Dagur - 05.08.1970, Blaðsíða 1
BEZTA hoshjalpin g
LIII. árg. — Alcureyri, miðvikudaginn 5. ,ágúst 1970 — 32. tölublað
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Simi 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÓSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Bílalest Þingeyinga skammt innan við Akureyri.
(Ljósm.: E. D.)
Þingeyskir bændur mófmæla Gljúfurversvirkjun
H J ARTAVERND ARFÉL AG
Akureyrar ætlar á næsta ári að
láta fram fara almenna lijarta-
rannsókn á körlum og konum
40—60 ára á Akureyri og í Eyja
fjarðarsýslu, og alhliða heilsu-
farsrannsókn um leið.
Keypt verða sérstök tæki til
rannsóknanna í félagi við Fjórð
ungssjiikrahúsið og fenginn sér-
þjálfaður læknir til að vinna að
þessum rannsóknarstörfum.
Talið er, að með slíkum rann-
sóknum sé unnt að koma í veg
fyrir hj.artasjúkdóma í svo stór-
um stíl, að í þessu efni megi
ekkert til spara, að slík rann-
sókn geti farið fram. □
Heysala bönnuð
BÚNAÐARSAMBAND Eyja-
fjarðar boðaði oddvita sveitar-
stjórna á sambandssvæðinu til
fundar á Akureyri 30. júlí sl.,
þar sem rætt var um heyskapar
horfur. Mjög mikið kal er nú
víða í héraðinu og útlit með
heyöflum mjög slæmt í mörgum
hreppum á sambandssvæðinu.
Allar sveitarstjórnirnar ásamt
stjórn -BSE hafa nú samþykkt
að banna alla heysölu út af
svæðinu fyrst um sinn.
Unnið er nú að því að kanna
hvaða bændur hafa hey til sölu
og einnig hverja vantar hey.
Er mönnum bent á, af þessu
tilefni, að hafa samband við
viðkomandi sveitarstjórnir.
(Fréttatilkynning)
Skógræktarfólk á ferð
í GÆR kom til Revkjavíkur 70
manna hópur skógræktarmanna
frá Noregi. Sama dag fór jafn
stór hópur íslenzks skógræktar-
fólks til Noregs.
Eru þessar skiptiferðir vin-
sælar og' gagnlegar.
Hingað til Akureyrar koma
svo 10 Norðmenn á vegum skóg
ræktarfélaganna í Eyjafjarðar-
og Þingeyjarsýslu. En aðrir úr
þessum hópi dvelja sunnan-
lands.
Allir í þessum ferðum taka
þátt í skógræktarstörfum og
kynna sér skógrækt. □
Gunnarsstöðum 5. ágúst. Hey-
skapur er hafinn, þar sem eitt-
hvað er að slá. Grasspretta er
fremur léleg á óskemmdu landi,
nema á nokkrum bæjum á
Langanesi, þar sem búið er að
hirða verulegt heymagn.
Slösuðust í árekstri
Á FJORÐA tímanum í gær varð
harður bifreiðaárökstur í Krækl
ingahlíð, við Dvergastein, er
tvær fólksbifreiðar mættust.
Maður handleggsbrotnaði í ann-
arri bifreiðinni, að því er talið
var, og kona í hinni slasaðist
eitthvað. Farartækin voru stór-
pkemmd. □
LANDEIGENDUR við Laxá og
margir aðrir Þingeyingar fjöl-
menntu til Akureyrar laugar-
daginn 18. júlí sl., komu hátt á
annað hundrað bílum um kl. 4
e. h. þann dag með yfirvald sitt,
Jóhann Skaptason, í broddi fylk
ingar. Afhenti Hermóður Guð-
mundsson bóndi í Árnesi bæjar
stjóranuf á Akureyri, Bjarna
Einarssyni, mótmælaskjal gegn
Gljúfurversvirkjun. Er það svo-
hljóðandi:
Móémæli gegn Gljúfurversvirkj
un í Laxá.
Þessi för er gerð til þess að
vekja athygli bæjarstjórnar Ak
ureyrar á skýlausum skyldum
og rétti Þingeyinga til verndar
Laxá og Mývatni.
Nú eru árnar í Þistilfirði
fullar af laxi, og eins góð veiði
í þeim, eins og var á árum eftir
1940. En árnar, sem hér um
ræðir eru Hafralónsá, Hölkná,
Sandá og Svalbarðsá. Nokkur
ár hefur laxaseiðum verið sleppt
í þær og sýnist það hafa gefið
góða raun. Það er einmitt sá
lax, sem nú er að ganga, en það
er allt annar lax og er það auð-
séð. Ég fór að hyl einurn í Hafra
lónsá um daginn og ætlaði að
telja laxana en gat það ekki.
