Dagur - 05.08.1970, Blaðsíða 4
i
ij
Skrifsíofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Sírnar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMtJELSSON
Prentverk Odds Björnssonar hi.
Deilurnar um Laxá
VIÐ láum stórveldum heims, þegar
þau semja ekki um deilumál sín,
lieldur beita hervaldi og íórna fólki
og fjármunum. En þá lærdóm ætt-
um við af þessu að draga, að láta
okkur ekki henda hliðstætt böl, þeg-
ar á milli ber í stórum málum — á
okkar mælikvarða — svo sem í Lax-
árvirkjunardeilunni frægu.
Það bar til 18. júlí sl. að nokkur
hundruð Þingeyingar í 160 bifreiða
lest komu til Akukreyrar og afhentu
bæjarstjóranum skrifleg mótmæli
gegn Gljúfurversvirkjun. Aldrei hef-
ur svo fjölmenn sendinefnd fylgt
einu bréfi á þann stað, enda vakti
hún athygli og umhugsun á Laxár-
virkjunarmálum, sem kennd eru við
Gljúfurver og mikil deila og illvíg
hefur staðið um milli Laxárvirkjun-
arstjómar og landeigenda við Laxá.
Þingeyingar mótmæla Gljúfurvers
virkjun og kröfðust lögbanns, sem
nú er synjað, en hafa einnig í
undirbúningi skaðabótamál á hend-
ur Laxárvirkjun. Eftir liarðar og
langvinnar deilur eru málin nú kom
in í hendur lögfi'æðinga og dómstóla,
af því að heimamenn þessara byggð-
arlaga báru ekki gæfu til að leiða
málið frimsamlega til lykta, og
þannig standa sakir miðsumars á
þessu herrans ári.
Margir, sem ekki hafa viljað skipa
sér í hinar stríðandi fylkingar, en
unnið í kyrrþey að lausn deilunnar,
hafa litlir menn þótt í slíkum átök-
um. Nú virðist þeiiaa tími kominn
til meiri áhrifa um sættir, og um
leið verulega lausn raforkumála.
Fyrir nokkrum dögum lét einn af
fulltrúum í Laxárvirkjunarstjóm
sunnanblaðið Vísi liafa það eftir sér,
að nú sé horfið frá að setja Laxárdal
undir vatn. Þetta eru miklar fréttir,
og ef rétt er eftir haft, boðar þetta
mikla stefnubreytingu hjá stjóm
Laxárvirkjunar og heillavænlegri en
fyrr var. Bæjarstjórn Akureyrar á
eftir að svara bréfi Þingeyinganna,
er fyrr getur. Væntanlega markast
það svar af hinum nýju viðhorfum
virkjunarmanna, og vonandi þurfa
deiluaðílar ekki að kallast á yfir Iiið
mikla og enn óbrúaða djúp öllu
lengur. Ummælin í Vísi benda til
þess, að Laxárvirkjunarstjórn sé nú
reiðubúin að stíga skref í sáttaátt.
Iðnaðarmálaráðuneytið hefur haft
afskipti af þessu máli, ber á því tölu-
verða ábyrgð, og væri eðlilegt, að
það hefði forystu um sættir. Myndi
ekki, ef bomar eru saman bækur
deiluaðila, geta tekizt samningar án
málaferla? Það er skylda deiluaðila,
(Framhald á blaðsíðu 7)
Mánuður mikilla tíðinda
BLAÐIÐ hefur nú göngu sína
á ný .að sumarleyfum loknum.
NýliSinn júlí hefur verið mán-
uður mikilla tíðinda hér á landi,
auk þess að vera svo kaldur
lengst af hér nyrðra, að spretta
stöðvaðist á túnum og engjum,
snjór var í fjöllum og fjallvegir
tepptust af þeim sökum og sum-
ir um lengri tíma.
Dr. Bjarni Benediktsson, for-
sætisráðherra, kona hans, frú
Sigiíður Björnsdóttir og dóttur-
sonur þeirra, Benedikt Vilmund
arson, fórust í eldsvoða aðfarar-
nótt 10. júli. En þá brann til
ösku ráðherrabústaðurinn á
Þingvöllum, þar sem forsætis-
ráðherráhjónin gistu um nótt-
ina ásamt með dóttursyni sín-
um. Eldsupptök eru ókunn.
