzku, en það er þýzka sendi-
ráðið sem veitir þau verðlaun,
og hlutu þau að þessu sinni
Þuríður Ragnarsdóttir, Sigrún
Sigurðardóttir og Margrét
Kristjánsdóttir. □
Minningargjðfir
UM sl. páska voru Hálskirkju i
Fnjóskadal færðir að gjöf tveir
fjórarma silfurkertastjakar,
ásamt kertum og tveim útskorn
um súlum með áfestum og áletr
uðum skjöldum úr Vaglaskógar
birki. Súlumar hefir gert
Kristján Vigfússon, Litla-Ár-
skógi. Gjöfin er gefin til minn-
ingar um bræðurna Kristján og
Stefán Kristjánssyni, fyrrum
skógarverði á Vöglum, og kon-
ur þeirra, Þórunni Jóhannes-
dóttur og Kristensu Stefáns-
dóttur. Á þriðjudag næstan eft-
ir páskana, hinn 8. apríl, voru
100 ár liðin frá fæðingu Krist-
jáns Kristjánssonar.
Gefendur eru börn hans sjö:
Sigríður, Kristín, Kristbjörg,
Helga, Þóra, Guðrún og Ólafur,
flest búsett á Akureyri og þar
í grennd.
Við guðþjónustu í Hálskirkju
á páskadag gerði sóknarprestur
grein fyrir gjöfinni og bar fram
þakkir sínar og safnaðarins.
Jafnframt minntist hann áður
auðsýndrar ræktarsemi þessara
systkina við sóknarkirkju feðra
sinna og ættmenna. Útsaumað-
Hljótt er nú í heimaranni
hinzta dagsins komin nótt,
gott er þreyttum mæðumanni
að mega sofa vært og rótt.
Ljómar fegurst Ijósið skæra
landsins er þú gistir nú,
samvistum við soninn kæra
sæll um eilífð dvelur þú.
Vinur.
- SAMNINGARNIR
(Framhald af blaðsíðu 1)
rennur úr gildi 15. maí næsta
ár.
Eftirvinnuálag skal vera a. m.
k. 40% og nætur- og helgidaga-
vinnuálag a. m. k. 80%.
Stofnaður skulu lífeyrissjóðir
á félagsgrundvelli með skyldu-
aðild í áföngum. Fyrsti áfangi
er 1. janúar 1970, en 1. janúar
1973 skulu loks greidd full ið-
gjöld, 10% — þar af greiða at-
vinnurekendur 6% en launþeg-
ar 4%. Sjóðsstjómir skulu skipa
tveir menn frá hvorum aðila.
Sérstakur sjóður er settur á
fót fyrir þá launþega verkalýðs
félaganna, sem nú semja um líf
eyrissjóð, sem orðnir eru sjö-
tugir um næstu áramót og
hættu störfum í árslok 1967 eða
síðar. Fá þessir menn sömu rétt
indi og 15 ára starfsfélagar og
fá þannig 20% af meðalkaupi
sínu siðustu 5 árin. Ríkisstjóm-
in lét fylgja samningunum yfir-
lýsingu, þar sem hún lofar að
útvega fjármagn til þessa, aðal-
lega úr atvinnuleysistrygginga-
sjóði en eins úr ríkissjóði. Sér-
stök sjóðsstjóm verður, skipuð
1 manni frá launþegum, 1 frá
vinnuveitendum og 1 frá ríkis-
stjórn. Skiptir þessi upphæð tug
um milljóna, að mati trygginga-
fræðinga.
Pétur Sigurðsson.
Hugleiðing til sportveiðimanna
Þrjátíu og sjö luku prófi
Ragnar Guðmundsscn
fil Hálskirkju
an dúk, er nú prýðir altarið í
Hálskirkju, gáfu dætur Krist-
ján's árið 1952 til minningar um
móður sína, Þórunni Jóhannes-
dóttur.
(Bii't að ósk sóknarnefndar
Hálskirkju).
- GÓÐUR AFIi
(Framhald af blaðsíðu 1)
Með því að sum frystihúsin
hafa nú þegar stöðvazt og önnur
stöðvast hvert af öðru á næstu
dögum, og fiskiskipaflotinn jafn
framt, ef yfirstandandi verkfall
leysist ekki án verulegrar tafar,
voru fundarmenn sammála um,
að gera opinberlega grein fyrir
því, hve mikið hér er í húfi.
Ekki er þó allur vandi leyst-
ur með lausn verkfallsins, þar
sem frystigeymslur allra frysti-
húsanna, að einu undanskildu,
eru fullar og því knýjandi nauð
syn, að útflutningur fáist strax
á verulegu fiskmagni. Er því
beint til útflutningssamtakanna
og skipafélaga, að láta einskis
ófreistað til þess að greiða úr
þessum mikla vanda, strax og
ástæður leyfa.
Hamli hafís skipaferðum enn
um sinn verður ekki hjá því
komizt að hefja stórfellda freð-
fiskflutninga á landi til geymslu
á þeim stöðum sem kunna að
hafa frystigeymslur aflögu, og
beinir fundurinn því sérstak-
lega til Hafísnefndar að greiða
fyrh' slíkum flutningum.
