Dagur - 13.05.1970, Blaðsíða 1
LIII. árg. — Akureyri, miövikudagtua 13. maí 1970 — 21. tölublað
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÓSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
LAUGARDAGINN 2. maí sl. fór fram vígsluatJiöfn Búrfellsvirkj-
unar í Þjórsá. Orkuframleiösla hófst þar þé 8. sept. í fyrrahaust.
Þetta er 105 þús. kw. virkjun og er ráögert, að tvöfalda þá fram-
leiðslu næstu tvö árin.
Næsta dag, sunnudagmn 3. maí, var svo álverið í Straumsvík
vígt. í fyrstu voru afköst 33 þús. tonn, en árið 1972 verða þau
væntanlega 77 þús. tonn. □
Karlakórinn Geysir syngur
Miklar íbúðabyggingar í
KARLAKÓRINN GEYSIR
heldur hina árlegu samsöngva
sína á Akureyri laugardaginn
16. maí og mánudaginn 18. maí,
annan í hvítasunnu, kl. 17.00
báða dagana. Söngstjóri kórs-
ins nú í vetur er Philip Jenkins
píanóleikara, einnig hefur Sig-
Síðustu sýningar á
JÖRUNDI
ÞIÐ munið hann Jörund, eftir
Jónas Árnason hefur verið sýnt
16 sinnum við góða aðsókn.
M. a. kom um 40 raanna hópur
frá Leikfélagi Húsavíkur til að
sjá sýninguna. Síðustu sýningar
verða á fimmtudag og annan
hvítasunnudag. □
! S u n d r u ð flokksbrot |
[ lengst til vinstri geraj
jengum gagn - nemaj
| íhaldinu. • I
.... iiiiiiiiiiniii ii iiiiiiiiiiiiiiiimiuuim 1111111111111 ■;
Frá Mjólkur-
samlagi KÞ
AÐALFUNDUR Mjólkursam-
lags K. Þ. var haldinn á Húsa-
'VÍk 28. apríl sl. Innvegið mjólk-
urm.agn á árinu 1969 var 6.78
millj. kg. og er það 4.5% minna
en árið áður. 16% af mjólkinni
var selt sem neyzlumjólk, en
84% fóru í vinnslu á smjöri,
osti, skysi og kaseini.
Endanlegt verð til bænda
varð landsgrundvallai'verð, kr.
11.76 á lítra.
Mjólkursamlagsstjóri er Har-
aldur Gíslason. □
urður Demetz Franzson radd-
þjálfað kói'inn. Á söngskrá eru
12 lög eftir innlenda og erlenda
'höfunda. Einsöngvarar eru:
Aðalsteinn Jónsson, Tryggvi
Geox-gsson og Jóhann Konráðs-
son, sem einnig syngur tvísöng
með Jóhanni Jóhannssyni. Und
irleikarar eru þrír, þeir Kári
Gestsson, Lárus Zophoníasson
og Freysteinn Sigurðsson.
Kórfélagar eru 46 og hefur
verið æft vel að undanförnu.
Auk áðurnefndi'a samsöngva
á Akureyri mun kórinn syngja
í Freyvangi í kvöld, þriðjudags-
kvöld, í Miðgarði í Skagafirði
fimmtudagskvöld 21. maí, á Dal
vík og Ólafsfirði 23. maí, laugar
dag. Að síðustu mun kórinn svo
halda samsöng á Akureyri föstu
dagskvöld 29. maí kl. 21.00.
Sanisöngvarnir á Akureyri
verða í Nýja-Bíói.
Aðgöngumiðar eru seldir í
Bókval og þar geta styrktar-
félagar fengið skipt miðum. □
KAUPFÉLAG Þingeyinga hélt
aÖalfund sinn á Húsavík 29. og
30. apríl sl.
Á fundinum mættu 102 full-
trúar frá deildum félagsins, auk
kaupfélagsst j óra, f élagsstj órn
og endurskoðendum. Ennfrem-
ur allmargir gestir.
Söluaukning árið 1969 hafði
orðið um 30% að krónutölu.
Heildarsala í verzlunarbúðum
nam rúmlega 140 millj. ki'.
Framleiðsluvörur á vegum fé
lagsins höfðu orðið um 150
millj. kr.
Reksturskostnaður h.afði
hækkað talsvert á árinu, sökum
vaxandi verðbólgu, en heildar-
niðurstaðan þó hallalaus vegna
aukinnar umsetningar í verzl-
uninni.
Fjárfestingar voru með
minnsta móti á sl. ári.
NÚ ER að færast aukinn þrótt-
ur í byggingaframkvæmdir,
einkum íbúðabyggingar. En
íbúð£ihúsnæði hefur vantað því
viðskipta- og atvinnu'kreppa
hefur á undanförnum árum
lamað þennan þátt fram-
kvæmda.
Veittar voru meðal annavs úr
Menningai'sjóði félagsins til end
urnýjunar og varðveizlu gamla
bæjarins á Þverá í Laxárdal,
þar sem K. Þ. var stoofnað, kr.
100.000.00.
Ennfi-emur var veittur styrk-
ur til byggingar Safnhússins í
Hiisavfk kr. 40.000.00.