En ég gizka á, að þar hafi verið
60—80 laxar. Reykvíkingai' hafa
ár þessar á leigu. Meðalveiði á
stöng á dag er 3—4 laxar. Ó. H.
Með henni viljum vér harð-
lega mótmæla Gljúfurversvirkj
un í Laxá og undirbúningsfram
kvæmdum hennar, eins og til
þeirra er stofnað. Lýsum vér
framkvæmdir þessar algjörlega
ólögmætar og beint tilræði við
atvinnufrelsi vort, fjárhagslegt
sjálfstæði og almenn mannrétt-
indi, sem oss eru tryggð í stjórn
arskrá ríkisins, og beint brot á
fyrirmælum Iðnaðarráðuneytis-
ins frá 13. maí sl. um endur-
skoðun framkvæmda við Laxá
Sauðárkróki 24. júlí. Ungmenna
samband Skagafjarðar efndi til
landgræðsiuferðar inn á Hofs-
afrétt sunnudaginn 12. júlí Fóru
þangað 40—50 sjálfboðaliðar
undir forystu Sigfúsai' Olafsson
ar kennara á Hólum og Hauks
Hafstað í Vík og dreifðu um 8
tonnum af áburði og 300 kg af
Lögbannskröfu synjað
ÚRSKURÐUR í lögbannsmáli
Þingeyinga gegn Laxárvirkjun
var kveðinn upp í fógetarétti
Þingeyjarsýslu í gær. Lögbanns
kröfu bændanna var synjað.
Að kveldi sama dags var þing
fest á Hólniavaði í Aðaldal al-
mennt dómsmál, sem Félag land
eigenda við Laxá höfðaði gegn
stjórn Laxárvirkjunar, og krefj-
ast bændur þess, að framkvæmd
ir við Brúar verði dæmdar ólög
legar. □
vegna þeirra ákvarðana að hætt
skuli við Suðurárveitu fyrir
fullt og allt.
Þetta gefur oss tilefni til þess
að undirstrika þá augljósu stað-
reynd, að með þeirri yfirlýstu
ákvörðun er hinn fjárhagslegi
grundvöllur til réttlætingar
Glj úfurversvirkj unar algj örlega
hruninn til grunna og því
óheimilt samkvæmt ákvæðum
vatnalaga að stofna til slíkra
framkvæmda gegn hagsmunum
og vilja hlutaðeigandi bænda.
fræi. En Landgræðslusjóður
leggur til áburð og fræ.
Ferðirnar voru skipulagðar í
samráði við „gróðurnefnd“
Skagafjarðarsýslu. Er þetta önn
ur landgræðsluferðin á Hofsaf-
rétt. En í fyrra var þar dreift
10 tonnum af áburði og sáð 1
tonni af fræi í 22 ha í vestur-
hliðar Reiðai'fells, innan girð-
ingar sauðfjárveikivarna þar.
Á þetta svæði var dreift 5
tonnum af áburði en 3 tonn af
áburði og fræi fóru í 8 ha sanda
vestan Runukvíslar. Er þetta
örfoka land í 700—760 m hæð.
Árangur af sáningunni í fyrra
verður að teljast allgóður.
í dag stendur yfir land-
græðsluferð sörnu aðila inn í
Buga á Ey vindarstaðaheiði í
samvinnu við upprekstrarfélög
heiðarinnar. Á að dreifa þar 6
tonnum ábúrðar í örfoka jörð.
□
Vér lýsum því banni voru á
Gljúfurversvirkjun og gerum þá
kröfu .að réttir og hlutlausir út-
reikningar verði gerðir á kostn-
(Framhald á blaðsíðu 2).
Fundur ungra Fram-
sóknarinanna á Ak.
FÉLAG ungra Framsóknar-
manna á Akureyri gengst fyrir
félagsfundi í félagsheimilinu,
Hafnarstræti 90, föstudaginn 7.
ágúst kl. 21. Félagsfundur þessi
er til undirbúnings þrettánda
þings Sambands ungra Fram-
sóknarmanna, sem haldið verð-
ur á Hallormsstað dagana 28. til
30. ágúst. Þá verða önnur mál
rædd. Baldur Oskarsson for-
maður SUF mætir á fundinum.
Stjórnin.
Ár í Þistilfirði fullar af laxi