Dagur - 09.07.1969, Blaðsíða 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.L
LANDGRÆÐSLA
HINN nýi sambandsstjóri Ung-
mennafélags íslands, Hafsteinn Þor-
valdsson á Selfossi, hefur frá því sagt,
að samtök ungmennafélaganna
hefðu tekið að sér að dreifa 75 tonn-
um af áburði og tæpum 6 tonnum af
grasfræi á gróðurvana landsvæði víðs
vegar um landið. Þessi störf eru unn-
in í samvinnu við Landgræðsluna og
undir eftirliti hennar, þar sem Ingvi
Þorsteinsson og Ólafur Ásgeirsson
eru leiðbeinendur og skipuleggja
starfið. Landgræðslan leggur til
áburðinn og fræið en ungmenna-
félagarnir gefa sína vinnu. Er nú svo
komið, að á sumum stöðum eru svo
margir sjálfboðaliðar, að áburð og
fræ vantar.
Þessi starfsemi ungmennafélag-
anna hefur vakið þjóðarathygli og er
þess verð, að henni sé þó enn meiri
gaumur gefinn og hún studd dyggi-
lega af einstaklingum og þjóðfélag-
inu í heild.
Vísindalegar rannsóknir þykja
sýna, að í ýmsum landshlutum, er
uppblástur meiri en landgræðsla og
á meðan svo er, stendur þjóðin illa
í ístaðinu. Hin almenna þátttaka
ungmennafélaga í landgræðslustarf-
inu sýnir, að unga fólkið skilur ekki
aðeins vandamálið, heldur sýnir í
verki hvert stefna ber.
í þessu starfi sínu nálgast ung-
mennafélögin á ný eitt af fyrstu
stefnumálum sínum, en nú á raun-
hæfari hátt. Þau hófu snemma bar-
áttu fyrir skógrækt og vel sé þeim
fyrir það og um það bera ýmsir skóg-
arreitir vitni. En svo ágæt sem skóg-
rækt er, og hennar merki ber að
halda hátt á lofti, er ennþá nauðsyn-
legra að hefta gróðureyðinguna og
snúa vörn í sókn og endurheimta
sem mest af fornu gróðurlendi, sem
nú er auðnin ein og örfoka land.
Starf ungmennafélaganna miðar að
því að stækka ísland og gera það
byggilegra, því það er gróður lands-
ins, fyrst og fremst, sem gerir land
okkar byggilegt. Og það er gróður-
inn og gróðurmoldin, sem er dýr-
mætasti auður þjóðarinnar. Á með-
an ungir menn og ungar konur vilja
vemda og auka þann þjóðarauð, og
láta ekki þar við sitja að rétta upp
hönd til samþykkis, en leggja fram
krafta sína í sjálfboðavinnu við land-
græðslustörfin, er ástæða til bjartsýni
um framtíð þessarar kynslóðar. Og
þá er um leið ástæða til aukinnar
bjartsýni um framtíð landsins sjálfs,
gróður þess og gæði. Þökk og heiður
þeim, sem slík verk vinna. □
Þar er ennþá„mörg matarliolan”
Bóndinn á nyrzta byggðu bóli landsins, Sigurð-
ur Haraldsson á Núpakötlu, svarar spurningum
Sindri Jóhanns Konráðssonar hlaut 1. verðlaun alhliða góðhesta og
heldur eigandinn á verðlaunabikarnum. (Ljósm.: Myndver)
- Kappreiðar Léttis við Eyjafjarðará
NÚPSKATLA á Sléttu í Prest-
hólahreppi er talinn nyrzti
byggður bær á íslandi. Þar býr
Sigurður Haraldsson og hefur
búið þar í aldarfjórðung, róleg-
ur maður og traustur að sjá.
Hann leit inn á skrifstofur blaðs
ins einhverra erinda í síðustu
viku og um leið var hann spurð
ur tíðinda af Sléttu, en hann
kvaðst fá kunna.
Fækkar byggðum býlum aust
ur þar?
