Dagur - 09.07.1969, Qupperneq 1
LII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 9. júlí 1969 — 30. tölublað
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SERVERZLUN:
LJÓSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Raðherrar undir smásjá
UPP hefur komizt um stór af-
glöp starfsmanna hjá ríkisstofn-
unum og einkum í sambandi við
fjármál. Endurskoðendur ríkis-
reikninga flettu ofan af ýmsu í
þessu efni, sem allir nutna.
Vítaverð meðferð fjármuna
hjá embætti húsameistara ríkis
ins er sorglegt dæmi um hnign-
andi siðgæði. Hneykslið í Sem-
entsverksmiðjunni er átakan-
legt dæmi á sama stofni.
Þegar ekki var hægt að neifa
staðreyndum, játaði fjármála-
ráðherra ástandið, lofaði bót og
betrun og tók þá skýrlega til
orða og menn reyndu að trúa
því, að nú yrði röggsamlega á
málum tekið.
MIKIL LAXGENGND
FRETTIR hafia borizt af því
víða að, að laxgengd sé með
meira móti í ár og í sumum ám
mjög mikil, svo sem Laxá í S.-
Þing. Veiðin er þó misjöfn eins
og gengur. □
En hvað hefur gerzt? Almenn
ingur, sem hefur þessi mál und
ir smásjánni, bíður aðgerða, enn
án árangurs. Hann veit, að slík
mál eru í höndum dómsmála-
ráðherra, Jóhanns Hafsteins.
En ætlar liann og þeir báðir í
sameiningu, að svæfa slík mál
og reyna að láta þau- gleymast?
í vetur sagði fjármálaráð-
herra orðrétt í opinberri til-
kynningu sem blöðin birtu:
„í sainbandi við óreiðuna hjá
húsameistaraembættinu, mun
dómsmálaráðherra hafa ákveðið
að víkja frá störfum þeim, er
meginábyrgð hefur haft á fjár-
stjórn stofnunarinnar.“
Ekki hefur um það heyrzt, að
meira hafi verið gert í því máli.
Almenningur bíður og vonar.
að dómsvald í landinu, sé enn
ekki orðið nafnið tómt. En hve
lengi á hann að bíða? Og hve
lengi getur þjóðfélagið þolað
hina ört vaxandi spillingu ofan-
frá? □
Úrslitasprettur í 250 metra folahlaupinu.
(Ljósm.: Myndver)
Kappreiðar LÉTTIS við Eyjafjarðará
FRAMKVÆMDIR I GRIMSEY
Grímsey 8. júlí. Við búum við
algert samgönguleysi og eru nú
engar fastar ferðir hingað,
hvorki á sjó eða í lofti. Þetta
verður að breytast.
Unnið er við höfnina og eru
hér starfandi um 15 manna hóp
ur frá vitamálaskrifstofunni.
Grjótkantur er settur utan á
hafnargarðinn og ennfremur
varnargarð, þar fyrir utan. Ekki
hafa heimamenn mikla trú á, að
sá garður muni halda, en þetta
lítur vel út á teikningu. Tillög-
ur okkar voru ekki samþykktar.
Útibú KEA hér tekur á móti
öllum fiski í salt um þessar
mundir. Einnig getum við heil-
fryst. Fiskmóttakan verður í
sumar bætt með viðbótarbygg-
ingu.
Þokur hamla nokkuð veiðum.
Héðan róa tíu trillur og eru
tveir á flestum og fiska á hand-
færi. Nú hafa nokkrir byrjað
með rafmagnsrúlluna og það er
gjörbylting.
Eyjan er hræðilega kalin í ár.
Seinna verður settur upp sjálf
virkur simi. G. J.
KAPPREIÐAR og góðhesta-
keppni Hestamannafélagsins
Léttis á Akureyri fóru fram á
skeiðvelli félagsins við Eyja-
fjarðará á sunnudaginn. Þær
áttu að fara fram 7. júní sl., sem
var mun betri tími en áin
flæddi þá upp á skeiðvöllinn og
varð að fresta samkomunni
Um 50 hross voru látin taka
þátt í íþróttum dagsins að þessu
sinni.
í góðhestakeppni alhliða
gæðinga var Sindri dæmdur
beztur. Hann er grár að lit, 7
NÝ STEYPUSTÖÐ TIL BÆJARINS
FYRIR nokkrum dögum kom
hingað til bæjarins steypustöð.
Það er Möl og sandur, fyrirtæki
einstaklinga, KEA og Akureyr-
arbæjar, rúmlega 20 ára gamalt,
sem keypt hefur steypustöðina.
Steypustöðin er þýzk, ársgömul
og keypt í Straumsvík. Verð
5—6 milljónir, miðað við vélar
uppsettar og hún samanstendur
af blöndunar- og hrærivél og er
sjálfvirk.
Mjög lítið er nú um íbúða-
byggingar í bænum, en væntan
lega kemur að því, að fram-
kvæmdir örvist og er þá gott að
hafa nýja steypustöð tilbúna.
í GÆR var ný viðbygging hrað
, frystihúss Ú. A. tekin í notkun
og er það vinnslusalur fyrir 50
stúlkur og eykur þetta afkasta-
getuna að mun, eða um 50% og
gerir hana hagkvæmari. Unnt
er nú, að Ijúka vinnu kl. 7 í stað
þess að vinna til kl. 11.
