Dagur - 20.06.1969, Blaðsíða 7
7
- Við erum sælir úti við ísinn
(Framhald af blaSsíðu 5).
jafn léttum tökum, en ef nánar
er að gætt liggur þó ljóst fyrir
að við eigum þar ef til vill sjálf-
ir ekki minnsta sök.
I síðari grein Páls Magnús-
sonar tekur hann sérstaklega til
meðferðar lögin frá 1962 um al-
mannavarnir og bendir á, að
framkvæmd þeirra laga hafi
verið stórlega vanrækt, en sam-
kvæmt 5. grein herstöðvarsamn
ingsins fi-á 1951, beri NATO-
þjóðunum að kosta allar öryggis
framkvæmdir, svo sem vega-
lagnir og annað. Mun ekki hafa
staðið á Bandaríkjamönnum í
þessum efnum.
Sannleikurinn er sá, að varn-
armál landsins hafa í áratugi
verið eins konar feimnismál ís-
lenzkra stjórnmálaflokka, ann-
arra en kommúnista. Þei síðast-
töldu hafa jafnan notað þetta
örlagaríka málefni sér til áróð-
ursþarfa. Annars vegar standa
borgaraflokkarnir þrír, fylgjend
ur Atlantshafsbandalagsins og
varna landsins meira og minna,
en kveinka sér undan skefja-
lausri og grófyrtri andstöðu
kommúnista, sem standa hins
vegar og eru harðir og ósveigj-
anlegir fylgjendur höfuð stefnu
mála hernaðarbandalags Var-
sjárríkjanna og þeirra utanríkis
stefnu, sem þar ríkir á hverjum
(Framhald af blaðsíðu 8).
lendinga stefnu Norðurlanda-
þjóðanna og annarra þjóða, sem
taldar eru hafa meira vit á utan
ríkismálum en fslendingar!
EINFALT MAL
Um þetta atriði sagði Bjarni
Einarsson einnig, að þetta mál
væri einfalt. Milljónir manna
berðust fyrir sjálfsákvörðunar-
rétti. Þeir vilja vera sjálfstæöir
eins og við. í fyrsta skipti í sög-
unni hefðu íslendingar getað
tekið forystuna og e. t. v. ráðið
útslitum í þessu frelsismáli. En
brast kjarkinn? Biaframaðurinn
sagði í sjónvarpi, að hendur ís-
lendinga væru bundnar! Hvað-
an koma þau bönd? spurði bæj-
arstjóri. Og hann sagði: fslenzk
ir ráðherrar. Nú viljum við sjá,
að við séum sjálfstæð þjóð. Er
ekki hægt að viðurkenna stjórn
Biafra? íslenzka þjóðin vill það.
INN A VÖLLINN
Margir hafa kvartað undan því,
að búið er að breyta aðgangi að
íþróttasvæðinu og loka girðing-
unni að vestan. Veldur þetta
óhagræði þeim, sem að vestan
tíma. Mitt á milli þessara aðila
er svo lítill hópur tilfinninga-
ríkra en óraunsærra manna sem
sjá oft atvikin í draumheimi ósk
hyggjunnar og marka skoðanir
sínar út frá því. Þessi litli og
þýðingarlausi hópur sveigist oft
eftir áróðri kommúnista og
þvælist því stundum fyrir, þótt
þeir séu vel meinandi í sjálfu
sér.
Hinir eiginlegu kommúnistar
vita hins vegar vel hvað þeir
eru að gera. Málgögn þeirra
vinna með sömu aðferðum hvar
í heimi sem er. Þessar aðferðir
eru skipulagðar af slyngum sál-
fræðingum og lærisveinar
þeirra skólaðir og æfðir í sér-
stökum stofnunum austan við
járntjald, og síðan sendir hver
til síns heimalands.
Það eru engin viðvanings-
brögð á vinnuháttum þessara
manna. Þeir vita vel hvað þeir
eiga að gera. Eitt höfuðverkefn-
ið er að níða Bandaríkjamenn,
þá þjóð er mestur hefur verið
þröskuldur á hernaðar og valda
leiðum risaþjóðanna tveggja í
Austurvegi. NATO er annar
helzti ásteitingarsteinninn.