Á síðasta áratug hafa fjórir
bæir farið í eyði í mínu ná-
grenni og er að því eftirsjá, því
Sigurður Haraldsson.
fólksfæð er þreytandi og hæfi-
lega þétt byggt nágrenni er
nauðsynlegt til að mannlífið
daprist ekki.
Hvemig hefur vorað og sumr
að?
Spretta er miklu betri í út-
haga nú en fyrirfarandi vor, en
túnin eru enn mjög illa farin
eftir síðustu kalái-in og eitthvað
mun einnig af nýju kali. En allt
lítur þetta þó betur út nú.
Sagt er, að eitt af mörgu
bjargræði á Sléttu séu skips-
strönd?
Lítið er um þau nú, segir Sig-
urður, þegar frá er talin Hans
Sif, sem strandaði á Rifstanga í
glaða tunglsljósi og Klausturs-
bræður náðu síðar út. Nú siglir
það skip aftur um höfin. En
1931 strönduðu tveir erlendir
togarar í sama mánuðinum.
Mannbjörg varð þó, eins og oft-
ast áður. Jú, því er ekki að
leyna, að mörg skip hafa lokið
siglingu sinni við þennan út-
skaga, eins og raunar á fleiri
slíkum stöðum hér við land. En
ég held að bændur hafi ekki
lifað á skipsströndum. Fremur
mætti segja, að þeir hafi bjarg-
að mörgum mannslífum og er
það mikill ávinningur út af
fyrir sig.
Hvemig nýtast hin ýmsu
hlunnindi, svo sem varp, sel-
og silungsveiði?
Æðarvarp er minnkandi og
gera bæði minkur og tófa usla
í varplöndum. Minkur komst
núna í Grjótanesvarpið og brytj
aði niður irngana. í vetur voru
fimm minkar, sem komizt höfðu
inn í útihús, drepnir. Skaut ég
þrjá þeirra, tvo heima og einn
á Grjótnesi og aðrir skutu tvo.
Annað kemur einnig til, er varp
inu eyðir. Mikið af æðarfuglin-
um drepst í grásleppunetunum,
sem síðustu ár eru mörg í sjó.
Æðarfuglinn þarf umönnun og
friðun og það borgar sig að
sinna æðarvarpi. En samkvæmt
framansögðu eru skaðvaldarnir
margir og sumir tvífættir. Um
kríuvarpið er það að segja, að
það virðist hverfa á bæjum,
jafn skjótt og fólk yfirgefur þá.
Þannig er það á Rifi og á sömu
leið er að fara á Oddsstöðum.
En silungurinn?
Á Sléttu eru mörg vötn og
silungur í þeim flestum, bæði
bleikja og urriði. í vötnunum á
austanverðri Sléttu er einkum
urriði en bleikja í vesturhlutan-
um. Þetta er góður silungur og
við veiðum hann í net til nokk-
urra nytja.
Og selveiðin?
Af selunum er sorgarsaga.
Gömul og friðlýst selalátur hafa
verið eyðilögð og er þar hvorki
ref né mink um að kenna. Ég
get sagt lítið dæmi um þetta. Nú
í vor lágu 10 selir uppi í vík
einni. Grásleppuveiðimaður
Laugum 29. júní. í gær, 28. júní,
var haldinn í þinghúsinu Breiðu
mýri fundur um virkjunarmál
Laxár í Þingeyjarsýslu.
Áfundinum mættu sem frum
mælendur Sigurður Thorodd-
sen, verkfræðingur, Haukur
Tómasson, jarðfræðingur og
Sigurjón Rist, vatnamælinga-
maður. Knútur Otterstedt, raf-
veitustjóri, Akureyri var fund-
arstjóri.
Sigurður Thoroddsen gerði
grein fyrir áætlunum um bygg-
ingu svokallaðrar Gljúfurvers-
virkjunar í Laxá.
Haukur Tómasson ræddi um
jarðfræðileg atriði í sambandi
við virkjunina, og Sigurjón Rist
skýrði frá breytingum á vatns-
magni og rennsli Laxár, en
framkvæmdir þessar fela í sér,
að vatni úr Suðurá í Ódáða-
hrauni verður veitt um Mý-
vatnssveit til Laxár.
