Dagur - 02.07.1969, Blaðsíða 7
7
- ÍBA OG VALUR GERÐU JAFNTEFLI
(Framhald af blaðsíðu 2).
ir föstu skoti á ÍBA-markið, og
knötturinn smaug undir þver-
slá og í markið. Þetta mark
kom all flatt upp á flesta, því
ÍBA-liðið hafði verið í látlausri
sókn. Valur hélt þó ekki for-
skotinu lengi, því strax á næstu
mínútu jafnar ÍBA-liðið úr
óbeinni aukaspyrnu, sem dæmd
var inn í vítateig Vals vegna
hrindingar á Steingrím. Skúli
spyrnti til Sævars Jónatansson-
ar, sem sendi knöttinn rakleitt
í mark Vals, og réði Sigurður
ekki við þetta skot. Það sem
eftir var leiktímans skiptust lið
in á upphlaupum, en fleiri urðu
mörkin ekki, þó oft munaði
litlu við bæði mörkin.
Eins og áður segir var leikur
þessi, að mínum dómi, hinn
bezti á Akureyrarvelli í sumar.
Það var barizt fast, án þess þó
að um grófan leik væri að ræða,
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
ER RÉTT STEFNT?
Hólnia einn í Eyjafjarðará er
nú fyrirhugað að nota fyrir
verkstæði o. fl. Ekki mælir blað
ið gegn fyrirgreiðslum við
menn, sem vilja koma sér upp
starfsaðstöðu. En' er rétt stefnt
með því að leggja hólma Eyja-
fjarðar undir hina ýmsu starf-
semi manna eða á að friða þá og
vernda betur en gert er? Hólm-
arnir og raklend engjalönd önn
ur, eru sem kjörin fyrir runna-
og trjágróður og geta orðið hin
fegurstu. Spurningin um það,
hvað gera eigi við hina fögru
hólma og árbakka í landi bæjar
ins, krefst svars á breiðum
grundvelli, þar sem ekki yrði
algerlega gengið fram hjá sjón-
armiðum náttúruverndar.
og bæði liðin sýndu góðan sam-
leik og áttu mörg tækifæri.
Þessi leikur var mjög skemmti-
legur fyrir áhorfendur og von-
andi eigum við eftir að sjá fleiri
slíka í sumar.
Steingrímur var beztur í fram
línu ÍBA-liðsins, þá átti Magnús
mjög góðan leik, vann vel allan
leikinn, Jón Stefánsson átti góð
an leik að vanda og Gunnar
Austfjörð sinn bezta leik á
sumrinu. Skúli var þungur og
linur, en það stafar af meiðsl-
um. Segja má að allir leikmenn
ÍBA hafi skilað sínu, eins og við
var að búast, og mér finnst að
ekki sé hægt að krefjast meira
af mönnum, en þeir sýni bar-
áttuvilja allan leikinn og geri
það sem þeir framast geta, hver
svo sem úrslitin verða. —
Kannski var ÍBA-liðið betra í
þessum leik, en margir bjugg-
ust við.
Valslið hef ég ekki séð leika
áður í sumar, en mér fannst það
sýna góð tilþrif á köflum, með
Hermann, Reynir og Ingvar,
sem beztu menn, allir mjög
sóknardjarfir og erfitt að gæta
þeirra. Þá var Vals-vörnin
traust að vanda. Ég get þó ekki
neitað því, að ég bjóst við að
Valsliðið væri betra en það er
með sína landsliðsmenn.
Dómari var Grétar Norðfjörð
og dæmdi vel. Línuverðir voru
og frá Reykjavík, og hlýtur að
vakna sú spurning, hvort dóm-
arar á Norðurlandi geti ekki
tekið að sér línuvarðastörf í 1.
deild. Það mundi spara talsvert
fé, og ekki er of mikið af því
hjá þátttakendum í 1. deild eða
KSÍ. Sv. O.
STAÐAN f 1. DEILD:
1. Akranes .... 4 leikir 7 stig
2. Keflavík .... 5 leikir 7 stig
3. Valur .........4 leikir 4 stig
4. ÍBV ...........3 leikir 3 stig
5. ÍBA ...........3 leikir 2 stig
6. KR ............3 leikir 2 stig
7. Fram ..........4 leikir 1 stig
é . |
Öllam vinum olikar, nœr og fjœr, sem heiðruðu *
•t okkur með nærveru sinni, gjöfum og skeytum i X.
sambandi við fimmtugs- og sextugsafmœli okkar, %
færum við hinar beztu pakkir. , .J.
