Dagur - 29.04.1970, Side 2
2
KA-HLAUPIÐ 1970 fór fram
sunnud. 19. apríl sl, við Gagn-
fræðaskólaiin. Keppendur voru
allt um 150 eg. er það. ejttisvert
fjölmennasta ;rnót sem f; am h.ef
ir farið hérlendis. Keppendur
fæddir 1960—1903 hlupu um
800 m. vegalengd en eldri flokk
ar, fæddii' 1956—1959, hlupu
um 1100 m.
Helztu úrsjit:
Drengir f. 1959. mín.
Stefán Ægisson, Dalvík 4.20
Stúlkui'f. .1959. mín.
Ragna Karlsdóttir 4.44
Drengir f. 1960. mín.
Friðjón Jónsson 3,15
Stúlku'r f. 1960. mín.
Sígríður Jónsdóttir 4.20
Drengir f. 1961. mín.
Gunnar: Gíslason 3.27
Stúlkur f. 1961. mín.
Agnes Skúladóttir 4.42
Drengir f. 1962. mín.
Guðm. B. Guðmundsson 3.50
Stúlkur f. 1962. mín.
Þórhildur Sveinsdóttir 4.12
Drengir f. 1963. mín.
Björn Berg Gunnarsson 4.16
Stúlkur f. 1963. mín.
Nanna Leifsdóttir 4.22
ANNAR úrslitaleikur um sæti
í 1. deild fer fram rnilli KA og
ÍR í íþróttaskemmunni á Akur
eyri n. k. laugardag og hefst
keppnin kl. 4 e. h. — KA tap-
aði illa fyrir ÍR í Laugardals-
höllinni um sl. helgi, og áttu
KA-menn slæman dag, þar sem
vörnin brást og markvarzlan
var afar slöpp, og er þetta einn
slakasti leikur KA í ve-tur. ÍR-
liðið átti frábæran leik, en þess
ber þó að gæta að mótstaðan
var lítil.
Þessi leikur KA og ÍR verður
trúlega síðasti leikurinn í
íþróttaskemmunni á þessu
Drengii' f. 1956. mín.
Sveinn Ævarr Hauksson 4.09
Stúlkur f. 1956. mín.
Ásdís Harajdsdóttir 4.51
Drengir f. 1957. mín.
Hilrpar Malmquist 4.03
Stúlkur f. 1957. mln.
Kristín Jónsdóttir 4.34
Drengir f. 1958. mín.
Ottó Leifsson •4.19
Stúlkur f. 1958. _ mín.
Sigr.íður Ragnai'sdóttii' 4.39
ÁRSÞING Ungmennasambands
Eyjafjarðar, hið 49. í röðinni,
var haldið í Árskógi 11. og 12.
apríl sl. Sveinn Jónsson for-
maður UMSE setti þingið, bauð
fulltrúa og gesti velkomna og
g.at um helztu viðfangsefni
þingsins. Rúmlega 60 fulltrúar
MmÉi
EINS og frá var skýrt í síðasta
blaði tók norðlenzkt handknatt
leiksfólk þátt í úrslitum í Hand
knattleiksmóti íslands, sem
fram fór í Laugardalshöllinni í
Reykjavík um sl. helgi. Kven-
fólkið stóð sig vel, en karhnenn
irnir miður. Völsungur frá
Húsavík átti tvö kvennalið í
úrslitunum, 1. og 3. flokk, og
komu báðir flokkarnir heim
sem íslandsmeistarar og er það
í fyrsta skipti, sem flokkai' af
Norðurlandi hljóta íslandsmeist
aratitil í handknattleik innan-
'húss.
Nöfn íslandsmeistarana í 1.
fl. eru þessi: Björg Jónsdóttir
(fyrirliði), Auður Dúadóttir,
Jónína Sigurðardóttir, Katrín
Freysdóttir, Þuríður Freysdótt-
ir, Bergþóra Ásmundsdóttir,
Guðný Rík)harðsdóttir, Hulda
Skúladóttir, Dagný Ingólfsdótt-
ir og Sigþrúður Sigurbjörns-
dóttir.
Nöfn íslandsmeistarana í 3.
fl. eru þessi: Guðrún Sigurjóns
dóttir (fyrirliði), Katrín Sigurð
ardóttir, Hulda Valdemarsdótt-
ir, Arnbjörg EiÖsdóttir, Jónína
Benediktsdóttir, Jóhanna Ás-
mundsdóttir, Þorbjörg Vil-
hjálmsdóttir, Helga Jónsdóttir,
Hólmfríður Þorgeirsdóttir og
Friðrika Guðjónsdóttir.