Fundinn sótti margt manna
úr sveitum þeim, sem fram-
kvæmdimar snerta.
Á eftir frummælendum tóku
til máls Ketill Indriðason, Ytra-
Fjalli, Jón Gauti Pétursson,
Gautlöndum, Böðvar Jónsson,
Gautlöndum, Sigurður Þóris-
son, Grænavatni, Páll Magnús-
son, lögfræðingur, Þráinn Þóris
FRAMSÓKNARFÉLÖGIN í
S.-Þing. halda nú hvern fund-
inn af öðrum í sveitum héraðs-
ins og eru margir þeirra aðal-
fundir félaganna. Þar hafa mætt
þingmenn flokksins í kjördæm-
inu, Ingvar Gíslason, Stefán
Valgeirsson og Jónas Jónsson,
sem mætir í stað Gísla Guð-
mundssonar.
Að loknum aðalfundarstörf-
unum og afgreiðslu þeirra mála,
sem fyrir eru tekin, flytja þing-
mennimir stuttar ræður en
fundarmenn bera fram mai'gar
spurningar. Ræður þingmanna
fjalla um lands- og héraðsmál,
en fundarmenn beina umræðum
í margar áttir, svo sem gefur að
skilja og standa umræður jafn-
an fram á nótt.
Þess hefur áður verið getið
hér, að sú eftirtektarverða sam-
þykkt Framsóknarflokksins, að
stefna að prófkjöri í kjördæm-
unum fyrir alþingiskosningar,
verður að byggjast á formleg-
um félagsskap, þar sem stjórn
lagði þá net sín fyrir víkina og
drap alla selina, en þeir ánetj-
uðust. Ásókn sjómanna er hörð
og þegar lög og reglur eru brotn
ar, er ekki von á góðu.
Þú munt hafa fengizt við refa
veiðar?
Já, á Núpsstaðaheiðum. Við
Ingimundur Pálsson unnum í
vor 14 dýr, þar af 4 fullorðin.
Við annað grenið, sem var ný-
flutt í, voru lambaræflar, svo
það var mikilsvert að ná því
greni. Þótt nokkuð sé um refi,
held ég að þeim hafi fækkað á
Sléttu síðustu árin. En minkur-
inn er nýr skaðvaldur.
Ærnar léttar á fóðrum?
Það þótti gott að setja kindina
á einn bagga, en ég hef gefið
helmingi meira af heyi og tölu-
vert kjarnfóður. Það eru komn-
ir aðrir búskaparhættir nú, bet
ur gert við féð en áður var
algengt. En afurðirnar hafa lika
vaxið og nú fá Sléttubændur
eins væna dilka og aðrir og eru
sumarlöndin þó þau sömu, og
son, Skútustöðum, Hermóður
Guðmundsson, Ámesi, Þórólfur
Jónsson, Stórutungu, Dagbjart-
ur Sigurðsson, Álftagerði og
Ingi Tryggvason, Kárhóli.
Báru ræðumenn fram margar
fyrirspurnir til frummælenda
og gagnrýndu harðlega virkj-
unaréætlanir þessar.
Eftirtalin atriði þóttu þeim
einkum ámælisverð.
Tilfærsla Suðurár mundi hafa
í för með sér ófyrirsjáanlega
röskun á búskaparaðstöðu og
náttúruskilyrðum í Mývatns-
sveit.
Þegar virkjunin er fullgerð
myndast um 10 ferkílómetra
uppistöðUlón í Laxárdal. Hlýtur
dalurinn þá að leggjast í eyði og
náttúrufeguið hans að stórspill-
ast.
Vatnsborðshækkun og aukið
rennsli Laxár í Aðaldal breyta
laxveiðiskilyrðum árinnar.
50—60 metra há jarðvegs-
stífla í Laxárgljúfrum hefur í
för með sér hættu á eyðileggj-
andi flóði í Aðaldal, ef stóran
jarðskjálfta ber að höndum.
Frummælendur svöruðu fyrir
spurnum í fundarlok en fundur
inn stóð frá því fyrir kl. 10 f. h.
fram yfir kl. 14 um daginn.
