Dagur - 02.07.1969, Page 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.t
SAMVERKAMEHN
EORSETINN, dr. Kristján Eldjám,
mælti mörg viturleg orð í ræðu sinni
til þjóðarinnar 17. júní. í síðari
hluta ræðunnar sagði hann:
„Mikið hefur verið talað um erfið
leika hér á landi upp á síðkastið, og
ekki að ástæðulausu. Tuttugasta og
fimmta ár lýðveldisins hefur verið
mörgum íslendingi áhyggjusamt, og
ef til vill setur það að einhverju leyti
svip sinn á þennan hátíðisdag að svo
skyldi liittast á. En ár verða misgóð
á styttra tímabili en aldarfjórðungi.
I dag ber oss að líta á allan þennan
tíma sem eina heild, og þá getur eng
um blandast hugur um, að aldrei í
sögu þjóðarinnar liefur henni vegn-
að betur. Þó að öndvert hafi blásið
um sinn, mun aftur snúast til betri
áttar fyrr en varir. Það hefur ætíð
verið svo, enda skal því ekki trúað,
að það merki, sem svo liátt hefur ver-
ið reist, þurfi nú að síga oss til skaða
og minnkunar. Ríkir af reynslu þessa
aldarfjórðungs með liöppum og slys-
um, ættum vér að vera betur undir
búnir en nokkru sinni áður að
standa við það ætlunarverk, sem 17.
júní 1944 og hver þjóðhátíðardagur
síðan á að minna oss á: hamingju-
samt og réttlátt íslenzkt þjóðlíf á fs-
landi. Vér eigum þetta land. For-
feðurnir liafa helgað oss það með lífi
sínu. í þessu landi hugsum vér oss
framtíð niðja vorra. Stundum segja
menn: Þetta er vont land eða þetta
er gott land. Vér getum sparað oss
slíkar alliæfingar. Landið er það sem
það er og þar sem það er, ekki verð-
ur því breytt, en það er eign vor og
um leið eigandi. Það er samofið sögu
vorri og framtíðarvonum, og enginn
efast um það í alvöru, að landið búi
yfir nægu lífsmagni til þess að gera
oss kleift að gegna hlutverki liins ís-
lenzka lýðveldis. Það sýnir meðal
annars það sem hér hefur gerzt í ald-
arfjórðung, enda gefi nú hamingjan,
að áfram stefni og eigi miður en
hingað til. Ýmis teikn eru nú á lofti,
sem til þess benda, að þjóðin sæki í
sig veðrið, snúist til vamar og síðan
sóknar með nýjum móði, nýrri gát
og alvöru. Ef til vill er það mesta
fagnaðarefnið, þegar litið er fram á
veg á þessum þjóðhátíðardegi.
Þjóðhátíð, segja sumir menn, hvað
er það annað en frídagur og orð inn-
antóm, skálaræður? Satt er það, dauð
legir menn mæla ekki máli guða,
ekki heldur á þjóðhátíðardögum. En
þjóðháu'ð höldum vér eigi að síður,
og hennar hlutverk er mikið, þrátt
fyrir allan ófullkomleika. Vér höfum
þjóðhátíð til þess að minna oss á for-
tíð vora og sögu, lífsbaráttu forfeðra
vorra í landinu á liðnum öldum.“ □
Sunnlenzkur bóndi fyrir svörum
STEFÁN JASONARSON í VORSABÆ
EINN af góðbændum Suður-
lands og félagshyggjumönnum í
fremstu röð býr í Vorsabæ,
ásamt konu sinni og börnum og
er þar jöfnum höndum lögð
alúð við arðsemi bús og fegurð,
utan húss og innan.
Stefán Jasonarson hefur
verið bóndi í Vorsabæ í Gaul-
verjabæ í Árnessýslu síðan
1943. Hann hefur lengi staðið
framarlega í félagsmálum, fyrst
sem ungmennafélagi en síðan í
bændasamtökum. Hann er nú
formaður Búnaðarsambands
Suðurlands, sem tekur yfir Ár-
nes-, Rangárvalla-, Vestur-
Skaftafellssýslu og Vestmanna
eyjar. Einnig er hann formaður
Framsóknarfélaganna í Árnes-
sýslu. Stefán var hér nýlega á
ferð og átti blaðið þá við hann
samtal það, er hér fer á eftir.
Hvernig stendur á ferðum
þinum hér?