Fréttin um þetta hræðilega
slys kom eins og reiðarslag yfir
þjóðina. Það voru Hollendingar,
tjaldgestir á Þingvöllum, er
fyrstir urðu eldsins varir, en um
seinan.
Dr. Bjarni Benediktsson var
62 ara, lögfræðingur, prófessor
í lögum við Háskóla íslands
1932, borgarstjóri í Reykjavík
1940, alþingismaður Sjálfstæðis-
flokksins 1942 og síðan ráðherra
1947 og síðan í fleiri ráðuneyt-
um. En við forystu Sjálfstæðis-
flokksins og embætti forsætis-
ráðherra tók hann af Ólafi
Thors, svo sem kunnugt er, og
óumdeilanlegur foringi á Al-
þingi síðan. Hann hlaut hin
virðulegustu eftirmæli samferða
mannanna.
Jóhann Hafstein var af for-
seta falið að gegna embætti for-
sætisráðherra fyrst um sinn.
Hinn 10. júlí hófst fjölmenn-
asta landsmót hestamanna í
Skógarhólum á Þingvöllum.
Þangað komu um þá helgi 6—7
þúsund manns og mikill fjöldi
hrossa, e. t. v. 3—4 þúsund.
Landsvirkjun var heimilað
að taka 700 millj. kr. lán til
lúkningar Búrfellsvirkjunar og
til miðlunar vatns við Þórisvatn.
Upplýst var, að 1400 tonn af
kísilgúr hefðu verið framleidd
hjá Kísiliðjunni við Mývatn í
júnímánuði og er það mesta
mánaðarframleiðsla til þessa, en
stækkun verksmiðjunnar er að
mestu lokið. Þar mun jarðbor-
unum haldið áfram í sumar.
Mikill eldur varð laus í verk-
stæðishúsi Strætisvagna Reykja
vikur 15. júli. Þar brunnu þrír
strætisvagnar og margt annað,
og er tjónið talið nema 15 millj.
króna eða meira.
Laugardaginn 18. júlí mót-
mæltu Þingeyingar Gljúfurvers
virkjun, svo að eftir var tekið.
Þeir óku 160 bifreiðum í einni
lest frá Húsavík til Akur-
eyrar og afhentu bæjarstjóran-
um á Akureyri skrifleg mót-
mæli gegn Gljúfurversvirkjun.
í fararbroddi var yfirvald Þing-
eyinga, Jóhann Skaptason sýslu
maður í fullum einkennis-
skrúða. Þar voru og lögi’eglu-
menn með í för.
Margvísleg mótmæli mátti
lesa á bifreiðum þessum. Öll fór
för þessi hið beeta fram af hálfu
austanmanna og vakti mikla at-
hygli, svo sem til var ætlazt.
Og heimamenn fjölmenntu þang
að, sem hin mikla bílalest fór
um og sýndu, ón teljandi und-
antekninga þá háttvísi, sem
vera bar.
Þetta sama kvöld komu til
Akureyrar fré Grænlandi Mar-
gx-ét Danaprinsessa og maður
hennar, Henrik prins. Bæjar-
stjórn tók á móti hinum tignu
gestum, er höfðu hér stutta við-
dvöl og gengu eftir það um borð
í Thala Dan. En það skip flutti
þau til austurstrandar Græn-
landa. Prinsessan og maður
hennar dvelja urn mánaðartíma
á Grænlandi á þessu sumri.
Um 1500 skátar héldu Lands-
mót við Hreðavatn í fyrri viku.
Þau tíðindi gerðust í Reykja-
vík 20. júlí, að íslendingar sigr-
uðu Norðmenn í iandsleik í
knattspyrnu með 2:0, en höfðu
áður gert jafntefli við Dani.
Reykjavíkurborg hefur ákveð
ið að láta smíða tvo skuttogara
fyrir BÚR, 1000 tonn að stærð.
Áætlað verð 280 millj. króna.