Einmitt á þeim tíma hófst ráð-
er kjörin og félagaskrá liggur
fyrir, svo hvorugt sé véfengt.
En umræðuefni þessara funda
auk aðalfundarstarfa eru svo
margvísleg að vart verður tölu
á komið. Skal hér þó nefna raf-
væðingu, virkjun Laxár og
hættu af þeim ráðagerðum, að
sameina fleiri ár, samgöngu- og
vegamál, iðnaður og svo að
sjálfsögðu landbúnaðarmálin,
sem í sveitum eru jafnan mál
málanna.
Auk þeirra funda, sem áður
var getið, í síðasta blaði, var
aðalfundur Framsóknarfélags-
ins í Bárðardal haldinn 1. júlí
í barnaskólanum og var hann
vel sóttur og sátu hann, auk
bænda og bændasona, allmarg-
ar konur. Fundarstjóri var
Þórólfur Jónsson, Stórutungu.
Stjóm félagsins skipa: Þórólfur
Jónsson, Gunnlaugur Guð-
mundsson, Hrappsstöðum og
Þorsteinn Jónsson, Bjarnastöð-
um.
(Framhald á blaðsíðu 2)
nú þykir ekki mikið að fá 70—
80% af ánum tvílembdar.
Það mun enn mörg matar-
holan á Sléttu, eins og einu
sinni var sagt, og nú eru bjarn-
dýr hætt að ganga þar á Jand?
Já, bjarndýr hafa ekki gengið
á land þar nú. En þeirra getur
alltaf verið von þegar ísinn kem
ur nálægt landinu. Árið 1918
voru þrjú bjarndýr skotin á
hlaðinu á Núpskötlum. Við höf
um ekki bjarndýrafeldi að selja,
heldur aðeins refa- og minka-
skott, sem greiddar eru 350 kr.
fyrir, nema yrðlingaskottin, 200
kr. En um hinar „mörgu matar-
holur“, eins og sagt var, má
segja, að þær séu enn til, þrátt
fyrir þær dekkri hliðarnar, sem
ég hef nokkuð lýst, segir Sig-
urður Haraldsson, og hefur nú
ekki lengri tíma aflögu til að
spjalla, því erindi í bænum eru
enn óleyst og ýmsu að sinna á
stuttri ferð. Þakka ég svo við-
talið og er ákveðnari í því en
áður að aka kring um Sléttu í
björtu veðri, skoða Rauðunúpa,
líta á veiðivötnin mörgu og allt
það annað, sem ber fyrir augu
ferðamanns. E. D.
stefna um náttúruvernd á Norð
urlandi í Laugaskóla. Lá leið
allmargra fundarmanna beint á
ráðstefnuna, enda bar virkjunar
mál þessi á góma þar. G. G.
Jafnframt skorar fundurinn á
Náttúruverndarráð og mennta-
málaráðherra, að unnið verði
ötullega að því, að sett verði á
stofn, föst, alhliða náttúrurann-
sóknastöð við Mývatn.“
Að lokum samþykkti fundur-
inn að stofna samtök um nátt-
úruvernd á Norðurlandi, og rit-
uðu flestir fundarmanna sig inn
sem félagar. Samþykkt var að
kjósa bráðabirgðastjórn, er skip
uð væri þremur mönnum, og
skyldu þeir gangast fyrir öðr-
um fundi um sama efni í vestur
héruðum Norðurlands, ogsemja
uppkast að reglum fyrir sam-
tökin, er síðan yrðu lagðar fyrir
framhaldsstofnfund á Akureyri.
Þessir menn voru tilnefndir í
stjórnina, með eim'óma sam-
þykki fundarmanna: Helgi Hall
grímsson safnvörður, Jóhann
Skaptason sýslumaður og Hjört
ui' Eldjárn Þórarinsson bóndi.
Um 40 manns sátu fundinn
þegar flest var, og voru Þing-
eyingar þar í meirihluta.
