Dagur - 05.11.1969, Síða 2
ÆSIÍAN 70 ARA
r r
Utbreiddasta barnablað á Islandi
I>eir L. Heijnen til vinstri og J. Collart til hægri með PZ 2000 á milli sín. (Ljósm.: Þorv. Ásgeirsson)
í lok spjallsins sögðu þeir
félagar að bændur landsins
ættu eftir að finna mikinn mun
á vélareksturskostnaði sínum
með því að nota í auknum mæli
vélar frá PZ. Þrátt fyrir að
sláttuþyrla er dýrari í stofn-
kostnaði kemur munurinn fljótt
fram á minni reksturskostnaði,
og mætti finna dæmi um að bú-
ið væri að slá hátt á annað
hundrað hektara með einni
sláttuþyrlu án þess einu sinni
að þurfa að endurnýja hnífa.
Sömu sögu væri að segja um
heyvinnuvélarnar, sérstaklega
band-, múga_ og snúningsvél-
ina PZ 2000 og 2400, sem væri
ákaflega einföld að gerð sinni
og með réttri notkun þyrfti sára
lítið víðhald samanborið við
önnur tæki til sömu hluta. Þetta
hlytu bændur að finna og meta
°g hyggja þeir gott á samstarf
við bændur, kaupfélögin og
Samband íslenzkra samvinnu-
félaga varðandi viðskiptin. □
SEINT í septembermánuði voru
hér á ferð góðir gestir frá
Hollandi. Þetta voru þeir Hr. J.
Collart og Plr. L. Heijnen frá
P. J. Zweegers & Zonen í
Geldrop í Hollandi.
P. J. Zweegers eru vélafram-
leiðendur og framlieða m. a. fyr
ir ísland, síáttuþyrlur, heyþyrl-
ur, band-, múga- og snúnings-
vélar og áburðardreifara.
Framleiðslan á sér stað í
þrem verksmiðjum í Hollandi
og telja þeir alla vélafram-
leiðslu sér viðkomandi svo
fremi að eftirtöldum grundvall-
aratriðum sé fylgt:
1. Vélin vinni ofanjarðar
(þeir framleiða sem sagt engin
jarðgangandi tæki, svo sem jarð
vinnsluvélar).
2. Vélai-nar séu viðráðanlegar
meðalstórum og minni búum og
fari ekki upp fyrir ákveðið há-
marksverð.
Flatarmál verksmiðjanna er
um 25 þús. ferm. og um 550
manns í þjónustu þess. Eins eru
þeir með nýja verksmiðju á
Nýja Sjálandi og eru vélar
þeirra framleiddar gegn leyfi í
Bretlandi, V.-Þýzkalandi og
Japan.
SLÁTTUÞYRLAN.
Mesta athygli af framleiðslu
P. Z. hérlendis hefur sláttu-
þyrlan vakið. Búvéladeild SÍS
héfur unnið að prófunum og
innflutningi á sláttuþyrlu síðan
1965 og er nú búið að slá með
sumum vélanna yfir 700 hekt-
ara lands. Vélin hefur reynzt
mjög vel og voru í sumar alls
um 200 vélar í notkun. Nú eru
framleiddar fjórar gei'ðir af
sláttuþyrlu:
Vinnu-
Gerð. breidd.
PZ CM-135 2ja tromlu 135 cm.
PZ CM-4 4ra tromlu 152 cm.
PZ CM-165 2ja tromlu 165 cm.
PZ FM-215 4ra tromlu 223 cm.
Síðast talda vélin PZ FM-215
tengist framan á traktorinn og
afkastar 3—5 hekt/klst.
HEYVINNUVÉLAR.
PZ verksmiðjurnar hafa selt
hérlendis heyþyrlur, bæði 2ja,
4ra og 6 stjörnu, auk þess sem
nú kemur á markaðinn ný hey-
þyrla, sem í senn rakar og snýr.