Dálítill hópur Sunnlendinga
kom hingað norður, sem full-
trúar ungmennafélaga frá Hér-
aðssambandinu Skarphéðni og
sat þing Ungmennafélags ís-
lands á Laugum í Reykjadal 26.
júní. Og til þess að auka ánægj-
una, tóku margir konur sínar
með til þess einnig, að þær
gætu kynnst Norðurlandi.
Störf þingsins?
Um þau hafa blöð og útvarp
fjallað og ekki ástæða til að
endurtaka það hér. En e. t. v.
eru það merkustu fréttirnar, að
séra Eiríkur J. Eiríksson, sem
verið hefur formaður UMFÍ
yfir 30 ár, baðst undan endur-
kjöri en í hans stað var kjörinn
Hafsteinn Þorvaldsson, Selfossi,
sem búinn er að vera nokkur ár
ritari UMFÍ og einnig Skarp-
héðins. Hann er mjög kunnugur
ungmennafélagshreyfingunni og
hefur unnið mikið fyrir hana.
Áð þingi loknu lögðum við
svo dálitla lykkju á leið okkar,
til að sjá landið.
Hvert var farið og hvað sáuð
þið merkilegt?
Við fórum til Mývatns og fór-
um þar í sund í hinni sérstæðu
náttúrulaug þeirra Mývetning-
anna, skoðuðum auðvitað Kísil-
verksmiðjuna, Dimmuborgir og
fleiri merka staði. Því miður
þurfti flest sunnanfólkið að
hraða sér heim að þingi loknu.
En ég og mitt fólk, héldum ferð
inni áfram, skoðuðum Dettifoss,
Hólmatungur, Hljóðakletta og
Ásbyrgi og ókum til baka um
Tjörnes. Á þessum eina degi
sáum við undramargt, sem fag-
urt er og eftirminnilegt. Mikill
er uppblásturinn við Jökulsá og
mikil er sú orka, sem enn bíður
óbundin í Jökulsá á Fjöllum.
Og miklir eru þeir möguleikar
í landbúnaðinum, er við sáum
er nær dró sjónum.
Hvemig leizt þér á búskap-
inn?
Við sáum mörg hin búsældar
legustu býli og eftir því tók ég,
að það var undantekning, ef
maður sá ekki tvö lömb með
hverri á á heiðunum og ég sá
líka víða heyfyrningar á bæjum
og átti ég ekki von á að sjá þær.
Hefur svo skoðað eitt og ann-
að á Akureyri?
Já, ég hef skoðað margt það
helzta og er þó mikið eftir, og
nú er ég að fara hringferð hér
fram í fjörðinn til að líta á bú-
skapinn áður en ég fer suður.
En ég sé, að við Sunnlendingar
getum margt af Akureyringum
lært. Sem dæmi nefni ég Kjöt-
iðnaðarstöð KEA, sem er ein-
stætt fyrirtæki, ennfremur
Slippstöðina, sem ekki er síður
merkileg. Og svo eru það Sam-
bandsverksmiðjurnar. Lítið fyr
irtæki sá ég, sem hvergi mun til
á öðrum stað, en það er kjöt-
beinaverksmiðja til að nýta hrá
efni, sem á öðrum stöðum er
fleygt og verður engum að
gagni. Hér eru verðmæti nýtt,
sem aðrir kasta á glæ.
Hvað viltu segja um sunn-
lenzku ungmennafélögin?
Héraðssambandið Skarphéð-
inn nær yfir Árnes- og Rangár
vallasýslu og í því eru 26 ung-
mennafélög, flest allvel starf-
andi en þó misjafnlega. Því er
ekki að neita, að undanfarin ár
hafa sum verið í öldudal. En nú
vill svo vel til, að ný hreyfing
er vakin. Þar hefur spurninga-
keppni félaganna tvo síðustu
vetur haft mjög vekjandi áhrif.
Og þá voru öll félögin með.
Milli 10 og 20 fjölmennar
skemmtisamkomur voru haldn-
ar í sambandi við keppnina og
skemmtiskrár fjölbreyttar.
Þetta lyfti félögunum töluvert.
Formaður Skarphéðins er Jó-
hannes Sigmarsson bóndi í
Syðra-Langholti. Með honum í
Stefán Jasonarson.
stjórn eru Hafsteinn Þorvalds-
son ritari og Eggert Haukdal á
Bergþórshvoli gjaldkeri.