Á sunnudaginn kl. 10 f. h.
hófst fundur um náttúruvemd
og landsnytjar. Framsögumenn
voru þeir Hjörtur E. Þórarins-
son, Jóhannes Sigvaldason og
Hallgrímur Indriðason. Auk
þess flutti Jónas Jónsson ráðu-
nautur ýtarlegt erindi, og las
m. a. ályktun, sem gerð hafði
verið um náttúruvei-nd á Bún-
aðarþingi nýiega. Fjörugar um-
ræður urðu einnig um þetta
efni, og lauk fundi um kl. 12.30.
Fundurinn samþykkti eftir-
farandi tillögu:
„Fundur áhugamanna um
náttúruvemd, haldinn að Laug-
um í S.-Þing., dagana 28.—29.
júní 1969, lýsir áhyggjum sínum
yfir hömlulausri *otkun nýrra
þvottaefna og annarra efna, er
valdið geta stórtjóni á lífi í ám
og vötnum landsins. Fyrir því
skorar fundurinn á rétt yfirvöld
landbúnaðar- og heilbrigðis-
mála, að láta hið fyrsta setja
lög um eftirlit með innflutningi
og framleiðslu slíkra efna,
þannig að sala þeirra í landinu
verði óheimil, fyrr en öruggt er
fékk sérstakan bikar, sem bezta
hryssan í hópi gæðinganna.
Blíða er 9 vetra, jörp, eyfirzk.
Þriðji í röðinni varð Skjóni
Sigurlaugar Stefánsdóttur.
Folahlaup.
í 250 metra folahlaupi sigraði
Fengur Jóhanns M. Jóhanns-
sonar á 22.0 sek. Annar varð
Lýsingur Zophoniasar Jóseps-
sonar á 22.3 sek., og þriðji Bliki
Ragnars Stefánssonar á 22.6
sek.
300 niefra stökk.
Fyrstur varð Mökkur Hólm-
geirs Valdimarssonar á 24.5 sek.
talið, að þau séu skaðlaus vatna
lífi.“
Um kl. 2 s. d. var lagt af stað
í náttúruskoðunarferð í Mý-
vatnssveit. Um 30 manns tóku
þátt í ferðinni, þrátt fyrir óhag-
stætt veður. Aðalleiðbeinendur
voru þeir Jóhannes Sigfinnsson,
Grímsstöðum og Þorgeir Jakobs
son frá Brúum.
Ráðstefnunni var slitið um
kvöldið í Reynihlíðarhótelinu.
(Fréttatilkynning )
var valið nafnið „Sólborg“, taki
að einhverju leyti til starfa í
haust.
Frk. Júdit Jónbjörnsdóttir
kennari á Akureyri hefur nú
stofnað sjóð með 100.000.00 kr.
framlagi, og er hann til minn-
ingar um frú Signýju Hjálmars-
dóttur, Bergi, Aðaldal, og ber
heitið „Vinarhöndin“. Tilgang-
urinn með sjóðnum er sá, að
styrkja starísemi heimilisins og
allt er lýtur að menntun og
þroska vistmanna, svo og kaup
á tækjum o. fl. til heimilisins.
Til stuðnings þessum sjóði
leitum við til félaga, stofnana
og einstaklinga á Norðurlandi
um fjárframlög, er mættu verða
til þess að sjóðurinn gæti sinnt
hlutverki sínu sem allra fyrst,
en á því er mikil nauðsyn, þar
eð kaupa þarí ýmis áhöld, vélar
og tæki til nota á heimilinu
þegar það tekur til starfa.
í trausti' þess að almennur
skilningur sé fyrir hendi á Norð
urlandi og víðar á málefni þessu
og rekstri „Sólborgar'1, viljum
við undirritaðir vekja athygli
sem allra, flestra á sjóði þessum
og hvetja félög, stofnanir og
einstaklinga til þess að láta eitt
hvað af hendi rakna til hans, —
rétta „Vinarhöndinni“ vinar-
hönd.
Stjórn Styrktarfélags vangef-
inna á Akureyri veitir framlög-
um í sjóðinn viðtöku, svo og
undirritaðir. Einnig hafa bæjar-
Annar Lýsingur Huga Kristins-
sonar á 25.4, og þriðji Hringur
Jóseps Zophoniasarsonar á 25.5
sek.