Flugdagur var haldinn á Ak-
ureyri um fyrri helgi í mjög
góðu veðri og við mikinn áhuga
bæjarbúa og annarra.
Bændadagur Eyfirðinga var
að þessu sinni haldinn í Frey-
vangi sunnudaginn 26. júlí. Það
er Búnaðarsamband Eyjafjarðar
og Ungmennasamhand Eyja-
fjarðar, sem standa fyrir slík-
um árlegum hátíðisdögum
bænda í héraðinu.
Hasfræði minksins
MINKURINN hefur orð á sér
fyrir grimmd og í því efni verð-
ur naumast á hann logið. Ný
saga bendir til, að þessi kvik-
indi hafi þó fleiri eiginleika til
brunns að bera, m. a. eihhvern
vott af hagfrasði.
Sumarbúðir
þjóðkirkjunnar
SUMARBÚÐIR kirkjunnar við
Vestmannsvatn liafa í sumar
verið starfræktar með svipuðu
sniði og undanfarið. Þrír hópar
barna og einn hópur aldraðra
hafa dvalizt þar og átt þar
ágæta daga. Hefir miklu lofs-
orði verið lokið á aðstæður all-
ar, stavfslið og allt það sem gert
er fyrii' dvalargesti. Nú er eitt
námskeið eftir fyrir drengi og
stendur það frá 15. ágúst til 29.
ágúst. Enn komast nokkrir í
þennan hóp og munu prestar og
sumai'búðastjórarnir Vestmanns
vatni veita upplýsingar og taka
á móti þátttökutilkynningum.
(F réttatilkynning )
f Saurbæjarhreppi í Eyjafirði,
á bæ, sem heitir Leyningur, er
svolítið hænsnabú, eins og títt
er á sveitabæjum. Hænsnakof-
inn er með torfveggjum að
gömlum og góðum sið.
Nýlega bar það við, er hæn-
urnar voru í góðu varpi, að egg
in fóru að ódrýgjast, og að í
hreiðurkassanum fannst eggja-
skurn í stað eggja. Ástæðan til
þessa var sú, er nú skal greina
og síðar kom í ljós:
Minkur hafði gert sér bæli í
torfvegg hænsnakofans og átti
þar fjögur afkvæmi. Var þaðan
greið leið í hreiðurkassa hænsn-
anna og eggin góð minkafæða!
Sú hagfræði minksins að láta
hænur bóndans framleiða handa
sér og sínum hin ljúffengu egg
tók þó enda, því hænsnakjöt er
minkum jafnan mikil freisting.
Og svo fór hér, að sú freisting
varð hagfræðinni yfirsterkari.
Dag einn lágu sjö hænur dauðar
í kofa sínum, bitnar á háls. Það
er merki minksins, og skömmu
síðar lauk ævi hans og fjögurra
unga. □
Dr. Bjarni Benediktsson,
Frú Sigríður Björnsdóttir.
Ávarp forsefans viS andféf forsæfisrá
ÞEGAR kunnugt varð um frá-
fall forsætisráðherrahjónanna,
dr. Bjarna Benediktssonar og
frú Sigríðar Björnsdóttur, ásamt
dóttursyni þeirra, Benedikt Vil-
mundarsyni, ávarpaði forseti ís-
lands, dr. Kristján Eldjárn, þjóð
ina þessum orðum:
Þau sorgartíðindi spurðust
snemma morguns í dag, að for-
sætisráðherra, dr. Bjarni Bene-
diktsson, kona hans frú Sigríð-
ur Björnsdóttir, og ungur dóttur
Lútlierska allieimssambaudið
BLAÐIÐ ræddi stutta stund við
séra Pétur Sigurgeirsson vígslu-
biskup á Akureyri, í tilefni af
því, að hann sat nýlega þing
Lútherska alheimssambandsins,
sem fulltrúi íslenzku þjóð-
kirkjunnar.
Hvar var þingið haldið?
í litlum bæ í Suður-Frakk-
landi, sem heitir Evian og stend
ur við sunnanvert Genfarvatn.
