Dagur - 21.05.1969, Síða 8
8
Drangey kemur hér með góðan afla.
(Ljósm.: S. Pedersen)
Mikið berst á land af fiski
Sauðárkróki 19. maí. Drangey
SK 1 hefur aflað á tæpum hálf-
um mánuði 330 lestir. Mikill
afli hefur borizt á land á Sauð-
árkróki og er Fiskiðja Sauðár-
króks búin að taka á móti svip-
uðu magni af fiski nú, og hún
gerði allt sl. ár. Á Sauðárkróki
landa fjögur stór togskip:
Drangey, Loftur Baldvinsson,
Sigurður Bjarnason og Hannes
Hafstein. Einnig stundar Týr
SK togveiðar og aflar hann líka
vel. Hann er 40 lesta bátur.
Hér eru starfrækt tvö frysti-
hús: Fiskiðja Sauðárkróks og
Skjöldur. Mjög mikil atvinna
hefur skapazt við vinnslu afl-
ans og komið hefur fyrir, að
landað hefur verið á fimmta
hundrað tonn á viku. Af því
má sjá, að aðstaða í landi til
vinnslu er hér góð. S. G.
MESTI ÞJOFURINN
Einn er sá þjófur, sem er öllum
þjófum meiri. Það er verðbólg-
an og hana hefur núverandi rik
isstjóm magnað á fólkið á und-
angengnum ámm, þóít hún
þættist ætla að kveða hana nið-
ur. Verðbólgan stelur úr vösum
Verðbólgan stelur úr vösum
fólks og af hvers manns diski.
Hún er kjördóttir Bjama Ben.
og Gylfa. Þeir liafa gengist við
henni í verki, eins og væri hún
þeirra skilgetið afkvæmi.
FJÁRBRUÐL
Stórfellt fjárbruðl hjá húsa-
meistara ríkisins, hefur komizt
upp. Almenning grunar, að svo
muni víðar vera og krefst þess,
að hreinsað verði duglega til.
Ennfremur hefur orðið uppvíst,
að ýmsir sýslumenn landsins
halda fjármunum, er þeir hafa
innheimt hjá almenningi fyrir
hið opinbera, mánuðum og jafn
vel misserum saman í sinni
vörslu og gera ekki grein fyrir.
Fjármálaráðherra lofar bót og
betrun en hann virðist ekki
hafa bein í nefi, þótt hann hafi
eflaust góðan vilja á því að lag-
færa óreiðuna og sukkið.
STJÓRNARHERRAR
Stjómarherrar stríða við það
vikum og mánuðum saman að
liafa fé af láglaunafólki með því
að svíkja samninga og neita að
greiða þær vísitölubætur, sem
síðast var samið um. Það er eins
og þessir menn telji það allra
meina bót að lækka laun, sem
þó eru ekki nema svo sem þriðj
ungur af því kaupi, sem greitt
er í nágrannalöndunum fyrir
samskonar vinnu. Allar kaup-
deilur í vetur, eru af því sprottn
ar, að ríkisstjórnin vildi Iækka
kaupmátt launa enn meira en
orðið var.
Öfugþróun
Ef borin er saman þróun ná-
grannalandanna í atvinnu- og
kaupgjaldsmálum, við þróunina
hér á landi, kemur í ljós, að í
nágrannalöndunum hafa lífs-
kjör farið verulega batnandi.
(Framhald á blaðsíðu 2)
í Lystigarðinum á Akureyri
SMÁTT & STÓRT
Geysir söng í Kinn
Ófeigsstöðum 19. maí. Mikill
kuldi undanfarið. Sumarið vildi
ekki koma til okkar. En það
kom samt í gærkveldi og það
er hlýtt í dag og það verður
hlýtt næstu daga. En þess vegna
kom sumarið í gærkveldi, að
okkur heimsótti glæsilegur
söngflokkur frá Akureyri, Geys
ir að nafni.
Dagurinn í gær, eins og í dag,
heitir á bændamáli að vera á
miðjum sauðburði, eða sem
Landburður af fiski
Ólafsfirði 20. maí. Afli togbát-
anna hefur verið meiri síðan
um miðjan marz en nokkru
sinni áður. Vinna hefur því ver
ið mikil og jafnvel vantað
menn. Voru þá menn teknir til
starfa við fiskinn, sem ekki hafa
sézt vinna þau störf áður. Sæ-
þór kom í fyrradag með 95 tonn
eftir skamma útivist. Hér voru
bátar við bryggju einn daginn
með 300 tonn af fiski. En um-
búðir eru búnar að heita má.
Hér var 17 stiga hiti í gær.