Viltu nefna fleiri atriði eií
spurningakeppnina á samkom-
um?
Nú í vetur var t. d. höfð
keppni í ræðumennsku eða
mælskulist og höfðu flestir
einnig gaman að þeirri keppni.
Hafið þið valið ykkur fegurð-
ardrottningu í Ámessýslu?
Nei, ekki nú ennþá. En heyrt
hefi ég í útvarpi, að í Rangár-
vallasýslu verði hún valin um
næstu helgi. Ætli röðin komi
ekki fljótlega að okkur, segir
Stefán og hlær. Það eru ekki
ungmennafélögin, sem fyrir
slíku standa, heldur einhverjir
í höfuðborginni, sem eru að
vinna að jafnvægi í byggð lands
ins, eftir því sem gárungarnir
segja. Rétt er að taka fram, að
allar þær samkomur, er hér
voru nefndar hjá ungmenna-
félögunum, voru áfengislausar
samkomur og haldnar með
menningarlegu sniði, og auk
þess hafa þær gefið sambandinu
góðar tekjur. Kemur það í góð-
ar þarfir, því nýlega eignaðist
Skarphéðinn eigið húsnæði á
Selfossi, þar sem það hefur
skiifstofur sínar og þar er
fundaaðstaða. En á það ber að
líta og þakka um leið, að önnur
félög, svo sem sýslufélög og bún
aðarfélag, auk sveitarfélaganna,
hlaupa undir bagga og styrkja
Skarphéðinn fjárhagslega.
Eldra fólkið er farið að skilja
það, að það er ekkert auka-
atriði í uppeldismálum æskunn
ar, hvernig félagsskapur unga
fólksins er í sveitum, heldur
eitt hið mikilvægasta. Ég þykist
geta borið vitni í þessu máli,
bæði sem bóndi og ungmenna-
félagi. Og mér er sönn ánægja
að skýra frá því, að samvinna
ungmennafélaga og bændasam-
taka á Suðurlandi er góð og
vonandi eflist hún enn meira.
En Búnaðarsamband Suður-
lands?
Svæði þess er stórt og í því
eru búnaðarfélög í öllum hrepp
um sambandssvæðisins og mið-
stöð starfseminnar er í Laugar-
dælum, þar sem starfrækt er
kynbótastöð í nautgriparækt.
Sambandið hefur 5 ráðunauta
og skrifstofuaðstöðu sína á Sel-
fossi.
Samvinnustarfið?
Við höfum eitt og tvö kaup-
félög í hverri sýslu. Auk þess
Mjólkurbú Flóamanna, sem
nær yfir 3 sýslur og starfar sem
sjálfstætt fyrirtæki, en er ekki
á vegum kaupfélags, eins og
hér hjá ykkur í Eyjafirði. Slátur
félag Suðurlands starfar einnig
sem sjálfstætt samvinnufélag
og er ekki í beinum tengslum
við önnur félög. Þannig er sam-
vinnustarfið þrískipt hjá okkur
syðra, þótt hvað styðji annað.
Þið aukið ekki mjólkurfram-
leiðsluna?
Nei, því miður hefur þróunin
orðið sú, að framleiðslan hefur
dregizt saman og framleiðend-
um hefur mikið fækkað síðustu
árin. Búin stækka að vísu,
en hitt vegur meira. Það er
ekki aðeins að smákúabú við
þorpin leggist niður, heldur
hætta margir aðrir. í einum
hreppi í Rangárvallasýslu
standa 15 eða 16 fjós auð á
sveitabæjum um þessar mund-
ir. Ymsir bændur sjá sér ekki
fært að klífa þann þrítuga ham-
ar, fjárhagslega, sem þarf til
þess að framleiða mjólk og fara
t. d. fremur í sauðfjárræktina.
Er sláttur hafinn syðra?
Nei, enda allt á floti vegna
rigninga. En fxúðuð tún í góðri
rækt munu verða sæmilega
sprottin um mánaðamótin júní
—júlí.
Kartöflurækt?
Hún er mikil á Suðuxdandi, og
í minni sveit er mikil ásókn í
garðlönd bæði af einstaklingum
og félögum, víða að. Selfoss-
hreppur hefur t. d. stórt land út
við sjó, þar sem hann úthlutar
þorpsbúum. Þar hafa og margir
Reykvíkingar kartöflurækt. En
kartöflurækt er ekki árviss.