Kommúnistar stunda allra
manna mest óþrifalegt og öfga-
fullt orðbragð. Hótanir og ill-
yrði eru samkvæmt sálfræðileg
um niðurstöðum þeirra áhrifa-
koma. Hins vegar er aðgangur
seldur inn á völlinn að norðan
og sunnan. Lokunin að vestan
er gerð í sparnaðarskyni, að því
er blaðinu hefur verið tjáð. Og
við skulum virða sparnaðar-
viðleitnina.
- Iðnaðarmenn erl.
(Framhald af blaðsíðu 8).
Kockum er að byggja. Til að
byrja með munu járnsmiðirnir
fara á tveggja vikna námskeið í
þessari málmsuðu og taldi Guð
jón það mikinn kost fyrir þá að
fá tækifæri til að kynnast sér-
staklega slíkri suðu þar sem
slíkt hefði ekki verið hægt hér
heima. Járniðnaðarmennirnir
eru ráðnir í 12—14 vikur.
Kaup iðnaðarmannanna er
hátt eða rúmar 250 íslenzkar kr.
á tímann . □
- Flugmenn veikir
(Framhald af blaðsíðu 1)
Allt flug íslenzku flugfélag-
anna lá því niðri í gær og 150
útlendir ferðamenn bíða fars úr
landi. Sennilegt er talið, að þótt
flugmenn taki upp vinnu á ný,
niuni þeir beita einskonar
skæruhernaði með verktöfum.
ríkur áróður. Það byggist á því,
að steigurlæti magni þann, sem
beitir þeim, geri hann stærri og
ófrýnilegri í augum andstæð-
ingsins. Kommúnistar velja
Bandaríkjamönnum jafnan öll
verstu orð tunguonar og beita
þeim vitandi vits með sjúkleg-
um skapofsa. Norður-Atlants-
hafsbandalagið fær þar einnig
sinn skammt. Þjóðviljinn hérna
valdi því glæsiheitið „hryðju-
verkabandalagið" fyrir nokkr-
um dögum og margt var þar
fleira mælt af oi'ðgnótt og hug-
aræsingi. Jafnan eru ritverk af
þessu tagi borin fram í einskon-
ar þjóðernislegri uppljóman.
Höfundar þeirra fara þá ekki
dult með að þeir séu þeir einu
og sönnu íslendingar og þjóð-
hetjur, en andstæðingar land-
sölumenn og þjóðníðingar.
Borgaraflokkarnir, sem lítt
kunna til slíkra vinnubragða,
eiga þennan áróður jafnan yfir
höfði sér, ef þeim verður það á
að nefna varnir landsins. Þeir
hafa því stundum kosið að haf-
ast lítt að upp á von og óvon
og þegja sér til friðar. Með því
er marki andstæðinga þeirra
náð. Kommúnistar vilja um-
fram allt hafa hér opið og varn-
arlaust land. Kommúnistum á
íslandi er nákvæmlega jafn illa
við vestrænar varnir á íslandi
og Varsjárbandalaginu sjálfu.
Þeir eru þrátt fyrir þjóðernið
ekki annað en kvistur af þeim
stofni og sanna það með eigin
áróðri.
Það er kominn tími til að við
viðurkennum þessar staðreynd-
ir, svo augljósar sem þær eru.
Það hefur skapazt hættulegt
ástand í öryggis- og varnarmál-
um þjóðarinnar og hik okkar og
feimnisaðstaða á þar mikinn
hlut að máli, sem og hið venju-
lega raunalega samstökuleysi
borgaraflokkanna, sem allir
vilja þó vel. Bandaríkjamenn
virðast hins vegar taka tillit til
allra okkar óska og vangavelta
og það jafnvel að algjöru hættu
marki. Svo virðist að mörg okk
ar skilji það ekki, að á bak við
okkur stendur ein sterkasta og
auðugasta þjóð veraldarinnar
og af henni höfum við þá
reynslu, að jafnan hefur hún
verið boðin og búin að hjálpa
okkur og styrkja ef til hennar
hefur verið leitað. Á tímum
friðar eða bundins ófriðar eins
og nú, myndum við sennilega
ekki sætta okkur við herdvöl
neinnar annarrar þjóðar í land-
inu.
Það er kominn tími til að við
segjum þetta í heyranda hljóði.