Aðeins tveir mánuðir eru síð-
an byrjað var að grafa fyrir
hinnj nýju viðbyggingu og hef-
ur byggingahraði því verið
óvenju mikill. Stefán Reykjalín
hefur staðið fyrir verkinu f. h.
Ú. A., Gunnar Oskarsson ann-
ast múrverk en Þorsteinn Villi-
amsson trésmíði. □
vetra, skagfirzkrar ættar. Eig-
andí er Jóhann Konráðsson.
Annar var Tígull, jarpskjóttur,
13 vetra. Eigandi Þorvaldur
Pétursson, og þriðji varð Bleik-
ur Karls Ágústssonar.
Beztur klárhestur með tölti
var Blossi, rauðblesóttur, 9
vetra, þingeyskur. Eigandi
Jónas Ó. Egilsson. Næstur var
Blíða Jóns Sigfússonar, en hún
(Framhald á blaðsíðu 5).
Sláttur og laxveiðar hef jast í Vopnaf.
Vopnafirði 7. júlí. Heyskapur er
ekki byrjaður fyrir alvöru enn-
þá, en næstu daga mun hann
hefjast ef sæmilega viðrar því
spretta er að verða þolanleg.
Nýjar kalskemmdir eru engar
og eru því betri horfur en áður.
Aðalfundur kaupfélagsins
hérna í Vopnafirði var haldinn
20. júní. Halli varð á rekstrin-
um síðasta ár og nam hann 400
þúsund krónum, en afskrifaðar
höfðu þá verið 600 þúsund krón
ur. Vörusala aðkeyptra vara
nam 28.5 millj. kr. og lækkaði
um 3 millj. kr. Onnur fyrirtæki
kaupfélagsins komu vel út
nema bifreiðaverkstæðið. Kaup
félagsstjóri er Halldór Halldórs
son. Fjárfestingarframkvæmdir
voru nær engar á síðasta ári en
nú er í undirbúningi að stækka
frystihúsið og mun útvegun fjár
til þess á góðurn vegi.
Hafnarframkvæmdum er
haldið áfram í sumar við Vopna
fjarðarkauptún og verið að
vinna við síðari hluta mikils_
hafnargarðs. Alls munu hafnar-
framkvæmdirnar þæi', sem unn
ið er að og ákveðnar, kosta um
30 milljónir króna, samkvæmt
áætlun.
Bílslys varð í nótt við svo-
nefndan Drang, rétt innan við
Vopnafjarðarþorp. Fólksbifreið
héðan úr plássinu fór út af veg-
inum og valt. Bíllinn stór-
skemmdist en engan þeirra
fimm manna, er í hoíium var,
slasaðist alvarlega, að því er
talið er.
Laxveiði er enn ekki hafin í
Vopnafjai'ðaránum, enda geng-
ur hann hér jafnan fremur
seint, og er því ekki hægt að
segja fréttir að þeim veiðiskap.
En það getur til tíðinda talist,
að veiðisvæði Selár hefur nú,
með nýjum fiskvegi, verið lengt
um 20 km. Þ. Þ.
DAGUR
fer nú í þriggja vikna sumarfrí
og kemur út eftir verzlunar-
mannahelgina. Því miður bíða
enn aðsendar greinar og verða
einhverjar þeirra líklega fallnar
úr gildi er að þeim kemur.
Einkum eru það löngu grein-
arnar, sem dregst að birta og er
það vinsamleg ósk blaðsins, að
menn stilli máli sínu svo í hóf,
að samrýmst geti okkar alltof
litla blaði. En eins og jafnan
áður, eru lesendur livattir til að
taka þátt í umræðum í blaðinu,
gefa ábendingar og láta vita
um fréttnæma hluti, er livar-
vetna gerast þar sem fólk lifir
og starfar. □
Togarar Útgerðarfélags Akureyringa h.f., fjórir að tölu, hafa skilað miklmn afla á land það sem af er
árinu, þótt komnir séu til ára sinna. Starfsemi Ú. A. hefur skapað mikla og dýrmæta vinnu í bænuml
og verðmætasköpun til útflutnings er einnig mikil. (Ljósm.: E. D.)
SL. LAUGARDAG kom 86
manna hópur Vestur-íslendinga
með flugvél til Keflavíkur. Eru
þeir flestir frá Vancouver og
fararstjórinn dr. Hermann
Marteinsson. Mun ferðafólkið
dvelja hér á landi til 2. ágústs
og ferðast talsvert um landið í
leit að ættingjum og vinum.
Til Akureyrar kemur 25
manna hópur föstudagskvöldið
11. jáh. Nsesta dag verður ferð-
ast um Þingeyjarsýslur en
sunnudaginn 13. júlí verður
hinn árlegi Vestmannadagur á
Akureyri. Hefst hann með guðs
þjónustu í Matthíasarkirkju kl.
10.30 f. h. Séra Pétur Sigur-
geirsson messar og ávarpar gest
ina, en kveðju flytur prófessor
Richard Beck. Eftir hádegi
verða söfnin skoðuð, en kvöld-
verð snæða Vestur-íslending-
arnir í boði Akureyrarbæjar. □