Dagur - 04.06.1969, Síða 2
I
ÍBA — FRAM gerðu jafntefli, 1:1
ÍSLANDSMÓTIÐ í knatt-
spyrnu, 1. deild, hélt áfram sl.
laugardag og sunnudag og urðu
óvænt úrslit, sérstaklega á Akra
nesi, þar sem heimamenn sigr-
uðu KR 4:0, og að sögn sunnan
blaða hefði sá sigur getað orðið
enn stærri.
Vestmannaeyingar mættu
Keflvíkingum í Keflavík og
sigruðu 4:2.
Á sunnudag mættu svo Akur
eyringar Fram á Laugardals-
vellinum, og urðu úrslit þau að
jafntefli varð, 1:1, og skoraði
Skúli Ágústsson mark ÍBA á
10. mín. fyrri hálfleiks, en
Anton Bjarnason jafnaði fyrir
Fram í síðari hálfleik.
IBA - Akurnesingar
á sunnudag
N. k. sunnudag, kl. 4 e. h., fer
fram fyrsti leikurinn á Akur-
Nýr stálbátur til Þórshafnar
Gunnarsstöðum 27. maí. Veður-
far hefur verið hagstætt og
byi'jað að gróa. Ný köl virðast
ekki vera á túnum að þessu
sinni, enda minni svellalög í
vetur en fyrirfarandi. Er því
von um meiri heyskap þótt
ræktarlönd séu í gömlum sár-
um.
Sauðburður er í fullum gangi
og margt af tvílembum. Á ein-
um bæ voru komin 17 lömb
þegar 8 ær voru bornar. Sauð-
burður hefst síðar úti á Langa-
nesi.
ís er nýfarinn og sést ekki nú.
Grásleppuveiði er ofurlítil og
eitthvað hefur líka orðið vart
við þorsk, en erfiðleikar eru á
að nýta hann.
Hér kom á laugardaginn nýr
56 tonna stálbátur, smíðaður í
Neskaupstað. Hann er talinn
mjög álitlegur og má geta þess,
að hann er með kraftblökk fyr-
ir þorskanót. Eigandi er Árni
Helgason á Þórshöfn og er hann
jafnframt formaður á bátnum.
Nýi báturinn heitir Fagranes.
Hinn 21. maí varð Þuríður
Vilhjálmsdóttir, Svalbarði, átt-
ræð. Hún er af Hánefsstaðaætt,
giftist Jóni Erlingi Friðrikssyni
frá Syðri-Bakka en missti hann
eftir stutta sambúð. Giftist Þor-
lákj Stefánssyni, Laxárdal. Hún
eignaðist eina dóttur með fyrri
manni sínum en fimm syni með
hinum síðari. Ó. H.
VIÐ SKÓLALOK
SIGURÐUR D. Franzson hefur
beðið Dag að flytja nemendum
Tónlistarskóla Akureyrar, sam-
kennurum og bæjarbúum, þakk
ir við lok þessa skólaárs. Hann
segir ennfremur:
í sambandi við fyrstu nem-
endatónleika mína nú í vor vil
ég sérstaklega þakka samstarfs
fólki mínu við flutning tónleik-
anna. Um leið bið ég afsökunar
á því, að nafn Bjargar Baldvins
dóttur féll niður á söngskránni,
en hún söng einsöng í atriði í
óperu La Favareta eftir Doni-
setti. Óska ég svo öllum gæfu
á þessu sumri og vona, að við
hittumst heil næsta haust. □
Egilsstöðum 27. maí. Jörð er nú
aðeins að grænka, einkum
lengst frá sjó.
Orðasveimur er um það, að
meiri áhugi sé en áður á virkj-
un í Lagarfljóti, en á línu
frá Laxá. En virkjun hér eystra
er mun hagkvæmari en flutn-
- Sjómamiadagurinn
(Framhald af blaðsíðu 1).
á hátíðasvæðinu. Lúðrasveit lék
undir stjórn Jan Kisa. Tveir
knattspyrnuleikir fóru fram, ef
knattspyrnu skyldi kalla og far
ið var með gamanmál.
Þessir sjómenn voru heiðrað-
ir: Ólafur Jónsson vélstjóri, Ás-
grímur Garibaldason mat-
sveinn, Hjálmar Halldórsson og
Sigurðm- Rósmundsson skip-
stjóri.
Um kvöldið voru dansleikir í
Sjálfstæðishúsinu og unglinga-
dansleikur í Alþýðuhúsinu.
Meðal verðlauna, fékk Harð-
bakur verðlaun fyrir bezta fisk_
inn 1968, fagran bikar.
Ekki var unnt að keppa í
sundi þar sem svæðið við sund-
laug bæjarins er eitt moldar-
og drulluflag. Sýna átti björgun
með þyi'lu, en vegna bilunar
komst þyrlan aldrei hingað og
féll það atriði því einnig niður.
Nýbýlið ARNÞÓRSGERÐI
í LJÓSAVATNSHREPPI
er tl sölu. Leiga kemur einnig til greina.
Allar upplýsingar gefur eigandi jarðarinnar,
ARNÞÓR GUÐMUNDSSON,
Gránufélagsgötu 4, Akureyri.
eyri í 1. deild, og mæta Akur-
nesingai' til leiks. Ekki er að efa
að þar verður um skemmtilega
viðureign að ræða.
