Dagur - 05.08.1970, Blaðsíða 2
2
Þingeyskir bændur mólmæla
(Framhald af blaðsíðu 1).
aðarverði rafmagns fyrirhugaðr
ar Laxárvirkjunar í stað órök-
studdra staðhæfinga Laxárvirkj
unarstjórnar og áróðursmanna
hennar um ímyndað kostnaðar-
verð Laxárrafmagns.
Af sömu ástæðum krefjumst
vér þess, að gerð verði nákvæm
kostnaðaráætlun á 65 MW vii'kj
un við íshól í Bárðardal og gufu
virkjun í Námaskarði, verðtil-
boða leitað á rafmagni frá
Landsvirkjun, komnu til Norð-
urlands, sem gerð yrði heyrum
kunn.
VIL RAÐA MANN
til heyvinnustarfa í um
2—3 vikur.
Rafn Helgason,
Stokkaihlöðum.
Því gerum vér kröfu um að
hætt verði tafarlaust hinum laga
lausu og dýru framkvæmdum
við Lpxá þar til rannsóknar-
niðurstöður og samanburðar-
kostnaður á rafmagnsverði
liggja fýrir og samningar hafa
tekizt við hlutaðeigandi bændur
um tilhögun framkvæmda eftir
réttum og löglegum leiðum.
En þar "sem Laxárvirkjunar-
stjórn virðist hafa frá upphafi
stefnt öllum.vit'kjunarmálum út
á einstigi og sjálfheldu með ein-
hliða, samningslausum aðgerð-
um, sem virðast byggðar á því,
a ðhinn sterki geti tekið það,
sem hapn telur sig þarfnast,
hljótum vér að bera fram þá
kröfu til bæjarstjórnar Akur-
eyrar, að hún skipi nú þegar
menn í Laxárvirkjunarstjórn,
sem hafi til að bera sanngirni
og samningsvilja, svo framar-
leg^ að bæjarstjórn óski þess
að mál þessi komist í friðsæla
höfn og verði ekki bæjarfélag-
inu til frekari vanvirðu en orðið
LtS
■
F ulltrúaráðsf rnidur
verður í fulltrúaráði Framsóknarmanna í Eyja-
f jarðars}rshi föstudaginn 7. ágúst kl. 21 í félags-
heimilinu Hafnarstræti 90. Þess er vænzt, að
fulltrúar mæti vel og stundvíslega.
Fuiidir í Norður-
eystra
Vér viljum benda á, að verði
haldið áfram að ögra Þingeying
um, mun skapast hættuástand í
■héraði, sem leitt getur til
óhappa, sem vér getum ekki
‘borið ábyrgð á.
Væntum vér þess að bæjar-
stjórn Akureyrar endurskoði
afstöðu sína til þessa máls og
firri með því fyrirsjáanlegum
vandræðum.
Til frekari áréttingar bendum
vér á að náttúruverndarsjónar-
mið og sterkur þjóðarvilji stend
ur að baki Þingeyingum til varð
veizlu Laxár og Mývatns í sinni
upprunalegu mynd.
Baráttunni fyrir því ófrávíkj-
anlega takmarki munum vér
halda og aldrei gefast upp, fyrr
en settu mraki ei' náð.
13. júlí 1970.
Stjórn Landeigendafélags
Laxár og Mývatns.
Á spjöldunum, sem fest voru
á bílana í lestinni, mátti lesa
eftirfarandi áletranir:
Mývatn og Laxá verða varin.
Ný úrræði í virkjunarmálum.
Næg orka fáanleg án náttúru-
spjalla. Virkjum jökulvötnin,
vemdum lindárnar. Náttúru-
vernd í stað landeyðingar.
Verndum lífið í vötnunum. Lax
árrafmagn verður of dýrt. Neyt
endur, hugsið um yðar hag. Ný
skipan Laxárvirkjunarstjórnar.
Stöðvið Gljúfurversvirkjun,
forðizt óhöpp. Engar virkjunar-
framkvæmdir án samninga. Gæt
um framtíðarverðmæta. Eflum
fiskirækt, forðumst eyðingu.
Almenningsálitið er á móti Lax
árvirkjun. Friðun fugla, gætum
gróðurs. Þetta er þjóðarmál.
Lifi landið okkar. Engin stífla
í Laxá. Laxárdal verður ekki
sökkt. □
LAUGARDAGINN 18. júlí ,sl.
fóru hér um tveir menn með
14 hesta. Það voru þeir Gunn-
laugur Sigurbjörnsson á Egils-
stöðum og Gunnar Ragnarsson
á Fossvöl'lum. Það eru fyrstu
mennirnir, sem blaðið hefur
frétt um, að farið hafi raunveru
lega hringferð á hestum. Raun-
ar er það þó Gunnlaugur einn,
sem fer ríðandi alla þessa leið.
En hann og Pétur Jónsson á
Egilsstöðum fóru saman til Þing
valla, á landsmót hestamanna,
og voru með 18 til reiðar, lögðu
af stað 23. júní og komu til Þing
valla 8. júlí. Þaðan var haldið
13. júlí og í stað Péturs kom
Gunnar Ragnarsson og höfðu
þeir 14 hesta norður. En Gunn-
ar hafði farið á bíl með hesta
til Þingvalla, fyrir landsmótið,
m. a. með hest sinn Mána, sem
hlaut 2. verðlaun á 800 metra
sprettinum og brokkar svo alla
leið heim á eftir.
