Dagur - 02.07.1969, Blaðsíða 1

Dagur - 02.07.1969, Blaðsíða 1
FILMU HÚSIÐ Hafnarstræti 104 Akureyri Simi 12771 • P.O. Box 397 SÉRVERZLUN: LJOSMYNDAVÖRUR FRAMKÖLLUN - KOPIERING Laxveiði hafin, sláttur að hefjast Ási Vatnsdal 1. júlí. Hér líður að slætti þar sem bezt er sprott ið. Allgóð sprettutíð hefur ver- ið, en votviðrasamt og stundum hálf andkalt. Ekki munu nýjar kalskemmdir í túnum. Laxveiði hófst 25. júní í Vatns dalsá og byrjaði vel. Einnig veiddist sæmilega í öðrum ám, svo sem í Laxá á Ásum. Þorsteinn Sigurjónsson hótel stjóri varð fimmtugur á sunnu- daginn og var fjölmenni af því tilefni í félagsheimilinu á Blönduósi því maðurinn er vin- sæll. Á sama stað héldu sveit- ungar Jónatans Líndals Jósa- fatssonar frá Holtastöðum hon- um samsæti, en hann varð 90 ára 26. júní og er mjög vel ern. Æfla eð kðupa fiskiskip? Sauðárkróki 1. júlí. Mörg skip hafa verið hér að undanförnu og hafa afurðir verið teknar frá frystihúsunum, en hingað hefur verið fluttur áburður og korn- vörur. 3 ÖLVAÐIR TEKNÍR UM SÍÐUSTU HELGI voru þrír ökumenn teknir fastir fyrir meinta ölvun við akstur. Akureyrarbíll lenti út af vegi í Svarfaðardal á laugardaginn. Slasaðist ökumaður og liggur í sjúkrahúsi. Allmargir árekstrar hafa orð- ið í bænum og grjótkast frá bíl- um brjóta rúður annarra bíla. Olvun er með minna móti. (Upplýsingar frá lögreglunni) Atvinna er allgóð. Drangey var að landa 130 tonnum og Hannes Hafstein 24 tonnum. Hákon Torfason bæjarstjóri og framkvæmdastjóri Útgerðar félags Skagfirðinga er nýkom- inn heim úr ferð til Noregs. En þar var hann að athuga skipa- kaup og annað, er að þeim mál- um lýtur. Mest er rætt um skut togara, en fleira er í huga. Bæjarfélagið hefur komið á unglingavinnu. Eru um 40 krakkar í henni og vinna ýmis- leg störf við fegrun og snyrt- ingu og annast gróðurstarfsemi. Hér verður mikið hestamanna mót um helgina, er verður hér á Sauðárkróki og Léttfeti sér um það. Þar verða kappreiðar og góðhestasýning. S. G. Margt fólk á Laugum ÞINGEYINGAR minntust í dag 25 ára afmælis lýðveldisins með hátíðahöldum að Laugum. Stóð Héraðssamband Suður-Þingey- inga fyrir þeim, en sjálfboða- liðar úr ungmennafélögum sýsl unnar önnuðust undirbúning. Veðurblíða var svo einstök, að til fádæma hlýtur að teljast, kyrrt veður, móða í lofti, svo að sólar gætti ekki til fulls, en engu að síður 20—25 stigi hiti. Mun ýmsum hafa orðið hugsað til þess, hve vel slíkt veður hæfði hátíðisdegi þessum og í hve mikilli mótsögn það var við harðindi undanfarinna missera. Hátíðahöldin hófust kl. 14 við skólahús Héraðsskólans að Laugum. Indriði Ketilsson, Ytra-Fjalli, formaður undir- búningsnefndar, setti samkom- una og stjórnaði henni. Því Dagur söngs í Valaskjálf á Héraði Egilsstöðum 1. júlí. Þeir bjart- sýnustu vona, að þeir geti byrj- að heyskapinn um næstu helgi. Annars er fátt, sem gerist í þess um heimshluta um þessar mund ir þegar frá er skilið mikið og fjölmennt söngmót í Valaskjálf á sunnudaginn. Þann dag var Skátar gengu á uiidan UM SÍÐUSTU HELGI voru um 100 skátar frá Akureyri í 5 hóp- um að störfum við þjóðveginn í nágrenni Akureyrar og hreins- uðu rusl á marga vörubíla. Þeir hreinsuðu og Vaglaskóg. Þetta var hið þarfasta verk og ætti að beina huga fólks meira í þá átt, að halda landinu hreinu með góðri umgengni. Hverskonar náttúruspjöll og sóðaleg umgengni mætir nú andúð fleiri en áður og er það vel. Og skátar eiga þakkir skilið fyrir, að ganga á undan í því, að hreinsa landið og fegra. □ DAGUR kemur næst út miðvikud. 9. júlí. minnzt 25 ára afmælis Kirkju- kórasambands Austurlands. Fyrsti formaður þess var Jón Vigfússon organisti á Seyðis- firði, en núverandi formaður er Jón Mýrdal, Neskaupstað. Á mótinu sungu fjórir kirkju kórar af Héraði og Samkór Nes kaupstaðar. Söngstjórar voru, Kristján Gissurarson, Eiðum, Helga Þórhallsdóttir, Ormsstöð um og Jón Mýrdal. Séra Ágúst Sigurðsson sóknar prestur í Vallarnesi flutti erindi. Mikill mannfjöldi kom í Vala- skjálf þennan dag og þóttu öll atriði, er þarna fóru fram, tak- ast með ágætum vel svo að dag urinn var sannkallaður hátíðis- dagur. Ferðafólk er byrjað að leggja leið sína hingað austur og sum- argistihúsin eru tekin til starfa bæði