(F r éttatilkynning)
Islandsmótið í knatlspyrnu hetst 26. maí
fæti og hefur ekki æft að undan
förnu, og er alveg óvíst að hann
leiki með liði ÍBA í sumar. Kári
mun þó ekki segja skilið við
knattspyrnuna, því ákveðið er
að hann verður starfsmaður hjá
Knattspyrnufélagi Akureyrar í
sumar og mun m. a. þjálfa
yngstu flokka félagsins, enda
nauðsynlegt fyrir íþróttafélögin
að búa sem bezt að yngstu með-
limum sínum. Mikið er nú fram
undan hjá yngri knattspyrnu-
mönnum á Akureyri í sumar,
þar sem ákveðið er að fram fari
hér nyrðra svokallað Svæðamót
í knattspymu, og sigurvegarar
í því móti leika til úrslita í ís-
landsmóti, og er því mikið að
keppa að fyrir strálcana, og ekki
er að efa að þeir leggjá sig alla
fram við æfingarnar.
Rætist spá „Tímans“?
Alf, sem ritar í „Tímann“ um
íþróttir hefur spáð því, að
Reykjavíkurfélögin muni raða
sér í efstu sætin í íslandsmót-
inu í sumar. — Vonandi tekst
ÍBA-liðinu að hnekkja þessum
spádómum Alf, og knattspyrnu
unnendur vænta þess, að þeir
eigi eftir að njóta margra
ánægjustunda hér á íþrótta-
vellinum í sumar, sjá góða
knattspyrnu, betri en nokkru
sinni áður, enda hefur verið til
lítils barizt í vetur ef svo verð-
ur ekki. — Að lokum fylgja
knattspyrnumönnum beztu ósk
ir um velgengni í sumar. Ein-
hvern tíma hlýtur að koma að
því, að íslandsbikarinn í knatt-
spyrnu lendir norðan fjalla,
hvort það verður í sumar veit
enginn, enda byggist spennán í
sambandi við íþróttakeppni á
því, að enginn veit fyrirfram
hver leikslok verða. En við
vreðum að muna það, að hver
leikur er í raun og veru úrslita-
leikur.
Sv. O. I
MÁNUDAGINN 26. maí, 2. í
hvítasunnu, hefst íslandsmótið í
knattspyrnu, 1. deild. Akureyr-
ingar hefja keppnina að vanda
og mæta ÍBV í Vestmannaeyj-
um. ÍBA-liðið hefur æft vel að
undanförnu, og leikið 2 æfinga-
leikj við Húsvíkinga. Fyrri leik
urinn fór fram á Akureyri og
sigraði ÍBA-liðið 4:1. Síðari
leikurinn fór fram á Húsavík,
og var markaregn í þeim leik,
en honum lyktaði með sigri
IBA 6:4.
Næstu leikir.
1. júní á ÍBA-liðið að mæta
Fram í Reykjavík, en 8. júní á
að fara fram fyrsti leikurinn á
Akureyrarvelli, og eiga Akur-
nesingar að mæta liði ÍBA. 7 lið
eru nú í 1. deild, en ráðgert er
að fjölga þeim í 8 á næsta ári.
Landsliðið leikur við ÍBA.
Þá er ákveðið að íslenzka
landsliðið leiki á Akureyri í
byrjun júní, en leikdagur ekki
ákveðinn, þó hafa verið nefndir
5. eða 10. júní.
Minningaleikur um Jakob
Jakobsson.
Þá er ákveðinn hinn árlegi
minningaleikur um Jakob heit-
inn Jakobsson, og fer hann fram
14. júní og leika Framarar við
ÍBA að þessu sinni.
B-Iið ÍBA tekur þátt í
Bikarkeppni KSÍ.
Þá mun ákveðið, að B-lið
ÍBA tekur þátt í Bikarkeppni
KSÍ, en ekki er vitað hvaða liði
það mætir í fyrstu umferð.
Kári ekki með í sumar?
Eins og flestum mun kunnugt
er Kári Árnason meiddur á
Gunnar Bjarnason skólastjóri Vélskólans kom nýlega fær-
andi hendi til Akureyrar. Hann hafði meðferðis fjarstýri-
kennslutæki og kenndi nemendum Vélskólans hér á Akur-
eyri meðferð þess, og er hann hér á myndinni við kennslu.
KVEÐJA
Jón
Guðjónsson,
bakari
Fæddur 18. marz 1903.
- Dáinn 9. maí 1969.
Oft var þér örðug hin þunga þraut
að þú mundir hverfa skjótt á braut
við vissum, vonuðum þó. .
Með sönnum kjarki þú sjúkdóminn barst
því sýndist þú hressari en þú varst
og hreysti í huganum bjó.
Við kynntumst fyrst um koldimma nótt
eitt kvæði þú söngst svo ljúft og rótt
að hlýnaði hverri sál.
Á fundi þeim var það aðeins þú einn
sem orðin lífgvaðir bjartur og hreinn
og gafst þeim guðdómsins mál.
Oft hlýddum við sæl á sönginn þinn
ég sakna þess ætíð vinur minn
að heyra ei þinn hlýja róm.
Nú spyr ég fávís, hvað fer í hönd
hittumst við aftur á ljóssins strönd
þó ei ég efa þann dóm.
Aðalsteinn Olafsson.