350 metra stökk.
Fyrstur varð Lýsingur Björns
Mikaelssonar á 28.9 sek., annar
og þriðji á 29.0 sek. urðu Skjóni
Sigurlaúgar Stefánsdóttur og
Perla Alfreðs Arnljótssonar. □
Blossi, beztur klárhestur nieð
tölti. Eigandi Jónas Ó. Egilsson,
en faðir hans, Egill Jónasson,
beldur í hestinn. (Myndver)
blöðin góðfúslega lofað að taka
við gjöfum til hans.
Akureyri, 28. maí 1969.
Með vinsemd og virðingu.
Jóhann Þorkelsson,
læknir (form. Sólborgar).
Jón Ásgeirsson,
varaformaður Einingar.
Arnfinnur Arnfinnsson,
hótelstjóri.
Hafliði Guðmundsson,
formaður Verzlunar- og
skrifstofufólks, Akureyri.
Jón Ingimarsson,
formaður Iðju.
Sigurður Ólason,
læknir.
Gísli Konráðsson,
f ramkvæmdastj óri.
Árni Bjöm Ámason,
vélvirki.
Hulda Þórarinsdóttir,
félagsforingi „Valkyrj-
unnar“.
Ingólfur Ármannsson,
félagsforingi Skátafélags
Akureyrar.
Þóroddur Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Ung-
mennasamb. Eyjafjarðar.
Fundur á Breiðumýri um virkjunarmál
MARGIR FRAMSÓKNARFUNDIR
- Samtök stofnuð um náttúruvernd
■ Styðjum vistheimili vangefinna
Fréttatilkynning frá sfjóm Sjúkrahússins í Húsavík
VEGNA athugasemda í blöðum
frá hr. Daníel Daníelssyni lækni
um læknamálin í Húsavík vill
stjórn Sjúkrahússins í Húsavík
taka fram eftirfarandi:
Stjórnin hefir engar upplýs-
ingar gefið út á við um lækna-
málin í Húsavík, og mun bíða
enn um sinn með að gera það,
þar sem hún hefir til þessa talið
málið snerta málsaðila fyrst og
fremst.
Hinsvegar mun stjórnin að
sjálfsögðu birta almenningi um
gang mála frá byrjun, hefji
læknai' eða aðrir frekari skrif
um málið .
Þó telur stjórnin rétt, að al-
menningi sé gerð kunn marg-
umrædd reglugerð um störf
lækna við Skjúkrahúsið í Húsa
vík, er samin var með aðstoð
fulltrúa frá Læknafélagi ís-
lands, yfirlækni Sjúkrahússins
á Akranesi og framkvæmda-
stjóra Borgarsjúkrahússins, er
Landlæknir mæltist til að að-
stoðaði stjómina við gerð henn-
ar. Síðan var reglugerðin borin
undir stjórnarmenn Lækna-
félags íslands fyrir milligöngu
formanns þess, áður en hún
hlaut staðfestingu. Eftir ýtar-
lega athugun hjá heilbrigðis-
MINNING
ÞEGAR mér barst sú fregn að
hún Rósa væri horfin sýnum
fylltist hugur minn söknuðj og
það var erfitt að vita sæti henn_
ar autt. Ég trúði því varla að ég
ætti aldrei eftir að fá að sjá
hana, með hlýlega brosið sitt og
bjai'ta blikið í augunum — blik
ið, sem langvarandi heilsuleysi
og margþættri reynslu hafði
eigi tekizt að slökkva.
Rósa var fíngerð kona og
rframkoma hennar var mótuð af
góðvild og hógværð, hún var
glaðleg og glettin í tilsvörum og
við sem kynntumst henni hlut-
um að finna að það var einkenn
andi fyrir hana hvað fylgdi
henni mikil gleði, hún var vel
gefin, hafði sérstaklega ánægju
SVO sem fram hefur komið í
fréttum kannar Flugfélag ís-
lands nú áhuga bænda fyrir að
selja erlendum ferðamönnum
gistingu og beina. Ennfremur
kannar félagið hvort eigendur
sumarbústaða hafi áhuga á að
leigja bústaði sína erlendum
ferðamönnum um lengri eða
skemmri tíma. Þótt könnun
þessi sé á frumstigi er þegar
ljóst að verulegur áhugi á þess-
um málum er fyrir hendi.