Rakstrar- og snúningsvélarnar
PZ 2000 og 2400, sem sýndar
voru á Landbúnaðarsýningunni
sl. sumar og hafa verið í prófun
síðan, sýna mjög athyglisverðan
árangur. Er sjáífsagt fyrir bænd
ur að kynna sér vel árangur
með vél þessa, því hún er í senn
einföld, afkastamikil og ódýr
um leið og hún gegni prýðilega
framangreindum hlutverkum.
Hér virðist því hafa tekizt að
sameina í eina vél, vél sem get-
ur:
1. Rakað ágætlega jafnt í
þurru heyi sem votheyi.
2. Dreift vel úr múgum.
3. Snúið heyi sambærilega við
heyþyrlur.
ÁBURÐARDREIFARAR.
PZ verksmiðjui'nar framleiða
þyrildreifara,. sem ekki hafa enn
náð neinni verulegri útbreiðslu
hérlendis vegna óhagstæðrar
kornunar áburðai ins. Hins veg-
ar kemur nú á markaðinn nýr
áburðardreifari, mjög athyglis-
verður fyrir tilbúinn áburð með
5 metra dreifibi-eidd, en í flutn-
ingsstöðu er breiddin aðeins
rúm breidd traktorsins. Fyrir
utan mikil afköst og stóra vinnu
breidd þessa dreifara virðist
sem engir hlutir hans hafi
ástæðu til að geta slitnað, né
ryðgað því flestir snertihlutir
áburðarins eru úr nylon og hlið
stæðum efnum, sem ekki tær-
ast. Þeir félagar ferðuðust dá-
lítið um landið og athuguðu
legu og gróðurskilyrði landsins
gagnvart notkun ofangreindra
véla, en vegna óhagstæðra veð-
urskilyrða urðu þeir að hætta
við ferð til Norðurlands.
ÞAÐ voru merkileg tímamót,
þegar ÆSKAN hóf göngu sína
5. okt. árið 1897. Með útgáfu
hennar var fyrir alvöru farið að
viðurkenna hér á landi þá þörf,
að börn og unglingar fái lestrar
efni við sitt hæfi. Tildrög að út-
gáfu hennar voru þau, að Þor-
varði Þorvalrðssyni, stórgæzlu-
manni ungtemplara, höfðu bor-
izt óskir frá ýmsum Góðtempl-
arastúkum um að Stórstúkan
gæfi út barnablað „til eflingar
bindindi, góðu siðferði, framför
um og menntun unglinga yfir
höfuð.“ Stórstúkan veitti til fyr
irtækisins 150 kr. og Æskan
hljóp af stokkunum undir stjórn
Sigurðar Júl. Jóhannessonar.
Ritstjórinn var vinsælt skáld,
einkum meðal æskulýðsins, og í
för með sér valdi hann fræga rit
höfunda af Norðurlöndum, svo
sem H. C. Andersen, ævintýra-
skáldið danska, og Zaharias
Topelius, hið finnska skáld. En
sögur og ævintýi þessara skálda
urðu mjög vinsæl hér á landi
eins og annars staðar. Það var
því auðséð, að Æskan mundi ná
vexti, hún dafnaði ár frá ári. Þó
urðu ýmsir örðugleikar á vegi
hennar, svo að hún svaf Þyrni-
rósarsvefni í tvö ár, árin 1909 og
1920, vegna pappírsskorts. Hún
er í raun og veru 72ja ára, en
þessi tvö ár, sem hún svaf, telur
hún ekki í ævi sinni og heldur
því 70 ára afmæli sitt hátíðlegt
á þessu hausti.
Það sýnir bezt, hve mikilla
vinsælda Æskan nýtur meðal
æsku landsins, að blaðið er í
dag prentað í 16 þúsund eintök-
um, og mun láta nærri, að 75000
manna lesi það. Mun þetta vera
hæsta kaupendatala, sem nokk-
urt barnablað hefur nokkru
sinni haft hér á landi og met á
öllum Norðurlöndum hjá barna
blaði, þegar miðað er við fólks-
fjöldann.