Þetta er 6 þús. manna bær, á
undrafögrum stað og er móttaka
Pétur Sigurgeirsson.
fei-ðamanna aðal atvinnuvegur-
inn, enda verður bærinn hvert
sumar 20 þús. manna bær ferða-
fólks, auk heimamanna.
Varstu eini íslenzki fulltrú-
inn?
Já, biskup íslands, herra Sig-
urbjörn Einarsson, ko-m því
ekki við sökum anna, að sitja
þetta þing og fór hann þess á
leit við mig, að ég sækti þingið.
Þaxna voru fulltrúar 82 kii'kju-
deilda frá 44 löndum, en alls
voru fulltrúar á sjötta hundrað
talsins, úr öllum heimshlutum.
Einkunarorð þessa þings voru:
Sendir út í heiminn.
Það mun hafa verið fróðlegt,
að hlusta á umræður?
Já, sérstaklega. Uggvænlegt
er nú í heiminum og til marks
um það, varð að hætta við að
halda þetta þing í Brasilíu, sem
þó var ákveðið. En þar er nú
svo lítið öryggi, ófriður og neyð,
að horfið var að því ráði að hafa
þinghaldið í Frakklandi. f um-
ræðum og viðtölum kom fram,
að víða er ófrelsi, fátækt og
neyð á svo háu stigi, að Norður-
landabúum gengur illa að átta
sig á því. Mannréttindi eru fót-
um troðin og þar ætlar kirkjan
í auknum mæli að leggja fram
krafta sína til úrbóta. Ag eðli-
legum ástæðum beindist athygl-
in mjög að Brasilíu og Suður-
Ameríku yfirleitt. Kynþátta-
vandamálið í Afríku kom einnig
á dagskrá, að enn eru þar kirkj-
ur lokaðar blökkufólki. En þótt
þetta sé svo hörmulegt, sem
raun ber vitni, kom það einnig
fram, og er ekki eins ókunnug-
legt, að í Evrópu og N.-Ameríku
vantar kristindóm í verki, þótt
ekki vanti kirkjur og þær standi
öllum opnar.
Samþykktir á þinginu?
Meðal annars var samþykkt,
að kirkjan beiti sér fyrir aukn-
um mannréttindum og láti til
sín taka eftir mætti á þeim
vettvangi. Eining allra kristinna
ltirkjudeilda var ofarlega á
baugi. En þáttaskil urðu í þeim
málum 1962, með hinu fræga
ávarpi Jóhannesar páfa 23. í
Róm, og síðan hefur þokazt í
samvinnuátt.
Hve oft eru slík þing haldin?
Fimmta hvert ár. Nú var kos-
inn forseti til næstu 5 ára Finn-
inn Mikko Einar Juva guðfræði
prófessor. En hann var fyrrum
þekktur stjórnmálamaður 51 árs
að aldri.
Við þökkum vígslubiskupi
svörin. E. D.
sonur . þeirra, Benedikt Vil-
mundarson, hefðu látið lífið, er
forsætisráðherrabústaðurinn á
Þingvöllum brann, þegar
skammt var liðið nætur.
Slíkum atburður er hörmu-
legri en svo, að orðum verði
yfir komið. í einu vetfangi er
í burtu svipt traustum forustu-
manni, sem um langan aldur
hefuf staðið í fylkingarbrjósti
og verið í fyrirsvari í þjóðlífi
voru, og með honum ágætri
konu háns, er við hlið hans hef-
ur staðið með sæmd og prýði,
og ungum sveini, sem var yndi
þeirra og eftirlæti. Hér er skarð
fyrir skildi, en á þessari stundu
kenfst ekki annað að í huga vör
um en sorg og samúð. Það er
stundum sagt að íslenzku þjóð-
inni sé helzt að líkja við stóra
fjölskyldu. Sannleik þeirra orða
skynjúm vér 'bezt á stundum
mikilla tíðinda, til gleði eða
sorgar. Þjóðin er harmi lostin
og syrgir forsætisráðherrahjón
sín. Ég mæli fyrir munn allra
landsmanna, þegar ég læt í ljós
djúpa hryggð mína og votta
börnum og allri fjölskyldu
þeirra hjónanna samúð, svo og
öllum þeim öðrum, er nú syrgja
sveininn unga.