Lifið öll lieil! @
V
ÞORLÁKUR HJÁLMARSSON, Villingadal, f
ÓLAFUR JÓNSSON, Hólum, |
ANGANTÝR H. HJÁLMA RSSON, Sólgarði. §
1'
G>
I
I
6>
I X
£ Innilcgar þakltir til samstarfsmanna minna við £
Gagnfræðaskólann d Akureyri, og til ættingja og j;
|, vina, fyrir gjafir, blóm og skeyti d 70 dra afmæli t
.t mínu 20. júni s.l. X
f.
*
KRISTBJÖRG KRISTJÁNSDÓ TTIR.
<■
«
X
Móðir mín og tengdamóðir,
MALÍN ÞORSTEINSDÓTTIR
frá Árskógsströnd,
andaðist í Kristneshæli miðvikudaginn 25. júní.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Þórunn Jóhannsdóttir,
Baldvin Ásmundsson.
Þakka lijartanlega alla þá samúð, sem mér og
fjölskyldu minni hefir verið sýnd vegna andláts
unnusta rníns
PEER DRUBE.
Einnig þakka ég minningargjafir um liann.
Gígja Kjartansdóttir.
HERBERGI
til leigu.
Sími 1-29-45.
ÍBÚÐ
óskast strax, 2 herbergi
og lítið eldlnis eða þrjú
herbergi og lítið eldlnis,
fyrir einhleypan, reglu-
saman mann.
Hringið í síma 1-17-97,
1-26-55 eða 1-14-30.
Eldri hjón \antar
tveggja til þriggja her-
bergja ÍBÚÐ
seinna í sumar eða
í haust.
Uppl. í síma 1-29-63.
HÚSNÆÐI
óskast til leigu sem fyrst.
Uppl. í síma 1-22-51,
eftir kl. 6 e .h.
Magnús Pálmason,
Háteigi.
Fjögurra herbergja
ÍBÚÐ á Eyrinni
til sölu.
Uppl. í síma 1-27-36.
ÍBÚÐ óskast.
Einhleyp, eldri kona
óskar eftir bveggja her-
bergja íbúð sem fyrst.
Y> árs fyrirfram greiðsla,
ef é>skað er.
Uppl. í síma 2-15-19.
Lítil ÍBÚÐ
óslkast til leigu
senr fyrst.
Sími 1-26-64.
HERBERGI
sem næst M.A. óskast
næsta vetur.
Uppl. gefur Páll Ás-
geirsson, síma 1-22-42.
AKUREYRARKIRKJA er opin
alla virka daga kl. 10—12 f. h.
og 2—4 e. h. á sunnudögum.
MESSAÐ í Akureyrarkirkju
n. k. sunnudag kl. 10.30 f. h.
Sálmar: 577 — 367 — 111 —
136 — 582. — P. S.
MESSAÐ í Lögmannshlíðar-
kirkju 13. júlí (annan sunnu-
dag). Predikun flytur Dr.
Richard Beck fyrrv. prófessor
frá Kanada. Bílferð úr Glerár
hverfi kl. 1.30. — P. S.
SUMARMÓT HVÍTASUNNU-
MANNA verður haldið á Ak-
ureyri dagana 1.—6. júlí 1969.
Samkomur verða sex kvöld í
röð í Akureyrarkirkju. Ræðu
menn á samkomunum verða
forstöðumenn og trúboðar
hreyfingarinnar. Fjölbreyttur
söngur: Kvartett, kórsöngur,
tvísöngur, einsöngur. Allir
eru hjartanlega velkomnir á
þessar samkomur. — Einnig
verða samkomur í trúboðs-
húsinu Zion hvern dag móts-
ins kl. 4 e. h. (Biblíulestrar).
Þangað eru allir einnig boðn-
ir velkomnir. — Hvítasunnu-
menn.
SUMARMÓT Æskulýðsfélags
kirkjunnar í Hólastifti verður
að Vestmannsvatni í Aðaldal
helgina 12.—13. júlí. Gist verð
ur í tjöldum við vatnið. Þar
fara fram ýmis dagskrár-
atriði eins og undanfarin ár.
Eldri flokkur drengja fór í
sumarbúðirnar í gærmorgun
og verða þeir þátttakendur í
mótinu.
ORÐSENDING frá sóknarprest
unum Akureyri. Séra Birgir
Snæbjörnsson verður í fríi
frá 1.—31. júlí og séra Pétur
Sigurgeirsson frá 1.—31.
ágúst. Sá prestur sem heima
er annast þjónustu fyrir báða.
— Sóknarprestar.
