Dagur - 11.06.1969, Qupperneq 2
I
Fwstudeildarlelkurmn á Ak.
J
SÍÐDEGIS á sunnudaginn fór
fyrsti knattspyrnuleikurinn á
Akureyri fram í fyrstu deild á
nýbyj'juðu keppnistímabili. —
Góðkunn knattspyrnulið frá
íþróttabandalögunum á Akur-
eyri og Akranesi áttust þar við
að viðstöddu miklu fjölmenni
og í ágætu veðri. Dómari var
Guðmundur Haraldsson frá
Reykjavík og hafði hann allgott
vald á leiknum, þótt dómur
hans um vítaspyrnu er Akur-
eyringar guldu dýru verði þætti
hæpinn.
Akureyringar léku fyrri hálf
leik á nyrðra markið og voru
þungir og mistækir, eins og hálf
„loppnir" á fótum. Akurnesing-
ar virtust hins vegar vel upp-
lagðir, baráttuglaðir og knáir og
voru meira í sókn en norðan-
menn í fyrri helmingi leiksins.
Þegar ein mínúta var til leik-
hlés og maður átti von á, að
dómarinn gæfi merki um það á
næsta andartaki eða svo, dæmdi
hann vítaspyrnu á Akureyr-
inga. Guðjón tók hana og skor-
aði auðveldlega með föstu skoti.
Akureyringar hófu leikinn,
glopruðu frá sér knettinum og
eftir nokkrar sekúndur lá hann
öðru sinni í netinu í mai'ki
Akureyringanna. Staðan 2:0 fyr
ir Akranes í hálfleik.
Síðari hálfleikur var allur
annar, því þá virtist allt annað
lið leika gegn Akurnesingum,
sem voru einnig duglegir í síð-
ari hluta leiksins. Þetta nýja lið
var hin betri hliðin á Akureyr-
ingum og má segja, að þeir
hefðu frumkvæðið til leiksloka
og leikurinn fór, með nokkrum
undantekningum, fram á vallar
helmingi sunnanmanna. Árang-
urinn varð þó minni en efni
stóðu til, því aðeins eitt mark
var skorað og gerði Skúli það
úr góðri sendingu frá Stein-
grími. Staðan var 2:1 fyrir Akra
nes og fleiri mörk voru ekki
gerð.
Margt furðulegt gerist oft í
knattspyrnu, og til marks um
það voru 6 misheppnuð skot
Lítil IBÚÐ
óskast sem fvrst.
Uppl. í síma 1-27-62.
ÍBÚÐ!
Oskum eftir lítilli íbúð
eða tveim samliggjandi
herbergjum. Helzt í ný-
legu luisi.
Valbjörk h.f.»
sími 1-17-97 og 1-26-55.
HERBERGI (12-16
fenn.) öskast til leigu
júní—september.
Uppl. í síma 2-15-66.
ÍBÚÐIR !
TIL SÖLU:
5 herb. íbúð á Syðri
Brekkunni.
2 fjögurra herb íbúðir
á Eyrinni.
2ja herb. íbúð
við Hafnarstræti.
Freyr Ofeigsson, hdl.,
sími 2-13-89.
Akureyringa að marki sunnan-
anna í síðari hálfleik, auk þess
er heppnaðist. En það er m. a.
þetta, sem eykur spennuna í
knattspyrnukeppni, að þar get-
ur allt gerst og betra liðið tapað.
Þessi leikur var mjög fjörugur
og vel leikinn á köflum hjá báð
um liðum og bar lítið á grófum
leik þrátt fyrir harða keppni.
Hins vegar sýndu ungir heima-
menn mikinn skort á prúð-
mannlegri framkomu í leikslok
og vonar blaðið, að slík skömm
hendi ekki á ný, að gestir séu
ataðir auri. E. D.
KRABBAMEINS-
FÉLAG AKUREYRAR
AÐALFUNDUR
verð.ur haldinn að Hótel
KEA fimmtudáginn 12.
júní kl. 8.30 e. h.
Venjuleg aðalfundar-
störf.
Á fundinum mæta
Bjarni Bjarnason læknir
form. Krabbameinsfcd.
íslands og Jón Oddgeir
Jónsson framkvæmda-
stjóri Krabbameinsfél.
íslands og flytja þeir
fræðslu ög sýna fræðslu-
kvikmyndir um ikrabba-
mein.
STJÓRNIN.
VAR ÞETTA LANDSLIÐIÐ?
FYRSTI meiriháttar knatt-
spyrnuleikurinn á þessu vori,
fór fram á íþróttavellinum sl.
fimmtudagskvöld. Áttust þar
við landsliðið og ÍBA.