Mex-kilegt er fi-amtak Finnlaugs
Snoi'rasonar á Ragnheiðarstöð-
um, sem setti upp hjá sér vatns
úðunai'kerfi til að foi'ða frost-
skemmdum og það hefur gefið
góða raun.
Þið veitið verðlaun fyrir góða
umgengni á sveitabæjum?
Já, fyrir nokki'um árum byrj-
aði Búnaðarsambandið að veita
verðlaun fyrir góða umgengni,
5 bændum er framúr sköruðu,
hvoi’t ár. Nú er hugmyndin sú,
að færa þetta út, fara á hvern
bæ og gefa öllum einkunnir.
Verða 10 atriði látin ráða í dóm
um. Nú þegar hefur þessi við-
leitni boi'ið góðan árangur og
við viljum halda þessu áfram
með enn meiri árangri, segir
Stefán bóndi Jasonarson að
lokum og þakkar blaðið við-
talið. E. D.
Landsmót ísl. ungfemplara 1969
Lið Austra á Eskifirði.
EskfirSingar í heimsókn
UM SL. HELGI var staddur hér
í bæ um 40 manna hópur íþrótta
fólks frá Eskifirði, en þjálfari
þeirra er Jens Sumarliðason,
kennai’i á Akureyri. Blaðið náði
tali af Jens, og sagði hann að
áhugi væri geysi mikill þar
eystra á knattspyrnu og hand-
knattleik, og taka Eskfirðingar
þátt í Austfjarðariðli íslands-
mótsins í knattspyrnu, 3. deild,
og hefst keppni í þeim riðli í
júlí.
Hópurinn fór til Sauðárkróks
á laugai-dag og keppti við Skag-
firðinga í knattspyrnu og hand-
-knattleik kvenna 2. fl. Leikar
fóru svo að jafntefli varð í mfl.
karla í knattspyrnu 1:1, en Eski
fjarðarstúlkurnar sigruðu þær
skagfirzku í handknattleik 4:2.
Á sunnudag var svo leikið á
Akureyri. Stúlkumar léku við
Þór fyrir hádegi og töpuðu 0:3.
Eftir hádegi lék svo mfl. karla
við B-lið ÍBA á vellinum við
Akureyrarflugvöll, og fóru leik
ar svo að Akureyringar sigruðu
4:0. Völlur þessi er ósléttur og
erfitt að leika þar góða knatt-
spyrnu.
1. deildar-lið ÍBA Ieikur á
Eskifirði um næstu helgi.
Þá mun ákveðið að 1. deildar
lið ÍBA fer í keppnisferðalag til
Hagur SÍS batnaði
(Framhald af blaðsíðu 8).
þann 5. júní sl.
Þá hefur stjórn Sambandsins
ákveðið að endurnýja frystiskip
ið Jökulfell, sem er nú 18 ára
gamalt, með byggingu nýs frysti
skips, sem verður all-miklu
stærra en Jökulfell.
Þá er í athugun bygging koi-n
geymslu í samvinnu við aði'a
aðilja, við hina nýju Sundahöfn
í Reykjavík. Framkvæmd þessi
er miðuð við það að unnt sé að
koma við sem mestri hagræð-
ingu við innflutning og fram-
leiðslu á fóðurvöru.
Heildarsala Búvörudeildar
nam 1110 milljónum og jókst
um 39.6% í ki’ónum, en aukn-
ing í magni vai’ð 14.4% miðað
við árið áður. Sala útflutnings
var 798 milljónir en innanlands
salan nam 312 milljónum.
Heildarsala Innflutningsdeild
ar nam 602 milljónum króna og
var hækkun frá árinu áður 67.6
millj. eða 12.65%. Vörubirgðir í
árslok 1968 voru 54.5 milljónir
króna að verðmæti og jafngilti
það 7.2 millj. króna hækkun
eða 15.2%.
Heildarsala Véladeildar nam
181.1 milljón króna. Sölurýrnun
miðað við árið 1967 nam 17.5
milljónum króna eða 8.8%.
Vörubirgðir í árslok 1968 námu
28.9 milljónum króna og höfðu
lækkað um 5.5 milljónir miðað
við árslok 1967.
Sjö skip Skipa^ildar fluttu
lítið eitt meira magn af vörum
1968 en árið áður. Flutningar
milli hafna erlendis voru Va
minni en 1967, en strandflutn-
ingar jukust um 15.890 smá-
lestir. Farmgjaldatekjur eigin
skipa Skipadeildar námu 123.2
milljónum króna og sameignar-
skipa 34.6 milljónum. Tekjur
voru 54.4 milljónum króna
hærri en árið 1967 hjá sömu
skipum.