á Eiðum og Hallormsstað. Ferðaskrifstofa ríkisins hefur með höndum hótelreksturinn á Eiðum en heimamenn á Hall- ormsstað, þar sem húsmæðra- skólinn og heimavistarskólinn nýi eru reknir sameiginlega. V. S. Hagur SÍS batnaði mjög á árinu Á 67. AÐALFUNDI Sambands íslenzkra samvinnufélaga, sem hófst í Bifröst í Borgarfirði, 17. júní næst var helgistund, þar sem sr. Sigurður Guðmundsson prófast ur flutti predikun, en kirkju- kórar Grenjaðarstaðar og Ein- (Framhald á blaðsíðu 5). Skagaströnd 1. júlí. Næg at- vinna er hérna nú og Brúarfoss og Lagarfoss eru að taka hér fisk. Unnið er að smíði bryggju kera fyrir vitamálaskrifstofuna. Fiskafli er minni en fyrr í sum- ar, enda afli þá mjög góður. Nú er fólk að koma hingað aftur, vegna betri atvinnu og ÚT ER komið nýtt Þingvalla- kort hjá Landmælingum ís- lands. Sýnir það tjald- og bíla- stæði innan þjóðgarðsins, auk gi'óðursins og er því að veru- legu leyti miðað við þarfir ferða manna. Kostið er í mörgum lit- um og þar gefur að líta búða- tóftir úr fornöld er enn standa, og svo sjálfan þingstaðinn og fylgir upplýsingaskrá á þremur tungumálum. Þá eru að koma út 10 gróður- kort til viðbótar fyrri gróður- SLÁTTUR HAFINN í ÞREMUR hreppum framan Akureyrar er nú sláttur allvíða hafinn, eða á nokkrum bæjum í hverjum hreppi. Spretta hefur verið ör og víða útlit fyrir góðan heyskap, ef svo heldur sem horfir. □ kom fram, að hagur Sambands- ins hafði batnað verulega á liðnu ári. Fundinn sóttu um 100 fulltrúar frá hinum ýmsu kaup- félögum. Formaður félagsstjúrn ar, Jakob Frímannsson, setti fundinn og flutti skýrslu stjórn arinnar, en Erlendur Einarsson forstjóri Sambandsins flutti yfir litsskýrslu um störf og rekstur Sambandsins. Heildarumsetning nam 3 mill jörðum króna og hafði aukizt um 376 milljónir. En í Búvöru- einnig tvær fjölskyldur frá Ólafsfirði. Gert er ráð fyrir, að sjálfvirk símstöð verði tekin hér í notkun á Skagaströnd og Blönduósi í haust. Unnið er í félagsheimilinu og gera menn sér vonir um, að unnt verði að taka það í notkun í haust. X. kortum og eru þau af óbyggð- um norðan Langjökuls, Hofs- jökuls og Vatnajökuls. Forstöðumaðui' Landmæling- anna er Ágúst Böðvarsson og sýndi hann fréttamönnum nýja kortið af Þingvöllum og gaf upp lýsingar um þau, sem væntan- leg eru. □ f SUNNANBLAÐI segir nýlega, að þingmaður hafi verið sýkn- aður í máli gegn KEA. Er þar átt við Björn Pálsson, er lét smíða bát sinn, Húna II. á Skipa smíðastöð KEA, en út af smíða- reikningi hófust málaferlin, er Hæstiréttur hefur nú dæmt. Héraðsdómur hafði lækkað sníS*r«ikninginn um krónur deild var mest heildarsala, 1.1 millj. kr. Rekstur Sambandsins skilaði 6.2 millj. kr. tekju- afgangi í stað 40 millj. kr. halla árið 1967. Það er vissulega ástæða til að fagna því, að SÍS hefur heppn- azt að ná hagstæðri afkomu á sl. ári. Forystumenn þess hafa mætt erfiðleikunum með mikl- um myndarskap og endurbætt reksturinn. Það er sú leið, sem óhjákvæmilegt er að fara á fleiri sviðum. Eki þótt þessi árangur hafi náðzt, má ekki gleymast, að 6 millj. kr. rekstrar afgangur hjá fyrirtæki, sem velt ir þremur milljörðum króna, er engin stórupphæð, eins og vei'ð gildi krónunnar er nú háttað. Þessi tekjuafgangur er of lítill til þess að SÍS geti eflt eigin sjóði með eðlilegum hætti og haldið áfram hóflegri uppbygg- ingu. Það verður svo að teljast mik ið alvörumál, að meirihluti kaupfélaganna skuli hafa verið rekin með verulegum halla. Það mun segja til sín á margan hátt. Sambandið ákvað snemma á þessu ári að hefja nýja uppbygg ingu í iðnaði á Akureyri og er þar um að ræða nýja sútunár- verksmiðjuna, sem áður hefur verið greint frá í blaðafréttum, svo og aukna vélvæðingu í Ull- arverksmiðjunni Gefjuni. Fram kvæmdir við byggingu hinnar nýju sútunarverksmiðju hófust (Framhald á blaðsíðu 4) 539.596.00. Hæstiréttur hækkaði aftur á móti skuld Björns um krónur 110.963.42 frá úrskurði héraðsdóms. En öll var reikn- ingsupphæðin frá hendi Skipa- stöðvarinnar kr. 2.703.873.43. Þingmaðurinn greiddi síðan skuld sína, samkvæmt þessum dómi Hæstaréttar. □ Fólk flyzt aftur til Skagasfrandar ÞINGVALLAKORT OG FLEIRI KORT Þingmaðurinn og KEA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.