Á vorfundi Flugfélagsmanna
sem haldinn var í Skotlandi í
marz sl. kom fram að skrifstofa
félagsins í Frankfurt hafði feng
ið margar fyrirspurnir frá ferða
skrifstofum og einstaklingum
varðandi leigu á sumarbústöð-
um á íslandi. Gunnar Jóhanns-
son fulltrúi félagsins í Þýzka-
landi taldi að þarna gæti orðið
um verulegan fjölda ferða-
manna að ræða, en sem kunn-
ugt er tíðkast það mjög í
Evrópu að fjölskyldur taki litla
bústaði á leigu og eyði þar sum
arleyfinu. Af svörum og fyrir-
spurnum sem Flugfélagið hefur
fengið undanfarna daga er Ijóst
að margir eigendur sumarbú-
málaráðuneytinu var svo neðan
skráð reglugerð staðfest af ráð-
herra hinn 11. apríl sl. starfandi
læknum við sjúkrahúsið að
sjálfsögðu til eftirbreytni.
REGLUGERÐ
um störf lækna við Sjúkrahúsið
í Húsavík.
1. gr.
Yfirlæknir sjúkrahússins er for
maður læknaliðs þess. Hann
hefui' réttindi og starfsskyldur
samkvæmt sjúkrahúsalögum,
en auk þess skal hann skipu-
leggja heilbrigðisþjónustu spítal
ans og hafa eftirlit með starfs-
liði, er að henni stafar. Hann
tekur við beiðnum um innritun
nýrra sjúklinga og stuðlar að
hagræðingu í daglegum rekstri.
Hann ber ábyrgð á heilbrigðis-
þjónustu sjúkrahússins gagn-
vart sjúkrahússtjóm.
2. gr.
Yfirlæknir og aðrir læknar, sem
ráðnir eru að sjúkrahúsinu,
skipa samstarfsnefnd, er sé ráð-
gefandi fyrir stjórn sjúkrahúss-
ins um allt, er varðar læknis-
þjónustu, samstarí og samhæf-
ingu starfskrafta. Hún skal
af bundnu máli og var sjálf
prýðisvel hagmælt.
Fyrir nokkrum árum gekk
hún í st. Ísafold-Fjallkonan
nr. 1. Þar kynntist ég henni
fyrst. Það var gott að starfa með
henni þar, maður fann að henni
þótti vænt um stúkuna og að
hún vildi styrkja þann félags-
skap af alhug. En við andlát
hennar er hlekkur brostinn. Við
höfum misst mikið, en ástvin-
irnir meira og ég votta þeim
dýpstu samúð.
Rósa mín, nú ert þú horfin
sjónum okkar yfir móðuna
miklu, til bjartari landa.
Ég sendi þér mína hinztu
kveðju og þakklæti.
staða eru fúsir til að leigja bú-
staði sína annaðhvort allt sum-
arið eða þá tíma, sem þeir ekki
nota þá sjálfir fyrir sig og fjöl-
skyldur sínar. Farskrárdeild fé-
lagsins sem Gunnar Hilmarsson
veitir forstöðu sér um þessar
athuganir og er deildinni nú
þegar kunnugt um allmarga bú
staði á Suður- og Suðvestur-
landi, sem verða til leigu. Þegar
þetta er skrifað hafa ekki verið
boðnir fram bústaðir í öðrum
landshlutum en þess ber að geta
að mjög stutt er síðan könnun
hófst.