Við getum sagt það með full-
komnu stolti og án alls undir-
lægjuháttar, því að við vitum
að í viðskiptum við þessa þjóð
getum við ætíð samið sem jafn-
ingjar, þótt við séum þúsundfalt
færri. Þessi viðskipti ná miklu
lengra en til varnarmálanna
einna og þau mætti efla á marg
víslegan hátt. Hvers vegna
skyldum við ekki t. d. geta sam
ið við Bndaríkjamenn um sér-
stöðu i markaðs og tollamálum
á hagfelldan og varanlegan hátt
ekki síður en við hin sundur-
leitu og ósamþykku Evrópuríki,
sem landfræðilega og siðfræði-
lega eru okkur að engu leyti
tengdari en Vesturheimur. Hví
skyldum við ekki gera alvarleg
ar tilraunir í þá átt jafnframt
samningaumleitunum okkar í
Evrópu?
Svo alvarlega sem nú horfir í
heiminum eru það þó öryggis-
og varnarmál landsins sem
mestu máli skipta í dag og þau
þurfa að komast í það horf sem
allur meginþorri þjóðarinnar
óskar. □
Systir mín
TORFHILDUR JAKOBSDÓTTIR,
sem andaðist 15. júní, verður jarðsungin frá Ak-
ureyrarkirkju laugardaginn 21. júní kl. 13.30.
Fyrir hönd systkina,
Indriði Jakobsson.
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna and-
láts móður minnar og tengdamóður
SÓLVEIGAR SIGRÍÐAR SIGJÓNSDÓTTUR.
Ásrún Þórhallsdóttir,
Eggert Davíðsson.
SMÁTT & STÓRT
RÚN □ 59696247 — I H & V
Rós.
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl.
10.30 f. h. Sálmar: 531 — 67 —
287 — 60 — 18. — B. S.
AHEIT á Strandarkirkju kr. 600
frá þrem systrum. — Beztu
þakkir. — B. S.
GJAFIR og AHEIT. Til Strand-
arkirkju kr. 600 frá þrem
systrum. í styttu Guðmundar
biskups góða kr. 1000 frá G. J.
Til Akureyrarkirkju kr. 200
frá G. J. Til Hallgrímskirkju
kr. 500 frá N. N. — Beztu
þakkir. — B. S.
SÆMUNDUR G. JÓHANNES-
SON verður fjarverandi til
3. júlí.
MINJASAFNIÐ á Akureyri er
opið daglega kl. 1.30—4 e. h.
Tekið á móti ferðafólki á öðr-
um tímum eftir samkomulagi.
Sími safnsins er 1-11-62 og
safnvarðar 1-12-72.
I.O.G.T. stúkan Akurliljan nr.
275. Fundur n. k. fimmtudag
kl. 21.00 í Ráðhúsinu. Félagar
fjölmennið. — Æ.t.
SUMARBÚÐIRNAR að Vest-
mannsvatni hófu starfsemi
sína á þessu sumri í gær, 19.
júní, með námskeiði fyrir
yngri drengi. Fullskipað er í
yngri flokkana, en hægt að
koma nokkrum börnum í 2
eldri flokkana. Sumarbúða-
stjóri er Gunnar Rafn Jóns-
son læknanemi.
- STÓRÞJÓFNAÐUR
(Framhald af blaðsíðu 8).
stöðvar verða settai' upp fyrir
einstaka firði.
Mikil útgerð hefur verið á
ýmsum Austfjörðum í vetur,
mest á Eskifirði og Seyðisfirði,
og á Eskifirði hefur jafnvel
vantað fólk til að vinna.
Sumir bátar eru farnir eða að
fara á síld. Seley var fyrst á
miðin. Allir ætla að salta um
borð að þessu sinni. Nú er 14%
feit síld gjaldgeng til söltunar í
stað 18—20% áður, og ef eitt-
hvað veiðist, er þetta mikið hag
ræði.
Menningarsamtökin stóðu fyr
ir hátíðarhöldum í Egilsstaða-
skógi í gær. Aðalræðu flutti Þor
kell St. Ellertsson skólastjóri en
séra Bjarni Guðjónsson á Val-
þjófsstað predikaði. Þá sungu
kórar, íþróttir fóru fram og síð-
ast var mjög fjölmennur dans-
leikur í Valaskjálf. V. S.
- Tækniskóli íslands
(Framhald af blaðsíðu 8).
ur Helgason, Ingólfur Ingólfs-
son, Jörundur Traustason, Ósk-
ar Árnason og Sigurður Her-
mannsson.
Tæknideildin hefur frá byrj-
un verið til húsa í Geislagötu 5,
en mun í haust flytjast í nýju
iðnskólabygginguna við Þór-
unnarstræti.