Heildarsala verksmiðja og
(Ljósm.: H. Sig.)
Eskifjarðar um næstu helgi og
leikur við heimamenn. Vonandi
verður þessi heimsókn ÍBA-
liðsins austur til gagns og
ánægju. □
FYRSTA landsmót ungtempl-
ara var haldið á Siglufirði sum-
arið 1967 og þótti takast sér-
staklega vel.
Nú í sumar, nánar tiltekið 5.
og 6. júlí, verður arrnað lands-
mót ungtemplara haldið að
Staðarhrauni á Mýrum, Mýra-
sýslu.
Akureyrskir ungtemplarar
munu fjölmenna á þetta mót, en
auk þeirra verða þai-na ung-
templarar frá Vestmannaeyjum,
Keflavík, Kópavogi, Reykjavík,
Akranesi, fsafirði og Siglufii'ði.
Þetta mót er ekki eingöngu fyr-
ir ungtemplara, heldur einnig
fyrir þá unglinga, sem vilja
kynna sér starfsemi ungtempl-
ai-afélaganna í landinu. Þess
vegna eru allir unglingai’, fædd
ir 1953 eða fyrr, velkomnir.
Frá Akureyri verður farið
föstudagskvöldið 4. júlí kl. 8 frá
Umferðarmiðstöðinni (áður
1 ÁTTRÆÐDR |
í
I
I
&
Helgi Stelánsson
bóndi á Þórustöðum
vei-zlana, sem heyra undir Iðn-
aðai'deild SÍS nam 331.5 milljón
um króna og er það 55.6 milljón
um hærra en árið 1967. Útflutn
ingur á ullarteppum, prjóna-
peysum, loðsútuðum gærum og
húðum nam á árinu 1968 61.8
milljónum króna.
Heildarsala Sjávarafui’ðadeild
ar nam á árinu 1968 618.8 millj.
króna og var sölurýrnun 54.7
millj. króna.
í skýrslu forstjóra um sölu-
félag Sambandsins í Badaríkj-
unum, Iceland Products, Inc.,
kom m. a. fram, að rekstur fé-
lagsins batnaði verulega á sl.
ári. Það sem af er þessu ári hef-
ur oi'ðið mikil aukning á fram-
leiðslu í verksmiðju Iceland
Products og hefur söluverðmæti
framleiðslimnar fyrstu 5 mán-
uði þessa árs um það bil tvö-
faldazt miðað við sama tímabil
árið 1968. Fyx-ir mánuði var haf
izt handa um stækkun verk-
smiðju Iceland Products sem
gerir mögulegt að koma við fjór
um framleiðslulínum, en fram
að þessu hefur verksmiðjan
einungis haft tvær línur. Þá ger
ir stækkunin ráð fyrir mikilli
aukningu á frystirými en gólf-
flötur í frystigeymslum mun
stækka úr 600 fermetrum í 1950
fei-metra. Bandaríkin eru nú
lang stærsti kaupandi að fiski
frá Sjávai-afurðadeild Sam-
bandsins og árið 1968 fóru
67.8% af útflutningi deildarinn-
ar til Bandaríkjanna.
Heildarvelta Sambandfélag-
anna varð 4.590 milljónir króna
og er það 267 milljón króna
hæi’ri upphæð en árið áður.
Sala landbúnaðarafurða jókst
um 231 milljón en vöi-usala sam
kvæmt vörureikningi vai’ð 2.215
milljónir og hækkaði um 3.6%
frá árinu 1967. Brúttótekjur af
vörusölu samkvæmt vörui'eikn-
ingi lækkaði hins vegar um 5
milljónir eða 1.5%. □
ÞANN 1. júlí varð áttræður
Helgi Stefánsson bóndi á Þóru-
stöðum. Þótt ástæða væri til,
ætla ég ekki að skrifa langt mál
í tilefni þessa, heldur aðeins að
senda honum litla kveðju og
þakklæti fyrir samvei’una og
vináttuna, sem hann ávallt hef-
ir sýnt mér frá því fyrsta að ég
man eftir.