Nánar verður sagt frá úrslit-
rmi síðar. □
Myndina tók Gunnar frá Tínianum í Laugardalsliöllinni að keppni
lokinni.
Húsavíkursíúlkurnar vöktu verðskuldaða athygli I handknattleiks-
keppninni.
allra sambandsfélaganna sóttu
þingið, en í UMSE eru nú 15
félög með nær 1000 félags-
mönnum, auk heiðurs- og auka
félaga. Forsetar þingsins voru:
Helgi Símonarson, Haukur Hall
dórsson og Kristján Jónsson, en
ritarar Sigurður Jósefsson,
Marinó Eggertsson og Magnús
Kristinsson. Gestir þingsins
voru: Hermann Guðmundsson
framkvæmdastjóri ÍSÍ, Haf-
steinn Þorvaldsson formaður
UMFÍ, Sigurður Geirdal fram-
kvæmdastjóri UMFÍ og Daníel
Pálmason frá Æskulýðsnefnd
Eyjafjarðarsýslu. Fulltrúar
UMFÍ og ÍSÍ fluttu allir ávörp.
Kynntu þeir í stórum dráttum
starfsemi samtakanna og þýð-
ingu þeirra fyrir aðildarfélögin.
Kom fram að meðal stærri verk
©fna hjá ÍSÍ á árinu, er íþrótta-
hátíðin í Reykjavík í sumar.
Hjá UMFÍ er undirbúningur
Landsmótsins á Sauðárkróki
1971 eitt af aðalviðfangsefnum
þess. Gestirnir fluttu þakkir til
UMSE og hvöttu til áframhald-
andi starfs.
Þóroddur Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri UMSE flutti
skýrslu sambandsins fyrir síð-
asta ár. Kom fram í henni, að
starfið var mikið og fjölbreytt.
Sambandið stóð fyrir íþrótta-
kennslu á sambandssvæðinu og
kom á mótum í flestum þeim
íþróttagreinum, sem iðkaðar
voru meðal félagsmanna, og
sendir voru keppendur á mörg
mót utan héraðs. Meðal sigra á
árin má nefna, að íþróttafoik
UMSE sigraði á Norðurlands-
móti í frjálsum íþróttum, Emelía
Baldursdóttir varð íslands-
meistari í kúluvarpi 3. árið í
röð, Sigvaldi Júlíusson varð ís-
landsmeistari drengja í 800 og
1500 m. hlaupi, hann vann
einnig Drengjahlaup Ármanns í
Reykjavík og UMSE sigraði í 3.
manna sveitakeppni hlaupsins.
Komið var á fjölmennu félags-
málanámskeiði í samvinnu við
KEA, staðið var fyrir fjölsóttu
sumarbúðanámskeiði, farið í
landgræðsluiferð, lokið við
spurningakeppni hreppanna og
komið á spurningakeppni milli
barnaskólanna. UMSE átti aðild
að fjölmennu bindindismóti í
Vaglaskógi og Bændahátíð Ey-
firðinga. Komið var á dómara-
námskeiði í knattspyrnu.
Birgir Marinósson gjaldkeri
UMSE las og ský-rði reikninga
sambandsins. Sýndu þeir nokk-
urn tekjuafgang, en fjárhagur
samibandsins stendur þó enn
höllum fæti.
Ársþingis samþykkti starfs-
áætlun fyrir yfirstandandi ár.
Helztu viðfangsefnin verða,
íþróttakennsla og annað íþrótta
starf, bindindismál, land-
græðsla, samkomuhald, sumar-
búðastarf og efling á starfi ein-
stakra félagai Umræður urðu
oft fjörugai' á þinginu og bar
mörg fleiri mál á góma en hér
hefur verið getið. Um sum
þeirra voru gerðar sérstakar
ályktanir.
Á þinginu var Sjóvábikarinn
afhentur, en hann er gefinn af
Umboði Kristjáns P. Guðmunds
sonar, Akureyri. Umf. Svarf-
dæla vann nú bikarinn í annað
sinn, fyrir flest stig á íþrótta-
mótum sambandsins á sl. ári.
Að loknum fundi fyrra kvökl
ið var haldin kvöldvaka í Ár-
skógi. M. a. skemmtiefnis var
það, að Umf. Öxndæla, sem
verðui' 70 ára á þessu ári, sýndi
gamanleikinn Seðlaskipti og
ást, við góðai' undirtektir.
Umf. Reynir sá um undii'-
búning þingsins í Árskógi og
veitti þar ágæta aðhlynningu.