Nokkrai' umsóknir hafa þeg-
ar borizt fyrir næsta skólaár.
Rétt til skólasetu hafa haft nem
endur með eftirfarandi mennt-
un:
a) Sveinspróf.
b) Gagnfræðapróf og 12 mán
aða starfsreynslu.
c) Aðra menntun, sem skóla-
stjóri metur að minnsta
kosti jafngilda a), b) eða
c).
(Fréttatilkynning)
BRÚÐKAUP. 14. júní voru
gefin saman í hjónaband ung
frú Anna Gunnarsdóttir Thar
arensen bankaritari og Bjarni
Sigbjörnsson stud. phil. —
Heimili þeirra er að Glað-
heimum 14, Reykjavík.
14. júní voru gefin saman í
hjónaband brúðhjónin ungfrú
Gerður Jónína Pálsdóttir
kennari og Þorvaldur Einar
Ragnarsson tannlæknanemi.
Heimili þeirra er að Máva-
hlíð 10, Reykjavík.
15. júní voru gefin saman
brúðhjónin ungfrú Sæbjörg
Jónsdóttir nýstúdent, Fjólu-
götu 14, Ak. og Jón Hlöðver
Áskelsson tónlistarkennari,
Þingvallastræti 34, Akureyri.
15. júní voru gefin saman í
hjónaband brúðhjónin ungfrú
Ásta Baldvinsdóttir og Jón-
björn Pálsson nýstúdent frá
Djúpuvík. Heimili þeirra er
að Eiðsvallagötu 11, Akureyri
BRÚÐHJÓN. Hinn 17. júní
voru gefin saman í hjónaband
í Akureyrarkirkju ungfrú
Ára Bryndís Garðarsdóttir
nýstúdent og Árni Ingi Garð-
arsson húsgagnasmíðanemi.
Heimili þeirra verður að Engi
mýri 2, Akureyri.
FRÁ Ferðafélagi Akureyrar. —
Föstudagskvöld kl. 8, fjöru-
ferð á Árskógsströnd. Laugar
dagur kl. 1.30 e. h. Herðu-
breið. Skrifstofa félagsins,
Skipagötu 12, sími 1-27-20,
opin fimmtudags- og föstu-
dagskvöld kl. 8—9. Einnig
tekið á móti pöntunum í Um-
ferðarmiðstöðinni, Skipagötu
13, alla daga.
FRÁ Orlofsnefnd Akureyrar. —
Ákveðið hefur verið, að orlof
húsmæðra í sumar verði að
Illugastöðum í Fnjóskadal frá
tímabilinu 21. júní til 5. júlí.
Þær konur sem ætla að sækja
um orlofsdvöl, geri það sem
allra fyrst til Þórdísar Jakobs
dóttur, Spítalavegi 9, sími
1-18-72, er veitir allar nánari
upplýsingar. — Orlofsnefnd.
MATTHÍASARHÚS er opið kl.
2 til 4 e. h. Sýni safnv.
NONNAHÚS er opið daglega
kl. 2—4 e. h. Sími safnvarðar
er 1-27-77.
Happdrætti Háskóla
fslands
Skrá um vinninga í 6. fl. 1969.
Umboðið Akureyri.
500.000.00 kr. á miða nr. 14389.
10.000.00 kr. á nr. 12096, 31131.
Aukavinningar:
10.000.00 kr. á nr. 14388, 14390.
5.000.00 kr. á nr. 3367, 17926,
23246, 33921.
2.000.00 kr. á nr. 202, 208, 213,
218, 3159, 3583, 6009, 6010,
6876, 7010, 7049, 8041, 8288,
11211, 11215, 12573, 12684, 13382,
13630, 14045, 14258, 14260, 14392,
14787, 14882, 15008, 16089, 16579,
16597, 16915, 17938, 17940, 18451,
18471, 20509, 20702, 20713, 21678,
21774, 22250, 22414, 23022, 24005,
25590, 25936, 26320, 29022, 29040,
29311, 31117, 31124, 31558, 33173,
33193, 36483, 41172, 41776, 42617,
42801, 44619, 44735, 44835, 44839,
46473, 48290, 49258, 49270, 49272,
49280, 51722, 52133, 52145, 53824,
53904, 55788, 57894, 59575,. 59752.
(Birt án ábyrgðar)