Ákveðið var að 'hefja á þessu
vori byggingu sláturhúss, í sam
(Framhald á blaðsíðu 5)
SKÓGERÐ Iðunnar á Akureyri
er um þessar mundir að flytja
rekstur sinn í nýtt 1200 fer-
meti’a húsnæði, þar sem áður
var efri hæð Sútunai'verksmiðj
unnar en brann í ársbyrjun
1969. En í þeim eldsvoða vai'ð
Skógerðin einnig húsnæðislaus
fyrir um helming starfsemi
sinnar en flutti þá að Ráðhús-
torgi, þar sem áður var Sauma-
stafa Gefj unar.
Nú hefur sá hluti verið flutt-
ur í hið nýja húsnæði, sem er
að verða fulifrágengið og síðan
verður hinn hluti Skógerðar-
innar einnig þangað fluttur
smám saman, og við það miðað,
að framleiðslan tefjist ekki af
þeiim sökum.
Næg verkefni eru framundan,
sízt minna en verið hefur og að
þeim vinna 75—80 karlar cg
konur. Og' nú standa yfir samn-
ingar á ofui'litlu til útlanda. Þiar
er um að ræða gæruskó, sexn
Aðalgeir og Viðar eru byrjað
ir á ca. 30 íbúða blokk við Víði-
lund. Og í sama hverfi byggir
Smái'i h.f. 12 íbúða hús, og Jón
Gíslason byggir þar 6 íbúða rað
hús. Þá bj'ggir Stefán Reykja-
lín einnig 6 íbúða rað’hús, allir
í sama hvei'fi.
Við Einholt í Glerárhverfi
byggir Hýbýli s.f. (Bragi Hjart-
arson o. fl.) 10 íbúðir í tveggja
hæða húsi og Árni Árnason hef
ur fengið samþykktar teikning-
ar af tveim blokkum og eiga
þær að vera vestan Skai'ðshlíð-
ar, norðan skógarreits kven-
félagsins í Glerárhverfi.
Einbýlishúsin verða einkum
í Lundshverfunum, en þau eru
fá, í hlutfalli við það, sem oft-
ast hefur verið á Akureyri. En
vegna fjölbýlishúsanna verða
íbúðabyggingar langt um meiri
en fyrirfarandi ár.
Af öðrum byggingum má
vakið hafa eftirtekt á sýningum
ei'lendis og væntanlega opnast
meix'i mai'kaður fyrir á næsta
ái'i, til Þýzkalands fyrst cg
fi'emst, sagði Riehai'd Þórólfs-
son verksmiðjustjóri blaðinu á
mánudaginn. □
FJÁRHAG^ÁÆTLUN hafnar-
sjóðs fyrir árið 1970 var lög'ð
fraan á síðasta bæjarstjórnar-
fundi, 5. maí.
Tekjur- eru áætlaðar 15 millj.
kr., rekstrarútgjöld 8 millj. kr.
og yfii-faart á eignabreytinga-
reikning rúmar 7 millj. kr.
Til vöfuhafnar eru áætlaðar
16.6 millj. kr. og til dráttar-
brautar og viðlegukants 1.5
millj. kr. Afborgank' lána eru
13.8 millj. kr., en nauðsynleg er
24.2 millj. kr. lánteka. Þá voru
sumar
nefna, að enn er unnið við stór-
byggingar SÍS, en þær eru
langt komnar, ennfremur ný-
bygging Þórshamars og hús-
næðisaukning Ú. A. Þá er toll-
vörugeymslan að verða tilbúin,
þ. e. fyrsti áfiangi.
Á flugvellinum verður gerð
mikil stækkun flugstöðvarbygg
ingar ög hjá Norðurflugi er
byrjað á 700 ferm. byggingu. Þá
verður vöruskemma Eimskips
byggð við nýju höfnina og unn-
ið áfram við iðns'kólabygging-
una. Hótelbyggingar eru á at-
(Framhald á blaðsíðu 5)
«liaillllllllllllllUMIIMHIIIIIIII|IIUf*lillMI(IIII.IIUII* II*
[Á meðan íhaldið réði 1
| mestu í bæjarstjórn, |
Ifram yfir 1960, var|
I kyrrstaða í verklegum j
I framkvæmdum - kyrk- [
jingur í atvinnulífinu -|
jog fólkið flutti burt. -j
I Þá var hjólbörutíma-1
I bilið. !
á sama fundi laigðir fram til
fyrri umi’æðu reikningar' hafn-
ai'sjóðs fyrir áiin 1968—1969.
í fi'amhaldi þessu er rétt að
gtea þess, að forráðamenn Eim-
skips hafa óskað að brevta vöru
skemmuáætluninni hér í bæ á
þann veg, að byggja eina hæð
í stað tveggja, en stækka grunn
flötinn. Með þeirri breytinguj
vei'ður það hús 80x40 metrar og
verður það væntanlega byggt
nú í sumar. □
Guðmundur Karl
Pétursson látinn
HINN 11. þ. m. andaðist Guðnumdur Karl Pétursson yfir-
læknir á Akureyri, en hann hafði kennt vanheilsu uni skeið.
Ilann var Eyfirðingur, lauk kandidatsprófi í læknisfræði
1931, varð sjúkraliúslæknir á Akureyri 1936, en yfirlæknir
á handlækningadeild Fjórðungssjúkráhússins 1954 til dauða-
dags, mikilsvirtur læknir og borgari, 69 ára að aldri og öll-
um harmdauði. □
30% söluaukning hjá KÞ
Skógerðin flytur í nýtf húsnæði
■ iiiaiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiMii|i|i*iiiiiiii*ii*i*ii***i»
Höfnin og vöruskemma Eimskip