Árið 1930 hóf Æskan útgáfu á
unglingabókum sínum og hefur
gefið út síðan yfir 170 bækur.
Bækur Æskunnar hafa jafnan
átt miklum vinsældum að fagna
meðal barna, enda hefur ekkert
verið sparað til að gefa út svo
góðai' og vandaðar bækur að frá
gangi, sem bezt má verða.
Fyrsta bókin, sem Æskan gaf
út, var Sögui' Æskunnar eftir
Sigurð Júl. Jóhannesson, fyrsta
ritstj. blaðsins. Á þessu hausti
mun blaðið gefa út 8 bækur
fyrir börn og unglinga.
Eins og áður er sagt kom
fyrsta tölublað Æskunnar út 5.
okt. árið 1897. Var það blað í
mjög litlu broti og aðeins 4 síð-
ur að stærð, en nú er hvert blað
milli 50 og 60 blaðsíður og auk
þess farið að prenta það í litum
í offsetprentvél.
Æskan er nú stærsta og fjöl-
breyttasta barna- og unglinga-
blaðið á íslandi. Hún flytur
ávallt mikið af hollum fróðleik,
innlendum og erlendum, og
öðru skemmtilegu lestrarefni
við hæfi barna og unglinga.
Margir þjóðkunnir menn hafa
haft með höndum ritstjórn Æsk
unnar í þessi 70 ár, en síðustu
12 árin hefur Grímur Engilberts
annazt ritstjórnina, en framkv.
stjóri er Kristján Guðmundsson
og útbreiðslustjóri Finnbogi
Júlíusson. □
SJALDGÆFT TÆKIFÆRI
BLAÐIÐ hefur fregnað, að í
stórbyggingunni Amaro á Akur
eyri sé heil hæð laus og til leigu.
TONLEIKAHALD A AKUREYRI
(Framhald af blaðsíðu 4)
vara þannig að hæfilegur tími
næði að líða á milli og ekkert
rækist á. í Akureyrarkirkju
ættu a. m. k. einir orgeltónleik-
ar að vera árviss viðburður. Það
þyrfti elcki ævinlega að leita
ýkjalangt til fanga. Við eigum
ýmsa góða listamenn í röðum
íslenzkra orgelleikara.
í annan stað sýnist hér eðli-
legt að gera ráð fyrir því, að í
kirkjunni gætu árlega farið
fram tónleikar þar sem flutt
Tvímenningskeppni B. A. er lokið
Sveitakeppni hefst 11. nóvember næstkomandi
TVÍMENNINGKEPPNI B. A.
lauk sl. þriðjudagskvöld. Spil-
aðar voru 4 umferðir. Keppnin
var hörð og mjög skemmtileg.
Bræðurnir Ármann og Halldói'
Helgasynir sigruðu, annars er
röð efstu manna þessi: stig
1. Ármann — Halldór 977
2. Hörðui' — Ragnar 972
3. Mikael — Sigurbjörn 935
4. Dísa — Rósa 932
5. Guðm. — Haraldur 909
6. Gunnl. — Magnús 906
7. Alfreð — Guðm. 871
8. Soffía — Angantýr 870
9. Júlíus — Sveinn 869
10. Oðinn — Adam 865
11. Baldur — Sveinbjörn 859
12. Pétur — Sigurður Oli 855
13. Karl — Rafn 855
Meðalárangur út úr keppn-
inni voru 840 stig, spilað var í
tveim 16 para riðlum.
Siglfirzkir bridgemenn komu
í heimsókn til Akureyrar fyrir
skömmu og spiluðu við heima-
menn, er þetta árleg bæjar-
keppni. Siglfirðingar sigruðu,
hlutu 97 stig gegn 81. Þrjár
sveitir spiluðu frá hvorum
aðila.