LARA AGÚSTSDÓTTIR til-
kynnir þeini, sem hafa að-
göngumiða frá síðasta fundi
hennar, að mæta að Bjargi
föstudaginn 4. júlí kl. 8.30 e.h.
BRÚÐKAUP. Þann 21. júní sl.
voru gefin saman í Akur-
eyrarkirkju brúðhjónin ung-
frú Sigrún Guðríður Skarp-
héðinsdóttir, Hafnarstræti 47
og Sigurður Gísli Ringsted
nýstúdent, Helgamagrastræti
48, Akureyri.
BRÚÐHJÓN. Hinn 28. júní sl.
voru gefin saman í hjónaband
í Akureyrarkirkju ungfrú
Elísabet Anna Pálmadóttir og
Pétur Pétursson iðnverka-
maður. Heimili þeirra verður
að Grenivöllum 28, Akureyri.
SJÖTUG. Sólveig Rögnvalds-
dóttir, Leifshúsum í Önguls-
staðahreppi varð sjötug í gær,
1. júlí. Hún er að heiman.
VISTHEIMILINU SÓLBORG
hafa borizt eftirgreindar gjaf-
ir: Frá Þ. Þ. kr. 1.000.00, frá
sjö barna móður kr. 200.00,
frá L. R. kr. 200.00, frá M. Þ.
kr. 500.00 (áheit). — Kærar
þakkir. — J. Ó. Sæm.
KONUR í Kvenfélagi Akur-
eyrarkirkju. Farið verður í
ferðina laugardaginn 5. júlí
n. k. Lagt verður af stað frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 13.30
Þátttaka tilkynnist fyrir há-
degi á föstudag. Patrica Jóns-
son, sími 12406, Guðrún Krist
jánsdóttir, sími 11750, Laufey
Sigurðardóttir, sími 11581.
I.O.G.T. st. Ísafold-Fjallkonan
no. 1. Fundur fimmtudag 4.
þ. m. kl. 8.30 e. h. í Æskulýðs-
heimilinu Kaupvangsstræti 4.
Fundarefni: Vígsla nýliða,
kosið í Fulltrúaráð o. fl. —-
Æ.t.
FRÁ Ferðafélagi Akureyrar. —■
Vatnsdalur um helgina. Sum-
arleyfisferð: Sprengisandur—
Suðurland 15.—24. ágúst. Þátt
taka tilkynnist fyrir 11. júlí.
Veiðiferð að Veiðivötnum 26.
—29. júlí. Þátttaka tilkynnist
fyrir 18. júlí. Upplýsingar og
farmiðapantanir daglega í
Umferðarmiðstöðinni.
NONNAHÚS er opið daglega
kl. 2—4 e. h. Sími safnvarðar
er 1-27-77.
FRAMSÓKNARFÉLÖGIN
DALVÍK, SVARFAÐARDAL og ÁRSKÓGS-
STRÖND halda sameioinleoan fnnd í Samkomu-
O O
Iuisinu, Dalvík, þriðjudaginn 8. júlí kl. 9 e. h.
Á fundinum mæta alþingismennirnir Ingvar
Gíslason, Stefán Valgeirsson og Jónas Jcmsson.
Mætið vel og stundvíslega.
STJÓRNIRNAR.
N.L.F. — vörur
• SOYJAMJÖL - FRUIT BRAN
• GRÆNMJÖL - ÞARATÖFLUR
• SÓLBLÓMAOLÍA - BANKABYGG
• SKORNIR HAFRAR - KRÚSKA
• HÖRFRÆ — og margt fleira.
NÝLENDUVÖRUDEILD
ííí nr?
MATTHÍ AS ARHÚ S er opið
daglega kl. 2—4 e. h. — Sími
safnvarðar er 1-17-47.
MINJASAFNIÐ á Akureyri er
opið daglega kl. 1.30—4 e. h.
Tekið á móti ferðafólki á öðr-
um tímum eftir samkomulagi.
Sími safnsins er 1-11-62 og
safnvarðar 1-12-72.
FRÁ vorhappdrætti Framsókn-
arflokksins, Akureyri. Þeir
sem fengið hafa heimsenda
happdrættismiða, og ekki
hafa gert skil, eru vinsamlega
beðnir að gera það sem allra
fyrst. Móttaka á flokksskrif-
stofunni alla daga. Þá má og
gera skil á afgreiðslu Dags.
Dregið 10. þessa mánaðar.
TÖSKUR
úr skinni, skai og basti.
MARKAÐURINN
SÍMI 1-12-61
f ■ cr % f |