Dagur - 11.06.1969, Side 1
BEZTA HUSHJÁLPIN
ÞRIFUR
ALLT
LII. árg. — Akureyri, miðvikudaginii 11. júní 1909 — 25. tölublað
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sfmi 12771 • P.O. Box 397
SCRVER2LUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
TVÖ ALVARLEG SLYS NÝLEGA
Feikna afli
Áður en ráðstefnan hófst á sunnudaginn, var þessi mynd tekin við Slkíðaliótelið í Hlíðarfjalli.
(Ljósm.: E. D.)
UNDANFARNA daga hefur
verið mokafli inn við sand á
Húsavík og er það ýsa, sem
veiðist.
Á Húsavík voru á laugardag-
inn haldnir tveir stjórnmála-
fundir. Sjálfstæðismenn og
Hannibalistar þinguðu og voru
sumir Húsvíkingar svo áhuga-
samir, að þeir fóru milli funda
og héldu ræður á báðum stöð-
um. □
DAGUR
kemur næst út á laugardaginn,
14. júní. — Umsögn um söng
Vísis o. fl. bíður næsta blaðs.
SÍÐDEGIS á mánudaginn vildi
það slys til í Hrafnagilshreppi,
að Jón Hallgrímsson yngri,
bóndi í Reykhúsum fékk höfuð
högg, þar sem hann var að
vinna með dráttarvél og missti
meðvitund. Var hann fyrst flutt
ur á sjúkrahús hér á Akureyri
en síðan til Reykjavíkur. Slysið
varð með þeim hætti, að Jón
var að losa dráttarvélina og not
aði við það planka, er brotnaði
og slóst í höfuð honum og bak.
Var hann þungt haldinn.
í gær varð það slys á Dalvík,
að 17 ára piltur, Ingvar Krist-
jánsson, handleggsbrotnaði illa,
er hann ók vörulyftara í Frysti
húsi KEA þar á staðnum. Hann
var fluttur í sjúkrahús á Akur-
eyri. □
Heildarvelta KEA yfir einn milljarS kr.
Aðalfundurinn haldinn á Akureyri í gær og dag
Dalvík 2. júní. íshraungl er að
sjá hér inn og fram um allan
sjó. ísinn rak hér að í gær en
losnaði sundur í morgun. Höfn-
in er lokuð með stálvír.
Flestir náðu upp grásleppu-
netum en eitthvert netatjón
varð þó.
Með |)ýzkt f lot-
troll um borð
í Siglfirðingi
EINI skuttogari íslendinga, Sigl
firðingur SI, er nú á tilrauna-
veiðum fyrir Norðurlandi með
þýzka flotvörpu og er Guðni
Þorsteinsson, fiskifræðingur og
veiðarfærasérfræðingur um
borð í skipinu og hefur yfirum-
sjón með tilraununum, en skip-
stjóri á Siglfirðingi er Axel
Schiöth.
Siglfirðingur kom inn fyrir
helgina með um 40 tonn af
þorski, sem fékkst í trollið. Til-
raunirnar hafa staðið hátt á
aðra viku og verður haldið
áfram í nokkra daga enn. □
ÞÓTT ýmsir hefðu nokkra van-
trú á sérstakri iðnaðarmálaráð-
stefnu á Akureyri, er nú ljóst,
að hennj lokinni, að hún var
þörf, tókst mjög vel svo að allir,
Sauðburður hefur gengið vel
og nokkru meiri gróður er
frmmi í sveit en hér við sjóinn.
Verið er að setja niður kart-
öflur og víðast munu kýr komn
ar út.
Björgvin er að landa í dag.
Loftur Baldvinsson og Björg-
úlfur lönduðu fyrir helgina.
Það er látlaus vinna í frysti-
húsinu og jafnt um helgar. Hef-
ur svo lengi verið og hin mikli
afli í vetur hefur gefið mörgu
fólki góðar tekjur.
Prófað hefur verið að dæla
heita vatninu úr fyrstu borhol-
unni á Hamri. Gefur holan um
30 lítra og er það talið nægilegt
vatn fyrii' hitaveitu á Dalvík.
Það bar til tíðinda á Sjó-
mannadaginn, eftir guðsþjón-
ustu í Dalvíkurkirkju, að af-
hjúpaður var minnismerki um
látna sjómenn, er stendur sunn-
an við kirkjuna og er gert af
Jónasi Jakobssyni myndhöggv-
ara. Slysavarnadeildirnar geng-
ust fyrir þessu, en án þess að
greiða úr eigin sjóðum, því
nægilegt safnaðist í frjálsum
framlögum. En upphaf þessa
máls er það, að maður einn gaf
50 þús. kr. til þessa og síðan
bættist við. J. H.
sem hana sátu, fagna því að hún
var haldin. Þökk sé Framsókn-
arfélögunum á Akureyri og
Reykjavík fyrir framtakið og
framkvæmdina.
ÁRDEGIS í gær hófst aðal-
fundur Kaupfélags Eyfirðinga í
Samkomuhúsinu á Akureyri og
var þar bæði fjallað um síðasta
starfsár félagsins, hið 83. í röð-
inni, og rædd framtíðarverkefni
þess. Fundarstjórar voru Stefán
Halldórsson og Hilmar Daníels-
son.
Stjórnarformaður, Brynjólfur
Sveinsson, bauð fulltrúa vel-
komna og flutti skýrslu stjórnar
Til ráðstefnu þessarar mættu
um 40 manns að sunnan og
komu þeir með flugvél frá
Reykjavík á föstudagsmorgun-
inn 6. júní. Alls voru ráðstefnu-
KEA, minntist hins sögulega
atburðar á Grund árið 1886, er
eyfirzkir bændur lögðu grund-
völl þann að starfsemi nýrra
samtaka, er borið hefur þann
árangur, sem raun ber vitni hjá
Kaupfélagi Eyfirðinga. En fé-
lagið starfar enn á sama grunni
og fyrst var lagður og með það
markmið fyrir augum í verzlun
og þjónustu, að bæta lífskjör
fólksins og koma þeim nauð-
Sana.
Tíminn var vel notaður og
um leið og flugvélin með sunn-i
anmenn var komin hingað norð
(Framhald á blaðsíðu 4)
synjamálum í framkvæmd, sem
einstaklingum eru ofviða.
Jakob Frímannsson fram-
kvæmdastjóri flutti síðan yfirlit
um rekstur félagsins árið 1968,
hag þess og horfur. í ræðu hans
(Framhald á blaðsíðu 5)
Sjómaður heiðraður
AF ÁRSKÓGSSTRÖND er m.
a. skrifað: Hér á Árskógsströnd
var heiðx-aður á Sjómannadag-
inn okkar elzti sjómaður og
sveitungi, Jón Kristjánsson,
Skógamesi (frá Hellu), verður
89 ára í haust. Hlaut hann heið-
ursmerki Sjómannadagsins. —
Eins og þú veizt hóf hann sjó-
sókn á unga aldri og hafði rauð
maganet í sjó nú í vor. En sjón-
in er það mikið tekin að bila, að
einn gat hann ekki vitjað um.
Þú getur því farið nærri um
hve sjómannsferill hans er lang
ur orðinn. Þetta var ekki látið
í útvax-p, þar sem ekki voru há-
tíðahöld hér. Þó var sjómanna-
messa í kirkjimni og dansleikur
um kvöldið. □
Iðnaðarmálaráðstefnan á Akureyri