Næsta keppni Bridgefélags
Akureyrar, sveitakeppni, hefst
þriðjdaginn 11. nóvember. Spil-
að verður bæði í meistaraflokki
og 1. flokki, og er öllum heimil
þátttaka. Tilkynna þarf þátt-
töku til stjórnar B. A. ekki
seinna en 10. nóvember. Spilað
verður að Bjargi á þriðjudags-
kvöldum kl. 8.
væri kirkjutónlist frá ýmsum
tímum. Af nógu er að taka, og
væri sömuleiðis miðað við, að
flytjendur væru bæði söngvarar
og hljóðfæraleikarar.
Það er kunnara en frá þurfi
að segja hver vinna liggur að
baki tónleikum sem þeim, er
nefndir voru í upphafi þessa
spjalls.
Það sýnist vera heldur slæm
nýting á góðum kröftum, að
einungis einn staður á landinu
verði aðnjótandi. Framtak þessa
tónlistarfólks er í hæsta máta
lofsvert m. a. fyrir þær sakir,
að kirkjutónlist skipar hér á
landi hvergi nærri þann sess,
sem henni ber, innan ramma
venjulegs tónleikahalds. Einnig
hefur það komið glöggt í ljós,
að tímabil hinnar merkilegu
baroktónlistar hefur verið mjög
afrækt á efnisskrám tónleika.
Hafa ýmsir þeir, sem um tón-
listarmál rita þai' syðra einmitt
bent á þetta. Svo vikið sé aftur
að okkar málum hér nyrðra,
væri fróðlegt að frétta af því,
hvort mönnum finnst ekki, að
einhverra úrbóta sé þörf í tón-
listarmálum okkar hér á staðn-
um, hvort mönnum sýnist ekki
rétt að fara nú að hugsa til
skipulagðra framkvæmda í
þeim efnum.
Eða eigum við að halda áfram
að hjakka í sama fari deyfðar
og stefnuleysis í tónlistarmál-
um?
~ Kunna menn því farinu bezt?
S. G.
Hér í bæ er mikið um það rætt,
að unglingar innan 18 ára ald-
urs hafi miður góða aðstöðu til
tómstundastarfa og skemmtana
halds, þótt nokkuð hafi verið
unnið í þá átt.
Til athugunar væri fyrir bæj-
arfélagið eða aðra sterka aðila,
að leita efth' leigu í nefndu hús-
næði til að bæta úr þessari þörf.
Mætti hugsa sér samkomuhald
þar undir ströngu eftirliti fyrir
vissa og tiltekna aldursflokka í
senn, og þar yrði að sjálfsögðu
að útiloka vín algerlega. Þar
væri hægt m. a. að halda skóla-
dansleiki o. s. frv.
Auk þessa virðist þetta hús-
næði geta þjónað sýningaþörf-
um og öðrum, sem ekki eru
bundnar unglingum.
Vera má, að bæjarfélagið,
með sitt æskulýðsráð gæti haft
samvinnu um húsnæðið við
ýmis félög í bænum, einkum
félög ungs fólks, sem sjálf gætu
í senn verið veitendur og þiggj-
endur í þeirri tilraun í menn-
ingarátt, sem þarf að vera fyrsta
boðorðið í auknu æskulýðs-
starfi.
Urn kostnaðarhliðina verður
ekki rætt hér. En eflaust er
slíkt húsnæði og hér um ræðir,
dýrt. Dýrt er einnig að búa við
þá aðstöðu, sem ekki mætir
þeirri þörf, er kallar á úrbætur
í félagslegri aðstöðu unga fólks-
ins, sem viðurkennt er að koma
þurfi. Og það er e. t. v. dýrara
en allt annað.
Dagur væntir þess eins í
þessu máli, að nefndir mögu-
leikar séu nú þegar athugaðii',
því óvíst er, að annað svipað
tækifæri bjóðist í bráðina. Þá
má dæma hugmyndina úr leik,
þegar helztu staðreyndir liggja
fyrir, ef neikvæðar eru. Q