(Frá skrifstofu
forseta íslands).
Veiðileyfi í Másvatni
BLAÐIÐ hefur verið beðið að
geta þess, að veiðileyfi í Más-
vatni í S.-Þing. fyrir landi jarð-
anna Máskots og Víða, kosti kr.
200.00 fyrir stöngina á dag, fyrst
um sinn, og eru veiðileyfin seld
í Máskoti.
Hér er um að ræða stangveiði
á bökkum vatnsins, 6—7 km.
En auk þess munu bátar verða
leigðir. í vatninu veiðist bæði
urriði og bleikja. Góð tjaldstæði
eru nærtæk. □
Félagssamband Framsóknarmanna í Norður-
landskjördæmi eyslra
Skoðanakönnun fyrir alþingiskosningar.
Uppl. og leiðbeiningar fyrir kjósendur.
1. Skoðanakönnunin fer
fi-am dagana 29. til 31. ágúst
að báðum dögum meðtöld-
um. Skóðariakönnun skal
lokið að kvöldi 31. ágúst og
skulu atkvæðaseðlar þá hai'a
borizt trúnaðarmönnum.
2' Skoðanákönnunin skál
verá tveimskonar: a. alls-
heriarkönnun (sahieiginleg
um allt kjördæmið), b. sér-
svæðakönnun (sér fyxif
gömlu 'kjördæmin hvert uiri
sig). Kjörgögn (átkvæðaf
seðlar, umslög o. s. frv.) eru
gerðir í samfæmi við þettai
— Kjósendur eru yinsamlega
beðnii' að fegta sér i minni
muniiiri á allsberj arkönnmi
og sérsvæðakönnun, Sbr,
lið hér á eftir.
4
3. Atkvæðisrétt hafa að
sjálfsögðu allir félagsbundnir
Fraxnsóknarmenn í kjördæm
inu, sem hafa kosningarétt á
þessu ári, svo og aðrir kosn-
ingabærir í kjördæminu, þ.
á. m. þeir, sem verða 20 ára
á þessu ári, ef þeir óska að
taka þátt í skoðanakönnun
á veguiri Framsóknarflokks-
ins. M- o. o.: Skoðanakönn-
unin er ekki fastbundin við
svoriefjida, flokksbundna
merin. ' ,
4. f allsherjaxkönnuninni
er yfifleitt gert ráð fyrir, að
kjósandi velji 6 menn. Gerir
'hann -það með því að raðá í
.íöiuröð hinum skráðu nöfn-
um,; sem á atkvæðaseðlinum
standa, éðá bæta við nýjurn
nöfriurii,. ef hann kýs það
heldþr,•En-aldrei skal núm-
eiá; við'JÍÉiii nöfn en sex. —•;
f , sérsváeðakönnuninni b.er
kjósanda að greiða atkvæði
um það, hver hann kjósi að
skipi eitt af aðalsætum á
framboðslista við alþingis-
kosningar sem sérstakur full
trúi hlutaðeigandi svæðis
(gamla kjördæmis).
5. Ef kjósandi er i ein-
hverjum vafa um, hvernig
bann eigi að bera sig að við
kosningar þessar, þá er hann
vinsamlega beðinn að leita
sér fyllri upplýsinga og leið-
beininga hjá kunnugri mönn
um.
6. Aðalmarkmið skoðana-
könnunarinnar er að efla lýð
ræðislegt ákvörðunarvald í
Framsóknarflokknum, —
gefa sem flestum ábuga-
mönnum tækifæri til þess að
eiga hlut að mikilvægum
ákvörðunum innan Fram-
sóknarflokksins. — Þátttak-
endum í skoðanakönnun er
því ærinn réttur fenginn, og
er þess vænzt, að kjósendur
notfæri sér hann og virði
einnig þann trúnað, sem í
slíkum rétti er fólginn.