Þeir félagar voru á Króks-
stöðum fram eftir degi laugar-
daginn 18. júlí, járnuðu, hvíldu
hrossin, sjálfa sig og nutu gest-
risni.
í þessum 14 hrossa hópi var
fjögurra vetra foli ungstur en
rauður hestur og brún hryssa
17 vetra og elzt. Hrossin voru
kviðlétt og grönn, rákust ágæt-
lega, sárnuðu sum í fótum
fyrstu daga ferðar en jöfnuðu
sig.
P«' 0* ~'
Héðan eru fjórar dag" iðir
austur á Hérað, sögðu þeir
Gunnlaugur og Gunnar. Margir
vildu verzla við þá, selja þeim
hross og hafa hestakaup, m. a.
Skagfirðingar en þeir höfnuðu
öllum slíkum viðskiptum. Þokka
leg reiðhross fást nú naumast
fyrir minna verð en 25—30 þús.
krónur.
Ferðin er dásamleg, sögðu
þeir, en lakast ao koma í Skógar
hóla með þreytta og svanga
ferðahesta, þar var ekki aðstaða
til slíks.
Nú munu tvímenningarnir
löngu heim komnir og vonandi
heilir og reiðskjótar þeirra
einnig.
Hinn 3. ágúst komu hingað
til Akureyrar ihjónin Árni Jón
Pálmason kennari frá Reykja-
vík og kona hans Eva Júlíus-
dóttir með sex til reiðar. Þau
fóru 9. júlí að heiman, voru á
landsmótinu á Þingvöllum, fóru
síðan austur til Hornafjarðar,
norður til Héraðs og þaðan sem
leið liggur til Akureyrar. Héðan
fara hjónin til Skagafjarðar
a. m. k. Hestarnir litu mjög vel
út og létu hjónin hið bezta af
förinni.
Myndin er af Gunnaif á Mána
sínum til vinstri og Gunnlaugi
á 6 vetra blesóttum, góðum
hesti. (Ljósm.: E. D.)
Langanesi 4. ágúst. Júlímánuð-
ur var hér í kaldara lagi. Þriðja'
hvern dag í þeim mánuði fór
hitinn ekki yfir 4—6 stig um
hádaginn. Þrátt fyrir örfáa
hlýja daga var léleg sprettutíð.
Á einum bæ á Langanesi,
Syðralóni, 'hófst sláttur 3. júlí,
Formaður Framsóknarflokksins, Ólafur Jóhannesson, mætir
á þremur fundum í Norðurlandskjördæmi eystra.
Fundir Framsóknarflokksins verða sem hér segir:
Mánudaginn 10. ágúst að Hútel KEA, Akureyri
Þriðjud. 11. ágúst, Félagsheimilinu Húsavík
Miðvikud. 12. ágúst, Félagsheimilinu Þórshöfn
Fundir þessir hefjast allir klukkan 21 og eru öllum opnir.
11 alda byggðar minnzt í S-Þing.
■
wm
mm
SUÐUR-ÞINGEYINGAR minn
ast í sumar 11 alda byggðar í
héraðinu. í tilefni af því verða
'hátíðalhöld á fleiri stöðum, svo
sem á Húsavík dagana 21.—23.
ágúst og stendur Húsavíkur-
kaupstaður fyrir þeirri minn-
ingarhátíð, sem nú er í undir-
búningi. En afmælisins er þó
einnig minnzt á annan veg og
má þar nefna, að öll ungmenna-
félög innan Héraðssambands
Þingeyinga taka í sumar ákveð-
in svæði, hvert um $ig, örfoka
land og græða það upp. Er það
til mikillar fyrirmyndar.
Samhliða þessu er einskonar
„fegrunarheiferð" gerð, svo
sem í því, að auka hýbýlapi'ýði,
einkum utanhúss og setja upp
nafnskilti við sveitabæi. Fyrir
þessu beita ungmennafélögin
sér, hvert á sínu félagssvæði.
Frá þessu gefst eflaust tækifæri
til frekari frásagnar síðai'. □
en yfirleitt hófst sláttur ekki
fyrr en seint í mánuðinum og
jafnvel ekki fyrr en um mánaða
mót. Hér á Langanesi er ekki
mikið um nýtt kal, en i Þistil-
firði hafa tún aldrei verið gras-
lausari, m. a. af kali.
Talsverður afli kom á land í
Þórshöfn í mánuðinum. Nýr 30
rúmlesta bátur er væntanlegur
hingað í september smíðaður í
Stykkishólmi en betur má ef
duga skal.
Ker var steypt í Þórshöfn í
sumai' og var það flutt til Bakka
fjarðar til hafnarbóta þar. Unn-
ið er að því, að setj.a upp girð-
ingu fyrir utan Heiðarfjall, milli
Hrafnabjarga og Selvíkur.
í vor voru unnin fjögur greni
ihér í sveit og voru í einu þeirra
bitdýr. Tófum mun hafa fækkað
í seinni tíð en minkur orðinn
landlægur og veldur tilfinnan-
legu tjóni á fuglalífi. G.