Kannski er afli ekki alveg
eins mikill síðustu dagana, en
góður þó, en landburður þegar
mest var. B. S.
næst því. Þá mega bændur ekki
vera að hlusta á söng og varla
að lesa blöðin. í mesta lagi biðja
þeir fyrir ríkisstjórninni er þeir
leggjast til svefns.
En við mættum samt til að
hlusta á sönginn, ekki nógu
margir, en margir, í félagsheim-
ili 'Kinnunga. Það er einn mesti
heiður, síðan það var byggt, að
fá slíka heimsókn. Geysir söng
alveg guðdómlega. Nú er ég
ekki fræðimaður á sviði söngs
eða tónlistar, en læt hjai'tað og
tilfinninguna dæma. Fólkið
lauk upp einum munni um það,
að jafn ágæta frammistöðu
hefði það ekki heyrt hjá söng-
kór hér norður um sveitir. Ég
flyt Geysi þakkir, og þótt það
kostaði mig nokkur lambalíf, og
án þess að ég hafi af ríkidæmi
að státa, þá teldi ég stundina
borga sig vel. Þar sem sönglist
dvín er dauðans ríki, stendur
þar. Margir einsöngvarar komu
fram og taldi fólkið það með
fádæmum að einn söngflokkur
hefði svo mörgum og góðum ein
söngvurum á að skipa. Ég
þakka Geysi enn komuna. Geys
ir ber höfuð og herðar yfir þá
kóra, sem ég hefi heyrt til í
mörg ár. B. B.
Kristján og Jón (t. h.) Rögnvaldssynir í Lystigarðinum. Vel merkt-
ar tegundir jurta eru að vakna til lífsins. (Ljósm.: E. D.)
Á FIMMTUDAGINN, 15. maí,
var þriggja stiga hiti í forsælu
og andaði kalt af norðri. En á
sama tíma lá allmargt af fólki
í sólbaði í Lystigarði Akureyr-
ar, í góðu skjóli og sterkri sól.
Getur þetta verið allgott dæmi
um þýðingu trjáræktar og
skóga, til að gefa skjól.
Og þann dag kallaði Jón
Rögnvaldsson, er annazt hefur
Lystigarð Akureyrar frá 1954,
fréttamenn á sinn fund. Búið
er að hreinsa garðinn allan ,en
hann er 3 ha. að stærð, og fyrstu
laukblómin eru sprungin út. En
tré standa enn nakin og jörð er
grá vegna frosta á hverri nóttu
undanfarið. En allt er þarna
þrifalegt og í sumar mun fólk
njóta þar margra ánægjustunda,
ef að vanda lætur.
Lystigarðurinn er stofnaður
af konum 1912 og sé þeim bæði
þökk og heiður. Þá var fyrstu
trjánum plantað í garðinn.
1967 var grasagarði bætt við
með 600 tegundum, er systkin-
in frá Fífilgerði höfðu safnað,
en voru flutt í Lystigarðinn, en
Fegrunarfélag Akureyrar
gekkst fyrir þessu og lagði fram
það fé, er til þurfti. Nú eru 2400
tegundir í grasadeild Lystigarðs
ins en í Lystigarðinum öllum
yfir 4 þús. tegundir. Grasagarð-
ur er sá nyx-sti í álfunni og fyrir
(Framliald á blaðsíðu 4)
Iðnaðarmálaráðstefna á Akureyri
Fi'amsóknarfélag Reykjavíkur
og Framsóknarfélag Akui-eyr-
ar efria til iðnaðarmálaráð-
stefnu á Akureyri dagana 6.
til 8. júní n. k. Farið verður
frá Reykjavík föstudaginn 6.
júní kl. 8.30. Föstudagurinn
vei’ður m. a. notaður til þess
að skoða verksmiðjuiðnaðinn
á Akureyri. Fyrir hádegi verð
ur Slippstöðin, Linda, Sana og
Valbjörk skoðaðar. Um hádeg
ið verður snæddur hádegis- Sigurðsson, í'áðstefnuna. Síðan
verður að Hótel KEA og þá ávai-par Ólafur Jóhannesson
setur formaður Framsóknar- formaður Framsóknarflokks-
félags Akureyrar, Ilaraldur M. (Framhald á blaðsíðu 2)
Haraldur. Ólafur. Arnþór. Jakob. Bjarni. Harry. Jónas. Helgi. Knútur. Kristinn.
fS5S5S55555SS5SSS55S5SSSS555555«5$SSSSSSSSSS5S55S55555SSS5SSS5SS5555S5555SS5SSSS555S5SÍÍS55SSS5SSS5$SS55S5SSSS54S5SSS$5455S5SSSSS5545SS5454$5SSS5Í