Ef til vill munu einhverjir
þeir, sem þekktu Helga ungan,
telja að hann hafi ekki lent á
þeirri hyllu í lífinu, sem honum
hæfði. Hann hefði betur verið
kominn í sönghöllum hins stóra
heims. Þar hefði hin undra-
verða söngrödd hans og tónlist-
arhæfileikar notið sín betur en
við búsumstang hér uppi á ís-
landi. Þessi vegur stóð honum
opinn, er erlendur maður, sem
kynntist honum um tvítugsald-
ur bauð honum aðstoð sína til
söngnáms. En á þeim árum mun
varla hafa þótt árennilegt fyrir
ungan sveitapilt að leggja út í
slíkt ævintýri, enda munu þeir
fáir hafa verið, sem fýstu hann
til farar. En við tónlistina hefir
hann þó aldrei slitið öll bönd.
Allt til þess að sjón hans bilaði
og hann, þann veg, dæmdist úr
leik, varði hann flestum sínum
stopulu tómstundum við fótskör
hennar og ótaldar munu þær
ánægjustundir, sem hann hefir
veitt samferðamönnum sínum
með þeim árangri, sem hann
náði á þeim vettvangi. Ég er
einn þeirra mörgu, sem fyrir
hans tilverknað lærði að njóta
þeirra unaðssemda og þeirrar
göfgi, sem tónlistin býr yfir og
fyrir það er ég honum ætíð
þakklátui’.
En enda þótt, eins og fyrr seg
ir, að Helga hafi kannske hæft
önnur lífsbraut betur en sú, sem
hann valdi sér, verður þó eigi
annað sagt, en að hann hafi full
komlega valdið sínu verkefni.
Slíkt er sjáanlegt hverjum
þeim, sem yfir farinn veg hans
lítur, og sér þau vegsummerki,
sem hann lætur eftir sig á jörð
sinni. Fyrir rúmri öld síðan
kvað íslenzkur bóndi þessa
stöku:
„Þegar líf mitt eftirá
er í gleymsku falið,
Illugastaðasteinar þá
standið upp og talið.“
í þá daga voru það steinarnir
í túngörðunum og húsveggjun-
um, sem þóttu vænlegastir eftir
mælendur íslenzkra bænda. En
síðai’i tíma bændur hafa valið
sér önnur minnismei’ki. Þeir
hafa kosið til þess hið gróandi
gras, sem á hverju vori rís úr
dvala og bi-eiðir sína grænu feg
urð yfir íslenzkar sveitir og
lyftir huganum yfir hversdags-
leikann. í þeim hópi hefir Helgi
fyllt sitt sæti með sóma og mun
sá minnisvai’ði, sem hann reisti
sér, með ræktun jarðar sinnar,
ekki síður talandi en þótt hann
hefði staðið á söngpöllunum.
Megi ævikvöld hans verða um-
vafið gróðri og tónum.
Páll Helgason.
Herbergi óskast
fyrir iingan pilt í nágrenni Menntasíkólans næsta
vetur.
JÓN M. JÓNSSON, símar 1-15-99 og 1-14-53.
ferðaski'ifstofan Saga).
Laugardaginn 5. júlí er frjáls
tími til kl. 5, en þá verður mótið
sett. Sama dag milli kl. 6 og 8
verður jeppakeppni fyrir þá,
sem koma á eigin bílum. Um
kvöldið verður kvöldvaka i um
sjá ungtemplarafélagsins Hrann
ar, Reykjavík, en á eftir verður
dansað og sjá hinir frábæru
ROOF TOPS um fjörið. Á
sunnudagsmorgun geta þátttak-
endur valið milli tveggja ferða:
Veiðiferðar og gönguferðar. Síð
degis á sunnudag verður íþrótta
mót og m. a. verður keppt í
knattspyrnu kvenna! — Móts-
slit verða kl. 6.
Mótsgjald er kr. 300.00 óg
innifalið í gjaldinu er: Allar
skemmtanir úti og inni ásamt
mótsmerki og mótsskrá.
Á mótinu verður sölubúð, en
þar fæst meðal annars: Ol,
sælgæti, kex og margt fleira.
Þátttakendur hafi með sér
svefnpoka, tjald, nesti og góða
skapið.
Allar nánari upplýsingar um
ferðina veita góðfúslega Hörður
Hafsteinsson, Hafnarstræti 88,
sími 12494 og Halldór Jónsson,
Noi'ðui’götu 11, sími 12360, og
einnig hafa ungtemplarar opna
skrifstofu að Kaupvangsstræti 4
(2. hæð), fimmtudaginn 3. júlí
kl. 8 til 10 e. h.