F. h. framboðsnefndar
Haraldur M. Sigurðsson,
Munur á synlóníu og stefi lugls er
munur á magni en ekki g
Ræða H. Laxness við setningu Listahátíðar
Framkvæmdanefnd fyrstu al-
þjóðlegu listahátíðarinnar á ís-
landi hefur sýnt mér þann heið-
ur að bjóða mér að taka til máls
við þessa setningarathöfn hátíð-
arinnar. í þessum örfáum orð-
um, sem ég tel mér skylt að
segjla í þafokklætisskyni fyrir
þetta boð, tala ég vitaskuld um
fram allt í nafni mín sjálfs. Ég
vona þó að ég tali einnig í nafni
margra listunnenda þegar ég
segi að því færri orð sem höfð
séu um listirnar á kostnað list-
anna sjálfra, og því færri tölur
sem settar eru á til þess að út-
skýra þær ellegar lofa þær,
þeim mun betra. Mestöll útskýr
ing á list orkar á listblinda
menn eins og útskýringar á guð
fræði orka á trúlausa menn, en
listrænir menn aftur á móti
vilja sjá list og heyra list, en
ekki hlusta á orðalengingar um
list.
Vert er að gefa því gaum að
það sem við erum vanir að kalla
menningarþróun, hvað sem það
þýðir nú, og er þá þar í inni-
falin aukin vísindaleg þekking,
hagvöxtur svonefndur, almenn
auðsæld og ódýr neysluvara að
minnstakosti í þessum parti
heimsins, þá hafa þessar fram-
farir yfirleitt ekki, svo vitað sé,
orðið til þess að efla sköpunar-
mátt í listum. Meira að segja
list úr fornöld, frá þjóðflokkum
sem við mundum telja að verið
■hefðu fáfróðir og snauðir, þeirra
list stendur í meginatriðum,
stundum einnig í smáatriðum,
ekki lægra en heimslistin núna
jafnvel hjá þeim þjóðum sem
hafa sett sér það markmið að
sigra aðrar þjóðir í framförum
og menningarþi'óun. Til sönn-
unar þessu eru listaverk sem
fundizt hafa jafnvel frá fornum
tímabilum jarðsögunnar, að ég
ekki nefni þau ókynstur af stór-
fenglegri list sem til er frá for-
sögulegum tíma, það er að segja
tíma áður en mannkynið verð-
ur til í sagnfræðilegum skiln-
ingi. f öllum heimsálfum er til
ágæt list frá tímum áður en sög
ur hefjast. Ég skal aðeins minna
á list þá úr forneskju sem okkur
evrópumörinum er skyldust,
bæði málverk og höggmyndir
frá ísöld álfunnar, og verður
fundin á svæðum nær Miðjarð-
arhafi, sem lágu sunnan við ís-
aldarjöklana miklu. Þessa mynd
list sáu menn ekki né tóku
mark á henni fyrr en á okkar
tímum, og tiltölulega nýjar
mega kallast þær rannsóknir
sem leitt hafa í ljós aldur þess-
arar listar frá frumtíð mann-
kyns, það er að segja frá eldri
steinöld, fyrir tugum árþús-
unda, þegar í Miðjarðarhafs-
löndum bjuggu veiðimenn í
'hellum. Það er mín skoðun, að
vísu súbjektíf og ég ræð öðrum
mönnum til að taka hana með
fyrirvara, að engin myndgerð á
vorri menningaröld hafi náð
ofurmennsku í snilldarbragði
viðlíkri þeirri sem auðkennir
myndlist ísaldar-Evrópu á því
sviði sem hún markaði sér fyrir
tugþúsundum ára í jarðhellum.
Mikið af mvndgei'ð þessari virð
ist vera helgilist sprottin upp
bjá mönnum sem trúðu á dýr,
enda er belgimyndlist Evrópu
frá blómaskeiði kristindómsins
á miðöldum og frammí renisans
sú myndlist sem að mikilleik og
upphafningu er líkjandi við ís-
aldai'listina í hellunum í Alta-
mira og Lescaux. Manni kemur
sistínska kapellan líka óhjá-
kvæmilega í hug við skoðun
þessara fornmynda, — þó er það
út í hött að bera saman nokkur
tvö verk þar sem birtist algert
fullveldi mannsins yfir rniðli
sínum.