Stigin í 1. deild standa nú
þannig: Akranes 3, Valur 2,
Vestmannaeyingar 2, ÍBA 1,
Fram 1, Keflvíkingar 1 og KR
0 stig. □
Knattspyrnuæfingar
hjá íþróttafél. „Þór“
ÆFINGAR verða á mánudög-
um og fimmtudögum í sumar.
Kl. 4.30—5.30 6. flokkur.
Kl. 5.30—6.30 5. flokkur.
Kl. 6.30—7.30 4. flokkur.
Kl. 7.30—8.30 3. flokkur.
Æfingar hjá 2. flokki auglýst-
ai' síðar.
Fjölmennið strax á fyrstu
æfinguna á fimmtudaginn og
takið nýja félaga með.
Knattspyrnudeild Þórs.
NDING
til félagsmanna „ELÚÐA“, Akureyri:
Úthlutunarbókin liggur framrai í Sportvöru-
verzlun Brynjólfs Sveinssonar, og hafa félags-
menn forikaupsrétt á óráðstöfuðum veiðidögum
til 10. þ. m. Ennfremur eru menn beðnir að leysa
út sín veiðileyfi fyrir 15. júní.
STJÓRN ELÚÐA.
ENDURVARPSSTÖÐ Á GAGNHEIÐARHNJÚKI
ingur rafmagns frá Laxá.
Lambalát hefur verið til-
finnanlegt á nokkrum bæjum
og eru orsakir ekki ljósar.
Allir vegir eru færir en þunga
takmarkanir í gildi ennþá.
Hér í kauptúninu er mikill
áhugi á, að frekai'i leit að heitu
vatni fari fram. En Urriðavatn,
þar sem nokkur hiti hefur fund
izt, er um 7 km. frá kauptúninu.
Nú er nýbúið að bjóða út
byggingu vegna sjónvarps, er
verður á Gagnheiðarhnjúki á
Fjarðarheiði, sem er 1000 metra
hár og þaðan á að eiidurvarpa
sjónvarpsgeislum frá Vaðla-
heiðarstöð. Síðan verða nokkr-
ar minni endurvarpsstöðvar
reistar á fjörðunum, eftir því,
sem þurfa þykir. V. S.
- Ný verksmiðja
(Framhald af blaðsíðu 1)
eru nú ráðstafaðar. Mest verð-
ur byggt við Grundarstíg og
má ætla, að þar rísi í sumar
15 einbýlishús. Einnig er í at-
hugun að reisa fjölbýlishús við
Víðigrund. Er því sýnt, að að-
kallandi er að fá hið nýja svæði
skipulagt og byggingarhæft.
ís er nokkur á Skagafirði en
dreifður og sigling er greiðfær.
S. G.
IV2 tonna TRILLA
til SÖl'U.
Uppl. gefur Magnús
Sigurbjörnsson í síma
6-12-50, Dalvík.
TIL SÖLU:
IV2 tonns TRILLA,
með 9—12 ha. Albinvél.
Uppl. í síma 1-16-01.
VÖRUBÍLSPALLUR
ásamt sturtum til sölu.
Uppl. í síma 2-12-50.
Ödýrl í Mi KJÖTMARKAÐUR ATVAL O Kaupvangsstræti 4
Sími 2-10-80 Sími 2-10-80
í MIÐRI VIKU: FYRIR HELGAR:
Fiskfars Nautavöðvar (Roast beef)
Ivjötfars Nautagúllasch
Lambasúpukj öt Nautalundir og -fille
Iválfasúpukjöt Iválfaschnitzel Grísalæri Grísalæri, úrbeinuð Grísakótilettur
Saltkjöt Grísakarbúnaði
Nautahakk Grísa- liamborgarhryggir
Ýmsar tegundir beint Kjúklingar, 4 tegundir
á pönnuna. Bacon — 0. m. fl.
Úrval af ÁLEGGI - - Úrval af SALÖTUM
Sendum um allan bæ að kostnaðarlausu
AKUREYRINGAR • EYFIRÐINGAR
a t h u g i ð :
Kaupum BROIAMÁLM
á Akureyri næstu vikur
Móttaka virka tlaga kl. 4-7 í liúsi SMURSTÖÐVAR SHELL við Glerá.
(Gengið inn að norðan).
Allt er keypt, t. d.:
EIR - IÍOPAR - ZINK - RAFGEYMAR
VATNSKRANAR - ÁL
ATHUGIÐ: Þeir, sem eiga brotajárn, er þeir vilja selja — og eiga t. d.
vigtarnótur yfir járn, er þeir hafa sett í sameiginlegan bing á Akureyri,
vinsamlegast komið yður á framfæri á sama stað, eða gefið yður fram við
umboðsmann vorn, BJÖRGVIN BJARNASON, HÓTEL KEA.
VÉR HUGSUM OSS AÐ LESTA 2 SKIP Á AKUREYRI í JÚNÍ.
Notið tækifærið og fegrið bæinn yðar, með því að fjarlægja allt járnarusl
frá húsum yðar og lóðum.
Vér munum gera okkar bezta til að koma því í skip.
JARÐVINNUVÉLAR H.F.