Að loknum þingstörfum bauð
félagið svo til myndarlegrar
veizlu. Þar var Jóni Stefáns-
syni, . Dalvík, afhent mynda-
mappa og ski’autritað heiðurs-
skjal í þakklætisskini fyrir hans
mikla og óeigingjarna starf í
þágu IJMSE og félaga þess.
I sambandi við Ársþingið
kom Ársrit UMSE út. Er þar
m. a. gerð grein fyrir starfi sam
bandsins og sambandsfélaganna
á sl. ári, skýrt er frá Ritgerða-
samkeppni UMSE í barnaskól-
unum og birtar þrjár ritgerðir
úr henni. Sigurður Jósefsson
skrifar um öræfagróðurferð, og
rætt er við Olaf Tryggvason,
Ytra-Hóli. Meira efni, ásamt
myndum, er í ritinu.
Stjórn UMSE var öll endur-
kjöi'in, en 'hana skipa: Sveinn
Jónsson formaðui', Haukur
Steindórsson ritari, Birgir
Marinósson gjaldkeri, Páll Garð
arsson varaformaður og Sigurð
ui' Jósefsson meðstjórnandi.
■/* _ _
IClÍJlL
keppnistímabili og er áríó' nndi
að allir handknattleiksunnend-
ur mseti og hvetji KA-liðið vel.
Takist KA að sigra ÍR á laugar-
daginn fer þriðji úrslitaleikur-
inn fram í íþróttahúsinu á Sel-
tjarnarnesi.
Sigvaldi Júlíusson.
SIGRAÐI í DRENGJA-
HLAUPI ÁRMANNS
HIÐ árlega Drengjahlaup Ár-
manns fór fram í Reykjavík sl.
sunnudag. Keppendur voru alls
30. Sigurvegari varð Sigvaldi
Júlíusson, UMSE, kom lang
fyi'stur að marki á 4.34.7 mín.
Annar varð Helgi Sigurjónsson,
Kópavogi, á 4.41.5 mín. Sigvaldi
vann hlaupið einnig á sl. ári. □
Knattspyrnuæfingar
fijá ÞÓR
ÞÓRSFÉLAGAR! Knattspyrnu
æfingar hefjast á morgun
(fimmtudag) og verður æft á
þriðjudögum og fimmtudögum
skilyrði verða á öðrum stöðum.
á Sanavellinum þar til æfinga-
Þjálfari verður Guttormur
Ólafsson.
6. flokkur....kl. 4—5
5. flokkur....kl. 5—6
4. flokkur....kl. 6—7
3. flokkur....kl. 8—9
1. og 2. flokkur . . kl. 9—10
Drengir, mætið vel og stund-
víslega á æfingarnar. Búið er
að tilkynna þátttöku í íslands-
mótinu í yngri flokkunum og
Bikarkeppni KSÍ í 2. flokki. —
Fjölmennið, nýir félagar vel-
komnir.
Knattspyrnudeildin.
UM síðustu helgi fór fram Norð
urlandsmót á skíðum á Ólafs-
firði. Úrslit urðu þessi:
Stórsvig kvenna. sek.
Karolína Guðmundsd., A 63.7
Baibara Geirsdóttir, A 77.8
Jóhanna Helgad., Dalvík 92.8
Stórsvig karla. sek.
Árni Óðinsson, A 64.3
Magnús Ingólfsson, A 67.0
, Guðmundur Frímannss., A 68.9
Ganga 20 ára og eldri. mín.
Frímann Ásmundsson, F 45.59
Björn Þór Ólafsson, Ó 50.50
Ganga 17—19 ára mín.
Sigurður Steingrímss., S 51.35
Sigfús Jónsson, S 57.35
Árni Helgason, Ó 57.53
Svig kvenna. sek.
Karolína Guðmundsd., A 90.5
Fleiri luku ekki keppni.
Svig karla. sek.
Guðmundur Frímannss., A 86.8
ívar Sigmundsson, A 88.7
Viðar Garðarsson, A 89.3
Alpatvíkeppni kvenna. stig
Karolína Guðmundsd., A 0.00
Alpatvíkeppni karla. stig
Guðm. Frímannsson, A 43.60
Magnús Ingólfsson, A 44.14
Árni Óðinsson, A 68.68
STARFSMANNAMOT
HINN fyrsta maí fer fram starfs
mannamót í Hlíðarfjalli og hefst
kl. 2 e. h. Þá keppa starfsmenn
frá liðnum vetri. Þátttaka til-
kynnist við Strompinn sama
dag. □