Á dögunum bar mér fyrir
augu grein í listtímariti þar sem
skandinaviskur listamaður í leir
kerasmíði segir af ferðum sín-
um í Norður-Afríkú. Hann hitti
þar fyrir sér hálfbera menn í
eyðimerkuiþorpum, sitjandi í
forsælu, önnum kafnir að búa
til hálistræn leirker í höndun-
um án þess að hafa nokkurn-
tíma heyrt talað um listskóla,
því síður listaháskóla: höfðu
reyndar ekki heldur orðið fyrir
þeirri hremmingu þar í eyði-
mörkinni að vera látnir læra
lestur og skrift.
Tvær listakonur sem ég
þekkti fóru til Norður-Ameríku
í stríðinu að læra þessa sömu
göfugu list keramik, sem verið
hefur ein höfuðgrein formlistar
frá upphafi mannkynsins. Þær
héldu að auðv.elt væri að ná
inngöngu á háttstæðum listskól-
um í Ameríku til að;nema þessa
fögru list. Þeim.var sagt að ef
þær vildu fást við leihkerasmíð
skyldu þæi- fá sér vinnu í verk-
smiðju þar sem búinn er til
■borðbúnaður. í slíkum verk-
smiðjum er ekki borgað hátt
kaup. Þær fundu ekki listamenn
í leirkerasmíð í Norður-
Ameríku fyrr en í Arizona og
Mexíkó, þar eins og í Afríku
®iym
sátu ólæsir ölmusumenn á gang
stéttunum, indíánar, og voru aá
handsmíða og selja fyrir fáeina
aura listfögur leirker, svo fáséð
að þessum listakonum virtist
vonlaust að leika þá list eftir
nema stunda nám á listháskól ■
um árum saman.
í ýmsum háþróuðum menn-
ingarlöndum er svo margt skrif
að og skrafað um listir, oft á
lærðri en nokkuð marklítili.
golfrönsku, að maður er.hrædd ■
astur um að það gleymist acS
búa til listina sjálfa fyrir lát-
unum í skriffinnunum. Ég veit
ekki hvort listamenn sjálfir lesa
þetta mikla skrafelsi um list eða
ger.a sér það ómak að reyna aíí
ráða sjargon um list; óskandi
að þeir gerðu það ekki, þei 1
gætu farið að halda að það væi .
nóg að skrifa um list og þyrft .
ekki að vera. að búa hana tii.
Það vill við brenna að í lönd •
um þar sem menn eru sérstak ■
lega fimir í listaheimspeki, þa
vilji listin sjálf verða dálítið a :
sama tagi og hið lærða orða •
gjálfur. Við þurfum sem betu •
fer ekki að kvarta yfir því a '
á íslandi drukkni listimar
lærðri ónytjumælgi eða verð.
samdauna henni; okkar vanda ■
mál eru önnur.
Margur mun fagna því að : \
þessari fyrstu alþjóðlegu lista ■
hátíð íslands eigum við ekk .
sjálfir að tala, né heyra aðr .
menn tala um list, heldur verð ■
ur hér gengið beint að kjarn .
hlutanna sem er listsköpuni .
sjálf. Hér hafa þeir menn eini ■
verið til kvaddir sem mun .
þyrma okkur við ofmiklu tal ,
Það er hamingja okkar núna ai i
hafa. fengið hingað tii okkc. .'
nokkra þá meistara heimslista :
innar, sem hvert listrænt hjart ,
fer að slá örar af því einu a :
heyra nöfn þeirra nefnd. Listii .
er sköpun sem gerir orð mark •
laus. Ég vona að hér iái Iisti .
að tala beint við sálina.
Blóm er svo sterkt að það n. i
upp frá dauðum og svo veik j
að barn getur plokkað það
sundur. Það er ekki þörf a< ■
segja fleira um blóm í einu; þó
mætti bæta því við að blom e :
umfram allt. raunverulegt. Aít. ■
ur á móti hættir blómið að vera
til um leið og á að fara að út •
skýra það. Sama máli er a-!
gegna mn myndlistina, sem e.-.’
(Framhald á blaðsíðu 7).
Austurþýzkur skuttogari í Akureyrarhöfn. (Ljósm.: E. E J