Á Ferðamálaráðstefnu sem
haldin var í Reynihlíð við Mý-
vatn sl. vor benti Gísli Sigur-
björnsson forstjóriá þá mögu-
leika, sem skapast gætu af tæk-
ist að koma á gistingu erlendra
ferðamanna á sveitabæjum svo
sem nú tíðkast í Skandinavíu og
víðar í Evrópu. Flugfélagsmenn
ákváðu að kanna áhuga bænda
á þessu máli og stendur sú
athugun nú yfir. Fá svör hafa
enn borizt frá bændum en
nokkrar fyrirspurnir hefur
deildin fengið.
(Fréttatilkynning)
stuðla að þróun í starfsemi
sjúkrahússins, þjónustugæðum,
menntun lækna og annars starfs
liðs. Samstarfsnefnd ber ábyrgð
á því að staðli um læknisþjón-
ustu sjúkrahúsa, ef settur verð-
ur, sé fylgt. Yfirlæknir er
málsvari samstarfsnefndar gagn
vart sjúkrahússtjórn.
3. gr.
Samstarfsnefnd heldur fundi
daglega, þegar þess er kostur og
ekki sjaldnar en 2—3 í viku. Á
þessum fundum verði m. a. fjall
að um eftirfarandi atriði:
a. Skýrsla um síðustu vakt
(vaktir).
b. Greint sé frá innritun bráðra
sjúkdómstilfella í sjúkrahús-
ið.
c. Rætt um sjúkdómsgreiningu
og meðferð sjúklinga á
sjúkrahúsinu og ávallt skýrt
frá breytingum á meðferð.
d. Rædd sérstök sjúkdómstil-
felli, valin daginn áður eða
með lengri fyrirvara.
e. Ákvörðun um stundun sjúkl
inga, þ. á. m. hvaða læknir
skuli aðallega annast með-
ferð „akut“ innlagðs sjúkl-
ings (sjúklinga) frá síðasta
fundi nefndarinnar.
f. Væntanlegar útskriftir sjúkl
inga.
g. Væntanlegar inm'itanir sjúkl
inga.
4. gr.
Um verkaskiptingu lækna í
sjúkrahúsinu og skiptingu sjúkl
inga milli lækna fer eftir sam-
komulagi þeirra og/eða reglum,
er sjúkrahússtjórn setur, að
fengnum tillögum samstarfs-
nefndar. Innritun bráðra sjúk-
dómstilfella og fyrstu meðferð
annast vakthafandi læknir og
gerir sjúkraskýrslu. Innritun
sjúklinga af biðlista skal, sé
þess kostur, ákveðin með nokkr
um fyrirvara og hvaða læknir
skuli annast hann öðrum frem-
ur. Stefnt sé að því að þau hlut-
föll, sem samkomulag næst um
varðandi starfssvið og skiptingu
sjúklinga milli lækna, raskist
sem minnst a. m. k. ekki um
lengri tíma. Útskrift sjúklings
og ritun læknabréfs annast sá
læknir, sem aðallega hefur
stundað sjúklinginn.
5. gr.
Stofugang að morgni annast
astl æknar saman og kynnast
meðferð sjúklinga hver annars.
Kvöldstofugang annast vakt-
hafandi læknir.
6. gr.
Læknar sjúkrahússins gegna
störfum yfirlæknis í fjarveru
hans skv. ákvörðun sjúkrahús-
stjórnar, að fengnum tillögum
samstarfsnefndar.
7. gr.
Reglugerð þessi kemur til fram
kvæmda strax, að því leyti sem
aðstæður leyfa að mati sjúkra-
hússtjómar, en að öllu leyti eigi
síðar en 1. apríl, 1970. ^
Reglugerð þessi, sem samin
er og samþykkt af stjórn Sjúkra
hússins í Húsavík, staðfestist
hér með samkv. 3 mgr. 2 grein
sjúkrahúsalaga nr. 54/1964 til
þess að öðlast gildi þegar í stað
og birtist eftirbreytni öllum
þeim, sem hlut eiga að máli. •
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
11. apríl 1969. ;;
Jóhann Hafstein, jj
Jón Thors.
Rósa Jóna Sumarliðadóífir
E. S.
VILJA BÆNDUR OG EIGENDUR SUMAR-
BÚSTAÐA LEIGJA ERL. FERÐAMÖNNUM?