Þeir sem þegar hafa ákveðið
að fara eru vinsamlega beðnir
að láta skrá sig sem allra fyrst.
Akureyi-skir unglingai'! Lát-
um ekki okkar hlut eftir liggja.
Á landsmótinu á Siglufirði 1967
áttum við stærsta hópinn og
hann var sannarlega þessum bæ
til sóma.
(Fréttatilkynning)
FERÐIR, blað
Ferðafélags Akur
eyrar
RIT Ferðafélag Akureyrar, júní
1969 — 28. árgangur, er komið
út. Segir þar frá skála félagsins
við Drekagil, miðhálendisferð
eftir Þormóð Sveinsson og ferð
um Uxaskarð og Náttfai’avíkur
og ritar Björn Bessason þá
grein, og Angantýr Hjálmars-
son segir frá hitaveitunni í
Laugarfelli.
Vil kaupa
MÓTATIMBUR,
ca. 3000 fet.
Helzt góðar lengdir.
Uppl. í síma 1-10-94.
- Margt fólk á Laugum
(Framhald af blaðsíðu 1)
ai’sstaða sungu.
Þá flutti Sigurður Líndal,
hæstaréttaiTÍtari lýðveldisi’æðu.
Ræddi hann, hvei’su sjálfstæði
þjóðar grundvallast á menn-
ingu hennar og þjóðerniskennd
og hversu mikil afrek eru oft
unnin í fámenni og við örðug
ytri skilyrði.
Sr. Bolli Gústafsson flutti
einnig ræðu og rifjaði upp
minningar um 17. júní 1944, en
gerði svo að umtalsefni, hver
þróun hefði oi'ðið í þjóðlífi og
hugsunai'hætti okkar íslendinga
þann aldai'fjórðung, sem síðan
er liðinn.
Kirkjukór Grenjaðarstaðar-
kii-kju söng undir stjórn Sigurð
ar Sigurjónssonar, Páll H. Jóns
son flutti frumort kvæði og því
næst sungu sameinaðir karla-
kórar Mývetninga og Reykdæla
undir stjórn Páls H. Jónssonar
og sr. Arnar Fi’iði'ikssonai’.
Að því loknu var gert hlé á
hátíðahöldum til klukkan 18, en
þá sýndu á íþróttavellinum hjá
Laugum glímuflokkur Héraðs-
sambands Suður-Þingeyinga og
fimleikaflokkur úr KR, sem þá
var á sýningarferðalagi um
Norðui’land.
Haraldur Jónsson, bóndi,
Jaðri, stjórnaði glímumönnum,
sem glímdu fyrst sýningarglím-
ur og háðu síðan bændaglímu.
Fimleikamennirnir sýndu
áhaldaleikfimi undir stjórn
Ágústs Óskarssonar, iþrótta-
kennara.
Síðasti þáttur hátíðahaldanna
var svo dansleikur um kvöldið
í íþróttahúsi Héraðsskólans.
Hátíðahöldin fóru hið bezta
fram og margt fólk sótti þau, þó
tæplega eins mikill mannfjöldi
og ætla mætti við svo hátíðlegt
tækifæri og í svo fögru veðri.
G. G.
Kennara vantar, fyrir
haustið,
ÍBÚÐ eða herbergi með
sér inngangi og snyrt-
ingu. — Helzt í nágrenni
menntaskólans.
Uppl. i síma 1-22-39.
LÍTIL ÍBÚÐ
á Eyrinni til söliu.
Hagkvæmir greiðsluskil-
rnálar. Leiga kærni einn-
ig til greina.
Sími 1-17-67, eftir kl. 7
á kvöltliru
Stúlkur óskast
Viljium ráða 1 stúlku til starfa við símaskiptiborð
og gestamóttöku, góð kunnátta í ensku og' norð-
urlandamálum nauðsynleg.
Ennfi’emur 1 stúlku til að smyrja brauð.
Nánari upplýsingar gefur hótelstjórinn.
HÓTEL KEA.
TIL SÖLU:
KVIKMYNDASÝNINGARTÆKI af „Bauer“-
gerð til sölu, þar sem þau eru í Samkomuhúsi
bæjarins á Akureyri.
Allar upplýsingar veitir
BRAGI GUÐJÓNSSON, sýningarmaður,
sírni 1-22-17.