Er skemmst af að segja, að
leikurinn einkenndist af kæru-
leysi, klaufaskap og trassaskap
beggja liða. Sjaldan brá fyrir
góðri knattspyrnu. Sendingar
voru afar ónákvæmar, oftast til
mótherja og voru ÍBA-menn
þar lakari hlutinn.
Steingrímui' Björnsson var
eini liðsmaður ÍBA er barðist
til þrautar, en hlaut lítinn stuðn
ing samherjanna. Og svo var
það „landsliðið11. Ég tel það
hreint til skammar, þeim Haf-
steini og Albert, að senda þetta
samsafn fótboltahlaupara hér
norður og kalla þetta „landslið".
í þetta lið vantaði þá burðai-
ása, er virðast hafa verið nokk-
urn veginn sjálfkjörnir í þetta
svokallaða landslið. Þá Sigurð
Dagsson, Jóhannes Atlason, Þor
slein Friðþjófsson, Ellert
Schram, Hermann Gunnarsson
og Eyleif Hafsteinsson. Já, marg
ur mundi spyrja. Hvað er þá
eftir?
Eftir þessum leik að dæma,
var Hreinn Elliðason eini mað-
urinn í þessu liði, er verðskuld-
aði það, að kallast landsliðsmað
ur og er þá stjörnufákurinn Þór
ólfur Beck ekki undanskilinn.
Albert og Co. hefir kannske
þótt það nógu gott að senda
þetta samsafn á móti ÍBA-lið-
inu, og jaðraði við að svo væri.
En það er samt sem áður móðg-
un við áhorfendur, sem aldrei
hafa látið á sér standa að sækja
vel hvern leik hér á Akureyri,
að bjóða þeim upp á svona lag-
að. Enginn afsláttarprís var þó
á aðgangseyrinum, 60 kr. takk
fyrir að standa í moldarflagi
upp við Klapparstíginn. Enn
má svo við bæta. Hver ræður
því, að nú þurfa þeir áhorfend-
ur, er heima eiga uppi á brekku
og gjarnan koma gangandi yfir
klappirnar vestan bústaðar bæj
arstjóra, að fara niður norðan
vallargirðingarinnar, til að kom
ast inn á völlinn, síðan að vaða
yfir moldarflag og príla loks
upp klappirnar, til að komast í
áhorfendasvæði. Er ekki hægt
að hafa söluhlið nyrzt í Klappar
stígnum, eins og verið hefir og
ef þetta er ekki hægt. Hvers
vegna? Má ég biðja nefndir og
ráð, þessa bæjar, er þessu ráða
að svara og það opinberlega.
Það er bezt fyrir alla.
í leikhléi var marg auglýst að
fegrunarvika stæði fyrir dyrum
á Akureyri og skorað á bæjar-
búa að hreinsa nú vel til í kring
um hús sín.
Vel sé það og eigi trúi ég
öðru en að bæjarbúar bregðist
vel við.
„En maður líttu þér nær“.
Hvernig er umhorfs á áhorf-
endasvæðinu vestan íþrótta-
vallarins? Mold aftur mold og
meirj mold. Ég held að það
svæði þyrfti lagfæringar við.
Sigm. Bj.
Vil kaupa notaðan
ÍSSKÁP og' einnig
FATASKÁP.
Uppl. í síma 2-10-84.
Vil kaupa eða taka á
leigu um tíma notuð
GOLFÁHÖLD.
Sími 1-14-43 kl. 11-12
f. li.
HERBERGI með bús-
gögnuin óskast lil leigu
í einn mánuð. — I.engri
tími getur kontið til
greina.
Uppl. í síma 2-13-30.
Fjögttiira berbergja
ÍBÚÐ til sölu.
Uppl. í síma 1-27-74.
V eiðileyf i
Iðja, félag verksmiðjufólks. Akurevri, hefur tek-
ið á leigu silungsveiðisvæði í Laxá í suntar. —
Veðileyfin fást í bókaverzlun JakÖ’Bs Árnasonar,
Brekkugtitu 5 og á skrilstofu Iðju.
Veiðintenn atliugið! — Bezt að skipta við Iðju.
STJÓRN IDJU.
Það, sem þér þurfið
í ferðalagið
frá Kjötiðnaðarstöð KEA,
SVÍKUR YÐUR EKKI.
KIÖRBUÐIR
KEA
YOROHAMA-
hjólbarðar
í flestum stærðum.
ÖNNUMST VIÐGERÐIR
Á ÖLLUM TEGUNDUM HJÓLBARÐA.
Opið alla daga - Einnig sunnudaga
GÚMMÍVIÐGERÐ KEA
Strandgötu 11, sími 1-10-90 - Heimasími 1-19-28.
FLÓRU-sultur
FLÓRU-saftir
FLÓRU-búðingar
FLÓRU-ávaxtasafi
FLÓRU VÖRUR NJÓTA VAXANDI
VINSÆLDA.
KJORBUÐIR KEA